Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1991, Qupperneq 25
FÖSTUDÁGUR 8. FEBRÚAR 1991.
33
Lífsstfll
Tómatar
Verð í krónum
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Tómatar og paprika
hækka í verði
- litlar breytingar á öðrum tegundum
Neytendasíða DV kannaði að þessu
sinni verð á grænmeti í eftirtöldum
verslunum; Bónusi Faxafeni, Fjarð-
arkaupum Hafnarfirði, Hagkaupi
Skeifunni, Kjötstöðinni Glæsibæ og
Miklagarði við Sund. Bónusbúðirnar
selja sitt grænmeti í stykkjatali á
meðan hinar samanburðarverslan-
irnar selja eftir vigt. Til að fá saman-
burð þar á milli er grænmeti í Bón-
usi vigtað og umreiknað eftir meðal-
þyngd yfir í kílóverð.
Umtalsverð hækkun varð á meðal-
verði á tómötum milli vikna og nam
hækkunin 15%. Meðalverðið er nú
271 króna. Hagstæðasta verðið á tó-
mötum var í Bónusi en þar var kíló-
verðið 158 krónur. Á eftir komu Kjöt-
stöðin 258, Fjarðarkaup 268, Hagkaup
298 og Mikligarður 374. Munur á
hæsta og lægsta verði var 137%.
Meðalverð á gúrkum hækkaði lítið
eitt eða um 1% frá í síðustu viku og
er nú 294 krónur. Gúrkur voru ódýr-
astar í Bónusi á 168, síðan kom Hag-
kaup 299, Fjarðarkaup 326, Mikli-
garður 328 og Kjötstöðin 350. Munur
á hæsta og lægsta verði á gúrkum
var 108%.
Örhtil lækkun varð á meðalverði á
sveppum sem nam 1% og er það nú
493 krónur. Sveppir voru ódýrastir í
Bónusi, en þar var kílóverðið 326
krónur. Kjötstöðin kom næst með
448, síðan Mikligarður 545, næst Hag-
kaup 564 og loks Fjarðarkaup 580
krónur. Munur á hæsta og lægsta
verði á sveppum var 78 af hundraði.
Meðalverð hækkaði um 2% á
grænum vínbeijum frá í síðustu viku
og er það nú 349 krónur. Græn vín-
ber voru á hagstæðasta verðinu 1
Bónusi á 233 krónur. Næst kom verð-
ið í Fjarðarkaupi 315, Hagkaupi 355,
Miklagarði 366 og Kjötstöðinni 475.
Munur á hæsta og lægsta verði á
grænum vínbeijum var 104%.
Töluverð hækkun varð á meðal-
verði á grænni papriku. Hækkunin
nam 17% og er meðalverðið í þessari
viku 323 krónur. Lægsta verðið á
papriku var í Bónusi 181, á eftir
fylgdu Fjarðarkaup 316, Mikligarður
341, Hagkaup 379 og Kjötstöðin 398.
Munurinn á hæsta og lægsta verði á
grænni papriku var 120%.
Sama meðalverð er á kartöflum í
þessari viku og þeirri síðustu eða 77
krónur kílóið. Lægsta verðið á kart-
öflum var í Bónusi 55 krónur, næst
kom Fjarðarkaup 75,50, Hagkaup 82,
Mikligarður 82,50 og Kjötstöðin 89
krónur. Það munaði 62 hundraðs-
hlutum á hæsta og lægsta verði á
kartöflum.
Meðalverð á blómkáli var eina
meðalverðið sem lækkaði að ráði
milli vikna. Lækkunin nam 18 pró-
sentum og er það nú 188 krónur.
Lægst var verðið í Fjarðarkaupi 99
krónur, síðan kom Mikligarður 173,
Kjötstöðin 232 og Hagkaup 249. Blóm-
kál fékkst ekki í Bónusi. Verðmunur
á hæsta og lægsta verði nam 152%.
Sama meðalverð er á hvítkáli nú
og í síðustu viku, 103 krónur kílóið.
Hvítkál var ódýrast í Bónusi á 95,
skammt á eftir Mikligarður 98, Fjarð-
arkaup 99, Hagkaup 109 og Kjötstöðin
115 krónur. Tiltölulega lítill munur
var á hæsta og lægsta verði á hvít-
káli, en hann nam 21 af hundraði.
Lítil lækkun varð á meðalverði á
gulrótum. Lækkunin var 5% og er
meðalverðið nú 135 krónur. Gulræt-
ur voru á hagstæðasta verðinu í Bón-
usi á 97, Fjarðarkaupi næstlægst á
130. Verðið í Hagkaup var 138, Mikla-
garði 144 og Kjötstöðinni 165 krónur.
ÍS
Blómkál var eina tegund grænmetis þar sem meðalverðið lækkaði að ráði milli vikna i könnun DV.
Sértilboð og afsláttur:
Saltkjöt og baunir
í Bónusversluninni Faxafeni var
saltkjöt frá Kjamafæði á tilboðsverð-
inu 399 krónur kílóið enda sprengi-
dagur í nánd. Einnig var hægt að fá
hjá þeim gular baunir frá Kötlu 400
g á 49 krónur, bacon frá Kjamafæði
á 595 krónur kílóið og Ópal negra-
kossa, sex stykki saman í bakka, á
99 krónur.
í Fjarðarkaupi var á tilboðstorginu
hægt að kaupa ijómaskyr, 150 g, á
45 krónur, vanilluíspinna, 10 saman
í pakka, á 249 krónur, Sviss Miss
súkkulaðidrykk, 8 í pakka, á 198
krónur og loks kók í tveggja lítra
flöskum á 149 krónur stykkið.
Meðal sértilboða í Hagkaupi Skeif-
unni voru rófur á 45 krónur kílóiö
og Pillsburys hálfbaunir, 454 g, á 69
krónur pakkann sem tflvahð er að
nota á sprengidag. Auk þess vom
Kind and Gentle bleiur, 3 tegundir,
40-44 stykki, á 899 krónur og ör-
bylgjupopp frá Favorite á 99 krónur
pakkinn.
í Kjötstöðinni Glæsibæ vom guiar
Pillsbury baunir, 'A kg, á 79 krónur
pakkinn og 250 g af kalifornískum
rúsínum, steinlausum, á 52 krónur.
Gul epli voru á afsláttarverði, 59
krónur kílóið, og sömuleiðis nektar
appelsínusafi, 11, á 94 krónur.
Cirkel kaffi 500 g kostaði 219 krón-
ur í Miklagarði við Sund. Auk þess
var tilboðsverð á Honey Nut Cheeri-
os, 400 g, 221 króna, Hy Top kókó-
malt, 452 g, kostaði 189 og hægt var
að gera góð kaup í 6 htra mslakörf-
um með fótstigi frá Curver, en þær
kostuðu 645 krónur stykkið.
-ÍS
SVEPPIR
-1%
I
‘O
0Q
l
580 326
VINBER
+2%
I
'O
0Q
I
475 233