Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1991, Side 28
36
FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991.
Jarðarfarir
Sighvatur Bjarnason málarameistari
lést 29. janúar. Hann fæddist á Akra-
nesi 17. september 1911. Foreldrar
hans voru Bjarni Gíslason og Helga
Sigríöur Bjarnadóttir. Sighvatur
lauk námi í málaraiön og fór að því
loknu utan til Danmerkur og Svíö-
þjóöar og dvaldi þar viö störf og list-
nám í um áratug. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Jórunn Ármannsdóttir.
Þeim hjónum varö þriggja barna
auðið. Útfór Sighvats veröur gerö frá
Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Jóhann L. Gíslason skipasmíða-
meistari lést 31. janúar. Hann fædd-
ist á Bíldudal 20. desember 1911. For-
eldrar hans voru Gísli Jóhannsson
og Leopoldína Guömundsdóttir. Eft-
irlifandi eiginkona hans er Fjóla
Símonardóttir. Jóhann starfaði
lengst af viö bátasmíðar. Útför hans
verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju
í dag kl. 15.
Stefán Þorvaldsson lést 31. janúar.
Hann fæddist 28. mars 1928. Hann
lauk prófi í framreiðslu áriö 1945 og
fór þá í framhaldsnám til Sviss þar
sem hann lagði stund á nám í hótel-
og veitingahúsarekstri. Einnig fór
hann síðar til Bandaríkjanna og tók
þar námsbraut í alhliða barfræðum
og við barþjónustu starfaði Stefán
mestan hluta ævi sinnar. Eftirlifandi
eiginkona hans er Guðrún Jónsdótt-
ir. Útför Stefáns verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Magnús Guðjón Stefánsson, Klapp-
arstíg 6, Sandgeröi, lést á heimili sínu
aðfaranótt 4. febrúar. Jarðarförin fer
fram frá Útskálakirkju, Garði 9. fe-
brúar kl. 14.
Vernharður Sveinsson, fyrrverandi
mjólkursamlagsstjóri, Laugargötu 2,
Akureyri, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 11. fe-
brúar kl. 13.30.
Garðar Pétur Magnússon frá Akur-
gerði, Háholti 28, Akranesi, verður
jarðsunginn frá Akraneskirkju í dag,
föstudaginn 8. febrúar, kl. 14.
Helga Jónsdóttir, Frambæjarhúsi,
Eyrarbakka, sem lést 30. janúar sl.,
verður jarðsungin frá Eyrarbakka-
kirkju laugardaginn 9. febrúar kl.
13.30.
Kristján Fjeldsted bóndi, Ferjukoti,
verður jarðsunginn frá Borgames-
kirkju laugardaginn 9. febrúar kl. 14.
Bílferð verður frá BSÍ kl. 11.
Guðjón Pétur Tryggvason, dvalar-
heimilinu Jaöri, Ölafsvík, verður
jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju
laugardaginn 9. febrúar kl. 14.
Tiikyiiniiigar
Jólabónus Lukkutríós
Þann 1. febrúar sl. var dregið í jólabónus
Lukkutriós. Vinningar komu á eftirtalin
númer: 1 glæsileg skiðaferð til Austurrík-
is, samtals að verðmæti kr. 190.000, nr.
198.975. 2 Macintosh Classic 1 tölvur,
hvor á 110.000, nr. 148.880, og 153.294. 30
konfektkassar, hver á kr. 3.000, nr.: 4691,
6519,9594,31940,37143,53960,84918,85070,
85210, 102488, 112749, 114733, 122055,
122309, 123867, 128672, 137576, 160093,
178048, 182255, 211549, 213738, 216310,
223439, 232078, 235818, 247281, 248533,
253844, 259650. Samtals verðmæti vinn-
inga kr. 500.000.
Kvæðamanna-
félagið Iðunn
verður með þorrablót að Hallveigarstöð-
um laugardaginn 9. febrúar nk. og hefst
það kl. 20 með borðhaldi. Á hátíðinni
verður flutt fjölbreytt skemmtidagskrá í
tali og tónum. Blótsgestiur kvöldsins
verður Þórður Tómasson, safnvörður í
Skógum.
Félag eldri borgara
Opið hús í dag í Risinu frá kl. 13. Frjáls
spilamennska. Göngu-Hrólfar hittast á
morgim, laugardag, í Risinu kl. 10. Dans-
kennsla í Risinu á laugardag. Kl. 14 fyrir
byrjendur og kl. 15.30 fyrir lengra komna.
Einnig er danskennsla í Nýja danskólan-
um kl. 16.30 að Ármúla 17. Opið hús í
Goðheimum við Sigtún á sunnudag. Kl.
14 frjálst spO og tafl, ki. 20 dansað. Aðal-
fundur félags eldri borgara verður hald-
inn á Hótel Sögu, sunnudaginn 17. febrú-
ar nk. kl. 14.
Ferðaáætlun Ferða-
félags íslands
Ferðaáætlun Ferðafélags íslands fyrir
árið 1991 er komin út og í henni er að
finna upplýsingar um ferðir Ferðafélags
íslands, Ferðafélags Fljótsdalshéraðs,
Ferðafélags Akueyrar og Ferðafélags
Skagfirðinga. Ferðafélagið skipuleggur
rúmlega tvö hundruð ferðir á þessu ári
sem skiptast í dagsferðir, helgaiferðir og
sumarleyfisferðir. Mest er fjölbreytnin í
dagsferðum enda eykst fjöldi þess fólks
ár frá ári, sem vill rölta með félaginu á
sunnudögum, og getur þá valið um
gönguferð á láglendi, fjöll eða í fjöru.
Urval á skipulögðum helgarferðum hefur
aukist og slíkar ferðir alla mánuði ársihs
þó flestar á sumrin, fjölskylduferðir til
Þórsmerkur og Landmannalauga eru í
júlí og ágúst. Skipulagðar ferðir um
„Laugaveginn" þ.e. frá Landmannalaug-
um til Þórsmerkur verða 18 í ár og auk
þeirra verður um að velja tuttugu aðrar
sumarleyfisferðir. Lengd sumarleyfis-
ferða er frá 4 dögum upp í 10 daga og eru
þetta ýmist öku- og gönguferðir eða
gönguferðir með viðlegubúnað.
Fundir
Aðalfundur Gerplu
í Kópavogi
verður haldinn fimmtudaginn 14. febrúar
kl. 20.30 í íþróttamiðstöð ISÍ í Laugardal.
Venjuleg aðalfimdarstörf.
■ ? :
Sjö lionsklúbbar sam-
einastumgjöf til
Greiningarstöðvar ríkisins
Lionsklúbbamir Fjölnir, Freyr, Engey,
Eir, Týr, Víðarr og Lionsklúbbur Sel-
tjamamess færðu Greiningar- og ráð-
gjafarstöð ríkisins nýverið að gjöf hjálp-
artæki fyrir fótluð börn að verðmæti nær
ein milljón króna. Þ.á m. em hjólastóll,
baðstóll, baðlyfta og sérsmíðaðar kerrur.
Tækin em forsenda bættrar þjónustu við
alvarlega hreyfihömluð böm og ung-
menni en unnið er að því við Greiningar-
stöðina að koma á regiubundnu eftirliti
með þessum hópi fatlaðra sem jafnan
þarfnast mikillar og samhæfðrar þjón-
ustu af hálfu sérfræðinga á mörgum svið-
um. Lionsfélagar hafa áður stutt ötullega
við Greiningarstöðina. Lionsklúbburinn
Týr hefur nánast frá upphafi starfsem-
innar í Kjarvalshúsi, þ.e. í háifan annan
áratug, gefið fjölda gjafa og klúbbfélagar
lagt af mörkum vinnu í þágu starfsem-
innar.
Meiuiiiig__________p
„Dimmt er lífið
ogdauðinn“
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt tónleika í Háskóla-
bíói í gærkvöldi þar sem fluttar voru Myndbreytingar
eftir Richard Strauss og Ljóð af Jörðu eftir Gustav
Mahler. Hljómsveitarstjóri var Perti Sakari og ein-
söngvarar Ruthild Engert-Ely frá Þýskalandi og Seppo
Ruphonen frá Finnlandi.
Tónleikarnir hófust á verki Strauss sem er nokkuð
óvenjulega útsett þar sem strengjasveit er skipt í hópa
fimm hljóðfæra að fráteknum kontrabössum sem eru
þrír. Þetta gefur heldur dökkan lit sem lífgað er upp
á með mörgum einleiksbútum sem skiptast milh hljóð-
færaleikaranna. Verkið er fallegt og vel gert en allt
of langt miðað við innihald og of einslita. Flutningur
hljómsveitarinnar var svolítið misjafn, stundum nokk-
uö góður en á öðrum stöðum óskýr og jafnvel óhreinn.
Vankantar hljómburðar Háskólabíós koma skýrt fram
í verki af þessu tagi. Nú má segja það með sanni eftir
þær ágætu almennu framfarir sem hljómsveitin hefur
tekið á undanförnum árum aö ekkert stendur henni
eins fyrir þnfum og hljómburður hússins. Það er all-
sendis ótækt aö bíða í þá fyrirsjáanlegu áratugi sem
það mun taka að byggja fína tónleikahúsið sem hefur
verið í teikningu undanfarin allmörg ár. Hér þarf eitt-
hvað að gerast strax.
Ljóð af jörðu er samið við þýskar þýðingar á kín-
verskum ljóðum frá 8. öld. Lítiö fer fyrir því sem kaha
mætti kínverskan anda í verkinu þrátt fyrir þetta.
Tónlistin er eins þýsk og hún getur veriö með traustan
grunn í Wagner gamla og er ekkert verri fyrir það.
Hins vegar tekst Þorsteini Valdimarssyni ágætlega að
kalla fram stemningu sem í huga íslendings a.m.k. ht-
ur kínverskt út, eins og t.d. í ljóði Li-Po um lystihúsið
í tjöminni sem er úr grænu og hvítu postulíni; „Mas-
andi sitja þar málvinir að drykkju / í saumlögðum
kirtlum / sumir aö skrifa kvæði. // Silkiermum sveipar
upp í gáska / og silkipottlok / renna aftur á hnakka."
Þetta verk Mahlers er íburðarmikið að því leyti að
mjög stór hljómsveit er til kvödd og lengi framan af
gerist ekki mikið sem gripur athyglina eða afsakar
tilstandið. í síðasta ljóðinu, Kveðjustund, kemur hins
vegar réttlætingin á öhu saman. Hér kemur snilld
Mahlers fram svo að segja í hnotskurn. Efniviöurinn
er lítill, örfá einföld stef sem eru endurtekin aftur og
aftur í þrástefsstíl en aldrei þó alveg eins heldur sí-
feht lítillega breytt eða hagrætt. í þessari tilbrigðahst
birtist andríki tónskáldsins á glæsilegastan máta í
hljómsveitarútsetningunni, sem er í senn frumleg,
listileg og óendanlega fjölbreytt. Hér mæddi mjög á
Tónlist
Finnur Torii Stefánsson
tréblásurum hljómsveitarinnar sem voru mun fjöl-
mennari en venjulega og komust þeir frá þeim starfa
með prýöi.
Flutningur hljómsveitarinnar var annars nokkuð
misjafn og stundum losaralegur einkum framan af.
En í síðasta laginu féllu hlutir betur saman eins og
fyrir áhrifamátt tónhstarinnar og skapaðist þá mjög
góð stemmning sem greinilega hreif áheyrendur. Svip-
að gilti um söngvarana. Tenorinn Ruohonen söng að
vísu sómasamlega frá byrjun þótt án tilþrifa væri.
Altsöngkonan Engert-Ely virtist hins vegar aldrei ætla
að komast í gang og mátti fínna henni flest til foráttu
og einungis af kurteisisástæðum sem ekki er farið frek-
ar út í þá sálma nú. í Kveðjustundinni hins vegar var
sem söngkonan væri loks upphituð og tók hún að losa
sig við agnúana einn af öðrum þar til hún var loks
farin að synga af hreinni innlifun og beint til hjarta
áheyrenda sem nokkrum mínútum áður höfðu verið
fullir efasemda og vangaveltna um hvort ástæða væri
til að flytja inn svona söngkonu með ærnum tilkostn-
aði alla leið frá Þýskalandi. Nú var þessi sama kona
skyndilega orðin hetja allra. Svona eru nú vegir listar-
innar.
Bíóhöllin: Rocky 5 ★★
Grýtt leið af tindinum
Rocky V byijar strax á eftir bardaganum við rúss-
neska risann Drago, sem var svo eftirminnilegur fyrir
5 árum, en í staö farsæls endis þeirrar myndar fáum
við að sjá hvemig Rocky skelfur og titrar og á erfitt
um mál. Höfuðhöggin hafa tekið sinn toll og hann lýs-
ir því yfir að hann sé sestur í helgan stein. Það er
hins vegar búið að selja steininn undan honum því
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
svikull lögfræðingur glutraði'niður öllum auöæfum
Ijölskyldunnar. Þau snúa aftur í gamla hverfíð og
Rocky tekur að sér að þjálfa ungan kýli, Tommy Gunn,
í von um frama á öðra sviöi. Ágjarn umboðsmaður
(Gant) er harðákveðinn í að koma Rocky aftur í hring-
inn og beitir til þess öllum brögðum, jafnvel að koma
upp á milli þeirra Tommy, sem Rocky hefur tekið ást-
fóstri við um leið og hann vanrækir son sinn, Rocky
Jr. (Sage Stallone).
í stað þess að halda áfram með yfirkeyrðar bardaga-
myndir eins og síðustu tvær Rocky-myndirnar, þá ein-
beitir Stallone, sem skrifaöi einnig handritið, sér nú
að mannlegu hhðinni á Rocky sem hefur verið afskipt
síöan í fyrstu myndinni. Auk þess hefur John G.
Alvidsen tekið við leikstjórastólnum af Stallone og
hjálpar það við að koma seríunni aftur niður á jörðina.
Sagan er beinagrind ein og fullnægir kröfum um
ágætlega smíðað handrit. Það vantar að vísu ahan
frumleika og kraft og innsæi en í staðinn er það vand-
ræðalaust og fylgir fast settri sögu sem hægist aldrei
á. Stallone slær aldrei feUnótu en hann er líka bara
að spila Gamla Nóa.
Leikhópurinn stendur sig líka vel. Stallone hefur
sennilega ekki veriö betri frá því í upphafi ferhs síns.
í þetta skiptið er Rocky aftur orðinn hálfgerður ein-
feldningur, auðtrúa, sem aUtaf, en líka Utið ringlaður.
í fyrsta sinn fékk ég það á tilfinninguna að Stallone
væri hættur að taka sig of alvarlega og þyrði að taka
áhættu. Litla, en áhættu samt. Alvöru boxarinn
Tommy Morrison er furðugóður sem Tommy Gunn,
Rocky Balboa setur upp ögn fyrirferðarminni hanska
í 5. og síðustu lotunni.
síðasta hvíta vonin í hringnum og sömu sögu má segja
um Sage, 13 ára son Stallone. Richard Gant stelur öll-
um sínum atriðum sem hinn ákafi umboðsmaður sem
notar sér hvert tækifæri til þess að koma Rocky aftur
í hringinn.
Rocky 5 er alls ekki slæm en hverjum er ekki sama?
Stallone hefur tekist að gera óþörfustu mynd ársins
en hann gerir hana skammlaust.
Rocky V (Band. 1990)
Handrit: Sylvester Stallone (Cobra, Rocky 1-4).
Leikstjórn: John G. Alvidsén (Rocky, Karate Kid 1-3)
Kvikmyndataka: Steven Poster (Someone to Watch Over Me)
og Victor Hammer.
Leikarar: Stallone, Talia Shire (Godfather), Burt Young, Ric-
hard Gant (The Freshman, Internal Affairs), Tommy Morri-
son, Burgess Meredith, Sage Stallone.