Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991.
Fréttir
Kvosarskipulagið:
Gömul hús og kofar
hverfa úr miðborginni
- Qöldi þekktra húsa vikur fyrir breyttri legu á Tryggvagötu
Eimsklp
Bifreiöa-
igeymsla
Strætisvagnar
Veitinga
rekstur/
iammage
þjónustumiðstöð ásamt bifreiða-
geymslu. Verða áfangastöðvar SVR í
Hafnarstræti og Lækjargötu þá flutt-
ar þangað.
Að sögn ívars Eysteinssonar,
starfsmanns Borgarskipulags, er
gert ráö fyrir að norðan við hús
Rammagerðarinnar að Hafnarstræti
19 verði reist einlyft verslunar- og
veitingahúnæði og að Hafnarstrætið
verði lokað fyrir umferð, frá Lækjar-
götu að Pósthússtræti.
ívar segir kvosarskipulagið einnig
gera ráð fyrir að Hafnarstræti 21, þar
sem Zimsen og Borgarbílastöðin eru
til húsa, og bensínstöð Esso, hverfi á
brott. Sama gildir um Pylsuvagninn,
hús Svörtu pönnunar og önnur hús
austast í Tryggvagötu.
-kaa
Bakhúsið að Hafnarstræti 19 og
nokkur kofaskrifli, sem þar eru á
lóðinni, voru rifin í vikunni. Um er
að ræða skúra, meðal annars gamla
kolageymslu, og tvílyft timburhús
sem grunnur var lagður að árið 1875.
Húsið var upphaflega byggt af M.
Smith, kunnum athafnamanni og
kolakaupmanni í Reykjavík, en síðar
stækkað og endurbætt af Jóni O.V.
Jónssyni kaupmanni. Um aldamótin
voru þau hluti af Thomsens Maga-
síni.
Árið 1925 lét Helgi Magnússon
byggja þrílyft steinsteypuhús í klass-
ískum stíl á lóðinni fyrir framan það,
nú þekkt sem hús Rammagerðarinn-
ar. Síðan þá hefur lítið farið fyrir
þessu húsi og í bókstaflegri merk-
ingu fallið í skuggann af „nýbygging-
unni“ sem Einar Erlendsson húsa-
meistari teiknaöi.
í Kvosarskipulaginu frá 1987 er
gert ráð fyrir breyttri legu Tryggva-
götunnar og að í eystri enda hennar
norðanverðri verði strætisvagna- og
Bakhúsið að Hafnarstræti 19, við Koiasund, hefur nú verið rifið og mun
héðan í frá heyra sögunni til. Svipuð örlög bíða fjölda annarra húsa í ná-
grenninu samkvæmt Kvosarskipulaginu og til dæmis verður húsið að Hafn-
arstræti 21, Zimsen og Borgarbílastöðin, að víkja, enda mun Tryggvagatan
sveigja yfir grunn þeirra. DV-mynd S
BREYTINGAR A
TRYGGVAGÖTU
IJ Byggmgar
'%/ Lokaö fyrir umferð
Stjórnarskráin:
skipting
Alþingis
Lagt hefur verið fram á Alþingi
frumvarp til stjórnskipunarlaga
um breytingar á stjórnarskrá lýð-
veldisins íslands. Þar er gert ráð
fyrir allnokkrum breytingum og
þeim ef til vill merkustum að
Alþingi verði ein málstofa i stað
tveggja og að Alþingi starfi alit
árið.
Gert er ráö fyrir að þetta frum-
varp verði samþykkt á þessu
þingi. Síðan hefur veriö rætt um
að Alþingi komi saman strax að
loknum kosningum í vor og sam-
þykki frumvarpið öðru sinni
vegna þess að tvö þing þurfa að
samþykkja breytingar á stjórnar-
skránni til þess að þær verði að
lögum. Þar með tæki breytingin
gildi þegar Alþingi kemur saman
næsta haust.
Som fyrr segir er gert ráð fyrir
að deildaskiptingu Alþingis verði
hætt og það starfi í einni mál-
stofu. Starfstíma Alþingis verði
breytt og þaö starfi allt árið. Sam-
komudagur þingsins verði færð-
ur frá 10. október til 1. október.
Frestur til þingrofs verður stytt-
ur þannig að ekki líði nema einn
og hálfur mánuður frá því til-
kynnt er um þingrof þar til þing-
kosningar fari fram. Þá eru
breytingar varðandi setningu
bráðabirgðalaga. Þau falla úr
gildi hafi Alþingi ekki samþykkt
þau eöa lokið afgreiðslu þeirra
innan mánaðar frá því að þau eru
sett.
Þá er í frumvarpinu gert ráð
fyrir því að taka megi alþingis-
mann fastan fyrir skuldir án leyf-
is þingsins. í rúma öld hefur slík
frelsissvipting verið óheimil.
Fellt er brott ákvæði um eiðvinn-
ingu þingmanna. Kveðiö er skýr-
ara á um meðferð fyrirspurna og
skýrslna á Alþingi.
Þetta má teþa helstu breyting-
arnar. Einnig er að fmna í frum-
varpinu smærri breytingar, sem
og orðalagsbreytingar á ýmsu er
varðar störf þingsins og siði sem
þarerhaldiöuppi. -S.dór
í dag mælir Dagfari_________________________
Álver, álver, hvar ert þú?
Nú er illt í efni. Álverið er á fór-
um. Álverið verður aldrei byggt.
Álverið sem átti að bjarga þjóðar-
hagnum, krötunum og atvinnulíf-
inu á Reykjanesi er að verða að
gjalti í höndunum á okkur.
Við ættum að vera búnir að tala
meir um þetta álver. Stjórnmá-
laumræðan hefur vart snúist um
annaö heldur en álver eða ekki ál-
ver. Ráðherrarnir eru búnir að æsa
sig ofan í rass vegna þeirrar gagn-
rýni sem fram hefur komið gagn-
vart álverinu. Jón Sigurðsson iðn-
aðarráðherra hefur lagt allt undir
og var í rauninni búinn að semja
um álver, áður en Davíð Oddsson
og Páll Pétursson gripu fram fyrir
hendur hans og tóku upp þráðinn.
Alþýðubandalagið er á móti álveri
en neyddist til að vera með því.
Sjálfstæðisflokkurinn er með ál-
veri en neyddist til að vera á móti
því. Jóhannes Nordal var búinn að
ganga frá samningum en neyddist
til semja upp á nýtt. Og þeir hjá
Atlantal hópnum voru svo gott sem
búnir aö ákveða að byggja þetta
álver en neyðast nú sennilega til
að hætta við bygginguna.
Annaðhvort hafa Atlantal menn-
imir haft okkur aö fíflum, eða þá
að við höfum haft þá að fíflum.
Fundir hafa verið haldnir ýmist
vestan hafs eða í Rúgbrauösgerð-
inni, London eða Atlanta og svo
hafa verið haldnir fundir til að
ákveöa að halda fundi og menn
hafa meira segja skrifaö undir að
þeir mundu skrifa undir og ekki
má gleyma fundargerðinni frægu,
þar sem þess var getið að sú fund-
argerð yrði staðfest á næsta fundi.
Svo var haldinn stærsti fundur-
inn hér heima, þegar alhr voru
kallaðir saman til að undirrita
samning um að þeir mundu undir-
rita samning ef samningar tækjust.
Þá varð uppi fótur og fit og Davíð
Oddsson fékk Pál frá Höllustöðum
og ahaballana í lið með sér til að
stöðva þessa samninga sem ekki
voru neinir samningar. Það var þá
sem ákveðið var að Davíð og Páh
gengju frá samningum sjálfir og
hafa þeir verið á stöðugu ferðalagi
síðan, þar sem frá því hefur verið
skýrt aö samningar hafi þokast en
þeir séu samt ekki komnir nærri
eins langt og fyrri samningar sögðu
til um.
Menn hafa hist í London til að
fara yfir stöðuna og ákveðið að
halda næsta fund i New York tU
að fara yfir þá stöðu sem skapast
hafði eftir að farið var yfir stöðuna
á fyrri fundi. Fór greinilega vel á
með þeim PáU og Davíð en þess
hins vegar ekki getið hvernig fór á
með þeim Páli og Davíð gagnvart
þeim mönnum sem þeir voru að
semja við. Enda algjört aukatriði
meðan þeir Páll og Davíð gátu talað
saman.
Allt miðaði þetta sem sagt í rétta
átt, þangað til sprengjan sprakk á
síðasta fundi. Þá kom nefnUega í
ljós að þaö hafði gleymst hvernig
fiármagna átti álverið og þeir hjá
Atlantal hópnum sögðu sem var að
þeir ættu enga peninga og hefðu
ekkert lánstraust og þeir gætu því
miður ekki byggt álverið fyrr en
vitað væri hvort þeir ættu fyrir
því. Þannig standa málin og engar
líkur eru auðvitað á því að pening-
ar fáist nema þá að íslendingar láni
Atlantal peninga tU að byggja álve-
rið fyrir sig en það kostar fleiri
fundahöld og fundargerðir og með-
an Persflóastríðið geisar geta Atl-
antal menn ekki ferðast vegna þess
að þeir eru svo ríkir og merkilegir
menn að þeir hafa ekki efni á því
að deyja frá öllum peningunum.
Já, nú eru góð ráö dýr fyrir þjóð-
arhag og krata og KaUa Steinar á
Reykjanesi sem búinn var að lofa
atvinnu út á atkvæðin. Og nú er
illt í efni fyrir Sjálfstæðisflokkinn
sem var með álveri en neyddist tíl
að vera á móti því meðan Davíð var
ekki í samninganefndinni. Það
verður líka hart í ári hjá Páli á
Höllustöðum sem var meö álveri
en á móti álveri, meðan ekki var
annað vitað en að álverið yrði
byggt. Nú getur hvorki Sjálfstæöis-
flokkurinn né Páll verið á móti ál-
veri sem ekki verður byggt og
kratarnir geta heldur verið með
álveri sem enginn hefur efni á að
byggja fyrir þá.
Svona getur farið fyrir góðum
málum sem ekki verða góð fyrr en
þau eru oröin vond. Þetta hafa
menn upp úr því að vera á móti
málum sem þeir eru með.
Dagfari