Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991. 5 Fréttir Skipulag Reykjavíkurhafnar: Miðbakki breikkaður um þrjátíu metra - lægi Akraborgarinnar færist til Nú er verið að leggja síðustu hönd á samvinnuverkefni borgar- skipulags, borgarverkfræðings og hafnarinnar um framtíðarskipulag hafnarsvæðisins og mun gamla höfnin og næsta nágrenni taka miklum breytingum frá því sem nú er. Reikna menn með að fram- kvæmdirnar kosti um um 300 millj- ónir króna á núvirði. Samkvæmt samþykktu Aðal- skipulagi Reykjavíkur 1984-2004 verður Vesturhöfnin áfram íiski- höfn, svo og hluti Austurhafnar- innar, og gert er ráð fyrir að Faxa- markaður verði áfram starfræktur þar. Miðbakki verður breikkaður um 30 metra og mun Geirsgata færast yfir á hann. Ein af ástæðunum fyr- ir að Miðbakki er breikkaður svo mikið er sú að menn gæla við þá hugmynd að grafa bílagöng undir bakkann. Það verk er hins vegar mjög kostnaðarsamt og tala menn um aö ódýrasta lausnin muni ekki kosta undir milljarði króna. Tryggvagatan verður húsagata og því ekki sú umferðargata sem hún er í dag eftir aö umferðarþungan- um hefur verið beint um Geirsgötu sem verður stofnbraut. i austurhluta Tryggvagötu verð- ur reist fjögurra hæða hús sem verður nýtt að hálfu sem aðstaða fyrir SVR og að hálfu sem bíla- geymsluhús. Grófin verður lokuð bílaumferð og eru tillögur um að hún verði gerð að gönguaðkomu fyrir hafnar- svæðið. Fyrirhugað er að gera við bryggj- urnar og er þaö verk raunar hafið því nú er unnið að þvi að endur- byggja Faxagarð en þar verður lægi Akraborgarinnar í framtíð- inni. Þar sem bifreiðastæði eru nú fyrir Akraborgina mun í framtíð- inni rísa bifreiöageymsluhús. Samkvæmt upplýsingum frá Hannesi Valdimarssyni hafnar- stjóra er ekki ljóst hvenær fram- kvæmdir á svæðinu hefjast að fullu. Nú er unniö við aö kynna þessi framkvæmdaáform í ráðum og nefndum borgarinnar og svo þarf að kynna þau fyrir hagsmuna- aðilum við höfnina. Að öllum lík- indum verður hafist handa innan eins eða tveggja ára. -J.Mar Leikfélag Akureyrar: Ættarmótið að nálgast metið Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Aösóknin hefur verið betri en við þorðum nokkru sinni að vona og við munum halda áfram sýningum fram undir mánaðamót," segir Þórey Að- alsteinsdóttir, fjárreiðustjóri Leik- félags Akureyrar, en leikritið Ættar- mótið eftir Böðvar Guðmundsson, sem félagið hefur sýnt að undan- fómu, er á góðri leið með aö verða það íslenskt verk sem mesta aðsókn hefur hlotið á Akureyri. Fimmtánda sýning var í gærkvöldi og fjórar sýningar eru eftir um helg- ina og er uppselt á þær allar og hefur verið uppselt á allar sýningarnar til þessa. Allt bendir til þess að sýning- arnar verði um 30 talsins áður en lýkur en þau íslensk verk, sem oftast voru sýnd til þessa, voru Piltur og stúlka árið 1988 og Fátækt fólk sem einnig er eftir Böðvar Guðmundsson voru sýnd 24 sinnum. Olíubirgðastöð Gönguleiö með útsýnisstað Fyllingar. Gert er ráð fyrir um 6 ha aukningu á land- rými fram til ársins 2004. Hafnsögu- bátar Sportbátahöfn Verbúðar- bryggjur Akraborg Smábátalægi \ Nýtt hringtorg Löndun smábáta Grófarbgkki --..„.MVRARGArX Miðbakki t Hugmynd að nýta hús Skipaútgerö- ar rikisins fyrir Landhelgisgæslu, Slysavarnafélagið eða Hafrann sókn. Strætisvagnar, bílageymsla DVJRJ Útgerð og þjónusta við fiskvinnslu Hugmynd er um að gera hringleið, gönguleið um Örfirisey með göngubrú yfir Eyjagarð Miðbakki breikkaður um 10 metra og aukið við legupláss við Austurbakka. Geirsgata breikkuð og tengd Sætúni og Mýrargötu sem tengibraut. Göngustigur meö útsýnis- og áningarstöðum. Alþýöubandalagið á Austfjörðum: Hjörleif ur og Einar efstir Skelfiskframleiðendur: Vonir um útf lutning á skelf iski til Frakklands Framboðslisti Alþýðubandalags- ins fyrir alþingiskosningarnar var samþykktur samhljóða á kjördæmis- þingi um síðustu helgi. A þinginu kom fram óánægja Seyðfirðinga með þá tillögu forvalsnefndar að hafa tvo Norðfirðinga efsta á listanum. Gerðu þeir aðra tillögu um röðun á hstann en báru hana síðan til baka þegar frambjóðendur ljáöu ekki máls á að taka þau sæti sem Seyðfirðingar lögðu til, að hafa Einar Má Sigurðar- Skipan þriggja efstu sætanna á framboðshsta Alþýðuflokksins fyrir alþingiskosningarnar í vor var ákveðin á aukafundi kjördæmisráðs í síðustu viku. Kjördæmisþing Alþýðubandalags- ins á Vestfjörðum smþykkti um helg- ina niðurröðun á framboðslista flokksins fyrir alþingiskosningarn- ar. Er listinn í samræmi við niður- stöður forvals sem fram fór í janúar. son í fjórða sæti og Björn Grétar Sveinsson í öðru. Var tillaga forvals- nefndar síðan samþykkt samhljóða. Efstu sæti listans skipa þessi: 1. Hjörleifur Guttormsson, 2. Einar Már Sigurðarson, 3. Þuríður Back- man, 4. Álfhildur Ólafsdóttir, 5. Sig- urður Ingvarsson, 6. Björn Grétar Sveinsson, 7. Öm Ingólfsson, 8. Oddný Vestmann, 9. Guðrún Ragna Aðalsteinsdóttir og 10. Aðalbjörn Björnsson. -hlh Efstu sætin skipa: 1. Sighvatur Björgvinsson alþingismaður, 2. Pét- ur Sigurðsson, formaður Alþýðu- sambands Vestfjarða, og 3. Björn Ingi Bjarnasonfiskverkandi. -hlh Efstu sætin skipa: 1. Kristinn H. Gunnarsson, 2. Lilja Rafney Magnúsdóttir, 3. Bryndís Friðgeirsdóttir, 4. Magnús Ingólfsson og 5. Jón Ólafsson. -hlh „Það er örugglega arðbært að flytja ferskan skelfisk á markaði í Suður-Evrópu. Það fæst töluvert hærra verð fyrir hann þar en fyrir frystan skelfisk,“ segir Pétur Stef- ánsson hjá Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna. Nú er tilbúinn til undirritunar í sjávarútvegsráðuneytinu gagn- kvæmur samningur milh íslend- inga og Frakka sem gerir okkur kleift að flytja út lifandi skelfisk til Frakklands og Frökkum sömu af- urðir hingað til lands. íslendingar hafa á undanförnum mánuðum sent nokkrar tilrauna- sendingar af ferskum skelfiski til Frakklands og hefur gengið vel að selja fiskinn. „Það á eftir að þróa markaöskerf- ið ytra. Viö höfum sent nokkrar tilraunasendingar á Frakklands- markað og þær- hafa hkað mjög vel. Þetta er alveg ný útflutning- svara og það á eftir að vinna trausta markaði fyrir hana. Sá ferskfiskur, sem íslendingar hafa hingað til flutt út, hefur allur farið til vinnslu en skehiskinum er ætlað að fara beint á borð neytenda. Það þarf því að þróa nýja markaði fyrir þessa afurð,“ segir Pétur. „Viö höfum flutt út töluvert af ferskum skelfiski til Suöur-Evrópu. Th dæmis fluttum við út um 30 tonn af ferskum humri síðasthðið sumar og gekk vel að selja hann. Einnig höfum við flutt út heitu- kóng og skeljar til Skandinavíu og hefur þeim afurðum verið vel tekið þar. Það er hins vegar óhemju vinna að vinna nýja markaði fyrir ferskan skelfisk og það mun taka tíma. Ég er hins vegar sannfærður um að þessi atvinnugrein á eftir að skila arði ef vel veröur staðið að markaðsmálum," segir Eiríkur Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri íslensks skelfisks í Sandgerði. Ellert Vigfússon og Hörður Harð- arson, kafarar í Stykkishólmi, hafa unnið að þróunarverkefni í sam- vinnu við Hafrannsóknarstofnun þar sem þeir hafa kannað út- breiðslu og magn ígulkera á Breiðafirði. Síðastliðið sumar voru flutt út nokkur hundruö kíló af þeim. „Þaö er örugglega hægt að hafa gott upp úr útflutningi á ígulkerum ef rétt er haldið á spilunum. Við fluttum út í tilraunaskyni töluvert magn th Frakklands síðastliöið sumar og gott verð fékkst fyrir þau. Sömuleiðis hafa ígulkerin ver- ið flutt th Japans en þar hefur ekki fengist nægjanlega hátt verð til að það borgi sig að senda þau á þann markað,“ segir Ellert. -J.Mar Alþýöuflokkurinn: Efstu sæti á Vestfjörðum Alþýðubandalagið: Framboðslistinn á Vestfjörðum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.