Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991.
Viðskipti
Peningamarkaðurinn:
Ávöxtun verðtryggðra lána
og óverðtryggðra er svipuð
Ávöxtun verðtryggðra og óverð-
tryggðra útlána hjá bönkum og
sparisjóðum er nú mjög svipuð, eða
í kringum 8 prósent umfram verð-
bólgu. Þetta kemur fram í nýjasta
hefti Vísbendingar, vikurits Kaup-
þings um viðskipti og efnahagsmál.
Tímaritið birtir meðfylgjandi línu-
rit af ávöxtun verðtryggðra og óverð-
tryggðra útlána. Þar kemur glöggt í
ljós að raunvextir á verðtryggðum
lánum hafa nánast staðið óhaggaðir
í næstum tvö ár eða frá árinu 1989.
Þeir eru bein lína í kringum 8 pró-
sent umfram verðbólgu.
Raunvextir óverðtryggðra lána
sveiflast hins vegar verulega á sama
tíma. Þar leikur verðbólgan stærsta
hiutverkið. Vaxandi verðbólga á
sama tíma og nafnvöxtum er haldið
óbreyttum lækkar raunvexti veru-
lega.
Athyglisvert er að óverðtryggð út-
lán gáfu bönkunum verulega meiri
tekjur en verðtryggð lán á tímabilinu
frá október 1989 til maí í fyrra.
Sigmundur Guóbjarnason háskóla-
rektor.
Sjónvarp Háskólans:
„Fyrirtækí
haf a tekið
okkur vel“
Sigmundur Guðbjarnason há-
skólarektor segir að þau fyrirtæki
innan einkageirans, sem Háskólinn
hefur rætt viö um aðild að sérstakri
sjónvarpsstöð Háskólans, hafi tekið
hugmyndinni vel.
„Þetta er fyrst og fremst á umræðu-
stigi, Við höfum reifað hugmyndina
en ekki fengið nein fóst loforð ennþá.
Það kemur væntanlega í ljós á næstu
vikum hvort einkageirinn sé tilbúinn
í samstarf.“
Sigmundur segir að Háskólinn hafi
rætt óformlega við Svavar Gestsson
menntamálaráðherra um hugmynd-
ina og hann sé aö athuga máliö.
- Er ætlunin að stofna hlutafélag
um þessa sjónvarpsstöð?.
„Það er verið að skoða rekstrar-
formið. Hlutafélag kemur allt eins til
greina. Háskóhnn á hlut í nokkrum
félögum með einkageiranum og nefn:
ég Tækniþróun hf., Tæknigarð hf.
og tvö líftæknifélög sem dæmi þar
um.“
Hugmyndin er aö sjónvarpsstöö
Háskólans sýni fyrst og fremst
fræðslu- og kennsluefni.
fóru að gefa meira af sér fyrir bank-
ana.
í október og nóvember hafa óverð-
tryggð lán verið lántakendum mun
hagstæðari en verðtryggð en um
þessar mundir er að komast á jafn-
vægi þarna á milli, eins og sést á línu-
ritinu.
í Vísbendingu er flallað um lausa-
fjárhlutfall banka og sparisjóða í des-
ember og segir að það hafl verið að-
eins 11,7 prósent að jafnaði á meðan
lausaijárskyldan er 12 prósent.
„Nokkrar stofnanir þurfa að greiða
mikla refsivexti til Seðlabankans af
því sem á vantar.“ Ennfremur segir
að ásókn í lánsfé sé meiri en framboð
gefi tilefni til. Við slíkar aðstæður sé
erfitt að sjá að tilefni sé til raun-
vaxtalækkunar á lánamarkaði.
Fjallað er um sölu ríkisskuldabréfa
og það markmið ríkisins að lækka
vexti. „Með verðbréfasölu þrengir
ríkið að almennum lánamarkaði
þannig að minna fé verður afgangs
fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem
__________________________
Stríðið við Persaflóa hefur víða áhrif:
Stóiri ferðakaupstef nu
hérlendis líklega frestað
Horfur eru á að stórri ferðakaup-
stefnu, Nordic Travel Mart, sem
halda á hérlendis dagana 22. til 25.
apríl í Laugardalshöll, verði frestað.
Ástæðan er lítill þátttaka sem aftur
má rekja beint til þeirrar óvissu sem
ríkir í alþjóðamálum.
Áætlað var að á hátt í fj ögur hundr-
uð gestir kæmu til landsins vegna
kaupstefnunnar. Fari svo að henni
verði frestað er um nokkurn skell
að ræða fyrir íslenska ferðaþjónustu.
Bjargey Elíasdóttir, sem undirbúið
hefur kaupstefnuna, segir að tals-
verðar líkur séu nú á að kaupstefn-
unni verði frestað en ákvörðun þar
að lútandi verði tekin næstkomandi
mánudag á fundi undirbúnings-
nefndar kaupstefnunnar í Stokk-
hólmi.
Nordic Travel Mart er kaupstefna
sem haldin er á vegum ferðamála-
ráða Norðurlandanna og helstu flug-
félaga á Norðurlöndunum.
Hún hefur verið haldin fimm sinn-
um áður á hveiju Norðurlandanna.
Sú sem nú er í deiglunni er sú sjötta
í röðinni og í fyrsta skiptið hér á
landi.
Á kaupstefnuna koma kaupendúr
ferðaþjónustu frá Asíu og Ameríku.
Að sögn Bjargeyjar eru það sérstak-
lega Bandaríkjamenn sem dregið
hafa úr ferðalögum vegna stríðsins
fyrir botni Persaflóa og þeirrar
óvissu sem þaö skapar í alþjóðamál-
um.
NJOTUM LANDS
-NfÐUMEI
Ferðamálaráð íslands
Ifc riftmZ
Líkur eru á að islensk ferðaþjónusta verði fyrir áfalli á næstunni en útlit
er fyrir að ferðakaupstefnan Nordic Travel Mart, sem halda átti í fyrsta
skipti hérlendis í apríl, verði frestað.
Kaupstefna sem þessi krefst mikils
undirbúnings þátttakenda. Þannig
eru í handbók kaupstefnunnar, sem
gefin ér út mjög tímanlega, getið um
hverjir sýna þannig að kaupendur
geti pantað með fyrirvara einkavið-
töl viö sýnendur.
■ Líklegast er að ferðakaupstefnunni
verði frestað um eitt ár eða til næsta
vors.
-JGH
Ávöxtun verðtryggðra og óverðtryggðra lána
% - umfram breytingar á lánskjaravísitölu -
16
12
8
4
0
Nóv. '89 Jan. '90 Maí'90 Ágúst'90 Nóv.'90 Mars'91
Svona hefur lánamarkaðurinn litið út gagnvart lántakendum síðasta eitt og
hálft ár, samkvæmt Vísbendingu. Ekki er annað að sjá en mestallt tíma-
bilið hafi verið hagstæðara fyrir lántakendur að taka verðtryggð lán.
í fyrravor kom stutt tímabil þar lægri raunvexti. Það breyttist hins
sem óverðtryggð lán voru með aðeins vegar í júlí þegar óverðtryggðu lánin
Fjárfestingarfélagið:
Hörður hættur við að selja
Höröur Jónsson, byggingarverk-
taki og stærsti einstaklingurinn á
meðal hluthafa í Fíárfestingarfélag-
inu, segist hættur við að selja bréf
sín í félaginu að sinni. Hann fékk tvö
tilboð í bréfin en hafnaði þeim báð-
um.
„Ég er hættur við að selja hlut
minn í Fjárfestingarfélaginu að svo
stöddu. Utkoma félagsins á síðasta
ári var góð og félagið hefur aldrei
staðið betur en núna. Ég tel því betra
að eiga bréfin áfram en selja þau,“
segir Hörður.
Hlutur Harðar í Fjárfestingarfélag-
inu er um 6,8 prósent og að nafn-
veröi um 14,3 milljónir króna. Á
Verðbréfaþinginu eru hlutabréf í
Fjárfestingarfélaginu skráð á kaup-
gerjgi. i,28 og söíugengi 1,35. ./j
„Mér bauðst kauptilboð á genginu
1,80. Ég taldi það ekki nóg. Eg hefði
að minnsta kosti viljað fá gengið 2,00.
Enda er eiginíjárstaða félagsins það
sterk að það er vart raunhæft að selja
á lægra verði en genginu 2,00 þrátt
fyrir að skráð gengi bréfanna á Verö-
bréfaþinginu sé lægra,“ segir Hörð-
ur.
-JGH
vilja fá lán. Jafnvægi næst aðeins á
lánamarkaðnum með hærri vöxtum
en áður.“
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 3-3,5 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-4 Lb.Sp
6mán. uppsögn 4-4,5 Sp
12 mán. uppsögn 5 Lb.lb
18mán. uppsögn 10 lb
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Bb.Lb.Sp
Sértékkareikningar 3-3,5 Lb
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6mán. uppsögn 2.5-3.0 Allir nema ib
Innlánmeð sérkjörum 3-3.25 ib
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 6-6,25 Bb
Sterlingspund 12-12.6 Sp
Vestur-þýskmörk 7,75-8 Bb.Sp
Danskar krónur 8,5-9 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð r
Almennirvixlar(forv.) 13,75 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupqenqi
Almennskuldabréf 13,5-14,25 Lb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
, Hlaupareikningar(vfirdr.) 17,5 Allir
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,75-8,75 Lb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 13,25-14 Lb
SDR 10,5-11,0 Lb
Bandaríkjadalir 9,5-10 Lb
Sterlingspund 15,5-15,7 Allir nema Sp
Vestur-þýsk mörk 10,75-11,1 Lb.lb
Húsnæðislán 4,0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21,0
MEÐALVEXTIR
óverðtr. jan.’ 91 13,5
Verðtr. jan. 91 8,2
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitalafeb. 3003 stig
Lánskjaravísitalajan. 2969 stig
Byggingavísitala feb. 565 stig
Byggingavísitala feb. 176,5 stig
Framfærsluvísitala jan. 149,5 stig
Húsaleiguvísitala 3% hækkun . jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,353
Einingabréf 2 2,895
Einingabréf 3 3,516
Skammtimabréf 1,795
Kjarabréf 5,264
Markbréf 2,803
Tekjubréf 2,050
Skyndibréf 1,568
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,567
Sjóðsbréf 2 1,823
Sjóðsbréf 3 1,782
Sjóðsbréf 4 1,540
Sjóðsbréf 5 1,074
Vaxtarbréf 1,8088
Valbréf 1,6954
Islandsbréf 1,112
Fjóröungsbréf 1,064
Þingbréf 1,110
Öndvegisbréf 1,100
Sýslubréf 1,119
Reiðubréf 1,090
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun m.v. 100
nafnv.:
KAUP SALA
Sjóvá-Almennar hf. 6,55 6.88
Eimskip 5,64 5,92
Flugleiðir 2,43 2,55
Hampiðjan 1,76 1,84
Hlutabréfasjóðurinn 1,76 1,84
" Eignfél. lönaðarb. 1.91 2,00
Eignfél. Alþýðub. 1,40 1,47
Skagstrendingur hf. 4,15 4,35
Islandsbanki hf. 1,45 1.52
Eignfél. Verslb. 1,36 1,43
Olíufélagið hf. 6,00 6,30
Grandi hf. 2,28 2,38
Tollvörugeymslan hf. 1,07 1,12
Skeljungur hf. 6,40 6,70
Ármannsfell hf. 2,35 2,45
Fjárfestingarfélagið 1,28 1,35
Útgerðarfélag Ak. 3,50 3,68
Olís 2,15 2.28
Hlutabréfasjóður ViB 0,95 1,00
Almenni hlutabréfasj. 1,01 1,05
Auðlindarbréf 0,96 1,01
islenski hlutabréfasj. 1,02 1,08
(1) Viö kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn,
lb = lslandsbanki Lb = Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um penlngamarkaö-
inn birtast i DV á fimmtudögum.