Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991.
9
Útlönd
Skilríki þátttakenda i þjóöaratkvæðagreiðslunni í Litháen könnuð.
Simamynd Reuter
Verðstríð á flugleiðum yfir Atlantshaf:
Fargjöldin falla um
þriðjung á einni nóttu
Flugfélög, sem fljúga með farþega
yfir Atlantshaf, eru komin í verðstríð
eftir að British Airways ákvað að
lækka fargjöld til að bregðast við
minkandi sölu á farmiðum. Fólk
beggja vegna Atlantshafsins virðist
mjög hrætt að ferðast eftir að stríðið
magnaöist við Persaílóa og alþjóðleg-
ir hryðjuverkahóar hótuðu að láta
til sin taka á Vesturlöndum.
Sagt er að menn kaupi sér ekki far
á þessari leið nema brýna nauðsyn
beri til. British Airways tilkynnti í
gær að fargjöld lækkuðu um þriðj-
ung. Jafnframt var tilkynnt að óhjá-
kvæmilegt væri að segja upp 4000
starfsmönnum til að draga úr tapi á
flugrekstrinum.
Öll helstu flugfélög heimsins hafa
átt í erfiðleikum á síðustu mánuðum
og nú bætist við alvarleg kreppa
vegna Persaflóadeilunnar. í Banda-
ríkjunum hafa nokkur þekkt flugfé-
lög þegar fengið greiðslustöðvun og
virðist fátt geta bjargað.þeim frá
gjaldþroti.
Viðbrögð við lækkun fargjalda hjá
British Airways hafa verið snögg síð-
asta sólarhringinn. Þýska ílugfélagið
Lufthansa boðaði þegar sérstök af-
sláttarfargjöld. Félagið hefur þegar
fækkað ferðum yfir Atlantshaf um
23 á viku en á vegum þess voru farn-
ar 109 ferðir vikulega áður en Persa-
flóadeilan hófst.
Hollenska ílugfélagið KLM hefur
einnig tilkynnt að það ætli að lækka
fargjöld. Fastlega er búist við að flest
önnur tlugfélög fylgi í kjölfarið þrátt
fyrir aö fjárhagsstaða þeirra sé
óvenjuslæm um þessar mundir.
Reuter
Landsbergis biður
RÖSE um aðstoð
Vytautas Landsbergis, forseti Lit-
háens, lýsti því yfir í gærkvöldi að
það væri ósk litháiska þingsins að
haldin yrði ráðstefna um Litháen og
réttindi Eystrasaltslandanna á veg-
um RÖSE, Ráðstefnunnar um öryggi
og samvinnu í Evrópu. „Við höfum
ekki sett nein tímatakmörk fyrir
slíkri ráðstefnu en það segir sig sjálft
að við höfum ekki áhuga á að bíða í
til dæmis tíu ár,“ sagði Landsbergis.
Það er álit hans að staða Litháens
hafl styrkst verulega við það að yfir
níutíu prósent þeirra sem tóku þátt
í þjóðaratkvæðagreiðslunni um sjálf-
stæði landsins á laugardaginn
skyldu hafa sagt já. Þess vegna ættu
önnur ríki að taka upp stjórnmála-
samband við landið á ný auk þess
sem Litháen ætti að verða aðili að
Sameinuðu þjóðunum.
Þingið í Litháen samþykkti í gær
að yfirlýsingin „Ríkið Litháen er
sjálfstætt lýðræðislegt lýðveldi"
skyldi verða hornsteinninn í nýrri
stjórnarskrá sem nú er verið að
semja. Var vísað til niðurstöðu þjóð-
aratkvæðagreiðslunnar á laugardag-
inn.
Á fundi með fréttamönnum í gær
kvaðst Landsbergis ekki útiloka
samkomulag við sovésk yfirvöld um
að sovéskir hermenn yrðu áfram í
Litháen eftir að landið hefði fengið
sjálfstæði frá Sovétríkjunum. Um
yrði þó að ræða vissan aðlögunar-
tíma.
Litháar lýstu yfir ánægju sinni í
gær með að sovéskir hermenn
skyldu ekki hafa gert tilraunir til að
trufla atkvæðagreiðsluna á laugar-
daginn eða talningu atkvæða. Sumir
óttast þó að herinn láti til skarar
skríða þegar allir vestrænir frétta-
menn og sendinefndir hafa yfirgefið
landið.
TT og NTB
Réttarhöldum yfir Winnie Mandela frestað:
Vitni sagt rænt
Nokkrum mínútum eftir að
Winnie Mandela, eiginkona
blökkumannaleiðtogans Nelsons
Mandela, hafði lýst sig saklausa af
ákæru um mannrán og árás í
hæstarétti í Jóhannesarborg í Suð-
ur-Afríku í gær var réttarhöldun-
um frestað þegar saksóknari lýsti
því yfir að helsta vitni hans heföi
verið rænt.
Því hefur verið haldið fram að
vitnið, sem nú er horfið, hafi verið
rænt og misþyrmt af sjálfskipaðri
lífvarðasveit Winnie Mandela. Auk
þess eru lífverðirnir og Mandela
sökuð um að hafa rænt þremur
öðrum ungum blökkumönnum frá
gistihúsi Meþódistakirkjunnar í
Soweto fyrir tveimur árum. Þeir
eru sagðir hafa verið fluttir til
heimilis Mandela og misþyrmt þar.
Einn þeirra fannst síðar látinn í
skurði og var einn af fyrrum líf-
vörðum Mandela dæmdur til dauða
í fyrra fyrir morðið á honum.
Winnie Mandela segir lífverði
sína hafa tekið unglinga frá gisti-
húsinu til að vernda þá gegn presti
sem hefði misnotað þá kynferðis-
lega. Hún vísar á bug ásökunum
um að ráðist hafi verið á þá og þeir
hafðir í haldi á heimili hennar.
Nelson Mandela var ekki við-
staddur réttarhöldin í gær en þá
var einmitt ár liðið frá því að hann
var látinn laus eftir 27 ára fangels-
isvist. Hann lét nægja að fylgja
konu sinni að dómshúsinu þar sem
Blökkumannaleiðtoginn Nelson Mandela fylgdi i gær konu sinni Winnie
til hæstaréttar en var ekki viðstaddur sjálf réttarhöldin. Simamynd Reuter
stuðningsmenn Afríska þjóðar-
ráðsins fögnuðu honum og konu
hans. Átök brutust út milli stuðn-
ingsmanna ráðsins og lögreglu við
komu hjónanna og bað Nelson
Mandela lögregluna um að reyna
aðstillatilfriðar. Reuter
íbúar Rio de Janeiro í Brasilíu halda kjötkveðjuhátíð sína með miklum
látum ár hvert. Þar gefa menn öllum hvötum lausan tauminn áður en fastan
gengur í garð og menn lifa við meinlæti þar til upprisu frelsarans verður
fagnað. Sambaskólar borgarinnar keppa í list sinni. Hér má sjá félaga i
Beija-Flor skólanum berjast fyrir sigurlaununum. Simamynð Reuter