Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Page 11
f
f" ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991.
11
UÚönd
BLAÐAUKI
UM
VETRARFERÐIR
Á MORGUN
Meðal efnis í blaðinu verður umfjöllun og upplýs-
ingar um skíðasvæði í nágrenni Reykjavíkur og
Akureyrar.
Upp á hvað bjóða ferðaskrifstofurnar í skíða- og
árshátíðarferðum innanlands og utan?
Dorgveiði o.fl. o.fl.
Erlendir þjóðhöföingjar vemdaðir í bandarískum lögum:
Lögleysa að drepa Saddam
- íraksforseti má aðeins falla fyrir slysni
Á fyrsta degi gagnsóknar banda-
manna gegn írökum var sprengium
varpað á forsetahöllina í Bagdad og
hún jöfnuð við jörðu. Eftir það er
vitað til að flugmenn bandamanna
hafi látið sprengjur falla á staði þar
sem menn áttu von á að Saddam
Hussein héldi sig.
Á sama tíma hafa bæði George
Bush Bandaríkjaforseti og Norman
Schwartskopf, yflrmaður herafla
bandamanna í Saudi-Arabíu, lýst því
yfir að það sér ekki markmið fjöl-
þjóðahersins að drepa Saddam -
harðstjórinn er ekki sjálfur skot-
mark í þessu stríði.
Saddam hefur lengst af á tíma loft-
árásanna á írak dvalið í skotheldum
byrgjum, annaðhvort undir rústum
forsetahallarinnar eða öðrum byrgj-
um í Bagdad. Að sögn eru loftvama-
byrgin mörg og geta hýst hundruð
þúsunda ef ekki milljónir manna.
Þessi byrgi eru skotmörk banda-
manna í lofthernaðinum.
Von bandamanna er auðvitað sú
að írakar taki af þeim ómakið og
. steypi Saddam af stóli sem allra fyrst
og losi þjóðina þannig við ógæfuna
sem fylgir því að búa við harðstjórn.
Major sagði það
berum orðum
John Major, forsætisráðherra
Breta, hefur einn ráðamanna í
bandaiaginu gegn írökum látið þau
orð falla að hann myndi ekki gráta
þó Saddam Hussein kæmist ekki lífs
af úr þessu stríði. Það var strax eftir
að írakar hófu að sýna myndir af
stríðsfóngum í sjónvarpinu og létu
þá vitna gegn hemaði bandamanna.
Bush tók Major á orðinu og hefur
oftar en einu sinni vitnað til orða
samherja síns. Engan þarf heldur að
undra þótt ráðamenn í Washington
gráti krókódílatárum frétti þeir af
andláti Saddams. Samt hefur Bush
t.d. aldrei sagt það berum orðum að
hann vilji Saddam feigan heldur
vitnað til orða annarra um það.
Ein ástæða fyrir þessu er að það
er ekki viturlegt að gera Saddam að
píslarvotti í baráttunni fyrir frelsun
Kúvæts. Það eykur aðeins á samúð
með honum í löndum araba og myndi
einnig gera hann að stríðshetju ef
hann liföi stríðið af.
Vernd í bandarískum lögum
Foringjarnir fyrir liði Bnadaríkja-
manna eru þó ekki aðeins ,að hugsa
um alþjóðastjórnnmál þegar þeir tala
varlega um endalok Saddams. Málið
er að þeim er beinlínis bannað að
segjast vilja vita hann dauðan. Sama
var uppi á teningnum þegar Ronald
Reagan lét varpa sprengjum á Gadd-
afi Líþýuleiðtoga árið 1986.
Upphaf þessa máls er að árið 1976
lét Gerald Ford, þáverandi forseti
Bandaríkjanna, setja í reglur að eng-
inn sem „tekur að sér störf fyrir
Bandaríkin má leggja á ráðin um
launmorð“.
Þessi sérkennilega regla varð til í
eftirleik Watergate-hneykslisins þeg-
ar m.a. kom á daginn að leyniþjón-
ustan CIA hafði tekið þátt í tilraun-
um til að ráða leiðtoga erlendra ríkja
af dögum. Þar var Fidel Castro á
Kúbu efstur á lista. Ein hugmyndin,
sem varð til í herbúðum CIA, var að
eitra fyrir leiðtogann.
Urðu að breyta reglunni
fyrir Noriega
Eftir þetta var boði reglunnar frá
1976 hlítt allt til þess að Bandaríkja-
mönnum var nauðugur einn kostur
að koma fyrrum skjólstæðingi sin-
George Bush hefur aldrei sagt frá eigin brjósti að hann vilji Saddam Hus-
sein feigan. Hann hefur hins vegar vitnað til orða Johns Major um það og
það er allt annað mál. Símamynd Reuter
Stealth-þotumar:
Fljúga óséðar
á hverri nóttu
Bandarísku sprengjuþotumar
F-117 Stealth hafa farið í árásar-
ferðir yfir írak á hverri nóttu allt
frá því gagnsókn bandamanna
hófst 17. janúar. Þoturnar eru þeim
eiginleika gæddar að sjást ekki á
ratsjá og flugmennirnir segja aö
írakar hafa aldrei komið auga á
þær í árásarferðum.
Fyrir utan að líta furðulega út eru
þær alsvartar og því aðeins notaðar
að nóttu til. Fréttamenn hafa ekki
fengið að skoða þessar þotur fyrr
en í heimsókn Dick Cheney varnar-
málaráöherra til Saudi-Arabíu. Þá
voru tvær vélar sýndar og öllum
að óvörum eru þær allar í Saudi-
Arabíu en ekki í Tyrklandi eins og
gefið var í skyn áöur.
Mikil leynd hvílir hins vegar yfir
hvar þær hafi bækistöðvar og ekki
er heimilt að segja frá hvort það
er fyrir norðan, sunnan, austan,
vestan eða í miðju landinu.
Stealth-þoturnar fara alltaf einar
í árásarferðir og engar flugvélar
fylgja þeim til verndar. Þær em
einkum notaðar til árása á fram-
línu íraka en einnig á brýr og vegi.
Enginn veit með vissu hvað vélarn-
ar eru margar. Þó er talið að ekki
séu mikið fleiri en 20 í Saudi-
Arabíu.
Reuter
um, Manuel Noriega, forseta í Pa-
nama, frá völdum. Þá var öldunga-
deild Bandaríkjaþings á móti því að
ráðast með herliði gegn Noriega
vegna þess að herförin gæti leitt til
að þess að forsetinn léti lífið.
Niðurstaðan varð sú að reglan frá
1976 var túlkuð upp á nýtt og sagt
að hún gilti ekki þótt erlendur þjóð-
höfðingi félli óviljandi fyrir hendi
Bandaríkjamanna. í ljósi þessarar
túlkunar var ráðist með hervaldi
gegn Noriega í desember árið 1989 í
þeim tilgangi að koma yfir hann lög-
um. Við hinu var ekkert að gera þótt
svo slysalega tækist að leiðtoginn
félli í árásinni.
Óhapp ef Saddam fellur
Sama túlkun var höfð að leiöarljósi
aðfaranótt 17. janúar þegar sprengj-
um var varpað á stjórnstöðvar íraska
hersins í Bagdad. Tilgangurinn var
að eyðileggja stöðvarnar fyrir hern-
um og ekkert við því að gera þótt
Saddam Hussein fengi þá rauðan
belg fyrir gráan - fyrir slysni.'
SKIPARADIO H/F
Furuno-
kennsla/sýning
Dagana 13., 14. og 15. febrúar frá kl. 14.00 til 17.00
verður kennsla í notkun á eftirfarandi Furuno-stað-
setningartækjum: LC-90 Loran, LP-1000 Loran/-
Plotter, GP-500 GPS og GP-1500 GPS/Plotter.
Komið og lærið á þessi tæki og kynnið ykkur hvaða
Furuno-tæki við höfum upp á að bjóða í bátinn,
skipið eða togarann. Allir velkomnir.
SKIPARADÍÓ H/F
Fiskislóð 94, Reykjavík - sími 20230, fax 620230