Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Síða 23
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991.
23 '
Smáauglýsingar
Hitaveitur, vatnsveitur. Þýskir rennslis-
mælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís
s/f, símar 91-671130 og 91-667418.
■ Bflar til sölu
Toyota LandCruiser '85, bensín, ekinn
109.000 km, upphækkaður, 35" dekk.
Einnig Toyota Corolla ’86, ekinn 74
þús. Uppl. i síma 91-75340 e. kl. 19.
Jeep Wagoneer Limited ’85, sjálfskipt-
ur, rafmagn í rúðum, centrallæsingar,
útv./segulb., leður-innrétting, dráttar-
kúla, vökvastýri. Sérstaklega fallegur
og vel með farinn bíll. Uppl. í síma
91-687117 eða 91-76393 e.kl. 17.
Til sölu Subaru, árg. '86, hvítur, ekinn
83 þús., sumar- og vetrardekk,
skoðaður ’92, fallegur bíll, verð 750
þús. Uppl. í síma 11491.
Chervolet Blazer 4x4, '86, S-10, til sölu,
beinskiptur, útvarp/segulband, verð
1.350.000, skipti á ódýrari koma til
greina. Upplýsingar í síma 91-50725
eftir kl. 19.
Skattlagning björgunarsveita
Vafalaust voru margir landsmenn
við sjónvarpstækin sín þriðjudags-
kvöldið þegar ríkissjónvarpið
ræddi við nokkra menn um fárvið-
rið um fyrri helgi og afleiðingar
þess. Þetta voru fróðlegar umræð-
ur og margt kom þarna fram sem
gott var fyrir okkur að fá að vita
og útskýrt. - Bestu þakkir fyrir það.
Það kom m.a. fram í máli manna,
m.a. Guðjóns Petersens hjá Al-
mannavörnum, að starf sjálfboða-
sveita, .flugbjörgunarsveita, slysa-
varnasveita og hjálparsveita skáta,
hefði minnkað fyrirsjáanlegt tjón
vérulega og Guðjón benti m.a. á að
lögreglu- og slökkvilið í þjónustu
hins opinbera yrði aldrei svo fjöl-
mennt aö það gæti ráðið við öll
útköll á þessu sviði við svona að-
stæður.
Af þessum orðum má ráða að
þessar sveitir spari bæði ríki og
sveitarfélögum og ekki síður trygg-
ingafélögum talsverðar upphæðir
með starfi sínu. Það fer ekki fram-
hjá þeim sem starfa í þessum sveit-
um að almenningur metur þetta
starf og þakkar það á virkan hátt.
Sama má segja um mörg sveitarfé-
lög. Hitt fer meira á milli mála
hvemig ríkið metur þetta starf. Ein-
mitt það er tilefni þessara skrifa.
Ákvarðanir ráðherra
Ætla mætti að ríkissjóður mæti
þetta starf að verðleikum og legði
því a.m.k. ekki byrðar á lierðar.
En því miður er öðru nær. Þess ber
að geta í þessu sambandi að staðan
í þessum málum hefur verið nokk-
uð mismunandi og einstakir ráð-
herrar hinna ýmsu ríkisstjórna
hafa sýnt þessari starfsemi velvild
og skilning og má ekki gleyma aö
þakka það. Það er hins vegar óvið-
unandi og til athugunar fyrir hátt-
virt Alþingi að slíkt skuli ekki vera
beinlínis ákveðið með lögum og
reglugerðum, heldur þurfl til að
koma sérstakar ákvarðanir ráð-
herra í hverju tilviki.
Til þess að skýra málið skulu hér
tilfærð dæmi.
Björgunar- og hjálparsveitir
þurfa ýmsan búnað til þess að
sinna störfum sínum. Bæiði er þar
um að ræða ýmiss konar hjálpar-
tæki, búnað til að tryggja öryggi
björgunarmanna og þeirra sem
hjálpa þarf, fjarskiptatæki, flutn-
ingatæki, sjúkragögn og ýmislegt
því um líkt auk ýmiss konar rekstr-
arvara fyrir búnaðinn. Á allar
þessar vörur leggur ríkiö virðis-
aukaskatt sem hækkar bæöi rekst-
ur og fjárfestingar um fjórðung.
KjaUarinn
Guðbrandur Þorkell
Guðbrandsson
skrifstofumaður
Meðan söluskatturinn var í gildi
var mögulegt að fá hann endur-
greiddan af tilteknum búnaöi með
vissum skilyrðum, en með virðis-
aukaskattslögunum var allt slíkt
fellt niður. Hér má minna á að
ýmsir þjónustuklúbbar, kvenfélög
og fleiri aðilar, sem láta sér ekki á
sama standa um þessi mál, hafa
verið óþreytandi að auka og bæta
búnað margra svona sveita og
verður það aldrei fullþakkað.
Á meðan söluskattslögin giltu
gátu slíkir aðilar fengið söluskatt-
inn og jafnvel tolla fellda niður af
slíkum gjöfum. Þetta breyttist með
virðisaukaskattinum. Innheimtist
skatturinn því að fullu af slíkum
gjöfum nú.
Fjarskiptamálin
Næst skal rætt um fjarskiptamál-
in sérstaklega. Allir sem að þessum
störfum hafa unnið þekkja að góð
fjarskipti eru nánast lífsnauðsyn-
leg í öllu björgunar- og hjálpar-
starfi. Þeir sem eru í vafa, skyldu
spyrja starfsmenn Almannavarna.
Góður búnaður til þessara nota er
dýr og kostar auk þess talsvert í
rekstri og þá ekki hvað síst búnað-
ur sem er ekki notaður nema til-
tölulega sjaldan en þá mikiö í einu,
eins og raunin er með fjarskipta-
búnað sveitanna.
Af þessum tækjum þarf auðvitað
að greiða virðisaukaskatt eins og
öllu öðru, en þar til viðbótar þarf
að greiða ýmis gjöld til Landssíma
íslands, sem nema talsverðum fjár-
hæðum. Að lokum væri ekki úr
vegi að geta um eitt lítið atriði sem
tengist síðasta óveðri. Til þess að
sinna þjónustu í slíkum tilvikum
þarf ýmiss konar viðgerðarvörur
fyrir hús og fleira. Má þar t.d. nefna
alls konar nagla og því um líkt.
Nú um helgina þurftu sveitirnar
að leggja út talsverða fjármuni fyr-
ir slíkum vörum. í því sveitarfé-
lagi, þar sem greinarhöfundur
þekkir best til, munu sveitarfélags-
yfirvöld ætla að hlaupa þarna und-
ir bagga, en ekki er ljóst hvort svo
er alls staðar. Þar sem svo háttar
til víðast hvar að eitt tryggingafélag
sér um allar hústryggingar í hveiju
sveitarfélagi finnst manni þó ekki
ósanngjarnt að þau greiði þennan
kostnað, því þau eiga væntanlega
mikið undir því að tjón verði sem
minnst.
Þaö eru tillögur undirritaðs, sem
áreiðanlega margir munu taka
undir, að ríkissjóður taki nú á sig
rögg og endurskoði skattheimtu af
starfi hjálpar- og björgunarsveita.
Félagsfólk í þeim þarf samt nóg að
hafa fyrir fjáröflun til reksturs
þeirra. Vinnuframlag félagsfólks
er ótrúlega mikið til þeirra hluta
og hafa ber í huga að það bætist
við það mikla starf sem stöðug
þjálfun úheimtir auk hins raun-
verulega hjálparstarfs.
Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson
„Af þessum orðum má ráða að þessar
sveitir spari bæði ríki og sveitarfélög-
um og ekki síður tryggingafélögum
talsverðar upphæðir með starfi sínu.“
-r
4
<
Mazda sendibill E-2000 '87 til sölu,
ekinn 120 þús. km, gott ástand, tilboð
ósksat. Uppl. í símum 985-22055 og
91-689709 eftir kl. 19.
Toyota Hilux ’85 til sölu, litur grár, vél
350 Chevy, ál millihedd, 4ra hólfa
Thor, króm ventlalok, heitur ás. Uppl.
í síma 91-77627 eftir kl. 20.
[ölvunar|akstor
ftySTUR
Meiming
Caput tónleikar
Myrkir músíkdagar héldu áfram í gærkvöldi
með tónleikum Caput hópsins undir stjórn Rolfs
Gupta í íslensku óperunni. Á efnisskránni voru
verk eftir Iannis Xenakis, Jónas Tómasson, Lár-
us H. Grímsson, Rolf Gupta og Kaiju Saariaho.
Caput hópurinn hefur skipað sér sess í ís-
lensku tónlistarlífi sem frumkvöðull og braut-
ryðjandi með þeirri alúð sem hann hefur lagt
við kynningu nýrrar tónlistar. Hópinn skipar
sumt af okkar ágætasta tónlistarfólki af yngri
kynslóöinni, sem lætur sér fátt fyrir brjósti
brenna þegar verkefnaval er annars vegar.
Xenakis hefur skapaö sér sérstakan sess í tón-
list samtímans. Hann er verkfræðingur að
mennt en gat sér fyrst orð sem arkitekt og síðar
tónskáld. Hann hefur verið umdeildur og því
m.a. haldið fram um sum verk hans að þau
hljómi eins og höfundurinn hafi ekki vitað hvað
hann var að skrifa. Þeirri gagnrýni verður þó
ekki beitt um verk hans sem hér heyrðist,
Epicycles. Það er mjög einfalt verk byggt á lagl-
ínu með hljómaundirleik í traustum hómófón-
ískum stíl. Það er flutningsmátinn sem gefur
verkinu svip en hann er gagngert stirðlegur og
viljandi klaufalegur. Þetta virkar eins og endur-
vakinn dadaismi og hvað sem mönnum kann
að finnast um það er ómótmælanlegt að verkiö
fær með þessu sérstaka gerð og eigind sem ger-
ir það að sjálfstæðu hstaverki. Bryndís Halla
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
Gylfadóttir lék mikilvægan einleiksþátt á selló
meö mikilh sannfæringu og flutningur verksins
að öðru leyti tókst mjög vel. Verk Jónasar Tóm-
assonar „I Tóneyjahafi” var áður ílutt af Caput
hópnum í haust. Þetta ljóðræna verk stóð vel
undir endurflutningi og sphamennskan var ekki
síðri en í haust. Frískir menn og fólar meyjar
eftir Lárus H. Grímsson er framúrstefnu Jass-
verk og hressilegt í anda og prýðilega útsett
fyrir jasssveit af heldur óvenjulegri samsetn-
ingu. Hljómsveitarstjórinn Rolf Guþta sem stóð
sig með ágætum í að stjórna verkum Xenakis,
Lárusar og verki Kaiju Saariahos, er einnig
höfundur eins verks sem þarna var flutt en það
var einleiksverk fyrir fagott, Visitor Revisited,
sem Brjánn Ingason flutti. Verk þetta er
skemmthega htríkt og einleikshljóðfærið er þa-
nið til hins ýtrasta. Brjápn lék þetta erfiða verk
með miklum glæsibrag.
Síðasta verk tónleikanna var Lichtbogen eftir
Saariaho, sem er finnskt tónskáld sem vakiö
hefur töluverða athygli á síðustu árum. Þetta
verk er samið undir greinilegum áhrifum frá
György Ligeti sem hefur verið um árabil eitt.
mest stælda tónskáld Evrópu og þaö af ghdum
ástæðum. í verkinu er blandað saman rafhljóð-
um af segulbandi við leik hljóðfæranna og gefur
það sérstakan svip og eykur htadýrð verksins
sem er gullfallegt og mjög þæghegt áheyrnar.
Flutningur verksins tókst mjög vel og má það
segja einnig um tónleikana í heild. Tónleikar á
Myrkum músíkdögum fram th þessa hafa veriö
ánægjulega fjölbreyttir aö efni og verða svo
áfram ef marka skal dagskrá hátíðarinnar. Er
það við hæfi. Ef eitthvað má segja um nútíma-
tónhst, sem ómótmælanlegt er, þá er það að hún
er fjölbreytt.