Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Side 25
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991. 25 Lífsstíll Bensínverð á íslandi: í miðjum hópi Evrópulanda Landinn hefur löngum kvartað undan háu bensínverði hér á landi og fmnst ríkið leggja óhóflega mikia skatta á bensín sem hleypa upp verð- inu. Vel má vera að skattar ríkisins á bensín séu háir. Hitt er staðreynd að ísland er ekki lengur í hópi þeirra landa í Evrópu þar sem bensínverðið er hæst. Ítalía er með langhæsta bensín- verðið í Evrópu, en þar'kostar lítrinn af súperbensíni 75 krónur. í landinu þar sem verðið er lægst, munar helming, sé borið saman við Ítalíu. Bensín er ódýrast í Lúxemborg en þar kostar lítrinn af blýlausu 36 krónur og lítrinn af súperbensíni 40 krónur. Danmörk er eina landið af Norður- löndunum þar sem bensín er ódýrara en á íslandi. Bensín er dýrast í Nor- egi af fyrrnefndum löndum, og jafn- framt næstdýrast allra landa Evr- ópu. Segja má að ísland sé frekar í hærri kantinum miðað við önnur Evrópulönd. Athuga ber að allar töl- urnar í töflunni hér til hliðar eru námundagildi, það er að segja rúnn- aðar af í hálfa eða heila krónu. ÍS Bensínverðið í Vestur-Evrópu ÍSLAND HOLLAND NOREGUR SVlÞJÓÐ FINNLAND Blýl. 58 Súper 61 Blýl. 53 Súper 55,50 Blýl. 63 Súper 69 Blýl. 63,50 Súper 66,50 Blýl. 63 Súper 68,50 ENGLAND - > ■ : ÞYSKALAND AUSTURRlKI SPÁNN FRAKKLAND SVISS Blýl. 50 Súper 52,50 ÍRLAND Blýl. 60 Súper 61 BELGfA Blýl. 50 Súper 53,50 LUXEMBORG Blýl. 36 Súper 40 PORTÚGAL Blýl. 58,50 Súper 63 Blýl. 55,50 Súper 57 Blýl. 43 Súper 46,50 Blýl. 72 Súper 75 Blýl. 44 Súper 47 DANMORK Blýl. 51,50 Súper 58.50 Blýl. 52 Súper 51,50 Blýl. 43,50 Súper 47,50 fTALfA GRIKKLAND Blýl. 45 Súper 48,50 Vátryggingar póstsendinga Póstur og sími og Tryggingamið- stöðin hafa gert með sér samkomulag um að sérstakar vátryggingar fyrir böggla, ábyrgðarsendingar og EMS- forgangspóst, verði seldar á öllum pósthúsum. Nú geta þeir sem vilja tryggt póstsendingar sínar. Hægt er að tryggja sendingarnar fyrir allt að 150 þúsund krónur. Ið- gjaldið fer eftir vátryggingarupphæð, frá 300 til 500 krónur. Prentaö hefur verið sérstakt tryggingarskírteini fyrir þessa þjónustu og sér af- greiðslufólk um að fylla það út að beiðni tryggingartaka. Með þessu er reynt að minnka fyrirhöfn þeirra sem vilja kaupa sérstaka tryggingu fyrirpóstsendingarsínar. ÍS í dag er ekki óliklegt að einhver eti sig mettan af þessu góðgæti, saltkjöti, baunum, rófum, lauk og pylsum. Verðkönnun á saltkjöti, baunum og rófum: Mikill verðmunur V V __ á milli verslana veri er með lægsta kílóverðið á baun- um. Kjörbúð Hraunbæjar og Kjöt- borg Asvallagötu eru með nokkru hærra verð á samanburðartegund- unum. Telja verður eðlilegt að minni verslanir séu með eitthvað hærra verð heldur en stórmarkaðirnir og stærri verslanir, en athygli vekur þó hversu miklu munar á kílóverði á rófum. Munur á hæsta og lægsta verði á saltkjöti í könnuninni var 36%. Munur á hæsta og lægsta verði á baunum var 156%. Munur á hæsta og lægsta verði á rófum var enn meiri eða 169%. ÍS Verslun Saltkjöt Rófur Baunir Hagkaup 429 kr. kg 45 kr. kg 152 kr. kg Mikligarður 448 kr. kg 44 kr. kg 216 kr. kg Bónus 399 kr. kg 43,50 kr. kg 122,50 kr.kg Fjarðarkaup 430 kr. kg 44 kr. kg 140 kr. kg Austurver 480 kr. kg 79 kr. kg 85 kr.kg Kjötborg, Ásvallagötu 527 kr, kg 98 kr. kg 218 kr. kg Kjörbúð Hraunbæjar 543 kr, kg * 117 kr. kg 186 kr. kg • í dag er sprengidagur og þá er til siðs að borða yfir sig af saltkjöti og baunum. Samkvæmt gömlum sið, sem fyrr á tímum var í heiðri hafður hér á landi, var sprengidagur síðasti dagurinn sem neyta mátti kjöts áður en fasta hófst. Sú fasta stóð fram að páskum og því varð fljótt vinsælt að borða yfir sig af kjöti, fyrir magra daga föstunnar. íslendingar halda enn fast við þann sið að borða yfir sig af saltkjöti og baunum á þessum degi. Hins vegar fer minna fyrir því að menn fasti á sjálfri fóstunni. En hvað skyldi kosta í matinn á sprengidaginn? Blaða- maöur Neytendasiðu gerði verð- könnun á saltkjöti, rófum ogbaunum í sjö verslunum. Miðað er við kíló- verð. Niðurstöðuna má sjá á með- fylgjandi töflu. Verslunin Bónus er með lægsta Neytendur verðið á saltkjöti og rófum. Munur á kílóverðinu á rófum er þó varla marktækur á milli verslana Bónuss, Hagkaups, Fjarðarkaupa og Mikla- garðs. Matvöruverslunin í Austur- Kjötát á sprengidag: Sprengidagur er úr kaþólskum siö, síðastí dagurinn sem borða mátti kjöt áður en langafasta skall yfir. Það hefur í aldaraðir verið sið- ur hér á landi aö boröa yfir sig af kjötmeti á þessum degi. Elstu dæmi um þennan sið úr heimpdum eru úr orðabók Jóns Ólafssonar Grunnvíkings sem er liklega frá árinu 1735. í þeirri bók heldur Jón því fram að orðið „sprengikvöld" sé alþýðu- orð um meiri háttar matarveislu. Af því raá ráða að siðurinn var al- mennur hér á landi. Þó er talið aö hann hafi farið að breiðast út mun fyrr, eða eftir miðja ijórtándu öld. Fátt er um skrifuð rit frá þeím tíma, og það gæti veriö ástæðan fyrir því að dagsins er ekki getið í heimild- um fyrr. íslendingar viröast abnennt álíta að nafn dagsins sé dregið af því að landsmeim eti yfir sig af kjöti svo við liggi aö þeir springi. Sennilega er oröið þó ekki dregið af því en sprengidagur náði hér samt fót- festu. Hitt er öllu líklegra, eins og Árm Björnsson þjóðháttafræðmgur hef- ur bent á, að sprengidagur sé dreg- ið af þýska orðinu „Sprengetag". Sprengetag var dagur í kaþólskum sið þegar vigðu vatni var stökkt yfir söftiuð og matvæli. Sprengetag var að þýskum sið á svipuðum tima á árinu og sprengidagur er nú el’tir íslensku almanaki. Árni Björnsson hefur fært rök fyrir því að orðið hafi borist lungað til lands með Hansakaupmönnum sein voru tíðir gestir hér á landi á 16. og 17. öld. Aimennt er talið aö þessi skýring sé sennilegust um uppruna nafns- ins „sprengidagur". Hins vegar var ekki alltaf borðað saltkjöt og baun- ir á þessum degi heldur ýmiss kon- ar kjöt eins og hangikjöt, nauta- kjöt, pylsur. Saltkjötið hefur hins vegar verið að vinna á. Núoröið setja menn samasemmerki á milli saltkjöts og bauna annars vegar og sprengidags hins vegar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.