Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Síða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991.
Afmæli
Rúnar J. Guðmundsson
Rúnar Jóhannes Guðmundsson bif-
reiðastjóri, Álakvísl 84, Reykjavík,
er fimmtugur í dag. Rúnar fæddist
íReykjavík.
Hann kvæntist 10.10.1964 Hjördísi
Davíðsdóttur, f. 13.4.1946, húsmóð-
ur. Foreldrar hennar voru Davíð
Óskar Grímsson, húsgagnasmíða-
meistari í Reykjavík, og Sigríður
Geirlaug Kristinsdóttir húsmóðir en
þau erubæðilátin.
Börn Rúnars og Hjördísar eru
Geirlaug, f. 2.8.1964 og á hún tvö
börn, Jóhannes Rúnar Hjelm, f. 12.
2.1982 og Sigríði Hjördísi Sigur-
steinsdóttur, f. 3.3.1989; Valgerður
Hjördís, f. 13.2.1966, gjaldkeri í
Reykjavík, i sambúð með Kristni
Jóhannessyni bifvélavirkjameist-
ara og eiga þau eina dóttur, Sóldísi
Dröfn, f. 28.5.1990; Sigurborg, f. 7.9.
1967, húsmóðir, í sambúð með Her-
mundi Svanssyni, sjómanni frá
Húsavík, og eiga þau tvö börn, Her-
dísi Evu, f. 9.12.1988 og Sævar Falk,
f. 7.9.1990.
Systkini Rúnars eru Jónas, f. 10.2.
1940, stýrimaður í Reykjavík, og á
hann tvo syni en sambýliskona hans
er Jóhanna M. Sigurðardóttir; Hjör-
dís Guðmunda, f. 14.10.1944, búsett
í Hafnarfirði, gift Hilmari Guð-
björnssyni og eiga þau fimm börn;
Hjörtur Valdimar, f. 14.8.1950, d.
25.8.1965; Kristín Hrönn, f. 22.3.
1955, búsett í Kanada en sambýlis-
maður hennar er Herluf Gruber og
eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Rúnars Jóhannesar
voru Guðmundur Kristinn Falk
Guðmundsson, f. 19.9.1913, d. 25.8.
1965, skipstjóri og útgerðarmaður í
Kópavogi, og Helga Hjördís Hjartar-
dóttir, f. 29.6.1915, d. 24.8.1986, hús-
móöir.
Ætt og frændgarður
Guðmundur var sonur Guðmund-
ar, skrifstofustjóra í Reykjavík,
Guðmundssonar, b. að Urriðafossi í
Villingaholtshreppi,Ámundssonar.
Móðir Guömundar skrifstofustjóra
var Kristín, systir Jóhönnu,
langömmu Fríðu Björnsdóttur,
framkvæmdastjóra Blaðamannafé-
lags íslands. Kristín var einnig syst-
ir Páls í Nýjabæ á Eyrarbakka, lang-
afa Geirs Gunnarssonar alþingis-
manns, föður Lúðvíks, formanns
Blaðamannafélagsins. Þá var Krist-
ín systir Magnúsar, prófasts og al-
þingismanns á Gilsbakka, föður Pét-
urs ráðherra, föður Stefáns aðstoð-
arbankastjóra, Ásgeirs bæjarfógeta
og Gunnars Más deildarstjóra, föður
Kjartans Georgs framkvæmda-
stjóra. Systir Kristínar var Katrín,
amma Guðmundar í. Guðmunds-
sonar, ráðherra og sendiherra. Loks
var Kristín systir Eyjólfs, b. á
Kirkjubóli í Hvítársíðu, föður Andr-
ésar, alþingismanns í Síðumúla, og
Þórðar hæstaréttardómara, föður
Magnúsar, framkvæmdastjóra
NATO á íslandi, föður Andrésar
blaöamanns.
Kristín var dóttir Andrésar,
hreppstjóra í Syðra-Langholti, bróð-
ur Helga í Birtingaholti, föður Katr-
ínar Briem, móður Jóhanns Briem
listmálara. Helgi var einnig faðir
Ágústs, alþingismanns í Birtinga-
holti, móðurafa Ólafs biskups og
Helga leikara Skúlasona. Andrés
var sonur Magnúsar, alþingis-
manns í Syðra-Langholti, Andrés-
sonar, og konu hans, Katrínar Ei-
ríksdóttur, b. og dbrm á Reykjum
og ættföður Reykjaættarinnar, Vig-
fússonar.
Móðir Guðmundar Falk var Her-
dís Jóhannesdóttir, járnsmiðs Elías-
sonar, b. í Efri-Hlíð í Helgafells-
sveit, Jónssonar, b. í Straumfjarð-
artungu, Jónssonar, b. á Seljum,
Jónssonar. Móðir Herdísar var Guð-
rún Þorbjörg Jónsdóttir, b. í
Fremri-Arnardal og síðar á Halls-
stöðum á Langadalsströnd, Sæ-
mundssonar, b. í Fremri-Arnardal,
Árnasonar. Móðir Guðbjargar Þor-
bjargar var Vigdís Jónsdóttir,
vinnumanns í Stokkanesi, Sumar-
liðasonar. Móðir Vigdísar var Þor-
Rúnar Jóhannes Guðmundsson.
björg Þorvarðardóttir, b. í Eyrardal,
Sigurðssonar, b. í Eyrardal og ætt-
föður Eyrardalsættarinnar, Þovarö-
arsonar.
Helga Hjördís var dóttir Hjartar
Erlendssonar í Rauösdal á Barða-
strönd og Guðrúnar Pálsdóttur.
Rúnar tekur á móti gestum á
heimili sínu, Álakvísl 84, laugardag-
inn 16.2. eftir klukkan 19.00.
Friðrik H. Ragnarsson
Friðrik Helgi Ragnarsson bifreiða- '
stjóri, Áshamri 4, Vestmannaeyjum,
erfimmtugurídag.
Starfsferill
Friðrik fæddist í Vestmannaeyjum
og ólst þar upp í foreldrahúsum, auk
þess sem hann var nokkur sumur í
snúningum á Leirum undir Eyja-
fjöllum og síðan í Flóanum á Neista-
stöðum og á Votmúla. Á unglingsár-
unum starfaði Friörik við fisk-
vinnslu en fór sautján ára til sjós
og stundaði sjómennsku alfarið til
ársins 1973 og síðan af og til fram
til 1988. Hann kom þá í land og hef-
ur síðan keyrt vörubíl hjá Fiskiðj-
unni hf. í Vestmannaeyjum.
Friðrik starfar með Kiwanis-
klúbbi Vestmannaeyja.
Fjölskylda
Friðrik kvæntist 30.5.1965 Erlu
Yígluridsdóttur, f. 4.9.1944, húsmóð-
ur og fiskvinnslukonu. Foreldrar
Erlu: Víglundur Kristjánsson, f.
8.11.1908, d. 28.1.1981, kaupmaður
í Reykjavík, sem nú er látinn, og
Svava Jónsdóttir, f. 6.6.1918, hús-
móðir.
Friðrik og Erla eiga tvö börn. Þau
eru Sigurður Vignir, f. 21.3.1964,
verkamaður í Vestmannaeyjum, og
Vilborg, f. 23.11.1965, húsmóðir og
verkakona í Vestmannaeyjum, en
sambýlismaður hennar er Sigmar
Þröstur Óskarsson, f. 24.12.1961,
verkamaður og eiga þau einn son,
Friðrik Þór, f. 30.9.1989.
Friðrik á þrjú systkini. Þau eru
Anna Birna Ragnarsdóttir, f. 18.9.
1948, húsmóðir í Reykjavík, en sam-
býlismaður hennar er Sigurður
Magnússon matreiðslumaður og
eiga þau einn son, auk þess sem hún
á tvo syni frá því áður; Hafsteinn
Ragnarsson, f. 1.12.1952, sölumaður
hjá Tryggingafélaginu VÍS í Reykja-
vík, kvæntur Steinunni Hjálmars-
dóttur og eiga þau þrjú börn; Ómar
Ragnarsson, f. 17.7.1958, skrifstofu-
maðuríOsló.
Foreldrar Friðriks eru Ragnar
Axel Helgason, f. að Kálfatjörn á
Vatnsleysuströnd 20.2.1918, sjómað-
ur og síðan lögreglumaður í Vest-
mannaeyjum, og kona hans, Vilborg
Hákonardóttir, f. að Nýja-Bjargi í
Höfnum 1.6.1917, húsmóðir.
Friðrik Helgi Ragnarsson.
Ætt
Foreldrar Ragnars Axels voru
Helgi Jónsson, b. í Tungu í Reykja-
vík, og kona hans, Friðrika Þorláks-
ína Pétursdóttir húsfreyja.
Foreldrar Vilborgar voru Hákon
Kristjánsson, verkamaður í Höfn-
um og síðar í Vestmannaeyjum, og
kona hans, Guðrún Vilhelmína
Guðmundsdóttir húsmóðir.
Sigtryggur Sveinbjömsson
Sigtryggur Sveinbjörnsson, b. að
Sandhólum í Eyjafjarðarsveit, er
sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Sigtryggur fæddist á Kolgríma-
stöðum og ólst þar upp. Hann lauk
barnaskólanámi og stundaði síðan
landbúnaðarstörf í foreldrahúsum
en hefur verið bóndi frá 1941-90.
Hann bjó fyrst á Hrísum í eitt ár,
síðan á Hólum í fjögur ár en hefur
búið á Sandhólum frá 1946.
Sigtryggur fékk tilsögn í organieik
hjá Sigurgeiri Jónssyni, organista
og söngkennara á Akureyrium
skeið og var Sigtryggur organisti í
Saurbæjarkirkju og Möðruvallar-
kirkju í tíu ár. Þá hefur hann verið
í kirkjukórum fyrir Saurbæjar-
hrepp frá 1937 og fram á þennan dag.
Fjölskylda
Sigtryggur kvæntist 20.3.1942
Helgu Margréti Jóhannsdóttur, f. 24.
9.1922, húsfreyju en hún er dóttir
Jóhannesar Friðrikssonar b. í Nesi,
og Kristjönu Guðlaugsdóttur.
Börn Sigtryggs og Helgu Margrét-
ar eru Sveinbjöm Sigtryggsson, f.
11.10.1946, starfsmaður hjá Möl og
sandi á Akureyri; Jóhannes Rúnar
Sigtryggsson, f. 26.4.1957, b. á Sand-
hólum, kvæntur Jónu Friðriksdótt-
ur og eiga þau eina dóttur auk þess
sem hann á tvö börn frá fyrra hjóna-
bandi; Huida Sigurborg Sigtryggs-
dóttir, f. 26.12.1958, sagnfræðingur
í Reykjavík, gift Hauki Magnússyni
frá Ákureyri, arkitekt hjá Ár-
mannsfelli; Grétar Sigtryggsson, f.
23.11.1964, búsettur á Akureyri.
Látnar eru Hulda, Hrafnborg og
Sigrún.
Systkini Sigtryggs; Rósa Svein-
björnsdóttir, f. 1904, nú látin, hús-
freyja í Hleiðargarði; Herbert Svein-
björnsson, f. 1906, málarameistari á
Akureyri; Daníel Svelnbjörnsson, f.
1911, nú látinn, b. í Saurbæ; Guðrún
Sveinbjörnsdóttir, f. 1919, starfs-
stúlka á Dvalarheimilinu Hlíð á
Akureyri og Hrafn Sveinbjörnsson,
f. 1928, bifvélavirki og verkstæðis-
formaður hjá bílaverkstæðinu Þórs-
hamriáAkureyri.
Foreldrar Sigtryggs voru Svein-
björn Sigtryggsson, f. 1882, d. 1938,
b. í Saurbæ í Eyjafirði, og kona hans,
Sigrún Jónsdóttir, f. 1882, d. 1945,
Sigtryggur Sveinbjörnsson.
húsfreyja.
Ætt
Sveinbjöm var sonur Sigtryggs
Jónssonar, b. í Hólakoti í Eyjafirði,
og Ingibjargar Friðbjarnardóttur
frá Stekkjaflötum.
Sigrún var dóttir Jóns Jósúarson-
ar, b. í Ytra-Dalsgerði, og Guðrúnar
Oddsdóttur frá Rauðalæk.
Sigtryggur verður að heiman á
afmælisdaginn.
80 ára_____________
Ólafur Þórðarson,
Álfheimum46, Reykjavík.
Vilhjólmur Stefánsson,
Herjólfsgötu 11, Vestmannaeyjum.
Rögnvaldur Pétursson,
Gerðhömrum 19, Reykjavík.
Hann er að heiman.
Gunnar Sæmundsson,
Ljósheimum 10, Reykjavík.
75 ára
Guðlaug Sveinsdóttir,
Klausturhólum II, Skaftárhreppi.
70 ára
Sigurður H. Lúðvíksson,
c.o. Niada,
Arinella, Route du Bord de Mer
2260,Lumio
Haute, Corse, France
60 ára
40ára
Valgerður Björnsdóttir,
Brekkutúni 5, Kópavogi.
Kristín Ása Einarsdóttir,
Lækjarhvammi 8, Hafnarfirði.
Elísabet Guðfinna Jónsdóttir,
Stifluseli 8, Reykjavík.
Guðrún Stefánsdóttir,
Bakkasíðu 1, Akureyri.
Guðríður Þorsteinsdóttir,
Strandgötu 33, Akureyri.
Sigurður Þorsteinsson,
Jaðarsbraut 17, Akranesi.
Hjörtur Lárus Harðarson,
Hjallabraut 54, Hafnarfirði.
Halldór Eggertsson,
Mánagötu 14, Reykjavík.
ENDURSKINS-
MERKI!
Þaufást
apótekum
og víftar.
yUJMSOAS