Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1991, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1991, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991. 17 engu slæma útreið ir í körfuknattleik, steinlágu í fyrrinótt fyrir . Á myndinni sækir James Edwards, mið- )i Knicks, í leiknum. Los Angeles Lakers , 106-96, og önnur úrslit urðu þessi: Wash- amento 113-110, Denver - Boston 108-126, rs - 76ers 104-114. VS/Simamynd/Reuter Itd féll arnum Adch á útivelli, 2-1 Bikarmeistarar Manchester United eru úr leik í ensku bik- arkeppninni eftir að hafa beðið lægri hlut fyrir liði Norwich, 2-1, í 5. umferð bikarkeppninnar í gær- kvöldi. Lið Manchester United hafði áður leikið 21 leik í bikarkeppninni án þess að bíða ósigur. Þetta ætti að létta á álagi sem leikmenn Man. Utd hafa þurft að þola. Félagið er að berjast á mörgum vígstöðv- um. Liðið er komið í 4 Uða úrslit í deildar- bikarkeppninni. Þá er United í 5. sæti í 1. deild og er komið í 8 liða úrsUt í Evrópu- keppni bikarhafa. Einn annar leikur fór fram í bikarkeppninni. Nottingham Forest sigraði lið Newcastle, 3-0, í 4. umferð keppninnar. Norwich mætir Southampton eða Nottingham Forest Robert Fleck kom Norwich í 1-0 með marki á 26. mínútu en tíu mínútum síðar jafnaði Brian McClair metin fyrir United. Það var síðan Dale Gordon sem tryggði Norwich sigurinn þegar hann skoraði á 68. mínútu. Nowich mætir sigurvegaran- um úr leik Nottingham Forest og South- ampton sem eiga eftir að leika. Öruggur sigur Skírisskógarpiltanna Nottingham Forest átti ekki í vandræðum með 2. deildar lið Newcastle á heimaveUi sínum: Lokatölur urðu 3-0 og skoruðu þeir Nigel Clough á 34. mínútu, Steve Hodge á 81. mínútu og Gary Parker á 86. mínútu mörk liðsins og hefði Nottingham Forest hæglega getað bætt við fleiri mörk- um, svo miklir voru yflrburðir Uðins. -GH Leika tíu lið í 1. deild kvenna næsta vetur? - landsliðsþjálfarinn leggur fram fastmótaðar breytingartillögur GústafBjömsson, landsUðsþjálfari kvenna í handknattleik, hefur lagt fram fastmótaðar hugmyndir um breytingar á 1. deUdar keppni kvenna. Fræðslunefnd HSÍ er með flllögurnar til umfjöUunar þessa dag- ana og Gústaf sagði í samtaU við DV í gær að hann vonaðist eftir því áð eftir fínpússningu á þeim næðist samstaða um að leggja þær fyrir árs- þing HSÍ í vor. Nái hugmyndir Gústafs fram að ganga munu 10 lið leika í 1. deUd næsta vetur og spUa tvöfalda umferð en í vetur hafa átta Uð leikið fjórfalda umferð. Að lokinni sjálfri deUda- keppninni þegar íslandsmeistarar hafa verið krýndir leiki síðan fjögur efstu Uðin sérstaka úrsUtakeppni með tvöfaldri umferð og keppi þar um sæti í Evrópukeppni. „í þessum tiUögum hef ég það að leiðarljósi ac^efla kvennahandbolt- ann hér á landi og ná fram náinni samvinnu mUU landsUðs og félags- liða. Ég tel að eins og keppnin er í vetur sé allt of mikið um leiki sem hafi ekki mikla þýðingu eins og þegar toppUð mætir botnUði fjórum sinn- um,“ sagði Gústaf. Sérstök tímabil tekin frá fyrir landsliðið Gústaf leggur til að leiknar verði níu umferðir fyrir jól og níu frá áramót- um þar til um miðjan mars og að lokinni 5. og 14. umferð fái landsUðið tíu daga æfinga- og keppnistíma, fé- lögin fái tímabiUð 8.-20. desember til að búa sig undir keppnina eftir ára- mót og landsUðið síðan æflngar um jól og áramót og að lokinni úrsUta- keppninni í apríl. Kvennahandboltinn fluttur á fimmtudaga Þá er inni í tillögunum að fimmtu- dagar verði fastir leikdagar í 1. deild kvenna. „Með því að velja flmmtu- dagana erum við laus við samkeppn- ina við 1. defld karla á miðvikudög- um og laugardögum og markaðssetj- um þá sem daga fyrir kvennahand- bolta,“ sagði Gústaf Björnsson. -VS Svíar fengu skell gegn Dönum í handbolta: „Faxi“ er slakur - Staffan Olsson gagnrýndur af Bengt Johansson landsliðsþjáffara • Heimsmeistarar Svía í handknattleik urðu að láta í minni pokann fyrir Dönum í tveimur leikjum á dögunum. Hér sjáum við hluta af leikmönnum Svia. Staffan Olsson er efst til vinstri og Ola Lindgren situr neðst á mynd- inni hægra megin. Gunnar Guimarsson, DV, Svíþjóð: Bengt Johansson, þjálfari sænsku heimsmeistaranna í handknattleik, er ekki sáttur við tvær af stjörnum sínum þessa dagana - þá Staffan Ols- son og Ola Lindgren. Þeir Olsson og Lindgren, sem án efa eru í hópi bestu handknattleiks- manna heims, leika með 2. deildar liðum í Þýskalandi í vetur. í síðustu viku léku þeir með sænska landslið- inu sem fékk háðulega útreið í tveim- ur leikjum við Dani - tapaði 26-18 í Danmörku og 27-25 í Svíþjóð. Eftir leikina gagnrýndi Johansson þá tvímenninga mjög og sagði að þeir yrðu að fara að hugsa sinn gang - þeir væru hreinlega slakir um þess- ar mundir og væru greinilega ekki í sömu æfingu og áður eftir að þeir fóru til Þýskalands. Þetta minnir okkur íslendinga óneitanlega á þær umræður sem orð- ið hafa um Héðin Gilsson í vetur eft- ir að hann gerðist leikmaður með Dusseldorf í þýsku 2. deildinni! Rasmussen frábær í báðum leikjum Erik Veje Rasmussen, sá gamalkunni danski landsliðsmaður, er kominn í landslið Dana á ný og var sú ákvörð- un gagnrýnd á sínum tíma. En í leikj- unum við Svía sýndi Rasmussen að hann hefur aldrei verið betri en ein- mitt núna. í fyrri leiknum skoraði hann 8 mörk og bætti um betur í þeim síðari þegar hann skoraði 10 mörk og átti að auki einar átta send- ingar sem gáfu mörk. Fjórir bræður í Njarðvík • Það var söguleg stund í Njarðvík á sunnudaginn þegar Njarðvík og Þór mættust þar í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Með Njarðvíkurliðinu léku þrir bræður, Stefán, Gunnar og Teitur Örlygssynir, og stóri bróðir þeirra, Sturla, er þjálfari og leikmaður Þórs. Körfuknattleiksráð Njarðvíkinga af- henti bræðrunum blóm af þessu tilefni en þeir skoruðu allir í leiknum. DV-mynd Ægir Már Blak Spennaní hámarki Nú líður nær lokum íslandsmóts- ins í 1. deild karla og kvenna. í báðum deildum er staðan svipuð, eitt lið hefur afgerandi forystu og langbesta möguleika á íslandsmeistaratitlin- um. Slagurinn stendur hins vegar um annað og þriðja sætið hjá báðum kynjum og þar getur allt gerst því þrjú lið eiga möguleika, misgóða þó, á að hreppa silfrið. Víkingur og KA Það eru kvennalið Víkings og karla- lið KA sem tróna á toppi deildanna. Víkingum nægir að sigra í einum leik af þeim fjórum, sem eftir eru, til að tryggja sér titilinn en KA-mönn- um dugar að sigra í næstu tveimur leikjum eða þá vinna þrjá af fjórum síðustu leikjum sínum. Víkingar leika gegn botnliöi HK í Digranesi á miðvikudag og eiga Hæð- argarðsstúlkur góða möguleika á að tryggja sér titilinn þar. -gje ___________íþróttir Sport- stúfar Michel Platini, lands- liðsþjálfarí Frakka í knattspymu, mun að öllum likindum tefla Eric Cantona fram í fremstu víg- línu með markahróknum Pierre Papin þegar Frakkar leika gegn Spánverjum í Evrópukeppninni í knattspyrnu á morgun. Cantona hefur verið frá vegna meiðsla í tæpa 3 mánuði en er kominn af stað. Frakkar og Spánvetjar leika í sama riðli og íslendingar og leiða Frakkar riðilinn með fuflt hús stiga eftir 3 leiki. Firma- og hópakeppni FH í innanhússknattspyrnu Firma- og hópakeppni FH í inn- anhússknattspymu fer fram laugardaginn 23. febrúar í hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi fé- lagsins í Kaplakrika. Keppt verð- ur í tveimur sölum þamúg að keppni klárast á einum degi. Skráning og upplýsingar er hjá Hlyn í Vitanum, síraa 50404, 01- afi, síma 53951, og Guðmundi, síma 652023. Tveir mikilvægir leikir í körfunni Tveir mjög mikilvægir leikir eru á dagskrá úrvalsdeildar í körfu- knattleik í kvöld, Þá leika Grindavík og Þór í Grinda- vík og Tindastóll leikur á heima- veRi sínum gegn Val. Lið Grinda- víkur og Tindastóls berjast um sæti í úrslitakeppninni. Grind- víkingar hafa fy rir leikina í kvöld tveggja stiga forskot á Tindastól og bæði lið veröa að vinna sigur. Lið Þórs og Vals eru í fallbaráttu- slag ásamt Snæfelli og ÍR. Leik- irnir í kvöld eru einnig mjög mik- ilvægir fyrir Þórsara og Vals- menn. Það verður þvi örugglega um hörkuleiki að ræða í kvöld en þeir heíjast báðir klukkan átta. íslandsmet hjá Ingibjörgu Ingibjorg Arnardóttir setti Islandsmet í 1500 metra skriðsundi kvenna á innanfélags- móti Ægis fyrir skömmu. Hún synti vegalengdina á 17:23,34 mín- útum og bætti sex ára gamalt met Þórunnar Kristinar Guömunds- dóttur um tæplega mínútu en tinú Þórunnar var 18:22,00. Á sama mótinu náði hirrn 16 ára gamli Hörður Guðmundsson góð- um tíma í 400 metra fjórsundi karla þegar hann synti vega- lengdina á 5:03,99 mínútum. ÍS sigraói Grindavík í 1. deitd kvenna Efsta liðið í 1. deild kvenna í körfuknatt- leik átti ekki í vand- ræðum með að leggja botnlið Grindvíkinga að velli í l. deúdmni i gærkvöldi. Lokatölur leiksins urðu 68-41 og hafa stúd- ínur nú fjögurra stiga forskot á Hauka í efsta sæti en stúlkurnar í Grindavík hafa enn ekki hlotið stig. ÍBKog KR tryggðu sérsæti í 1. deild Ægir Már Kárason, DV, Sudumesjum: Tvö efstu liðin í 2. deild kvenna í handknatt- leik, ÍBK og KR, skildu jofn, 20-20, i toppslag deildarinnar í Keflavík í gær. Eft- ir þessi úrslit er ljóst að liðin hafa tryggt sér sæti í 1. deild á komandi ári. Ketlavík vann Breiðablik Þá var einn 'leikur í 2. deild karla. ÍBK bar sigurorö af UBK, 22-21. Liðin hafa bæði tryggt sér þátt- tökurétt í úrslitkeppni 6 efstu hða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.