Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1991, Blaðsíða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR Í9. FEBRÚAR 1991.
Fréttir
Frumvarp til laga vegna loðnubrests:
Erum hlynntir því að
frumvarpið verði samþykkt
- segirKristjánRagnarsson
„Við erum hlynntir því að þetta
frumvarp verði samþykkt. Við höfð-
um áður lagt til að loðnuflotinn fengi
að veiða sem samsvarar 12 til 13 þús-
und þorskígildislestum en þær tillög-
ur voru byggðar á því að engin loðnu-
veiði yrði en nú hefur verið leyft að
veiða 175 þúsund lestir af loðnu,“
segir Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna.
„Við teljum því aö það sé rétt að
loðnuflotinn fái aflaheimildir Hag-
ræðingarsjóðs og viðbót í rækjunni
þó það nái ekki að jafna allt það
tekjutap sem loðnuflotinn verður
fyrir nú vegna aflabrestsins. Það má
líta til þess tíma þegar illa áraði hjá
botnfiskflotanum að aflaheimildir
loðnuflotans voru skertar og færðar
til hans. Okkur fínnst því ekki óeðli-
legt að loðnuflotinn fái hluta af þess-
um veiðiheimildum til baka núna,“
segir Kristján.
Sjávarútvegsráðherra lagði fram á
Alþingi í síðustu viku frumvarp til
laga um ráðstafanir vegna aflabrests
í loðnuveiðum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
brugðist verði við tekjutapi loðnu-
flotans með tvíþættum aðgerðum. í
fyrsta lagi að ráðherra verði veitt
tímabundin heimild til að ráðstafa
aflaheimildum Hagræðingarsjóðs
sjávarútvegsins til aðstoðar loðnu-
flotanum. En með frumvarpinu er
lagt til að veiðiheimildir sjóðsins
samsvari 8 þúsund þorskígildislest-
um. í öðru lagi er lagt til að sjávarút-
vegsráðherra verði heimilt að auka
tímbundið heildarafla af úthafs-
rækju um 5 þúsund lestir og að þeirri
aukningu verði einungis skipt á milli
loðnuskipa.
í athugasemdum með frumvarpinu
segir meðal annars: „Verði loðnuafl-
inn 175.000 lestir á öllu þessu ári
þyrfti að auka veiðiheimildir skip-
anna um 24.000 þorskígildislestir til
að skipin haldi um 80% af meðal-
veiðiheimildum síðustu flmm ára.
Þar sem veiðiheimildum af botnfiski
og úthafsrækju er nú einungis út-
hlutað til átta mánaða vegna breytts
fiskveiðiárs er nauðsynlegt að miða
tímabundna hækkun á veiðiheimild-
um til loðnuskipa við sama tímabil."
-J.Mar
Ábyrgðarlaus sjávarútvegsráðherra
- segir Skúli Alexandersson
„Það er ábyrgðarlaus sjávarút-
vegsráðherra sem leggur fram frum-
varp á borð við frumvarpiö til laga
um ráðstafanir vegna loðnubrests.
Við gætum staðið frammi fyrir því
að aflaheimildir botnfiskflotans yrðu
skertar nú í haust og þá væri nær
að nota aflaheimildir Hagræðingar-
sjóðs til að bæta það upp. Á næsta
ári gætum við staðið frammi fyrir
því aö það þurfi að skerða botnfiskk-
vótann um 40 til 50 prósent,“ segir
Skúli Alexandersson þingmaður um
loðnufrumvarp sjávarútvegsráð-
herra sem kemur til umræðu á þing-
inu í dag.
„Við skulum ekki gleyma því að
fiskveiðiheimildir botnfiskflotans
fyrstu átta mánuði ársins byggjast á
því að hingað komi þorskganga frá
Grænlandi og ef hún lætur ekki sjá
sig þarf að skerða kvótann. Það er
náttúrlega von okkar allra að það
komi meiri loöna og Grænlandsgang-
an skili sér en á meðan er óvarlegt
að úthluta aflaheimildum sjóðsins til
loðnuflotans nú.“ -J.Mar
Krakkarnir í Fellahelli eyddu helginni i að undirbúa Listaviku sína sem standa mun út vikuna. Ýmislegt verður
til sýnis á Listavikunni og meðal annars þessi sérstaki hellir sem klæddur er DV-blöðum sem limd eru á virnet.
DV-mynd Brynjar Gauti
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæj ar:
Fasteignagjöld lækka
frá upphaflegri áætlun
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii
Fyrir hæjarstjórnarfundi á Akur-
eyri í dag liggur tillaga um lækkun
fasteignagjalda íbúðarhúsnæðis frá
upphaflegri áætlun. Samkvæmt til-
lögunni lækka gjöldin um 6,5 milljón-
ir króna og munu nema 222 milljón-
um.
Framsóknarmenn, sem eru í
minnihluta í bæjarstjórn, höfðu ílutt
tiUögu um meiri lækkun gjaldanna
eða sem nemur 6,6 milljónum.
Bæjarráð ákvað hinsvegar, eftir við-
ræður við forsvarsmenn launþega í
bænum, fyrrgreinda lækkun á gjöld-
unum en launþegahreyfmgin í bæn-
um hafði mótmælt harðlega fyrir-
hugaðri álagningu fasteignagjalda.
Þá hefur verið lögð fram tillaga um
skiptingu fjármagns til nýbygginga
og húsakaupa í bænum, en sá liður
nemur 340 milljónum í fjárhagsáætl-
un bæjarins. Stærstu liðir þar eru
varðandi húseignir og leiguíbúðir, 70
milljónir varðandi hvom málaflokk,
46,5 milljónir fara til þjónustukjama
við byggingar aldraöra við Víðilund,
30 milljónir vegna dagvista, 25 millj-
ónir til Verkmenntaskólans og 20
milljónir varðandi Síðuskóla, menn-
ingarmál og íþróttamál.
Norðurland eystra:
Listi kratanna
tilbumn
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Framboðslisti Alþýðuflokksins
við alþingiskosningamar í vor hef-
ur verið lagður fram. Sú breyting
hefur verið gerð varðandi 2. sætið
á listanum frá prófkjöri að Hreinn
Pálsson sem hlaut það sæti skipar
nú 14. sæti en Sigurður Amórsson
sem hlaut 3. sætið flyst upp í 2.
sætið. Listinn er þannig skipaður:
1. Sigbjörn Gunnarsson, verslunar-
maöur Akureyri.
2. Sigurður Arnórsson, fram-
kvæmdastjóri Akureyri.
3. Pálmi Ólafsson, skólastjóri Þórs-
höfn.
4. Gunnar B. Salomonsson, húsa-
smiður Húsavik.
5. Jónína ðskarsdóttir, húsmóðir
Ólafsfirði.
6. Arna. Jóhannsdóttir, leiðbein-
andi Dalvík.
7. Hannes Örn Blandon, sóknar-
prestur EyjáQarðarsveit.
8. Margrét Ýr Valgarðsdóttir,
sjúkraliði Akureyri.
9. Pétur Bjarnason, fiskeldisfræð-
ingur Akureyri.
10. Kristján Halldórsson, skipstjóri
Akureyri.
11. Herdts Guðmundsdóttir, hús-
móðir Húsavík.
12. Hilmar Ágústsson, útgerðar-
maður Raufarhöfn.
13. Áslaug Einarsdóttir, fyrrv. bæj-
arfulltrúi Akureyri.
14. Hreinn Pálsson, bæjarlögmaður
Akureyri.
Við kosningamar til Alþingis fyrir
Qórum árum hlaut Alþýðuílokkur-
inn eínn mann kjörinn, Árna
Gunnarsson, en Ámi skipar nú
efsta sætið hjá krötum á Suðurl-
andi.
Noröurland eystra:
Stefánsmenn ræða
við Borgaraf lokk
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Stuðningsmenn Stefáns Valgeirs-
sonar og borgaraflokksmenn í Norð-
urlandskjördæmi eystra áttu við-
ræður um helgina um hugsanlegt
framboð við kosningamar til Al-
þingis í vor, eins og fram kom í DV
í gær.
Fundurinn var haldinn að Stóru
Tjörnum í Þingeyjarsýslu og kom þar
fram vilji um sameiginlegt framboð
þessara aðila. Viðræður em hinsveg-
ar á byrjunarstigi og of snemmt að
segja fyrir um hvort af framboðinu
verður.
Af og til hefur verið rætt um fram-
boð þessara aðila ásamt Þjóðar-
flokknum, og hefur Þjóðarflokknum
verið boðin aðild að þessum viðræð-
um núna. í samtölum við DV til þessa
hefur Pétur Valdimarsson, formaður
Þjóðarflokksins útilokað sameigin-
legt framboð þessara aðila nema
undir merkjum Þjóðarflokksins.
Heimildir DV af fundinum að Stóru
Tjörnum segja hinsvegar að þar hafi
þó einhverjir þjóðarflokksmenn ver-
ið mættir, og lýst því yfir að ekki
væri útilokað að þjóðarflokksmenn
væru hugsanlega tilbúnir að taka
þátt í hinu sameiginlega framboði.
Flugleiðavél:
Rúða brotnaði
Ysta rúðan í margfóldu gleri flug-
stjómarklefa Aldísar, nýju þotu
Flugleiða, brotnaði á leið frá Glasgow
til Keflavíkur á laugardaginn. Til að
gæta fyllsta öryggis var flugið lækk-
að úr 30 þúsund fetum í 15 þúsund
fet. Skipt var um gler við komuna til
Keflavíkur og hélt vélin áfram flugi
síðar.
Rúðubrot sem þetta mun vera
sjaldgæft en getur gerst vegna bilun-
ar í hitabúnaði rúðunnar. Ekki mun
vera hætta á ferðum. Að sögn farþega
fylltust farþegarnir þó töluverðum
ótta við tilkynningu um brotið.
-hlh