Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1991, Side 25
LAUGARDAGUR' 9. MARS 1991.
37 *
Knattspyma unglinga
Haukar deildarmeistarar
- mikil spenna í Eyjum
Þór Ve. tryggði sér rétt til að leika i A-úrslitum í vor, er hann vann 2. deild 3. flokks karla, en umferðin fór fram
í Vestmannaeyjum.
Haukastrákarnir í 3. flokki karla
sýndu það á heimavelli sínum í Hafn-
arfirði aö staða þeirra í vetur er eng-
in tilviljun. Þeir unnu alla leiki sína
að þessu sinni og voru vel að deildar-
meistaratitlinum komnir.
Úrslitaleikur umferðarinnar að
þessu sinni var viðureign Hauka og
KR, en KR-ingarnir höfðu ekki tapað
Umsjón:
Heimir Ríkarðsson
og Lárus H. Lárusson
leik fram að þessu í vetur. Skemmst
er frá því að segja að Haukar höfðu
leikinn allan tímann í höndum sér
og unnu sanngjarnt, 24-19.
KR-ingar töpuðu aðeins þessum
eina leik og urðu í öðru sæti en bar-
áttan um þriðja sætið stóð á milli Týs
og KA.
Bæði þessi lið unnu FH og Þór og
gerðu siðan jafntefli í innbyrðis leik
þannig að markatala réð úrslitum að
þessu sinni. Týrarar höíðu betri
markatölu og réð þar mestu stórtap
KA gegn Haukum, 7-20.
FH varð i fimmta sæti, vann aðeins
einn leik gegn Þór Ak., en Þörsarar
unnu ekki leik að þessu sinni.
Jafnt í Eyjum
2. deild var leikin í Vestmannaeyj-
um og var þar hart barist um sætin
tvö er gáfu rétt til að leika í úrslitum
í.vor.
Frammistaða Þórs Ve. kom nokkuð
á óvart en Eyjapeyjar töpuðu ekki
leik að þessu sinni en gerðu þó jafn-
tefli viö Fram.
Baráttan um annað sæti stóð á
milli Fram, Vals og Stjörnunnar og
voru leikir þessara liða mjög jafnir
og skemmtilegir.
Framarar tryggðu sér annað sætið
en þeir töpuðu ekki leik að þessu
sinni frekar en Þór. Fram vann Val
og ÍA en gerði jafntefli við UBK,
Stjörnuna og Þór.
Valur varð síðan í þriðja sæti, vann
Stjörnuna, UBK og ÍA, en Stjarnan,
sem vann ÍA og UBK og gerði jafn-
tefli viö Fram, varð í íjórða sæti.
Valur og Stjarnan veröa því að
sætta sig við þaö að hafa verið mjög
nálægt því að komast í A-úrslit í vor
en herslumuninn vantaði.
UBK varð í fimmta sæti deildarinn-
ar og ÍA varð neðst en Skagastrák-
arnir unnu ekki leik að þessu sinni.
í A-úrslitum í vor leika því: Hauk-
Strákarnir i ÍA leika i B-úrslitum 3.
flokks karla en þeir töpuðu öllum
leikjum sínum í siðustu umferð.
ar, KR, Týr, KA, FH, Þór Ak„ Þof
Ve. og Fram.
í B-úrslitum leika hins vegar: Val-
ur, Stjarnan, UBK og ÍA ásamt fjór-
um efstu liðum 3. deildar en þau voru
að þessu sinni lið Völsungs, Víkings,
UMFA og Selfoss.
Lið Gróttu eftir að hafa unnið þriðja deildarmeistaratitilinn í jafnmörgum tilraunum.
Grótta enn best
Stúlkurnar í 3. flokki kvenna hjá
Gróttu héldu uppteknum hætti er
þær unnu keppnina í 1. deild að þessu
sinni. Grótta vann þarna þriðja
deildarmeistaratitil sinn í þessu
flokki og verður erfitt fyrir andstæð-
inga þeirra að stöðva lið þeirra á leið-
inni til íslandsmeistaratitils.
Grótta vann alla andstæðinga sína
og varð í fyrsta sæti en næst þeim
kom hö ÍBK og KR sem bæði töpuðu
tveimur leikjum en ÍBK hreppir ann-
að sætið vegna hagstæðari innbyrðis
viðureignar.
í fjórða sæti uröu Víkingar, sem
unnu Fram, og Haukar en Fram varð
í fimmta sæti, vann ÍBK og gerði jafn-
tefli við Hauka.
Haukar ráku síðan lestina með eitt
stig.
Baráttan um tvö laus sæti í A-
úrshtunum stóð á milli ÍBV, Stjörn-
unnar og Hattar frá Egilsstööum.
ÍBV vann deildina að þessu sinni,
tapaði aðeins einum leik, gegn Hetti,
14-13.
Stjarnan varð í öðru sæti, jöfn ÍBV
að stigum, en þar sem ÍBV vann inn-
byrðis viðureign þessara liða, 15-11,
kemur annað sætiö í hlut Stjörnunn-
ar.
Stúlkurnar í Hetti, Egilsstöðum,
rétt misstu af sæti í A-úrslitum er
þær töpuðu fyrir Stjörnunni, 10-13,
og töpuöu Hattarstúlkur aðeins fyrir
tveimur efstu liðum deildarinnar að
þessu sinni og koma án efa mjög
sterkar til leiks í B-úrslitum.
Þór, Ak., varð í fjórða sæti, FH í
því fimmta, UMFG varð í sjötta sæti
og Huginn rak lestina að þessu sinni.
Vert er að geta frammistöðu FH-
stúlkna sem unnu þrjá leiki en
óheppnin virtist elta lið þeirra um
síðustu helgi því þremur leikjum tap-
aði liðið með einu marki.
í 3. deild mætti ÍA ekki til leiks og
stóð því baráttan um þrjú laus sæti
í B-úrslitum á milli UMFA, ÍR, Vals,
Selfoss og HK.
Skemmst er frá því að segja að IR
vann ekki leik að þessu sinni og varð
því í neðsta sæti deildarinnar og þá
varð UMFA í næstneðsta sæti og
varð þar með af möguleikanum á aö
leika í B-úrslitum í vor. í A-úrslitum
leika því Grótta, ÍBK, KR, Víkingur,
Fram, Haukar, ÍBV og Stjaman.
í B-úrslitum leika Höttur, Þór, Ak,
FH, UMFG, Huginn, Selfoss, Valur
og HK.
Hartbarist í 5. flokki
í Seljaskóla fór fram keppni í 1.
deild 5. flokks karla og báru FH-ingar
sigur úr býtum en þeir töpuðu ekki
leik að þessu sinni en gerðu þó jafn-
tefli við Stjörnuna, 8-8.
Reykjavíkurmeistarar Fylkis náðu
öðm sætinu en þeir töpuðu aðeins
fyrir FH og gerðu jafntefli við HK,
9-9, en unnu aöra leiki sína.
Grótta varð í þriðja sæti, HK í því
fjórða, síðan kom Stjarnan og Vík-
ingar ráku lestina.
Öll þessi lið voru örugg með sæti
sitt í A-úrshtum í vor fyrir þessa
urnferð en í 2. deild börðust sjö lið
um tvö laus sæti í úrslitunum.
Öruggt hjá Val og KA
Keppnin um tvö efstu sæti 2. deild-
ar stóð á milli Vals og KA og gat
ekkert lið ógnað þeim en þó voru
KR-ingar næst því að blanda sér í
toppbaráttuna.
Valur og KA voru jöfn í fyrsta sæti
með 10 stig og leika því í A-úrshtum
í vor ásamt hðum þeim er áttu sæti
í 1. deild.
KR varð í þriðja sæti, vann þrjá
leiki og gerði eitt jafntefli en ÍR varð
í íjórða sæti eftir sigra á Fram, Þór
Ve. og Selfoss.
Selfoss var með jafn mörg stig og
ÍR í fjórða sætinu en þar sem Selfyss-_
ingar töpuðu fyrir ÍR, 8-9, er fimmtá
sætið þeirra.
Fram varð í sjötta sæti, vann að-
eins Þór Ve. sem vermdi botnsæti.
Hörð keppni í 3. deild
Fimm hð í 3. deild börðust um þrjú
laus sæti í B-úrslitunum og var það
ekki fyrr en í síðustu leikjunum að
í ljós kom hvaða lið það yrðu.
UBK og UMFA urðu jöfn að stigum
í fyrsta sætinu og ásamt þessum liö-
um tryggðu Haukar sér sæti í B-
úrshtunum með því að verða í þriðja
sæti deildarinnar.
ÍA og Týr sátn eftir með sárt ennið
pg leika því í C-úrslitum í vor ásamt
ÍBK, Fjölni og Leikni.
Sumarbústaðalóðir í
Vatnshornshlíð í Skorradal
Jörðin Vatnshorn er við austurenda og við sunnan-
vert Skorradalsvatn. Meirihluti sumarbústaðalóða er
í skógi sem „er án efa með fallegustu skóglendum
á Suðvesturlandi" (Ingvi Þorsteinsson, RALA
3.10.1989).
Upplýsingar um lóðirnar, staðhætti og fyrirkomulag
veita eigendurnir Bryndís og Einar Höskuldsson í
síma 95-24065 e.kl. 17.00 og Magnús H. Ólafsson,
arkitekt FAl, í síma 93-12210.
Skipulagskort verður sent þeim sem sækja um það
skriflega til Bryndísar og Einars að Mosfelli, 541
Blönduós.