Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1991.
Útlönd
Hallar á Gorbatsjov
á öllum vígstöðvum
þjóöaratkvæðagreiðslunni um nýja
sambandsríkjasamninginn. í morg-
un voru lokatölur kynntar og sam-
kvæmt þeim greiddu 76 prósent at-
kvæði með samningnum. Háttsettur
sovéskur embættismaður viður-
kenndi í gær að hinar gífurlegu verð-
hækkanir á matvælum, sem taka
eiga gildi 2. apríl, gætu aukið spenn-
una í landinu.
í Vilnius í Litháen skutu svarthúf-
urnar svokölluðu, sérsveitir sovéska
innanríkisráðuneytisins, í gær á bif-
reið með sex litháiskum landamæra-
vörðum. Að minnsta kosti tveir
særðust en hinum tókst að komast
undan. Sovésku hermönnunum
hafði ekki tekist að stöðva bifreiðina
utan við Vilnius og eltu hana þess
vegna inn í höfuðborgina. Á mánu-
daginn tóku sérsveitirnar til fanga
yfirmann varnarmála í Litháen og
yflrheyrðu hann í nokkrar klukku-
stundir áður en þær slepptu honum.
Fjöldi námuverkamanna, allt frá
landamærum Póllands til héraða í
Síberíu, hefur lagt niður vinnu. Þeir
kretjast hærri launa og betri vinnu-
skilyrða en hafa jafnframt krafist
afsagnar Gorbatsjovs forseta. Bent
hefur verið á að slæmt ástand efna-
hagsmála batni ekki við þessi víð-
tæku verkfóll sem einnig sameini
andstæðinga Gorbatsjovs undir for-
ystu helsta keppinautar hans, Boris
Jeltsin.
Samkvæmt niðurstöðum þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar á sunnudaginn
er mikill meirihluti almennings í
Rússlandi, eða yfir 70 prósent, fylgj-
andi því að skipulagðar verði frjálsar
Ný átök í Litháen og víðtækt verk- þykja hafa opinberað vanmátt Gor- stöðva hrun Sovétríkjanna þrátt fyr-
fall sovéskra námuverkamanna batsjovs Sovétforseta til þess að ir yfirlýsingu yfirvalda um sigur í
Námuverkamenn í Sovétríkjunum hafa efnt til víðtækra verkfalla og hafa meðal annars krafist afsagnar Gorbatsjovs.
Símamynd Reuter
Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovét-
ríkjanna. Simamynd Reuter
forsetakosningar. Talið er víst að
Jeltsin muni auðveldlega bera sigur
úr býtum í shkum kosningum og sem
þjóðkjörinn forseti Rússlands,
stærsta lýðveldis Sovétríkjanna,
muni hann geta ógnað stöðu Gor-
batsjovs. Einnig er tahð að Jeltsin,
sem vill meira sjálfstæði lýðveld-
anna, geti hlotið meira fylgi vegna
verðhækkananna sem Moskvuvald-
ið hefur fyrirskipað.
Aðstoðarforsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, Vladimir Shcherbakov,
lýsti því yfir á fundi með fréttamönn-
um í gær að verðhækkanirnar á
matvælum væru nauðsynlegar til að
bjarga efnahagnum. Hann viður-
kenndi hins vegar að þær gætu leitt
til vandræða og að búast mætti við
verkföllum.
Almenningur í Moskvu óttast að
bætur þær sem koma eiga í staðinn
fyrir niðurgreiðslur verði ekki nóg-
ar. Brauð og kjöt þrefaldast í verði.
Egg, te og matarolía hækka um 100
prósent og leikföng um 195 prósent.
Sígarettur hækka um 50 prósent.
Verð á lyfjum, kaffi, bensíni og vodka
stendur hins vegar í stað.
Reuter
RÚTUBÍLSTJÓRAR, ATHUGIÐ: Aðalfundur Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis verður haldinn að Hótel Loftleiðum, Öldunni, mánud. 8. apríl kl. 20.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Lagabreyting um stækkun félagsins Lög sjúkra- og orlofsheimilasjóðs lögð fram Önnur mál Stjórnin
Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram á skrifstofu embættisins, Miðbraut 11, Búðardal, miðvikudaginn 27. mars 1991 á neðangreindum tíma: Efri-Múli, Saurbæjarhreppi, þingl. eig. Magnús Agnarsson, kl. 10.00. Upp- boðsbeiðandi er Landsbanki íslands, veðdeild.
Búðarbraut 3, Búðardal, þingl. eig. Kristjana E. Guðmundsdóttir, kl. 10.00. Uppboðsbeiðandi er Heigi Jó- hannesson hdl.
Hóll, Hvammshreppi, þingl. eig. Ámi Ingvarsson og Júlíus Baldursson, kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur em Lands- banki Islands, veðdeild, Tiyggvi Bjamason hdl., Búnaðarbanki Is- lands, veðdeild, og Ásgeir Thoroddsen hrl.
6/28 hluti Akureyja, Skarðshreppi, þingl. eig. Friðrik Kjarrval, kl. 10.00. Uppboðsbeiðandi er Jóhann Þórðar- son hrl.
Dalbraut 4, Búðardal, þingl. eig. Ágúst Magnússon, kl. 10.00. Uppboðsbeið- endur eru Skúli J. Pálmason hrl., Sig- ríður Thorlacius hdl., Landsbanki Is- lands, veðdeild, íslandsbanki og Byggðastofhun.
Skarðsá, Skarðshreppi, þingl. eig. Unnsteinn Eggertsson, kl. 10.00. Upp- boðsbeiðendur em Jón Finnsson hrl. og Innheimtustofnun sveitarfélaga. Sunnubraut 11, Búðardal, þingl. eig. Svavar Garðarsson, ki. 10.00. Upp- boðsbeiðendur em Gísli Kjartansson hdl., Sigurður I. Halldórsson hdl., Sig- ríðm- Thorlacius hdl. og Ingvar Bjömsson hdl.
Klifmýri, Skarðshreppi, þingl. eig. Sverrir Karlsson o.íl., kl. 10.00. Upp- boðsbeiðendur eru Búnaðarbanki Is- lands, veðdeild, og Sigríður Thorlaci- us hdl.
SÝSLUMAÐURINN1DALASÝSLU
Hólar, Hvammshreppi, þingl. eig. Kristján E. Jónsson, kl. 10.00. Upp- boðsbeiðandi er Búnaðarbanki Is- lands, veðdeild.
Júgóslavla:
Forsetinn dregur
afsögn sína til baka
Forseti Júgóslavíu, Borisav Jovic,
hefur dregið til baka afsögn sína og
er því forsætisráð júgóslavnesku lýð-
veldanna aftur fært um að taka
ákvarðanir. Vestrænir stjórnarer-
indrekar segja hins vegar að kreppan
í Júgóslavíu sé þar meö alls ekki lið-
in hjá. Forsætisráðið, sem í eiga full-
trúar júgóslavnesku lýðveldanna sex
og tveggja sjálfstjórnarhéraða, mun
koma saman til fundar í dag til að
ræða framtíð landsins.
Jovic, sem er serbneskur kommún-
isti, sagði af sér í síðustu viku eftir
að hafa mistekist að fá forsætisráðið
til að fallast á áætlun hersins um
neyðarráðstafanir í kjölfar aukinnar
spennu milli þjóðarbrota. í gær hafn-
aði þingið í Serbíu afsögn Jovics og
kvaðst hann þá beygja sig undir vilja
þess. Þrír aðrir fulltrúar í forsætis-
ráðinu sögðu sig úr þvf í kjölfar af-
sagnar Jovics.
Yflrvöld í Króatíu sögðu í gær að
afsögn Jovics hefði verið liður í póli-
tísku herbragði forseta Serbíu,
Slobodans Milosevic. Hann hefði vilj-
að skapa öngþveiti til að réttlæta
aðgerðir hersins en forystumenn eru
flestir Serbar.
Milosevic hótaði fyrr í vikunni að
hervæða alla Serba sem búa í Króa-
tíu þar sem þjóðvarðliðið þar hefði
vopnbúist ólöglega.
Reuter
Borisav Jovic, (orseti Júgóslaviu, dró afsögn sina úr forsætisráðinu til baka i gær. Jovic, til vinstri, situr við hliðina
á Slobodan Milosevic, forseta Serbíu, á serbneska þinginu í gær.
Símamynd Reuter