Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Blaðsíða 12
I
12
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1991.
Spumingin
Ferðu oft í kirkju?
Þorlákur Guðmundsson prentari:
Nei ekki oft. Helst yfir hátíðarnar.
Sigþór Hrafnsson, vinnur á eigin veg-
um: Nei aldrei.
Heiða Tryggvadóttir nemi: Nei sjald-
an. Ég hef ekkert farið síðan ég
fermdist. *
Ragnheiður Óladóttir húsmóðir: Nei
það eru liðin nokkur ár síðan ég fór
síðast.
Einar S. Einarsson nemi: Nei, svona
2-3 sinnum á ári.
Arnaldur Skúli Baldursson nemi: Nei
allavega ekki mjög oft, fór síðast um
fermingu.
Lesendur
AUtof sterkur áfengur bjór:
Viljum fá 3-4%
á markaðinn
Léttari áfengur bjór með nýrri rikisstjórn?
Gunnar og Þór skrifa:
Nú er að koma á markaðinn svo-
kaliaður páskabjór hjá ÁTVR. Allt
gott um það. En þá rekur maður
augun í að þessi bjór er aðeins viðbót
við alla hina, hvað styrkleika snert-
ir, eða 5,6% að áfengismagni. - Okk-
ur finnst mikil vanþekking á mark-
aðssetningu áfengs bjórs hér á landi.
Eins er auðvitaö öll sölustarfsemi á
þessum algengu og vinsælu drykkj-
arfóngum í molum þar sem ekki er
hægt að kaupa þessa vörutegund
eins og aðra neysluvöru - bara í
venjulegum matvöruverslunum.
Við ætlum þó ekki að orölengja það
mál að sinni. Við vonum að nýja
stjórnin hans Davíðs setji nýjar og
frjálsari reglur um meðferð og sölu
á bjór og léttu víni. En það er styrk-
leikinn á áfenga bjórnum sem fer í
taugarnar á okkur. Við erum eins
og fleiri taisvert hrifnir af þessum
drykk og við höfum hvergi þurft að
kaupa hann á yfir 5% styrkleika
nema hér.
Sjálfsagt er að hafa sterkan áfeng-
an bjór til sölu einnig en ekki síður
léttari, þetta um 3-4%. Danski pilsn-
erinn, Hof og svo Grön, er miklu
veikari en sá sem hér fæst eða rétt
undir 4% að styrkleika. Þær tegund-
ir eru líka afar mildar og þægilegar
til neyslu með mat. - í Bandaríkjun-
um eru flestar bjórtegundir miklu
veikari en hér, þetta tæp 3% og svo
milli 4 og 5%. Budweiserinn ameríski
er mun veikari þar í landi en hér.
Hvernig skyldi nú standa á því?
Það má segja að sá áfengi bjór sem
hér er seldur sé óhæfur til neyslu,
t.d. með mat, vegna þess hve hann
er sterkur. Og til drykkjar, t.d. þegar
maður vill slappa af og fá sér eina
flösku af bjór yfir sjónvarpinu að
kvöldi til, er hann líka óhæfur vegna
þess að maður þarf ekki nema einn
bjór til að finna á sér. - Og það er jú
ekki alltaf ætlunin þótt maður vilji
finna þann unað sem það veitir að
drekka einn mildan bjór eða tvo með
örlitlu áfengismagni í.
Æsifréttir og ódæðisverk
D.J. skrifar:
Varla opnar maður svo dagblað að
ekki sé viðtal við yfir mann fíkniefna-
lögreglunnar á íslandi - stundum oft
í viku - og einnig í sjónvarpi. Og
hvílíkar yfirlýsingar! Maður hefur
varla heyrt annað eins. Útlistanir
lögreglufulltrúans eru ógnvænlegar
ef réttar eru. Ég hef búið í Reykjavík
í áratugi en aldrei orðið var við neitt
í líkingu viö það sem lögreglufulltrú-
inn er að lýsa. Mér finnst hann vera
að mála skrattann á vegginn.
Þessar æsifregnir geta skapað
glundroða og hræðslu hjá hinum al-
menna borgara. Aldraðir foreldrar
mínir þora varla út fyrir hússins dyr
þessa dagana. Ég minnist þess að
lögreglustjórinn sjálfur kom fram í
sjónvarpsþætti fyrir nokkrum árum
og fjallaði um þessi mál af gætni og
sagði að það væri ekkert nýtt að
menn fengju á’ann og að mannvíg
hefðu þekkst hér á landi í gegnum
aldirnar. - Oft má satt kyrrt liggja
og ég tel að ummæli í æsingastíl ýti
fremur undir vígbúnað venjulegara
borgara og enn aðra til ódæðisverka
sem ella hefðu látið þau vera.
Ég veit lítiö um frímúrararegluna
en ég held að hún telji sig ekki eiga
neitt sameiginlegt með undirheim-
um fíkniefnaglæpalýðsins og því ætti
lögreglufulltrúinn, sem hér um ræð-
ir, ekki að líkja þessu saman, eins
og hann gerði t.d. í blaðaviðtali fyrir
nokkru. Að lokum skora ég á lög-
reglustjóra að velja orövara máls-
svara fyrir hönd lögreglunnar.
Kosningar í flarlægum ríkjum:
Óþolandi fréttaf lutningur
Kosningafréttir frá fjarlægum þjóð-
um ekki spennandi útvarps- eða
sjónvarpsefni?
Þorsteinn Jóhannsson skrifar:
Það hefur vart gengið á öðru í frétt-
um Ríkisútvarps og Sjónvarps síð-
ustu dagana en að flytja okkur frétt-
ir af kosningum í Sovétríkjunum.
Langar fréttamyndir birtust um
þetta efni í Sjónvarpinu alla helgina
og einnig í útvarpinu. Og nú í dag,
mánudag, í hádegisútvarpinu, var
. langur pistill um þessar kosningar.
- Og ekki bara frá Rússlandi, heldur
bættu þeir Finnlandi við og þuldu
kosningatölur frá úrslitum þar í
landi.
Svona kosningapistlar frá fjarlæg-
um löndum eru orönir óþolandi í
fréttaflutningi því við hér höfum
hreinlega afar lítinn áhuga á þessum
málum. Jafnvel kosningar í Græn-
landi eiga ekki mikið upp á pallborð-
iö hér. Þetta eru allt þjóðir, Sovét-
menn, Finnar og jafnvel Grænlend-
ingar sem við höfum afar lítið saman
við að sælda og bein samskipti eru
sáralítil. Þangað förum við íslend-
ingar t.d. ekki oft og varla aðrir en
þeir sem eiga opinber viðskipti við
þjóðirnar.
Mér þykir Ríkisútvarpiö hafa alltof
mikið fyrir fréttaöflun af þessum
kosningum. Það setur sérstaka
fréttamenn til að lesa ósköpin og
jafnvel tvo mismunandi aðila, þannig
að einn sér um fréttirnar frá Sovét-
ríkjunum, annar um fréttirnar frá
Finnlandi og sá þriðji um kosningar
í Grænlandi. - Þetta er hrein ofrausn
við sárafáa hlustendur.
Auövitað er ég ekki að amast við
því að svona féttir séu í bland með
öðrum. En að gera þetta aö yfirgrips-
miklum fréttaflutningi eins og RUV
gerir þessa dagana er með öllu
óþarft. Segja má að erlendar kosn-
ingafréttir veki yfirleitt ekki mikla
athygli hér á landi. Þeir sem sækja
í þær una sér miklu betur við að lesa
þær í dagblöðunum og svo þeir allra
höröustu kaupa áreiöanlega erlendu
tímaritin Newsweek eöa Time og fá
þar sinn aukaskammt vel úti látinn.
Hvaðþorakratar?
Andrés skrifar:
Ég las kjallaragrein Össurar
Skarphéðinssonar í DV sl. mánu-
dag. Hann skipar 3. sætið á lista
Alþýðuflokksins í Reykjavík.
Hann ræddi m.a. um lykilinn að
bættum lifskjörum. Já, okkur
vantar tilfinnanlega svona lykil.
Hann er þó ekki að finna hjá kröt-
um úr því sem komið er. Össur
segir einnig að hans leið felist i
að þora. Þora að stokka upp at-
vinnulífið og þora að taka á úrelt-
um kerfum í landbúnaði.
Það voru þ\ú miöur einmitt
kratar sem ekki þorðu þegar bú-
vörusamningurinn illræmdi var
undirritaður. Þótt formaöur
krata og einn þingmaður flokks-
ins á Suðumesjum hefðu 'uppi
stór orð og segðu það valda
stjórnarslitum að samningurinn
yrði undirritaður gerðist ekkert.
- Kratarþoröu ekki.
Ávísanirog
íslenskurgjald-
miðill erlendis
Helga Stína Gatts, New York
skrifar:
Ég vil taka undir það sem skrif-
að var í lesendadálk DV hinn 28.
febr. sl. um erfiðleika með fs-
lenskar ávísanir erlendis. Ég fæ
iðulega sendar ávisanir frá ís-
landi. Það er ótrúlegt hve iangan
tíma það tekur að fá þeim skipt.
Maður fer úr banka í banka en
enginn botnar neitt í þessurn
ávísunum. Venjulega er bent á
annan banka sem er e.t.v. langt í
burtu.
Bankar hér eru rosalega vel á
verði er þeir sjá íslenskar
bankaávísanir. íslenskum pen-
ingum er ekki betra að skipta i
dollara þótt bankar hér taki
danskar, norskar og sænskar
krónur og reyndar annan evr-
ópskan gjaldmiðil, Ég skora á ís-
lenska bankamenn og aðra yfir-
menn gjaldeyrismála aö kanna
málið í botn og reyna að greiða
úr þessu öngþveiti.
Erfittaðheyraí
kirkjum
B.S. hringdi:
Ég var að koma úr Háteigs-
kirkju þar sem ég var við jarðar-
fór. Það reyndist mér afar erfitt
aö heyra mál prestsins, og þó er
ég ekki meðal þeirra sem eiga
neitt erfitt með heyrn. - En málið
er það, að því er mér viröist, aö
t.d. presturinn talar ekki í þar til
gerðan hljóðnema og það gerir
gæfumuninn.
Þetta sama vandamál á ég og
áreiðanlega miklu fleiri við að
glíma í Dómkirkjunni. Einkum
virðist sem málflutningur presta
við jarðarfarir fari fyrir ofan garð
og neðan vegna þess að ekki er
notaöur hljóðnemi. - Þessar
kirkjur báðar eru það stór hús,
að ekki veitir af þvi að hljóönemi
sé notaður og þá á svona ekki að
þurfa aö angra kirkjugestina.
Bein lýsing og
hlutdræg
Bernharð Antoníussen, Sigui’ður
Már Gunn&rs og Hávarður Örn
Hávarðsson skrifa:
Hinn 8. mars sl. var bein lýsing
á útvarpsstöðinni Bylgjunni frá
leik ÍBV og Víkings i úrslita-
keppninni i handbotta. Við viljum
mótmæla þeim vinnubrögðum
sem þarna áttu sér stað. - Sá sem
lýsti leiknum var Éyjamaður og
kom það svo greinilega í ljós að
ekki fór fram hjá neinum Vík-
ingsmanni. Þar að auki haföi
hann sér til aðstoðar leikmann
úr ÍBV.
Okkur fannst þetta ekki síst
forkastanlegt vegna þess að send-
ingin náði yfir hlustunarsvæði
Bylgjunnar, þ.m.t. Reykjavíkur-
svæðið. Okkur fannst að fjölmiöl-
arnir ættu að krefjast þess aö
þeir er lýsa svona leikjum séu
hlutlausir og aö þeir lýsi leik fyr-
ir fleiri en sjálfa sig.