Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1991.
HAFNIR
Óskum að ráða umboðsmann sem fyrst.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 92-16947 og
á afgreiðslu DV í síma 91 -27022.
Komatsu WA-450 s/n 10990
- árg. 1987
vinnust. ca 3000
dekk 23,5x25
verð 6.300 þús. + vsk.
Caterpillar 225lc s/n 9db 1211
- árg. 1983
vinnust. ca 4400
30" skófla - 28" spyrnur
Verð 4.700 þús. + vsk.
Komatsu PC220lc-3 s/n 22447 -
árg. 1987 - vinnust. ca 3800
32" spyrnur - undirvagn 75%
Allied 780 hamar og 2 skóflur.
Verð 5.600 þús. + vsk.
Caterpillar d4h LGP s/n 9db
1211
- árg. 1988
Vinnust. ca 1700
P.A.T. tönn - Kenco ripper
Verð 5.300 þús. + vsk.
Markaðsþjónustan
Skipholti 19, 3. hað, simi 26984
Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins
Alþýðubankinn hf verður haldinn
í Átthagasal Hótels Sögu, Reykjavík,
fimmtudaginn 4. apríl 1991
oghefstkl. 17.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf í samrœmi við
ákvœði greinar 4.06 í samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til stjómar félagsins til út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Tillaga um heimild til stjómar félagsins um
nýtt hlutafjárútboð.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í íslands-
banka, Kringlunni 7, Reykjavík, dagana 2., 3. og
4. aþríl nk. og á fundarstað. Ársreikningur félags-
ins fyrir árið 1990, ásamt tillögum þeirn sem fyrir
fundinum liggja, verða hluthöfum til sýnis á
sama stað.
Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir fund-
inn, þurfa að hafa borist stjóm félagsins skrif-
legai síðasta lagi 27. mars nk.
Reykjavtk, 15. mars 1991
Stjóm Eignarhaldsfélagsins
Alþýðubankinn hf.
Utlönd
Flóttafólki neitað
ummatogvatn
Þetta íraska barn er meðal margra annarra sem hlotið hafa brunasár i
tengslum við bardaga uppreisnarmanna og íraska hersins í suðurhluta ír-
aks. Barnið er nú í flóttamannabúðum í íran þar sem búið verður um sár
þess. Bandaríkjamenn og Kúvætar neita hins vegar að aðstoða flóttamenn.
Simamynd Reuter
Bandarísk og kúvæst yfirvöld virö-
ast vera aö reyna aö skjóta sér undan
ábyrgöinni á þeim óbreyttu borgur-
um í írak sem urðu strandaglópar
bak viö framvarðarlínu Bandaríkja-
manna í suöurhluta íraks þegar
átökunum lauk 28. febrúar. Þetta er
mat stjórnarerindreka og starfs-
manna hjálparstofnana.
Alls eru þar á milli fimm þúsund
og tuttugu þúsund írakar og neita
Bandaríkin að sjá þeim fyrir mat og
vatni. Sumir bandarískir hermenn
gefa þeim þó af mat sínum. Frétta-
menn, sem heimsækja framvaröar-
línu Bandaríkjamanna, aka fram á
hungruð böm sem biöja um mat.
Þaö er haft eftir einum yfirmanna
Bandaríkjahers á staðnum aö honum
þyki erfitt aö banna mönnum sínum
aö fæöa flóttamennina. Heimildar-
maður fjölþjóðahersins sagði að
bandamenn vildu ekki byrja á því
aö gefa þeim mat því þá ættu þeir á
hættu að hálf íraska þjóðin streymdi
til þeirra. Annar heimildarmaður
taldi aö nýr bandarískur herforingi
á staðnum kynni að hafa að engu
fyrirskipunina og gefa írökunum
mat.
Rétt innan við landamæri Kúvæts
hafast tvö þúsund flóttamenn af
ýmsum þjóðernum við í tjaldbúðum
í eyðimörkinni. Þeim sem flýja bar-
daga uppreisnarmanna og íraska
hersins fjölgar dag frá degi en kúv-
æsk yfirvöld vilja ekki hleypa þeim
inn í landið.
íranir hafa að undanförnu tekið á
móti fjölda ílóttamanna frá írak.
Samkvæmt frásögn flóttamann-
anna hafa hermenn úr íraska Lýð-
veldisverðinum tekið fjölda manns
af lífi í hafnarborginni Basra. Þar
hggi lík á víð og dreif og séu hundar
farnir að leggja þau sér til munns.
Vestrænir sérfræðingar, sem ný-
komnir eru frá Bagdad, segja að
hætta sé á meira mannfalli vegna
ástandsins þar en af völdum stríðs-
ins. Óttast er að kólera og taugaveiki
fari að herja á íbúana þegar hiýnar.
Kúrdar, sem segjast hafa náð yfir-
ráðum yfir nær öllu Kúrdistan-
héraði í Irak, hafa boöist til aö hýsa
bráðabirgðastjórn þar til Saddam
Hussein íraksforseta verður bolað
frá. Saddam lýsti því yfir sjálfur á
laugardaginn að menn hans hefðu
bælt niður uppreisnina í suðurhluta
íraks en þaðan berast þó stöðugar
fréttir um bardaga.
Bandarískar orrustuþotur skutu í
gær niður íraska herþotu nálægt
Takrit, heimabæ Saddams íraksfor-
seta. Bush Bandaríkjaforseti sagði í
gær að allar íraskar vélar, sem brytu
vopnahlésskilmálana, yrðu skotnar
niöur. Samkvæmt vopnahlésskil-
málunum er írökum bannað að nota
flugvélar sinar nema til flutninga á
fólki. Uppreisnarmenn Kúrda segja
að hundruð óbreyttra borgara hafi
látið lífið í loftárásum íraska hersins
umhverfis olíuborgina Kirkuk. Upp-
reisnarmenn segjast nú hafa borgina
á sínu valdi.
Reuter
CAPSULES
rP <fí
Súrmjólkin er ein kalkríkasta fæða sem við neytum að jafnaði. Hún er einnig auðug af próteini,
Druesukker
tabletter
töOSTK/
arRHURTIO
mm
— U-.y
KWk
250 ABCDín
Vflf <9 U§ §i
0
Ksls/umglúkónat