Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1991.
25
„Allt getur
gerst ennþá“
„Miðað við byrjunina í upphafi seinni
háifieiks átti ég ekki von á þessum úrslitum.
Vörnin var ekki nógu góð í fyrri hálfleik en
small saman í þeim síðari. Baráttan er góð
í liðinu og við erum alltaf að vinna á. Þó
staða okkar sé sterk er mótið langt í frá
búið ennþá. Það eru enn tíu stig eftir í pott-
inum og allt getur gerst. Ég er umfram allt
mjög ánægður meö sigur í þessum leik,“
sagði Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals, í við-
tali við DV eftir leikinn.
Guðmundur Guðmundsson:
„Miðað við ganginn í vetur er mikið áfali
að tapa þessum leik. Við misnotuðum
dauðafæri, misstum einbeitinguna og gáfum
eftir í vörninni. Við lékum glimrandi vel í
upphaii seinni hálfleiks en síðan ekki sög-
una meir. Við áttum efiðan leik á mánudag-
imi var gegn Stjörnunni, bæði liðin óskuðu
eftir frestun en var synjað af mótanefnd.
Það sitja ekki allir við sama borð i þessum
efnum,“ sagöi Guðmundur Guðraundsson,
spilandiþjálfariVíkings. -JKS
rn Vals og skorar eitt af átta mörkum sinum i
DV-mynd GS
tiltar
randi
8-23, í gærkvöldi
íþróttir
Þannig skoruöu liöin mörkin
VALUR
VIKINGUR
■ Langskot
@ Gegnumbrot
P Hom
□ Hra&aupphlaup
Mórk úr vlta-
kostum eru f
tatin meÓ þarsem
þau unnust
■ ;
Langþráður sigur
Hauka á FH-ingum
- Haukar unnu FH, 24-25, í uppgjöri Hafnarfj arðarliðanna í gær
Það var mikil stemning meðal eitt
þúsund áhorfenda í Kaplakrika þeg-
ar FH og Haukar mættust í Hafnar-
ljarðarslagnum í gærkvöldi. Haukar
náðu aö sigra, 24-25, í hreint ólýsan-
legum spennuleik og fengu þar með
sín fyrstu stig í úrslitakeppninni en
íslandsmeistarar FH eru enn án sig-
urs.
Það var eins og um úrslitaleik væri
að ræða, slík var stemningin og
spennan jafnt innan vallar sem utan
og það má kannski segja að þetta
hafi verið úrslitaleikur fyrir Hafn-
firðinga sjálfa.
Haukar byrjuðu betur og komust í
1-3 í byrjun en þá gerðu FH-ingar 8
mörk í röð og virtust ætla að sigla
yfir Haukana. Munurinn hélst 4-5
mörk og í leikhléi var staðan 15-10,
FH-ingum í vil.
Pétur skoraði
sigurmark Hauka
Haukamenn komu tvíefldir til leiks
í síðari hálfleik og með frábærri
markvörslu Magnúsar Ámasonar
tókst þeim að jafna metin, 17-17, og
komast síðan yfir. FH-ingar náðu að
jafna en Haukamenn héldu forystu
næstu mínútur. Lokakaflinn var
ótrúlega spennandi og gífurleg
stemning meðal áhorfenda. Haukar
voru yfir, 22-24, en FH náði að jafna
með tveimur mörkum Stefáns Krist-
jánssonar. Það var síðan Pétur Árna-
Handbolti
Úrslitakeppni:
Valur-Víkingur.........28-23
FH-Haukar..............24-25
Stjarnan-ÍBV frestað
Valur .. 5 5 0 0 131-99 12
Víkingur .. 5 2 1 2 133-134 9
Stjarnan. .. 4 1 2 1 88-90 5
ÍBV .. 4 2 1 1 95-104 5
FH .. 5 0 2 3 117-129 2
Haukar... .. 5 1 0 4 116-126 2
Fallkeppni:
Fram-Grótta. 20-20
KA-KR.. 26-21
KA . 5 3 0 2 134-108 8
Fram . 5 3 1 1 110-111 7
ÍR . 4 2 1 2 96-96 5
Grótta . 5 2 1 2 120-122 6
KR . 5 0 1 4 109-121 5
Selfoss... . 4 2 0 2 90-91 4
Fallkeppni 2. deildar:
Ármann-ÍS... 36-17
ÍH ..21 9 2 10 85-59 20
Ármann. ..23 8 2 13 121-94 18
Aftureld. ..21 8 0 13 62-51 16
fs ..23 1 1 21 83-147 3
son sem tryggði Haukamönnum sig-
urinn með marki 14 sekúndum fyrir
leikslok. FH-ingar gerðu örvænt-
ingafullar tilraunir til að jafna en
Magnús varði frá kollega sínum,
Bergsveini Bergsveinssyni, sem
reyndi að skora úr vinstra horninu
á síðustu sekúndunni. Haukamenn
stigu trylltan stríðsdans í lokin enda
fyrsti sigurinn á „stóra bróður" í
mörg ár staðreynd.
Stórleikur Magnúsar
í marki Hauka
Magnús Árnason var besti maður
Hauka í leiknum og varði oft meist-
aralega vel gegn sínum gömlu félög-
• Ingibjörg Arnardóttir synti 800
metra skriösund á tímanum 9:01,54
sem er nýtt íslansdsmet.
Glæsilegt
íslandsmet
hjá Ingibjörgu
- á sundmóti í Malmö
Ingibjörg Arnardóttir úr
Ægi setti í gær glæsilegt
íslandsmet í 800 metra
skriðsundi á opna sænska
meistaramótinu í Malmö. Ingibjörg
synti vegalengdina á 9:01,54 minút-
um en fyrra metið átti hún einnig
og var það sett á innanhússmeistara-
mótinu í Vestmannaeyjun í byrjun
mánaðarins. Ingibjörg bætti metið
um þrjár sekúndur.
Ævar Örn Jónsson úr Sundfélagi
Suöurnesja náði góðum árangri í 100
metra baksundi, synti á 57,99 sek-
úndum sem er rúmri sekúndu frá
íslandsmeti Eðvarðs Þórs Eðvarðs-
sonar. Mótiö í Malmö í gær var hður
í heimsbikarmótinu.
-JKS
Tíu marka tap
gegn Hollandi
- hjá íslenska kvennalandsliðinu í handbolta
íslenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik tapaði með tíu marka mun
fyrir Hollandi, 16-26, í C-heimsmeist-
arakeppni kvenna í Cessano á Ítalíu
í gærkvöldi. íslensku stúlkurnar
léku vel í fyrri hálfleik og að sögn
Gústafs Björnssonar landshðsþjálf-
ara var þetta það besta sem sést hef-
ur til liðsins í keppninni. í leikhléi
var munurinn aðeins eitt mark, 9-10.
Með smáheppni hefði íslenska liðið
getað verið yfir í hálfleik því að fiög-
ur vítaköst fóru forgörðum í fyrri
hálfleik. Hollenski markvörðurinn
varði 3 og eitt víti fór í þverslána.
í síðari hálfleik fóru þær hollensku
á kostum. íslensku stúlkurnr misstu
þá niður einbeitingu og þær hol-
lensku gengu á lagið og skoruðu
mörg mörk úr hraðaupphlaupum.
Sóknarleikur íslenska liðsins var
ekki nógur góður og stelpurnar klár-
uðu sóknirnar of snemma. Hollenska
hðið hefur á að skipa einu besta lið-
inu í keppninni og hefur sigrað ör-
ugglega í öllum leikjum sínum.
íslenska liðið var nokkuð jafnt en
Erla Rafnsdóttir lék einna best. Kol-
brún Jóhannsdóttir lék allan tímann
í markinu. Hún varði vel í fyrri hálf-
leik en dalaði nokkuð í þeim síðari.
• Erla Rafnsdóttir átti góðan leik
gegn Hollandi og skoraði 4 mörk.
• Mörk íslands: Erla Rafnsdóttir
4/2, Erna Lúvíksdóttir 4/2, Guðríður
Guðjónsdóttir 3/1, Svava Sigurðar-
dóttir 2, Björg Gilsdóttir 2 og Rut
Baldursdóttir 1.
• ísland leikur í kvöld gegn Belgíu
og verður að vinna þann leik eigi lið-
ið að eiga möguleika á 3. sætinu í
riðlinum.
-GH
um. Petr Bamruk var geysiöflugur
að vanda og Pétur Árnason skoraði
grimmt á lokakaflanum.
Hjá FH-ingum voru Bergsveinn
markvörður og Óskar Ármannsson
bestu menn. Stefán Kristjánsson var
atkvæðamikill en gerði einnig nokk-
ur slæm mistök undir lokin.
Dómarar voru Hákon Sigurjónsson
og Guðjón Sigurðsson og komust
þeir vel frá erfiðum leik.
• Mörk FH: Stefán Kristjánsson
8)3, Óskar Ármannsson 7, Guðjón
Árnason 4, Halfdán Þórðarson 3,
• Snorri Leifsson skoraði 3 mörk
þegar Haukar unnu sætan sigur á
FH í gær.
Óskar Helgason 1 og Gunnar Bein-
teinsson 1.
• Mörk Hauka: Petr Bamruk 8/1,
Pétur Árnason 5, Snorri Leifsson 3,
Steinar Birgisson 3, Óskar Sigurðs-
son 3, Sigurjón Sigurðsson 1/1, Svein-
berg Gíslason 1 og Sigurður Árnason
1. -RR
Fallkeppni 1. deildar karla 1 handknattleik:
Guðmundur í stuði
- þegar Fram og Grótta skildu jöfn, 20-20
Fram og Grótta skildu jöfn, 20-20, í fallkeppni 1. deildar karla í Laugar-
daishöll í gærkvöldi. Staðan í leikhléi var 9-9 en í síðari hálfleik náðu
Gróttumenn undirtökum og komúst þremur mörkum yfir en Framarar
jöfnuðu og komust yfir en Grótta jafnaði leikinn, 20-20. Guðmundur A.
Jónsson, markvörður Fram, var í miklu stuði og varði 20 skot, þar af 3 víti.
• Mörk Fram: Gunnar 6, Páll 4, Karl 4/2, Egill 3/1, Jason 1, Brynjar 1
og Andri 1.
• Mörk Gróttu: Páll 5, Stefán 5/3, Friðleifur 3, Halldór 2, Davíð 2, Gunn-
ar 2 og Svavar 1.
• Gunnar Viðarsson og Sigui'geir Sveinsson dæmdu leikinn og voru
leikmönnum Fram mjög óhagstæðir.
Oruggur sigur KA
KA sigraði KR á Akureyri, 26-21, og er í efsta sæti liðanna sem leika í
fallkeppninni. KR-ingar eru hins vegar í fallsæti. KA hafði yfirhöndina
allan leiktímann og í hálfleik var staðan 11-9.
• Mörk KA: Hans 8/3, Sigurpáll 5, Pétur 4, Guðmundur 4, Erlingur 3,
Jóhannes 2.
• Mörk KR: Páll 7/1, Konráð 5, Sigurður 4, Björgvin 2, Guðmundur 2
og Willum 1.
-GH/GK