Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Page 28
36
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1991.
Sameinað launafólk
v Undanfarið hefur Gunnar Gunn-
arsson, starfsmaður sjúkraliðafé-
lagsins, sem titlar sig þó sem fyrr-
verandi framkvæmdastjóra Starfs-
mannafélags ríkisstofnana, séð sig
knúinn til að hælbítast við mig í
greinum í Dagblaðinu.
Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga
fyrir málefnum sjúkraliða sem
eðlilegt er og talið mig hafa unnið
fyrir Sjúkraliðafélag íslands af
bestu vitund. Þótt stundum þyki
hægt ganga í málum sjúkraliða
hefur þó margt áunnist. Til dæmis
hefur námið lengst mikið frá því
sem það var þegar ég kom í stjórn
félagsins 1974 og miklu meiri kröf-
ur gerðar til menntunar og ábyrgð-
ar en þá. Það efast enginn lengur
um það að sjúkraliðar eru stétt sem
er komin til að vera í hjúkrun.
Það er mikilvægt að við sjúkralið-
ar stöndum sem ein heild út á við,
þrátt fyrir misjafnar skoðanir á
einstökum málum, og forðumst að
láta utanfélagsmenn sundra okkur.
Ég tel eðlilegast að sjúkraliðar ræði
sérmál sín á innanfélagsvettvangi,
á fundum í félaginu og með greina-
skrifum í fagblöðum og mun því
ekki elta ólar við einstök atriöi í
greinum Gunnars.
Einungis námskeið
Fyrst skal þó vikið að því að árið
1983 átti ég sæti í nefnd á vegum
heilbrigðisráðuneytisins sem gera
átti tillögur um menntun sjúkra-
liða, í framhaldi af kjarasamning-
um. Það sem aðallega varð til aö
ekkert vannst í þeirri nefnd var það
að þeir sem störfuðu á vegum ráðu-
neytisins vildu að við sjúkraliðar
afsöluðum okkur réttindum til árs
náms, þrátt fyrir það aö um slíkt
nám hefði verið samið árið áður.
Þannig fór mikill tími í gagnslítið
þref vegna þess að ríkið ætlaði sér
ekki að standa við sinn hlut.
Enn þann dag í dag hefur þetta
ársnám ekki náðst fram þrátt fyrir
góðan vilja margra sjúkraliða, sem
hafa unnið að málefnum félagsins,
og síendurteknar bókanir um þetta
nám við kjarasamninga við ríkið.
Sjúkraliðar hafa einungis fengið
þrjú þriggja mánaða námskeið í
sérhæfðri hjúkrun þótt í reglugerð
hafi verið ákvæði um þau og
sjúkraliðar taiið að halda ætti slík
námskeið með ákveðnu millibili.
Kannski ættum við sjúkraliöar að
velta því upp hvað veldur því að
Kjallarinn
Sigríður Kristinsdóttir
sjúkraiiði, formaður SFR
okkur hefur ekki gengið nógu vel
í menntunarmálum. Það er skoðun
mín að það orsakist að verulegu
leyti af því hvar við erum stödd í
valdapýramídanum innan heil-
brigðiskerfisins. Þar höfum við
virkilegt verk að vinna.
Kvennastéttir hafa almennt átt
undir högg að sækja í menntunar-
málum sínum þótt flestar þessara
stétta hafi lagt síaukna áherslu á
menntunarmál sín, m.a. í sam-
bandi við kjarasamninga. Það hef-
ur þó sýnt sig að þrátt fyrir aukna
menntun og ábyrgð eru konur
launalega lítið betur settar.
Ljósmæður höfðu t.d. tveggja ára
nám en þurfa nú að ljúka fjögurra
ára háskólanámi í hjúkrun áöur en
viðkomandi fer í ljósmóðurnámið
en samt hafa litlar breytingar orðið
í launamálum þessarar stéttar.
Þrátt fyrir síauknar kröfur til
menntunar fóstra hafa laun þeirra
litið hækkaö. Þroskaþjálfar voru
áður þjálfaöir á Kópavogshæli en
hafa nú þriggja ára nám í sérskóla
en launin hafa ekki hækkað að
sama skapi. Fjölmargt launafólk
hefur einnig farið á margs konar
tölvunámskeið til að standa sig
betur í vinnunni enda atvinnurek-
endur gert kröfur um slíkt. Það
vill þó oft frestast aö það sé bætt í
launum. Atvinnurekendur eru
þannig sífellt aö gera kröfur um
hæfara og betur menntað starfsfólk
og aukna ábyrgð þess en vilja hins
vegar ekki greiða fólki laun sem
það getur lifað af.
Menntunarmál viðfangsefni
launamanna
Mörg dæmi má nefna um að mikl-
ar kröfur séu gerðar um hæfni
þeirra sem vinna eiga verkin. T.d.
má taka meðferðarfulltrúa sem
annast fatlaða og geðsjúka og vinna
sem meðferðaraðilar inni á deild-
um ýmissa stofnana en fá litla sem
enga þjálfun. Þótt þeir séu nefndir
hér sérstaklega á þetta líka við í
ótal mörgum öðrum störfum.
Menntunarmál hljóta í framtíð-
inni að verða enn frekar viðfangs-
efni samtaka launamanna en verið
hefur og á því sviði hafa fagfélög
unnið mikilvægt starf.
Menntun er einstaklingnum
nauðsynleg og öllum til góðs. Hún
veitir fólki lífsfyllingu og gerir þaö
hæfara til að fást við sífellt fjöl-
breyttari viöfangsefni í starfi. Það
segir sig sjálft að samfélagið nýtur
góðs af því að þegnarnir séu vel
menntaðir.
Á íslandi eru laun allt of lág og
langur vinnudagur mein í þjóð-
félaginu sem ekki verður upprætt
fyrr en tekst að stórhækka kaup-
mátt launa. Að því verkefni á
launafólk að vinna, ekki sundrað
heldur sameinað. Fólk sem býr við
svipuð launakjör á íslandi á sam-
leið í kjarabaráttunni. Það á ekki
síður við um íslenskt launafólk en
áður að sameinuð stöndum vér,
sundruð föllum vér.
Sigríður Kristinsdóttir
„Á íslandi eru laun allt of lág og langur
vinnudagur mein í þjóðfélaginu sem
ekki verður upprætt fyrr en tekst að
stórhækka kaupmátt launa. Að því
verkefni á launafólk að vinna, ekki
sundrað heldur sameinað.“
Meiming
Urvinnsla sem innihald
Hörður Ágústsson listmálari hélt eitt sinn sýningu
sem hann nefndi „Úr formsmiöju". Veitti hún áhorf-
endum dýrmæta innsýn í hugmyndaheim listamanns-
ins og tilurð verka hans en fram að þeim tíma var
ekki til siðs hérléndis að opinbera innviði myndlistar-
innar með þeim hætti.
Jakob Jónsson gæti einnig kennt sýningu sína í
Stöðlakoti við Bókhlöðustíg (til 22. mars) við form-
smiðju, þar sem megintilgangur hans er ekki að versla
með myndverk sín, heldur að leyfa áhorfendum að
fylgjast meö þróun og víxlverkan hugmynda sinna og
myndmáls á ýmsum stigum sköpunar - og í þar til
gerðu umhverfl.
Og vissulega er umhverfið eins og sniðið utan um
smágerð og vel valin myndverk, til að mynda úrval
teikninga, grafikmynda eða smámynda. Væri lýsing
betrumbætt mætti sýna þarna fágætustu míníatúra.
í gömlu, tvílyftu húsi
Stöðlakot er gamalt, tvílyft hús sem fyrir nokkru var
fært í nýjan og afar smekklegan búning og opnað
myndlistarfólki til afnota fyrir sýningar.
Jakob hefur komið fyrir skáhallandi plötum með
veggjum, bæði uppi og niðri, og meðfram þeim gengur
sýningargesturinn og horfir niður á pappírsmyndir
hans.
Jakob Jónsson er staðfastur einfari í íslenskri mynd-
list, sérstæður málari með rætur jafnt í kvikri afstrakt-
sjón sem íslensku landslagi. Einkum sker hann sig
úr fjöldanum fyrir rannsakandi viðhorf sín til listsköp-
unar sem hugsanlega má rekja til verkfræðimenntun-
ar sem hann hlaut áður en hann hóf að blóta listgyðj-
una. Allar hugdettur eru teknar til vandlegrar athug-
unar, skoðaðar frá ýmsustu hliöum form- og litafræð-
innar, síðan endurskoðaðar, jafnt samhengislaust sem
í ööru samhengi.
Á endanum eru það ekki hugdetturnar, tengsl þeirra
eða vöntun á tengslum, sem skapa myndir Jakobs, eru
Jakob Jónsson á sýningu sinni í Stöðlakoti.
DV-mynd BG
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
hið eiginlega inntak þeirra, heldur sjálf úrvinnslan í
allri sinni nekt.
Allt blasir við sjónum okkar, góðar hugmyndir og
vondar, tærar teikningar og yfirstrikanir, allt frá
frumskissum á þerripappír - álímdum og heftum á
myndflötinn - upp í gróskuleg drög á efnismiklum
teikniblöðum. Þetta stöðuga rót hugmynda og kennda
á pappír er síðan eins og endurspeglun náttúruaf-
lanna, þeirra sem listamaðurinn vitnar oftlega til í
nafngiftum mynda sinna. Sem er við hæfi því þau öfl
boða ekkert absólútt nýtt, heldur sveiflast stöðugt
milli þátiðar og framtíðar, sköpunar og tortímingar.
Andlát
Bjarni Bjarnason, fyrrverandi
brunavörður, áður til heimilis í Ljós-
heimum 4, lést í Borgarspítalanum
19. mars.
Þórkatla Sveinsdóttir, Síðumúla 21,
andaðist í Landspítalanum 19. mars.
Halldóra Guðrún Guðmundsdóttir
frá Sæbóh á Ingjaldssandi lést á Elli-
heimihnu Grund 18. mars.
Jón Stefánsson, Heiðarvegi 50, Vest-
mannaeyjum, lést í Sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja 19. mars.
Jarðarfarir
Guðríður G. Bang, Dalbraut 21, sem
andaðist 16. mars, verður jarðsungin
frá Kristskirkju, Landakoti, fóstu-
daginn 22. mars kl. 13.30.
Else Figved frá Eskifirði verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju fóstudag-
inn 22. mars kl. 13.30.
Útför Guðbjargar Stefánsdóttur,
Bröttugötu 4, Hólmavík, sem lést 14.
mars, fer fram frá Hólmavíkurkirkju
laugardaginn 23. mars kl. 14.00.
Tryggvi Sæmundsson byggingar-
meistari, Furulundi 13a, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyr'ar-
kirkju fóstudaginn 22. mars kl. 13.30.
Hulda Dagmar Þorfinnsdóttir, Kárs-
nesbraut 125, Kópavogi, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju fostudag-
inn 22. mars kl. 10.30.
Tilkyimingar
Skákþing íslands 1991
íslandsmótið í skák, áskorenda- og opinn
flokkur verður haldið dagana 23. mars
til 1. apríl. Skráning hefst á mótsstaö
klukkustund áður en 1. umferð hefst.
Þátttökugjald í opnum ílokki er 1800 kr.
fyrir 18 ára og eldri, 1200 kr. fyrir 15-17
ára og 700 fyrir 14 ára og yngri.
Vorkoman fyrr og nú
Á vorjafndægri, fimmtudaginn 21. mars,
setur Náttúruverdarfélag Suðvestur-
lands af stað nýtt verkefni sem nefnt
hefur verið „Vorkoman fyrr og nú“. Þeir
sem hafa hug á þátttöku geta fengið nán-
ari upplýsingar hjá NVSV, pósthólf 1114,
121 Reykjavík, eða í 15800 eða 40763.
í kvöld verður kynningin „Á fyrri tíö
í Grófmni" sem opin er á virkum dögum
frá kl. 16.00 til 18.00 í Geysissalnum.
Sigling í ljósaskiptum verður í kvöld
kl. 19.00 en lagt verður af stað með far-
þegabátnum Hafrúnu og siglt eftir göml-
um siglingaleiðum til óg frá Reykjavík.
Klukkan 21.00 fiallar Þórunn Þórðar-
dóttir sjávarliffræðingur um vorkomuna
í sjónum á rabbfundi í Náttúrufræðistofu
Kópavogs, Digranesvegi 12, niðri.
Fermingar
Berufjaröarkirkja:
Ferming pálmasunnudag, 24. mars
1991, kl. 14.00. Prestur sr. Sjöfn Jóhann-
esdóttir.
Lárus Páll Erlingsson, Gautavík, Beru-
neshreppi.
Djúpavogskirkja:
Ferming skírdag, 28. mars 1991, kl.
11.00. Prestursr. Sjöfn Jóhannesdóttir.
Anna Heiður Baldursdóttir, Borgargarði
3
Björgvin Jónsson, Hammersminni 8
Dröfn Freysdóttir, Hömrum 10
Eydís Hrund Stefánsdóttir, Búlandi 6
Guðjón Bergur Jakobsson, Steinum 13
Hallur Kristján Ásgeirsson, Kambi 2
Jón Björn Pétursson, Brekku 6
Jón Davíö Pétursson, Markárlandi 11
Jökull Fannar Helgason, Ránarslóð 10,
Höfn
Karl Jakob Másson, Hrauni 3
Kristjana Þórapinsdóttir, Hammers-
minni 6
Sóley Dögg Birgisdóttir, Hömrum 4
Þórdís Sigurðardóttir, Borgarlandi 10
Ævar Orri Eðvaldsson, Vörðu 14
Hofskirkja, Álftafirði:
Ferming annan í páskum, 1. apríl 1991,
kl. 14.00. Prestur sr. Sjöfn Jóhannes-
dóttir.
Berglind Guðmundsdóttir, Þvottá, Geit-
hellnahreppi
Harpa Björnsdóttir, Norðurgarði 12,
Hvolsvelli
Ólafur Helgi Pétursson, Rannveigarstöð-
um, Geithellnahreppi
Stöðvarfjarðarkirkja:
Fermingar skírdag, 28. mars 1991, kl.
11.00. Prestur sr. Gunnlaugur Stefans-
son.
Bjami Steinar Kárason, Skólabraut 14
Hjalti Már Kárason, Skólabraut 14
ivar Ingimarsson, Túngötu 3
Rúnar Jónsson, Fjarðarbraut 59
Una Sjöfn Friðmarsdóttir, Sævarenda 3
Þórdís Jóna Bragadóttir, Fjarðarbraut 35
Sýningar
Sýning Jakobs
Jónssonar framlengd
Sýning Jakobs Jónssonar í Stöðlakoti,
Bókhlöðustíg 6, er framlengd og lýkur
íostudaginn 22. mars. Sýningin er opin
daglega kl. 13-18.
Skemmtanir
Ferðafélag Islands
Ferðafélagið efnir til spilakvölds í kvöld,
21. mars, í Sóknarsalnum, Skipholti 50a.
Félagsvistiií hefst kl. 20.00 stundvíslega
og veröa glæsileg verðlaun í boði. Hlé
verður gert á spilamennskunni tO að
njóta veglegra veitinga og rabba við spila-
félagana.
Tapaö fundiö
Grár köttur í óskilum
Steingrár og hvítur, ógeltur högni fannst
á flækingi við Sigtún. Kötturinn er 6-7
mánaöa. Eigandi vinsamlegast hafi sam-
band í síma 76206 sem fyrst.
Skemmtanir
Full Circle í Púlsinum
Hljómsveitin Full Circle heldur tónleika
í Púlsinum í kvöld kl. 21.30. Með hljóm-
sveitinni leikur Skúli Sverrisson en hann
hefur nýlega lokið prófi frá Berklee. Auk
Skúla eru í hljómssveitinni Dan Rieser,
trommur, Anders Bostrom, flautur og
elektrónísk blásturshljóðfæri, Karl
Lundberg, hljómborð, og Philip Hamil-
ton, söngur og slagverk.
Leikhús
HUGLEIICUR
sýnir að
Brautarholti 8
ofleikinn
Sagan um Svein
sáluga Sveinsson
í Spjör og sam-
sveitunga hans
2. sýn. þriðjud. 19. mars kl. 20.30.
3. sýn. fimmtud. 21. mars kl. 20.30.
4. sýn. laugard. 23. mars kl. 20.30.
5. sýn. mið. 27. mars kl. 20 30.
6. sýn. fimmtud. 28. mars kl. 20.30.
7. sýn. mánud. 1. apríl kl. 20.30.
8. sýn. fimmtud. 4. apríl kl. 20.30.
9. sýn. laugard. 6. apríl kl. 20.30.
10. sýn. mánud. 8. apríl kl. 20.30.
Aðeins þessar 10 sýningar.
Miðasala í síma 16118 (sím-
svarijogfrákl. 19.00 sýningar-
daga í sima 623047
Athugið breyttan sýningar-
stað
Leikfélag Akureyrar
Söngleikurinn
KYSSTU
MIG-
KATA!
eftir Samuel og
Bellu Spewack
Tónlist og söngtextar eftir Cole Porter
Þýðing: Böðvar Guðmundsson
Leikstjórn: Þórunn Sigurðardóttir
Leikmynd og búníngar: Una Collins
Tónlistarstjórn: Jakob Frímann
Magnússon
Dansar: Nanette Nelms
Lýsing: Ingvar Björnsson
4. sýning föstud. 22. mars kl. 20.30.
5. sýn. laugard. 23. mars kl. 20.30.
6. sýn. sunnud. 24. mars kl. 20.30.
7. sýn. laugard. 30 mars kl. 15.00.
8. sýn. iaugard. 30. mars kl. 20.30.
Uppselt.
9. sýn. mánud. 1. april (annan I
páskum) kl. 20.30.
ÆTTARMÓTIÐ
Aukasýningar
35. sýning miðvikud. 27. mars kl. 20.30.
Uppselt.
36. sýning fimmtud. 28. mars (skírdag)
kl. 15.00.
37. sýning fimmtud. 28. mars (skirdag)
kl. 20.30. Uppselt.
Aðgöngumiðasala: 96-2 40 73.
Miðasalan er opin alla virka daga nema
mánudaga kl. 14-18 og sýningardaga
kl. 14-20.30.
MUNIÐ PAKKAFERÐIR
FLUGLEIÐA