Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1991.
Egilsstaðir:
Þjófarnir f und-
ust á kirkju-
tröppunum
- gengu til prests með þýfið á sér
Lögreglunni á Egilsstöðum var til-
kynnt um innbrot í Verkfræðistofu
Austurlands um klukkan tíu á
þriðjudagsmorgun. Stormjárn haföi
verið skrúfað upp í lausu gluggafagi.
Fyrir innan voru tvær nýlegar VHF
talstöðvar sem þjófarnir höfðu tekið.
Ein talstöð kostar 50-60 þúsund
krónur.
Lögreglan fann ógreinileg spor í
hlákukenndum snjónum fyrir utan.
Greinilegt var á skófórunum að þjóf-
arnir væru ungir. Um hádegisbilið
náðist í þjófana. Kom lögreglan þá
•v^iuga á tvo pilta sem voru staddir á
tröppum kirkjunnar á Egilsstöðum.
Þeir voru að ganga til prests. Úlpa
annars piltanna bungaði greinilega
út við kviðinn. Lögreglan bað um að
fá aö sjá hvað piltur bæri fyrir innan
og kom í ljós að þar voru talstöðvarn-
ar af verkfræðistofunni.
Lögreglan telur málið fullupplýst.
Loforð var tekið af piltunum um að
þeir skoðuðu betur boðorðin tíu.
-ÓTT
Akureyri:
Leitað að 15
ára stúlku
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ófærð á Austflörðum:
Veghefillinn
veðurtepptur
LOKI
Vantar ekki sérfræðing
til að rétta af
fjárlagahallann?
Engir ársreikningar til
vegna félagslegra íbúða
/ i /f
„Ég keypti svokallaða leigu- og
söluíbúð árið 1981. Áriö 1989 sótti
ég um stærri íbúð. Verkamannabú-
staðirnir keyptu þá minni íbúðina
af mér og ég fékk stærri íbúð, sama
ár - ekkert mál, ég bara flutti inn.
En síðan var ekki gengið frá neinu.
Frá þessum tima er ég búin aö bíða
og ganga ítrekað á eftir því að geng-
ið yrði frá kaupunum, afsali og lán-
um. í haust fékk ég svo bréf um
að það ætti að selja ofan af mér -
minni íbúðina sem ég er löngu flutt
úr. Ástæðan fyrir þessu öllu er að
Verkamannabústaðir hafa alls ekki
gengiö frá afsali og þar af leiðandi
ekki lánum sem tilheyra íbúðun-
um. Mér er kunnugt um að svona
sé þetta hjá tugum kaupenda,"
sagði kona sem býr í verkamanna-
bústaðaíbúð i Keflavík, í samtali
við DV í gær,
Starfsmaður bjá bæjarskrifstof-
um Keflavíkur vinnur þessa dag-
ana við að afla gagna og reyna að
vinna úr öngþveiti sem skapast
hefur á síðustu árum vegna sölu
félagslegra íbúða í Keflavik. Komið
hefur í Ijós að engir ársreikningar
hafa verið lagðir fram í fjölda ára
og misbrestur hefur orðið á að
gengið yrði frá kaupum fólks á fé-
lagslegum íbúðum.
Framangreind kona fékk í á ann-
að ár senda greiðsluseðla sem til-
heyrðu íbúð sem hún flutti úr árið
1989. Hún fékk hins vegar enga
greiðsluseðla sem tilheyrðu nýju
íbúðinni. Konan sagði að meðan
þetta ástand hefði varað hefði hún
reynt að fá hlutina leiðrétta hjá
Húsnæðísstofnun ríkisins enda ótt-
aðist hún að þurfa að borga drátt-
arvexti af þeim lánum sem hún
átti að borga, en fékk ekki að borga.
Hjá Húsnæöisstofnun fékk konan
þau svör að viðkomandi sveitarfé-
lagi bæri að ganga frá sölu hverrar
íbúðar. Þetta hefur Keflavíkurbær
ekki gert. Konan fékk þó loks afsal
af íbúð sinni fyrir nokkrum dögum.
Drífa Sigfúsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar Keflavíkur, sagði við DV í
gær að á síðasta bæjarstjórnar-
fundi heföi komið fram hjá fyrrver-
andi formanni stjórnar húsnæðis-
nefndar að engir ársreikningar séu
til vegna félagslegra íbúða í bænum
fyrir undanfarin ár. Drífa sagði að
bókhald sé til fyrir árin 1989 og
1990 en endurskoðendur muni fara
yfir það jafnfljótt og þeim berst það
í hendur.
„Á siðasta bæjarstjórnarfundi
óskuðum við eftir meíri upplýsing-
um um ýmis atriði sem við töldum
okkur þurfa að fá í hendur. Ég veit
ýmislegt um þessi mál en ekkert
sem ég get skýrt frá varðandi ein-
stakár íbúðir," sagði Drífa aðspurð
um hvort hér væri um að ræða
tugi íbúða sem ekki væri búið að
ganga frá afsali af.
-ÓTT
Sérfræðingur
51 milljón
í verktaka-
Leit að 15 ára stúlku stóð yfir á
Akureyri í nótt og í morgun. Stúlkan
fór að heiman frá sér skömmu fyrir
miðnætti og eftir samráð við foreldra
hennar ákvað lögreglan að kalla út
leitarsveitir.
Kallað var út til leitar kl. 3 í nótt og
í morgun voru 50 manns úr Hjálpar-
sveit skáta og Flugbjörgunarsveit-
* %ini við leit ásamt lögreglu.
greiðslur
Veghefill Vegagerðarinnar, sem fór
frá Egilsstöðum í gær til að ryðja
Fjarðarheiði, varð veðurtepptur í
Seyðisfirði. Að sögn lögreglunnar
þar er heiðin ófær því hefillinn hefur
ekki komist til baka.
Mikil ófærð hefur verið á fjallveg-
um á Austfjörðum og í gær og morg-
un var þar mjög slæmt veður, norð-
stangarri og snjókoma. Því er hins
vegar spáð að norðanáttin gangi fljót-
lega niður.
-ns
Þjóðleikhúsið verður opnað í kvöld eftir miklar viðgerðir og breytingar. Eins og oft við slíkar aðstæður leggja
iðnaðarmenn nótt við dag til að allt verði nú tilbúið á réttum tíma. Á þessari mynd má sjá teppalagningarmenn
vera að setja teppi á ganga hússins. DV-mynd GVA
Meðal verktakagreiðslur frá
Tryggingastofnun til sérfræðinga
ríkisspítalanna í fullu starfi námu
að meðaltali 4,4 milljónum króna.
Meðalgreiðslur til sérfræðinga í 75
prósent starfi námu hins vegar 3,5
milljónum króna. Meðallaun sér-
fræðinga frá öðrum en ríkisspítölum
námu 2 milljónum króna.
Einn sérfræðingur ríkisspítalanna
í 75 prósent starfi hafði sérstöðu þar
sem verktakagreiðslur Trygginga-
stofnunar til hans námu alls 51 millj-
ón króna.
Þessar tölur koma fram í könnun
sem Ríkisendurskoðun gerði á heild-
arlaunum nokkurra tekjuhæstu sér-
fræðinga sem voru í starfi á ríkis-
spítölunum á árinu 1988.
í skýrslunni segir að ekki verði séð
hvernig hátt vinnuhlutfall á ríkis-
spítölum, auk vakta í mörgum tilvik-
um, geti gefið möguleika á jafn-
mikilli vinnu utan stofnunarinnar
og raun ber vitni. Segir að brýnt sé
að taka í notkun stimpilklukkur á
öllum deildum ríkisspítalanna.
-hlh
Veöriðámorgun:
Hæg
vestlæg
átt
Á morgun verður fremur hæg
vestlæg átt. Léttskýjað á Suðaust-
ur- og Austurlandi en annars
skýjað. Smáél verða við norðvest-
urströndina. Hiti á bihnu -4 til 2
stig.
S?AG/y^.
<5- ^vWlSAr ý
• f ELDSIÐJANo?:
®\%, i&j*
\ia oo-23 30 Æ?lr/ W