Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Side 4
Fréttir Prófmál á kvótakerfið: Olís setur lögbann á kvóta sokkins báts - býðsttilaðnábátnumuppafhafsbotni „Það er auðvitað út í hött að menn geti hagnast á því að skip sökkvi. Það stríðir gegn heilbrigðri skynsemi. í stað þess að Olís eigi þama trygga kröfu, forgangskröfu í hugsanlegt bú Hraðfrystihúss Stokkseyrar, sem á í nauðasamningum, þá breytist 30 milljóna króna forgangskrafa Olís í almenna kröfu sem fæst ekki greidd vegna þess aö bátur sekkur. Á sama tíma er sá möguleiki fyrir hendi að Hraðfrystihús Stokkseyrar geti selt kvótann af Jósep Geir ÁR, sem sökk, og fái þannig 20 til 25 milljónir króna fyrir hann til að nota í nauðasamn- ingunum. Þetta nær auðvitað engri átt. Þess vegna setjum við lögbann á slíka sölu. Við höfum einnig hugleitt að ná skipinu upp af hafsbotni þar sem það liggur á 25 til 30 metra dýri. Um leið væri skipið komið á flot og þar með myndi sá 400 tonna kvóti, sem Jósep Geir ÁR á, tilheyra því einu vegna þess að í kvótalögunum er veðhæfni í kvóta dregin í efa ef skip hefur farist. Aftur á móti höfum við, ef við náum skipinu upp, bæði bjargað verðmætum og kvótinn til- heyrir þá um leið skipinu," sagði Óskar Magnússon, lögmaður Olís, í samtali við DV í gær. Þarna er um mjög merkilegt mál að ræða. í 1. grein kvótalaganna seg- ir að fiskurinn í sjónum sé sameign allrar þjóðarinnar. Á móti kemur að kvóti hefur verið framseldur milli útgerðarfyrirtækja rétt eins og þessi 1. grein laganna sé ekki til. Arið 1986 átti sér stað skuldbreyt- ing hjá Hraðfrystihúsi Stokkseyrar. Þá voru ákveðnar skuldir færðar af húsum fyrirtækisins yfir á þennan bát. Þar á meðal skuldum fyrirtækis- ins við Olís. Þetta var gert vegna þess að þá var talið að bátamir yrðu verðmætari en húsin. Síðan þá hefur aldrei verið greitt neitt af skuldinni við Olís, þrátt fyrir loforð hvað eftir annað um að þetta væri að koma, eins og sagt var. Þegar svo Olís ætl- aði í aðgerðir og var búið að vera í málinu í 3 mánuöi fór Hraðfrystihús Stokkseyrar, sem átti Jósep Geir ÁR, fram á greiðslustöðvun. Upp úr því hófust nauðasamningar þar sem Olís er ekkert inni í dæminu þar sem fyr- irtækiö átti veð í bátnum. Síðan sekkur báturinn og þá allt í einu stendur Olís frammi fyrir þvi að þaö á ekkert veð lengur til. Hraðfrystihús Stokkseyrar getur selt kvóta bátsins ef því sýnist svo eftir að hann er sokkinn. Þess vegna var lögbannið sett á sölu kvótans og tilraun til að ná honum upp af hafsbotni sett í at- hugun. -S.dór Sterk fisklykt við Herjólfsgötu í Hafnarfirði: Varla hægt að búa lengur við götuna - segir íbúi - þoli menn ekki fisklykt geta þeir flutt, segir ffamkvæmdastjórinn Lyktin frá fiskvinnslunni Langeyri í Hafnarfirði fer fyrir brjóstið á íbúunum í nágrennmu. Ibuarmr vilja fnykinn og slorið burt en forsvarsmenn fyrirtaekisins segja þá, sem ekki þola lykt af nýjum fiski, geta sjálfa flutt á brott. DV-mynd GVA „Það er varla hægt aö búa lengur við götuna. Við höfum talað viö bæj- aryfirvöld í Hafnarfirði um að það verði gert eitthvað tii úrbóta en það hefur ekkert verið gert nema að byggja stromp á húsið en hann er hvergi nærri nógu hár til að þjóna sínu hlutverki. Við viljum að starf- semi í húsinu verði hætt og það verði fjarlægt," segir einn íbúanna við Herjólfsgötu í Hafnarfirði. Við Herjólfsgötu rekur fyrirtækið Langeyri fiskvinnsluhús og fisk- þurrkun sem íbúar í götunni hafa til skamms tíma kvartaö yfir við bæjar- yfirvöld sem hafa tekið málinu fá- lega. Hins vegar hefur heilbrigðis- nefnd Hafnarfjarðar tekið málaleitan þeirra vel og lofað úrbótum, að sögn íbúa. í húsinu er hertur fiskur og segja íbúarnir að megna ýldulykt leggi frá því og hún berist inn í hús- in í götunni. Að sögn Vilhjálms Gíslasonar, heil- brigöisfulltrúa í Hafnarfirði, hefur hann gert skýrslu um ástand mála við fiskvinnsluna og er þar meðal annars að finna staðfestingu þess að mjög mikil og sterk lykt stafi frá fisk- þurrkuninni. Hann segir starfsleyfi verksmiðjunnar fyrst renna út eftir tvö ár og því sé ekki líklegt að starf- seminni þar verði hætt í bráð. „Það segir sig sjálft að það er erfitt að búa nærri svona verksmiðju því frá henni leggur bæöi megna fisklykt og ammoníaksfnykur. Við svona starfsemi mynda bæði gerlar og ýms- ir kvatar leiðindalykt. Þeir sem reka vinnsluna hafa reyndar reynt að draga úr þessum óþægindum sem íbúarnir verða fyrir með því að reisa háan skorstein, en þegar vindátt er óhagstæð kemur hann ekki að nægj- anlegum notum. Það er hins vegar alfarið bæjarstjórnar að taka ákvörð- un um þetta mál en ég tel nú líklegt að þessi starfsemi flytjist eitthvert annað,“ segir Vilhjálmur. „Þegar verið er að vinna fisk í hús- inu eru allar dyr opnaðar á þvi og fiskkörin eru dregin út á götu. Það er illa gengið um og villikettir, hrafn, mávur og rottur sækja í úrganginn og svo leggur ýldufýluna yfir allt. Það er ekki hægt að búa lengur viö þetta ástand,“ segja íbúamir. Björgvin Ólafsson, framkvæmda- stjóri Langeyrar, segist með engu móti geta skilið þá gagnrýni sem íbú- ar í nágrenninu séu með. Fiskvinnsl- an hafi starfaö þarna allt frá árinu 1902 og þá hafi engin byggð verið nálægt fiskvinnsluhúsinu en á síðari árum hafi hún færst nær. Hann seg- ir það ekki koma til greina aö flytja starfsemina á brott, mun eðlilegra væri aö þeir íbúar sem ekki geta búið við fisklykt kaupi sér hýbýli annars staðar. „Það segir sig sjálft aö þar sem er fiskverkun þar er fisklykt. En að þaö leggi ýldufýlu héðan er hreint kjaft- æöi enda vinnum við einungis með nýtt hráefni. Og ómenguð fisklykt fer aldrei yfir byggðina nema við mjög sérstök veöurskilyrði, vestanátt og mikil hlýindi. Ég fæ ekki séð að þetta sé neinn fjölmiðlamatur." -J.Mar/kaa Leikfélag Blönduóss frumsýnir Gísl Magnús Ólafeson, DV, Húnaþingi: Leikfélag Blönduóss frumsýnir leikritið Gísl eftir Brendan Beham í leikstjóm Ingu Bjamason á miðviku- dag, síðasta vetrardag. Alls hafa um 30 manns tekið þátt í undirbúningi sýningarinnar en leikarar era alls 16. Með aðalhlutverk fara Sveinn Kjartansson, Kolbrún Zophanías- dóttir og Jón Ingi Einarsson. Leikritið Gísl, sem er háalvarlegur gamanleikur með söngvum, fjallar um stríðið á Noröur-Irlandi og þá kúgun og misrétti sem þar viö- gengst. Umgjörðin er niðurnítt hótel þar sem stunduð er elsta atvinnu- grein mannkyns. Inga Bjarnason hefur sett upp margar sýningar og er nú einn af okkar virtustu leikstjórum. Leik- mynd er eftir Hjördísi Bergsdóttur myndlistarmann, lýsingu hannaði Ingvar Bjömsson, ljósameistari Leikfélags Akureyrar, og búninga gerði Unnur Kristjánsdóttir. Ekki er fyrirhugað að sýna nema á Blöndu- ósi. Þar er sýnt í félagsheimilinu viö einar þær bestu aðstæöur sem þekkj- ast hjá áhugaleikfélögum hér á landi. LÁ^Ó^RÍlA'Gt'R^'tf.^ÉMLÍÁM. Enska knattspyman: Úrslitaleikur- inn sýndur íþróttafréttadeild Sjónvarps hefur nú látið undan miklum þrýstingi áhugamanna um enska íótboltann og ákveðið að sýna á morgun í beinni útsendingu úr- slitaleikinn i ensku deildarbikar- kepninni. Til úrslita leika Manc- hester United og Sheffield Wed- nesday og fer leikurinn fram á Wembley leikvanginum í Lund- únum. Utsendingin hefst klukk- an 13.45. Eins og DV greindi frá í gær haíði íþróttadeildin áður ákveðiö að sýna ekki úrslitaleikinn. Rök- in voru meöal annars íjárskortur en einnig var til þess vitnað aö ekkert land 1 Evrópu ætlaöi að sjónvarpa leiknum beint. Olli þessi ákvörðun mikilli reiði með- al knattspyrnuslnnaðra sjón- varpsáhorfenda og komu margir kvörtunum sínum á framfæri við íþróttadeild Sjónvarps og rit- stjórn DV. Að sama skapi ríkir nú mikill fögnuður meðal knattspyrnu- manna. Þykir mönnum Sjón- varpið hafa brugðist hratt og vel við óskum áhorfenda og eigi því þakkir skildar. í frétt frá íþrótta- deild RÚV scgir að smuga hafi opnast fyrir útsendinguna þar sem danska sjónvarpiö DR ætlar að taka leikinn upp 1 gegnum gervihnattarás. Fyrir vikiö minnki kostnaður Sjónvarpsins og því sé útsendingin möguleg. Þess má einnig geta að Pepsi á íslandi hyggst styrKja RÚV sérs- taklega vegna þessarar útsend- ingar. -kaa AntonBjamason: Hef ekki sagt styggðaryrði um krakkana á Snæf ellsnesi „Ég hef ekki sagt styggðaryröi um krakkana á Snæfellsnesi," sagöi Anton Bjarnason íþrótta- kennari í samtali við DV i gær vegna fréttar sem birtist í vik- unni um „uppsafnaða reiði“ ung- menna og annarra í Ólafsvík og víðar á Snæfellsnesi. Slagsmál brutust út á skóla- skemmtun í Hótel Stykkishólmi í síöustu viku. Piltur sló þá grunnskólakennara í höfuðiö meö þeim afleiöingum að hljóð- himna spakk. Annar grunnskóla- nemi sparkaði á milli fóta á lög- reglumanni og veitti honum siö- an hnefahögg í andlitið. I frétt DV var haft eftir skóla- stjóra grunnskólans í Ólafsvík að blaðaviðtal viö íþróttakennara, þar sem ummæli voru höfð eftir um unglinga á SnæfeUsnesi, hafi orðiö til þess að ungmennum hefði sárnað - „því hefði verið um uppsafnaða reiði að ræöa“ Þarna var átt við viðtal við íþrót- takennara í Stykkishólmi í Morg- unblaðinu. Það viötal, kom hins vegar í kjölfar greinar í Tímanum þar sem Anton Bjarnason íþrót- takennari sagöi í almennu spjalli að talsvert vantaði á aö ung- menni hreyfðu sig nægUega mik- ið. Anton Bjarnason hefur því ósk- að eftir því að fram komi að hann hefði ekki haft í frammi nein nei- kvæð ummæli um ungmenni á Snæfellsnesi. Þessu er hér með komið á framfæri. Þrátt fyrir að skólastjóri grunn- skólans í Olafsvík hafi sagt við DV í vikunni aö „kannski væri grundvöllurinn" fyrir reiöi unga folksms sprottin af ummælum íþróttakennarans í Stykkishólmi, tók hann þó skýrt fram að tekið yrði á málinu hjá skólastjórum þeirra skóla sem þarna áttu hlut aö máli. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.