Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Blaðsíða 9
LAUGARnAGUK 20: APRlL 1991.1
9
Ellefu salthnetur
eða ein skrúfa
- DV kannar hvað fæst fyrir eina krónu
„Þú getur fengið 3 sentímetra af þessu fyrir krónu.“ Margrét Jóhanns-
dóttir í Vogue sýnir verðmæti krónunnar. DV-myndir BG
Islenska krónan hefur mátt
þola ýmsar hremmingar síðan
hún var tekin upp sem gjaldmið-
ill söguþjóðarinnar. Stöðugar
gengisfelhngar og efnahagslegar
hremmingar af ýmsum toga hafa
dunið yfir. Gamla góða krónan
mátti þola halaklippingu fyrir
röskum 10 árum þegar tvö núll
voru klippt aftan af og á einni
nóttu urðu 100 krónur að einni.
Við gjaldmiðilsskiptin var tekin
í notkun ný króna sem var tals-
vert þyngri og virðulegri en
gamla álkrónan sem varð fræg
fyrir að vera svo léttvæg og
ómerkileg að hún ílaut á vatni.
Hvað fæst
fyrir krónu?
En hvernig hefur krónunni
reitt af síðan. Stjórnmálamönn-
um hefur orðið tíðrætt um stöð-
ugleika í efnahagslífi undanfar-
inna ára og gumað óspart af
minni verðbólgu og þar af leið-
andi væntanlega betra heilsufari
krónunnar. En hvað er hægt að
fá fyrir eina krónu. Er hún ein-
hvers virði?
Ljósmyndari og blaðamaður
DV lögðu hala á bak sér og keif-
uðu af stað til þess að komast
að raun um það hvaða smáhluti
væri hægt að kaupa ef maður
ætti bara eina krónu. Að sjálf-
sögðu fórum við í stærsta must-
eri sem reist hefur verið á ís-
landi krónunni til dýrðar,
Kringluna.
Því miður. Hér
fæstekkertfyrir
krónu.
Fyrst lá leiðin í Konfektbúðina
sem selur konfektmola og ýmis-
legt sælgæti í lausri vigt. Við
drógum upp krónuna og báðum
um sælgæti fyrir eina krónu.
Afgreiðslustúlkan horfði á okk-
ur eins og við hefðum dottið ofan
úr himninum. Þarna fékkst eng-
inn hlutur á eina krónu og fór-
um við því bónleiðir til búðar í
Tvær ópaltöflur fyrir krónu ...
Kannski 11 salthnetur fyrir eina
krónu. Krónan er orðin lítils virði.
bókstaflegri merkingu.
Næst lá leiðin í Byggt og Búið sem
er byggingarvöruverslun sem selur
allt til heimihsins. Enn vorum við
staddir í geitarhúsi að leita ullar.
Ódýrasti hluturinn var einfaldur
plasttappi til að festa skrúfur í
vegg. Skrúfur og naglar eru þarna
seldir í pökkum og kostuðu yfir-
leitt 30-50 krónur pakkinn. Því fór-
um við þaðan tómhentir og vorum
satt að segja farnir að missa tals-
vert trú á undirstöðueiningu ís-
lensks efnahagslífs.
Næst lá leiðin í Vogue í Kringl-
unni í þeirri veiku von að þar
mætti kaupa eina tölu fyrir eina
krónu.
„Hér eru tölur ekki seldar í
stykkjataU og það vUl svo til að ég
veit að þar sem það er gert kostar
hver tala alltaf meira en 2 krón-
ur,“ sagði bráðhress afgreiðslu-
kona í Vogue við okkur. Öryggis-
nælur eru seldar í búntum og kosta
nokkra tugi króna. Eftir nokkurt
ráðslag buðust þessar gæðakonur
til þess að selja okkur 3 sm af ódýr-
asta borða sem þær ættu til í búð-
inni. Svo langur stubbur væri um
einnar krónu virði. En ef ég kæmi
inn með saumsprettu og bráðvant-
aði öryggisnælu og ætti ekki nema
krónu?
„Ég reikna með að við myndum
gefa þér eina nælu,“ sagði konan
að skilnaði.
Ellefu salthnetur
í Heilsuhúsinu í Kringlunni eru
seldar hnetur og slíkt munngæti
af ýmsum gerðum eftir vigt og þar
komumst við í feitt. Vigtin gat ekki
vegið eina súkkulaðihnetu en salt-
hnetur reyndust vera ódýrastar
eða 35 krónur hver 100 grömm. Við
gátum því fengið tæp 3 grömm af
þeim fyrir krónuna okkar. Það
reyndust vera 11 salthnetur og
þótti okkur nú heldur vænkast
hagur krónunnar.
Skömmu síðar gátum við keypt
tvær ópaltöflur í sjoppunni i Hag-
kaup í Kringlunni þar sem það var
selt í stykkjatali fyrir 50 aura
stykkið. Almennt er þó ekki hægt
að fá neitt í sjoppum lengur sem
kostar krónu eða minna. Gömlu
góðu krónukúlurnar kosta nefni-
lega orðið 4-5 krónur.
Þaðan fórum við í Byko í Kópa-
voginum og þar gátum við vahð úr
nokkrum tegundum af skrúfum og
skinnum af minnstu gerð fyrir
krónuna. Það var þó aldrei svo
ódýrt að hægt væri að fá tvö stykki
fyrir krónuna.
Niðurstaðan varð sú að krónan,
undirstaöa gjaldmiðils þjóðarinnar
væri orðin harla lítils virði og tíma-
bært að huga að því að fara að slá
hana úr ódýrari málmi. T.d. áh.
-Pá
VIÐ FLYTJUM UM SET
Um helgina 20. - 21. apríl flytjum við bifreiðaverkstæði, bifreiðavarahluta-
verslun og aðalskrifstofur okkar í hina glæsilegu nýbyggingu að Laugavegi 174
og Brautarholti 33, og verða þessar deildir opnaðar á venjulegum þjónustutfma
að morgni mánudagsins 22. aprfl í nýjum húsakynnum (sjá skýringamynd).
Varahlutaverslun Véladeildar verður lokuð föstudaginn 26. apríl vegna
flutninga, en verður opnuð aftur mánudaginn 29. apríl íHeklu-húsinu við
Laugaveg 170 (sjá skýringamynd).
•U
HEKLA
LAUGAVEGI 174
SÍMI695500
GEYMIÐ AUGLYSINGUNA