Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Page 13
LAUGARDAGUR 20. APRlL 1991. 13 Sveinbjöm Björnsson, nýkjörinn rektor Háskóla íslands: Hæglátur og fjöl- fróður vísindamaður „Það eru margir sem hreyfa sig meira og hraðar en ég er ekki viss um að þeir komi meiru í verk en Sveinbjöm. Helsti styrkur hans að mínu viti eru gáfur hans og hæfi- leiki til þess að hugsa málin til enda og sjá út raunhæfar lausnir. Hann er gæddur skarpri rökhugsun og hefur mikla og fjölbreytta reynslu af ólíkum verkefnum. Þetta gerir honum kleift að sjá einfaldar leiðir við lausn mála sem öðrum gjarnan yíirsjást," sagði Jónas Elíasson, prófessor í verkfræðideild og kosn- ingastjóri Sveinbjarnar Björnsson- ar í nýafstaðinni kosningabaráttu til embættis rektors Háskóla ís- lands. Sveinbjöm fékk meirihluta atkvæða þegar í fyrstu atrennu eft- ir að Þórólfur Þórlindsson, prófess- or í félagsvísindadeild hafði verið álitinn sigurstranglegri að undan- genginni forkönnun. Viðmælendur DV þökkuðu góðan árangur mark- vissri kynningu á Sveinbirni meðal stúdenta síðustu dagana fyrir kosningar. Sveinbjörn Björnsson, nýkjörinn háskólarektor. spiiamaður. Hann tekur þátt í þessu af áhuga og vegna félags- skaparins sem er honum meira virði en fyrsta flokks árangur," sagði einn félaganna í samtali við DV. Rektor í fílabeinsturni „Hann er ekki mikil félagsvera. Hann er feiminn og lokaður og verður ekki sérlega gott andlit skólans út á við. Þrátt fyrir yfirlýs- ingar um aukin tengsl skólans við atvinnulífið þá verður ekkert úr því. Sveinbjöm hefur alltaf verið einangraður og hann á eftir að reisa um sig fílabeinsturn í emb- ætti rektors," sagði einn andstæð- inga hans í samtali við DV. „Fyrir þessar kosningar vissu aðeins þeir sem hann kenndi hver hann var. Þannig verður það líka þegar hann verður rektor, nema þá þekkja hann enn færri.“ -Pá Alinn upp á Aragötunni Sveinbjörn er fæddur 28. október 1936, sonur Björns Sigfússonar og Droplaugar Sveinbjörnsdóttur. Hann ólst upp á Aragötunni í ná- grenni Háskólans og innan veggja hans að nokkm leyti en Björn faðir hans starfaði sem háskólabóka- vörður í tæp 30 ár. Sveinbjörn er næstelstur í hópi sex systkina sem flest hafa langskólanám að baki. Einn viðmælenda DV orðaði það svo að í þessari fjölskyldu væru fleiri prófessorar en í nokkurri annarri á íslandi. Sigfús, bróðir Sveinbjarnar er prófessor í verk- fræðideild, Helgi er jarðeðlisfræð- ingur við raunvísindadeild og er einna þekktastur fyrir rannsóknir á jöklum og Ólafur er doktor í læknisfræöi og starfar við rann- sóknir í Oxford. Hólmfríður, sem er elst, starfar á lögfræðistofu og Hörður er yngstur. Sveinbjöm hef- ur sjálfur unnið mikið við rann- sóknir tengdar jarðhita og eldsum- brotum þannig að saman hafa bræðurnir rannsakað fósturjörð- ina frá ýmsum hliðum. Samheldin fjölskylda „Þetta er mjög samheldin fjöl- skylda. Þeir bræður léku sér mikið saman þegar þeir voru litlir og voru sífellt eitthvað að grúska og bralla eins og greindra stráka er siður,“ sagði kunningi Sveinbjarn- ar af Aragötunni í samtali við DV. „Faðir þeirra var og er sérkenni- legur maður, fastheldinn á hið gamla og sérvitur en bráögáfaður. Hann hafði mikil áhrif á þá og átti sinn þátt í vali þeirra á starfssviði." Droplaug, móðir Sveinbjöms, lést þegar hann var 9 ára og voru systk- inin send í fóstur nema Sveinbjörn sem varð eftir hjá fóður sínum. Sveinbjörn kvæntist 26. október 1957, rösklega tvítugur, Guðlaugu Einarsdóttur. Þau eiga saman 3 böm, Droplaugu, Einar Örn og Björn Má, sem öll eru vaxin úr grasi og eru á aldrinum 22-34 ára. Góður kennari Sveinbjörn hefur kennt eðlis- fræði í verkfræðideild og einn nem- anda hans, sem DV ræddi við, hrós- aði kennslu hans mikið. „Þetta voru dæmatímar í eðhs- fræði og Sveinbjörn er afar góöur kennari, rólegur og yfirvegaður, og leggur málin þannig fyrir að flestir geti skilið. Hann er formfastur og fjarlægur þess utan og blandaði ekki geði við nemendur umfram það sem hann nauðsynlega þurfti." Sæmilegur spilamaður Þegar Sveinbjörn er ekki á kafi í vinnu leggur hann stund á heilsu- rækt og íþróttir og spilar reglulega badminton. Hann er ennfremur meðlimur í briddsklúbbi sem hitt- ist einu sinni í viku til spila- mennsku. Helstu vinir hans og spilafélagar eru Jónas Elíasson prófessor, Hilmar Sigurðsson verk- fræðingur, Hrafnkell Thorlacius arkitekt, Matthías Kjeld læknir, Ólafur Gíslason verkfræðingur og Ólafur Jóhannesson bókasafns- fræðingur. „Sveinbjörn er alveg þokkalegur Áskorun til eigenda og ábyrgðarmanna fasteigna um greiðslu fasteignagjalda í Reykjavík Fasteignagjöld í Reykjavík 1991 eru nú öll gjaldfall- in. Gjaldendur, sem ekki hafa gert skil innan 30 daga frá birtingu áskorunar þessarar, mega búast við að óskað verði nauðungaruppboðs á eignum þeirra I samræmi við I: nr. 49/1951 um sölu lögveða án undangengins lögtaks. Reykjavík 17.04.1991 Gjaldheimtustjórinn í Reykjavík er ávísun á vinstrí stjóm SjálfstæðisfJokkurinn - gegn glundroða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.