Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Side 15
15 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1991. Komið að skuldadögunum Kjördagur er kominn, og jafn- framt komiö að uppgjörinu. Þó vit- um við ekki, hvort kosningamar hafa miklar breytingar í lands- stjóm í fór með sér. Sem stendur byggja menn eðlilega helzt á niður- stöðum skoðanakannana. Sjáif- stæðisflokkurinn fær ekki hreinan meirihiuta í þessum kosningum, þótt hann hafi ekki verið langt frá því um hríð. Fijálslyndir fá ekki þingmann kjörinn, og lýkur þar með tímabili borgaraflokksmanna, sem höfðu oddaaðstöðu eða sama sem og hafa átt tvo ráðherra. Fylgi Borgaraflokksins hefur safnazt saman í Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn hafði 39,2 prósent fylgi í þingkosningunum 1983 og virðist nú ætla að fá ívið meira en það. 45 prósent komu út úr síðustu skoðanakönnun DV. Þetta er ekki munur, sem skiptir sköpum. Sjáifstæðisflokkurinn, sem hafði einungis 27,2 prósent í kosningunum 1987, er aftur kom- inn í það, sem hann var, áður en Borgaraflokkurinn varð til eftir misheppnaða meðferð Þorsteins Pálssonar og Sjálfstæðisforystunn- ar á Alberti Guðmundssyni. Menn velta auðvitað vöngum yfir skoðanakönnunum og hvort þær segi nokkuð vel til um úrsht. Skoð- anakannanir hér á iandi hafa verið góðar. Vissulega kemur fyrir í öll- um löndum, að töluverður munur er stundum á skoðanakönnunum og kosningaúrslitum og þá sagt, að úrshtin hafi komið á óvart. Þetta hafa þeir séð, sem fylgjast með kosningum erlendis. En hér á landi hafa niðurstöður skoðanakannana löngmn verið um 1-3 prósentustig- um frá kosningaúrshtum að meðal- tah á flokk. Skekkjufrávik í þessum skoðanakönnunum eru tahn vera 3-4 prósentustig í plús eða mínus, og verður ekki betur gert. Menn geta ekki gert kröfur til meiri ná- kvæmni í slíku úrtaki, enda þykir þetta hvarvetna gott. Metið hér á landi og hvar sem vera skal náðist með DV-aðferðinni í forsetakosn- ingunum 1980, þegar aðeins mun- aði 0,4 prósentustigum á frambjóð- anda að meðaltah á niðurstöðmn skoðanakönnunarinriar og kosn- ingaúrshtuninn. DV-aðferðin hefur komið bezt út í síðustu mörgum kosningum, betur en þær aðferðir, sem hinir nota. Þar með er átt við, að minna hefur munað hjá DV en hinum á niðurstöðum skoðana- könnunar og úrshtum kosninga. Auðvitað munar einhverju. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur yfirleitt dalað að hlutfahsfylgi rétt> fyrir kosningar. Þar skiptir máh, að hin- ir óákveðnu fara að gera upp hug sinn og fleiri slíkir hallast að lokum að vinstri flokkunum en Sjálfstæð- isflokknum. Þar skiptir og miklu, að mínu mati, að Sjálfstæðisflokk- urinn á í umræðum í fjölmiðlum, svo sem sjónvarpi, og á þingmála- fundum í höggi við fjölmarga and- stæðinga. Þessir andstæðingar ráð- ast mest á Sjálfstæðisflokkinn, gera í raun sameiginlega atlögu að þeim flokki, þótt þeir rifist líka eitthvað hver við annan. Útkoman úr slík- um umræðum verður gjaman, að kjósendur verða líklegri til að kjósa einhverja aðra en Sjálfstæðisflokk- inn. Sjáifstæðismenn hafa af þess- um sökum krafizt þess að fá svipað- an umræðutíma og hinir til sam- ans, eða þar um bil, en ekki fengið, enda væri það ekki fyllilega lýð- ræðislegt. Könnun og kosningaúrslit Gaman er að bera saman niður- stöður síðustu DV-könnunar fyrir síðustu kosningar og úrslit kosn- inganna. Niðurstöður þeirrar DV-könnun- ar urðu þær, að Alþýðuflokkurinn fengi 15,0 prósent fylgi, þegar skoð- að var, hvernig þeir sldptust, sem afstöðu tóku. Framsókn fékk út úr könnuninni 16,4 prósent. Sjálfstæð- isflokkurinn hlaut 31,4 prósent. Alþýðubandalagið var með 12,7 prósent. Samtök um kvennahsta fengu í könnuninni 8,6 prósent. Borgaraflokkurinn fékk í könnun- inni 12,1 prósent. Flokkur manns- ins hlaut svo 0,7 prósent, flokkur Stefáns Valgeirssonar um jafnrétti og félagshyggju fékk 1,2 prósent og Þjóðarflokkurinn 2 prósent. Úrsht kosninganna urðu, að Al- þýðuflokkurinn fékk 15,2 prósent eða nánast hið sama og í DV- könnuninni. Framsókn fékk 18,9 prósent, eða nokkru meira en í könnuninni. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 27,2 prósent, sem var 4,2 pró- sentustigum undir tölu könnunar- Laugardagspistill Haukur Helgason aðstoðarritstjóri innar. Aiþýðubandalagið fékk í kosningunum 13,3 prósent, sem var htið eitt meira en í könnuninni. Flokkur Stefáns Valgeirssonar hlaut á landsvísu 1,2 prósent, ná- kvæmlega hið sama og í skoðana- könnun DV. Samtök um Kvenna- hsta fengu 10,1 prósent, htið eitt meira en í skoðanakönnuninni. Borgaraflokkurinn fékk 10,9 pró- sent, htið eitt minna en í skoðana- könnuninni. Flokkur mannsins og Þjóðarflokkurinn fengu álíka fylgi og í könnuninni og til samans að- eins 2,9 prósent. Þessi samanburð- ur sýnir, hversu nákvæm könnun- in var miðað við þær kröfur sem unnt er að gera til skoðanakann- ana, enda reyndist aðeins muna um 1 prósentustigi að meðaltah á flokk. Og það verður að segja, að í það sinn voru kannanir Skáís og Fé- lagsvísindastofnunar einnig ná- kvæmar og frávik kannananna frá úrshtunum aðeins 1-1,2 prósentu- stig að meðaltah á flokk eins og hjá DV. Menn geta því mikið mark tek- ið á skoðanakönnunum á íslandi. Fráleitt væri að láta ruglaða stjóm- málamenn og áróðursmeistara viha sér sýn að því leyti. Skoðana- kannanir eru eins marktækar og unnt er að heimta. En auðvitað geta þær ekki sagt mönnum upp á prósentu, hvernig kosningar fara. Aht fram að þeirri stundu, að kjós- andinn setur atkvæðaseðilinn í kjörkassann hefur ýmislegt áhrif á hann eins og augljóst er. Einkum em það hinir óákveðnu, og margir era óákveðnir, þangað til þeir drag- ast á kjörstað, sem geta breytt hlut- föhum. Framangreindur samanburður sýnir meðal annars, að stjóm- málamenn eru ákaflega óvandaðir í útleggingum sínum á skoðana- könnunum, sumir hveijir. Saman- burðurinn segir fólki til dæmis, þótt annað hafi verið fullyrt, aö aðeins munaði 0,2 prósentustigum á niðurstöðum DV-könnunarinnar og fylgi Alþýðuflokksins við síð- ustu kosningar. Samanburðurinn gefur einnig th kynna, að forystu- menn litlu flokkanna geta ekki gert sér vonir um að ríða feitu hrossi frá kosningunum. Sveiflumar að undanfömu Skoðanakannanir hafa á kjör- tímabilinu sagt okkur frá ýmsum sveiflum á fylgi flokkanna á hinum ýmsu tímum. Þar hefur verið um rétt mat að ræða. Sjálfstæðisflokk- urinn var th dæmis eins og menn muna kominn með helmingsfylgi og meira mikinn hluta árs í fyrra og hitteðfyrra. Borgaraflokkurinn hefur lengi verið úr sögunni, en fylgi hans fór í byijun hægt yfir th Sjálfstæðisflokksins. Það kom við hjá Kvennalistanum, sem var um tíma kominn yfir 20 prósent fylgi. Fylgi Kvennalistans dalaði strax í hitteðfyrra, en fylgi Sjálfstæðis- flokksins fór að vaxa að sama skapi. Stuðningsfólk KvennaUst- ans mun hafa vhjað, aö þingkon- umar sýndu meiri ábyrgö og hik- uðu ekki svo mjög við að taka þátt í ríkisstjórn sem raun varð á. KvennaUstinn hefur samkvæmt DV-könnunum verið að rétta úr kútnum síðustu vikumar. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði miklu á afstöðu sinni th bráða- birgðalaga ríkisstjómarinnar í kjaradehu háskólamanna. Hann féU þá niður í 43 prósent. Síðar komst flokkurinn úr þeirri lægð. Fylgi Alþýðuflokksins hefur hresstst síðustu vikur. Flokkurinn átti hins vegar við thvistarvanda að stríða fram effir ári 1990, vanda sem heföi farið fram hjá flestum, hefðu skoðanakannanir ekki gefið okkur upp, hvað var að gerast. Framsókn hefur löngum legið nálægt 20% fylgi, þótt tímabh hafi komið; þegar fylgið hefur reynzt vera allt niður í 14 prósent og upp í 24 prósent. Fylgið reynist yfirleitt „stabílt" þegar kosið er. Alþýðu- bandalagið hefur gUmt viö tilvist- arvanda samkvæmt skoðanakönn- unum langan tíma þessa kjörtíma- bils, en fylgið er nú orðið öllu meira en þá var. Hugsanleg stjórnarmynstur Hvað segir DV-könnunin okkur um líkleg stjórnarmynstur? í fyrsta lagi virðist Sjálfstæðisflokkurinn geta myndað stjórn með hveijum einum af hinum þingflokkunum. Þannig er ljóst, aö Sjálfstæðisflokk- urinn fær ekki hreinan meirihluta, en th dæmis viðreisnarstjóm verð- ur ekki ólíkleg, stjórn Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks. Það stjóm- armynstur gafst á sínum tíma vel. Einnig er mikið talað um sam- stjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- bandalags, sem kæmi th greina. Þegar þar að kæmi má þó telja víst, að margir sjálfstæðismenn æmti og skræmti vegna samstarfs við „kommana". Samstjórn Sjálfstæðisflokks og Kvennalista kemur th greina, af þvi að konurnar eru nú orðnar mildu tilkipphegri th stjómarþátttöku. Sankvæmt könnuninni má telja víst, að sjálfstæðismenn og kon- umar fái til samans traustan meiri- hluta á þingi Hvað um málefnin? Satt að segja virðist mér sem engin sérstök mál- efni ættu aö þvælast fyrir slíkum stjórnarmynstmm, þegar á hólm- inn verður komið. Menn rífast eitt- hvað nú, en stólamir munu freista. Næsta ríkisstjóm fer því bara eftir því, hvemig „kaupin gerast á eyr- inni“, sem þýðir, hversu ganga mun að makka um stóla. Og vinstri stjórn með þátttöku Kvennalista í stað Borgaraflokks er ekki síður líkleg en aðrar. Það væri núverandi ráðherrum auð- veldast. Dehur þeirra síðustu daga hafa verið látalæti. Haukur Helgason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.