Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1991. Skák DV Brögðótti áskor- andinn sextugur Nú eru 15 ár síöan Viktor Kortsnoj sneri baki við sovéskri fóstuijörðinni og settist að á Vest- urlöndum. Kortsnoj varð heims- frægur á augabragði er hann ákvað að flýja land og segja fyrrum yfir- völdum sínum stríð á hendur. Hatrið skein úr taflmennskunni og þótt honum hafi runnið mesti móð- urinn á síðustu árum er hann enn í fremstu röð stórmeistara. íslendingar hugsuðu honum þegjandi þörfina er hann blés reykjarmekki yfir Jóhann Hjartar- son í einvígi þeirra í Saint John í janúar 1988. En Jóhann lét það ekki slá sig út af laginu og bar sigurorð af gamla bragðarefnum. íslenskir skákunnendur hafa einnig fyrir- gefið Kortsnoj, sem teflir jú allra manna skemmtilegast. Það sýndi hann á IBM-mótinu í Reykjavík 1987 og síðan á heimsbikarmótinu árið eftir. í haust er hann enn væntanlegur til landsins á heims- bikarmót. Þótt Kortsnoj hefði fyrst orðið heimsfrægur er hann flýði land, náði hann í raun sínum besta ár- angri áratug áður. Á árunum 1964- 1969 sigraði hann á hverju mótinu á fæto öðru, oft með gríðarlegum yfirburðum. Alþjóðamót í Gyula í Ungveijalandi slær þó öll met. Þar hlaut Kortsnoj 14,5 vinninga af 15 mögulegum en næstu menn fengu 9 vinninga! Mig langar að rifja upp tvær skákir Kortsnojs frá þessum árum. Það er engin tilviljun að hann skuli stýra svörtu mönnunum í þeim báðum - Kortsnoj er þekktur fyrir að láta einu gilda hvort hann hefur hvítt eða svart og frægur er hann fyrir óvæntar gagnsóknir sínar. Mér þótti mikið til þessara skáka koma í æsku. Þær eru ekki meðal þekktustu skáka hans en sýna slag- kraftinn í taflmennskunni og næm- an stöðuskilning. Kortsnoj hélt upp á sextugsaf- mæh sitt í heimalandi sínu, Sviss, þann 23. mars s.l. Enn lætur hann þó engan bilbug á sér finna við skákborðið. Hann tekur nú þátt í áskorendakeppninni í níunda sinn - mætir Timman í 2. umferð ein- vígjanna í sumar. Fróðlegt veröur að fylgjast með þeirri viðureign. Timman lét hafa eftir sér fyrir nokkrum árum að miðtaflið tefldi Kortsnoj allra manna best og margt mætti af honum læra. Þessar skák- ir bera þess jafnframt fagurt vitni. Hvítt: Vlastimil Hort Svart: Viktor Kortsnoj Tarrasch-vörn Leningrad 1%7 1. d4 Rffi 2. Rf3 d5 3. c4 e6 4. Rc3 c5 5. e3 Rc6 6. a3 Re4 Viktor Kortsnoj blés reykjarmekki yfir Jóhann Hjartarson hér um árið en nú hafa islenskir skákunnendur fyrirgefið honum. Hann er væntanlegur til landsins á heimsbikarmót í haust. Skák Jón L. Árnason 7. Bd3 Rxc3 8. bxc3 dxc4 9. Bxc4 Be7 10. 0-0 0-0 11. De2 Bd7 12. d5 Nú þykir 12. Bb2 Hc8 13. e4 væn- legra til árangurs. Hort sjálfur sýndi fram á hvemig best má svara textaleiknum í skák við Petrosjan í Zagreb 1970. Þar tefldist 12. - exd5 13. Bxd5 Bf6 14. Hbl Dc7 15. c4 Hab8 16. e4 Bg4 með jöfnu tafli. 12. - Ra5 13. Ba2?! Þessi ónákvæmni hvíts nægir Kortsnoj til þess að ná undirtökun- um. Betra er 13. dxe6 er hvítur get- ur vonast eftir betra tafli. 13. - exd5 14. Bxd5 Bc6 15. Bxc6 Rxc6 16. Hdl Dc8 17. e4 De6 18. Hbl b6 19. Bf4 Had8 20. Dc2 Ra5 21. h3 Rc4 22. Hxd8 Hxd8 23. Hal h6 24. a4 Svartur á betri stöðu, þökk sé sterkum riddara á c4 og sundurslit- inni peðakeðju hvíts. Hvítur hefði hér betur reynt 24. Rd2 og freistaö þess aö ná uppskiptum. Leikur hans er þó ofur eðlilegur, því að ekki liggur í augum uppi hvemig svartur fer að því að bæta stöðu sína. En Kortsnoj er fljótur að svara þvi: L s * ili k m A A * ai A & & W & & S <Á> Jörð til sölu Jörðin Ljótsstaðir I í Vopnafirði er til sölu og af- hendingar í næstu fardögum ef viðunandi tilboð fæst. Jörðin selst í fullum rekstri, ásamt með 23 mjólkurkúm. Framleiðsluréttur jarðarinnar er um 76.000 I af mjólk og 94 ærgildi í sauðfé. Á jörðinni er allgott íbúðarhús, fjós fyrir 24 kýr, búið rörmjalta- kerfi og 1250 I mjólkurtanki og stór rúmgóð véla- geymsla. Einnig nýlegt fjárhús fyrir 90-100 fjár, geld- neytahús fyrir 24 gripi og ungkálfahús fyrir 20 kálfa. Hlöður eru fyrir 1600-1800 hestburði af heyi. Tekið skal fram að akstursleið frá bænum að þéttbýli er um 7 km og að jörðin nýtur laxveiðihlunninda frá Vesturdalsá. Búvélar geta fylgt í sölu ef óskað er. Allar nánari upplýsingar veitir eigandi jarðarinnar, Erlingur Pálsson, í síma 97-31474 eftir kl. 19.00. 24. - g5! 25. Bg3 h5! Kortsnoj, líkt og Benóný heitinn, hefur ætíð verið óragur við að leika peðunum fram þótt kóngsstaöa hans opnist upp á gátt. Hugmyndin er skýr: Hann er að grafa undan valdi hvíts á d2 og þangað er svart- ur hrókur væntanlegur von bráð- ar. Svartur er að ná tökum á öllu borðinu. Takið eftir að hvítur getur ekki andæft á d-línunni, þvi að 26. Hdl? Hxdl + 27. Dxdl Dxe4 kostar peð. 26. Hel g4 27. hxg4 hxg4 28. Rh4 Hd2 29. Dcl Dd7 Nú er d-línan í öruggum höndum svarts. 30. Rf5 Bg5 31. Dal? Betri tilraun er 31. Bh4 en í erf- iðri stöðu láta afleikimir sjaldnast bíða eftir sér. 31. - a6 32. Kh2 Dd3 33. Dcl Kh7 34. Kgl Dc2 35. Dal Eftir drottningakaupin yrði c- peðiö dauðadæmt. 35. - Bffi 36. e5 Bxe5! 37. Bxe5 Dxf5 38. Bg3 Dc2 39. Kh2 Kg6 40. Hgl Kg5! Undirbýr framrás f-peðsins en það kemst þó aldrei úr sporunum - hvítur styttir skákina með næsta leik. 41. Dfl?? Dh7+ Og Hort gafst upp. Kortsnoj hefur alla tíð verið einkar laginn viö aö máta „minni spá- mennina“ en það er ekki öllum sterkum skákmönnunj gefið. Hæfi- leiki Kortsnojs til aö reikna langar leikjaraðir, einstök baráttugleði og þróttmikil taflmennska reynist þeim sem minna mega sín yfirleitt um megn. Viö skulum líta á dæmi frá skák- þingi Leningradborgar 1964 en Kortsnoj sigraði þar með fádæma yfirburðum: Hlaut 15 vinninga af 17 mögulegum og tapaði ekki skák en næsti maður hlaut íjórum vinn- ingum minna. Andstæðingur hans teflir var- fæmislega byrjun og það er athygl- isvert að sjá hvemig Kortsnoj tekst að ná frumkvæðinu með hárréttum uppskiptum. í endatafli hefur hann undirtökin og á markvissan hátt nær hann algjörum yfirburðum. Hann líkur skákinni síðan laglega. Hvítt: Vorotnikov Svart: Viktor Kortsnoj Drottningarpeðsbyijun Leningrad 1964 1. d4 Rffi 2. Rf3 e6 3. e3 c5 4. Bd3 Rc6 5. 0-0 d5 6. b3 Hb8 7. Bb2 b5 8. dxc5 Bxc5 9. Rd4 Rxd4 10. exd4 Bd6 11. De2 b4 12. Rd2 0-0 13. Rf3 Bb7 14. Re5 Hc8 15. f3 Db6 16. Khl Hfd8 17. Hfdl Hc7 18. a4 a5 19. Hd2 Svartur hefur ekki átt í erfiðleik- um með að mæta rólyndislegri byijun hvíts. Nú getur hann státað af hálfopinni c-línunni en það dug- ir skammt, enda stendur c-peð hvíts traustum fótum. Hvemig get- ur Kortsnoj bætt stöðuna? AS iii *• íí« A *£) & i & * A fi 18,- Ha8! Áætlunin er að ná uppskiptum á biskupi hvíts á d3, sem valdar c- peðið. 20. g3 Ba6 21. Bxa6 Dxa6 22. Dxa6 Hxa6 Eftir drottningakaupin hefst nýr þáttur skákarinnar. Ljóst er að svartur hefur undirtökin, því að hvítur er bundinn við að valda c- peðiö. 23. Rd3 Hac6 24. Hcl Hc8 25. Kg2 H6c7 26. Rf2? Betra er 26. He2. 26. - g5! 27. He2 h5! Líkt og í skákinni við Hort hér að framan geysist Kortsnoj fr£im með peðin. Nú er hugmyndin önn- ur, að ná tökum á e4-reitnum fyrir riddarann. 28. Rdl?! g4 29. f4 Re4 30. Re3 f5! 31. Kg2 h4 32. Hg2 hxg3 33. hxg3 Það er lærdómsríkt að sjá hve gjörsamlega Kortsnoj hefur yfir- spilaö mótheija sinn og nú á hann vinningsstöðu. Hann er heldur ekki lengi að gera út um taflið. 33. - Rxg3+! 34. Hxg3 Bxf4 35. Kf2 Bxg3+ 36. Kxg3 Hh7 37. Hfl Hh3+ 38. Kf4 Kf7 39. Bcl Hch8 40. Rg2 Hh2 41. Hf2 H8h3 42. Bd2 Kffi! Og hvítur gaf, því að gegn hótun- inni 43. - Hxg2 44. Hxg2 Hf3 mát er ekkert svar. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.