Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1991.
23
Nýöldin:
Gamlar lummur úr örbylgjuofni
- 10.000 dollarar boðnir fyrir sannanir
„Ég sé sömu brellurnar koma upp
aftur og aftur í gegnum árin. Nýöldin
er ekkert annað en gamlar lummur
sem hitaðar hafa verið í örbylgjuofni
í 15 sekúndur," segir James Randi,
fyrrum sjónhverfingamaður sem
hýður hverjum þeim sem sannað
getur að hann sé gæddur yfirnátt-
úrulegum hæfileikum 10.000 dollara
eða um 580 þúsund íslenskar krónur.
Randi setti loforðið fram fyrir 25
árum og síðan hafa um 600 manns
reynt aö eignast dollarana 10 þúsund
en allir orðið frá aö hverfa. Randi
hefur ævinlega getað sýnt fram á að
enginn fótur var fyrir hæfileikum
viðkomandi eða þá að hann hefur
getað gert brellumar betur.
Nostradamus var ekki
einu sinni heppinn
Einn þeirra sem Randi hefur rann-
sakað sérstaklega er spámaðurinn
Nostradamus. Sá er áhtinn einn
fremsti spámaður sögunnar og for-
sagnir hans rifjaðar upp í takt við
heimsfréttirnar reglulega. Sérstök
bók um spádóma Nostradamusar
hefur verið gefin út á íslandi.
Nostradamus var uppi á 16. öld og
batt spásagnir sínar í nokkurs konar
ljóð. Randi fékk styrk til verksins frá
McArthur stofnuninni í Bandaríkj-
unum.
„Nostradamus var ekki einu sinni
heppinn spámaður," var niðustaða
Randis sem rannsakaði 100 tilfelli
þar sem Nostradamus var nægilega
skýr til þess að leggja mætti dóm á
spásagnir hans. Engin reyndist ná-
lægt því rétta.
Fyrrum
sjónhverfingamaður
Randi var á sínum yngri árum
starfandi sjónhverfingameistari og
þekkir því til hlítar ýmsar hrellur
sem hægt er að beita til að slá ryki
í augu trúgjarnra áhorfenda. Auk
þess vann hann um árabil á rann-
sóknarstofu í Kanada og öðlaðist þar
reynslu í prófunum sem nota má til
að prófa umdeilda hluti á vísindaleg-
an hátt.
John Maddox, ritstjóri tímaritsins
Nature, en fyrir það hefur Randi
starfað talsvert, segir að hann sé vís-
indamaður í hjarta sínu, án fordóma
en fyrst og fremst bráðgáfaður og
snjail. Randi tók að sér fyrir Nature
að rannsaka kenningar fransks vís-
indamanns sem renndu stoðum und-
ir kenningar hómópata. Niðurstaða
hans var sú að kenningarnar væru
tómt rugl.
Randi hefur að undanfomu unnið
að gerð þáttaraðar fyrir kanadíska
sjónvarpið þar sem flett verður ofan
af vinnubrögðum kuklara og loddara
í andlegum og yfimáttúrulegum efn-
um. Þar skorar Randi ýmsa brellu-
meistara á hólm og sýnir fram á
hvernig heilbrigð skynsemi og hand-
laginn sjónverfmgamaður getur leik-
ið flest betur en þeir gera sjálfir. í
þáttunum mun hann meðal annars
skera upp mann með berum höndun-
James Randi býður 10.000 dollara
þeim sem sannað getur yfirnáttúru-
lega hæfileika sína.
um en slíkir svikalæknar vaða mjög
uppi um þessar mundir og kannski
muna íslendingar eftir skipulögðum
hópferðum héðan á fund slíkra svik-
ara á Filippseyjum fyrir nokkrum
árum.
í þáttunum sýnir Randi einnig
fram á hvemig venjulegur maður
getur lesiö persónuleika manna úr
rithönd þeirra betur en sérfræðing-
ar. Einnig tekur hann fyrir vinnu-
brögð þeirra sem sérhæfa sig í að
finna vatn í jörðu með sérstökum
innri aðferðum oftast með aðstoð
pendúls eða óskakvists. Randi komst
að þeirri niðurstöðu að það gæfi betri
árangur að kasta upp krónu til þess
að finna vatn.
Inngróin
trugirni þjóðanna
„Ýmis konar trúgimi virðist vera
inngróin í þjóðarsál einstakra
þjóða,“ segir Randi. Þannig eru Þjóð-
veriar móttækilegir fyrir yfimátt-
úmlegum aðferðum til þess að finna
týnda hluti. Englendingar eru trúað-
ir á líf eftir dauðann og hafa samband
við dáið fólk. Ameríkanar trúa öllu
ef tekst að sannfæra þá um að það
sé vísindalega sannað. Japanir trúa
öllu sem þeir halda að sé amerískt.
Hér mætti rifja upp skoðanakönn-
un sem gerð var á íslandi fyrir
nokkrum árum og sýndi að meira en
helmingur þjóðarinnar trúði á
drauga.
Ein þekktasta deila Randis var við
ísraelska undramanninn Uri Geller
en Randi hefur ritað heila bók um
hann þar sem því er lýst að Geller
sé svikahrappur og ekkert yfirnátt-
úmlegt við sýningar hans á því
hvernig hann beygir skeiðar með því
að strjúka þær. Randi sem einnig
kann að beygja skeiðar með þessum
hætti segir að brellur þær sem Geller
sýnir hafi verið kenndar utan á
kornflexpökkum þegar hann var
krakki.
„Geller tókst að gabba jafnvel virta
vísindamenn einfaldlega vegna þess
að þeir skilja ekki sjónhverfingar."
Randi hefur verið virkur í barátt-
unni gegn loddurum síðan hann var
15 ára en þá kynntist hann spíritist-
um í Kanada. Hann segir að sömu
gömlu brellurnar skjóti upp kollin-
um aftur og aftur.
Vandinn felst í því, að sögn Randis,
að þeir sem trúa á yfirnáttúrulega
hluti trúa af miklu meiri sannfæring-
arhita en hinir sem gera einfaldlega
ráð fyrir aö ekkert slíkt sé til.
„Þannig færir sá sem telur að jörð-
in sé flöt mun vandaðri rök fyrir
máh sínu en hinn gengur út frá því
að hún sé hnöttótt og veltir því ekki
frekar fyrir sér.'
Kennarar
Stöður skólastjóra og yfirkennara við- Grunnskólann
á Hólmavík eru lausar til umsóknar. Einnig er óráðið
í nokkrar kennarastöður. Nánari upplýsingar gefa
skólastjóri í síma 95-13129 (13123), formaður
skólanefndar í síma 95-13155 (13130) og sveitar-
stjóri í síma 95-13193. Umsóknarfrestur er til 25.
apríl nk.
Skólanefnd
-Pá
hv//,-/»■. i ■ i, iriai.t j.in j.i
w/
x
VERKLEGT
T1LBOÐ
Við náðum sérstökum samningum á takmörkuðu magni af
Black og Decker iðnaðarverkfærum og lækkum verðið snarlega meðan birgðir endast.
P54-HK
< Slípirokkur í stáitösku
11000 snún. á min. sterkur og
handhægur, 4V£”, 720W.
Pll-69
Borvélv
Létt, afar sterk, örugg og fjölhæf,
stiglaus - afturábak og áfram, 450W.
P80-20K
ALoftborhamar í stáitösku
Fyrir SDS steinbora, stiglaus
afturábak og áfram, 550W.
P22-71K
Höggborvél í stáitösku>
Óvenjulega fjölbreytt og kraftmikil
meö afköst i hámarki, 2ja gíra,
stiglaus - afturábak og áfram, 500W.
EESX9Vfn
Sölustaðir um land allt.
SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 • PÓSTHÓLF 880 • 121 REYKJAVÍK • SlMI 62 72 22