Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Blaðsíða 33
LAUGAílDAG.UJiaO.AP^L.iggf.
H49
Helgarpopp
Stefnumót
við Sting
Aðdáendum Stings stendur til boða
að faira í hópferð á hljómleika með
honum í Þýskalandi í næsta mánuði.
Sting er fyrir nokkru lagður af stað
í hljómleikaferð. Þar kynnir hann
fyrst og fremst efni af nýju plötunni
sinni, Soul Cages, en lætur að sjálf-
sögðu eldra efni fljóta með.
„Við förum á hljómleika í bænum
Oldenburg," segir Ingi Gunnar Jó-
hannsson fararstjóri. „Bær þessi er
skammt frá Hamborg. Ég veit ekki
hvers vegna Sting kýs að leika þar
en ekki í stórborginni sjálfri. Ef til
vill eru öll konserthús í Hamborg
upptekin. Hugsanlega er nýbúið að
opna hús í Oldenburg. Þar hafa að
minnsta kosti ekki verið haldnir
stórtónleikar af þessari gráðu svo ég
muni.“
Það eru Samvinnuferðir/Landsýn
og konsertklúbbur Bylgjunnar sem
standa fyrir hópferðinni. Farið verö-
ur 16. maí og komið aftur þann nítj-
ánda. Hljómleikarnir sjáifir verða
laugardagskvöldið átjánda.
Ingi Gimnar er orðinn alvanur að
fara með hópa á hljómleika í Þýska-
landi. Síðustu fimm árin hefur fólk
fariö með honum til að sjá og heyra
David Bowie, Elton John, Prince,
Michael Jackson, The Rolling Stones
Og fleiri.
„Tilgangurinn með þessu öllu sam-
an er náttúrlega sá að ef fjallið kem-
ur ekki til Múhameðs verður Múha-
með að koma til fjallsins," segir Ingi
Gunnar. „Það er því miöur allt of
sjaldgæft að popparar og rokkarar á
heimsmæhkvarða komi hingað til
ábama-
alnæmis-
smituðum
börmun
Walt Disney risafyrirtækið ætl-
ar í maílok að gefa út hljómplöt-
una For Our Children til styrktar
börnum sem alnæmisveiran hef-
ur fundist í. MikiII stjörnufans
kemur fram á plötunni án þess
að taka gjald fyrir og ætlar að
auki að gefa höfundar- og flutn-
ingsgjöld til styrktar málefmnu.
Meöal þeirra sem koma fram á
For Our Children eru Bob Dylan,
Bruce Springsteen, Little Ric-
hard, Paul McCartney, Sting,
Brian Wilson, Elton John, Harry
Nilsson, Barbara Strcisand, Ja-
mes Taylor og fleiri og fleiri.
Brian Wilson og Elton John
lögðu til eigin tónsmíðar sem þeir
sömdu sérstaklega fyrír plötuna.
Lag Wilsons heitir Country Feel-
in’s og Pacifier er heitiö á lagi
Eltons.
Flest lögin á plötunni eru gam-
algrónir barnaslagarar. Paul
McCartney syngur til dæmis
Mary Had a Little Lamb. Barbara
Streisand leggur sömuleiðis til
gamalt lag, A Child is Born. Há-
punktar plötunnar eru að sögn
blaðamanns Rolling Stone túlkun
Little Ricliard á Itsy Bitsy Spider,
Chicken Lips and Lizard Hips
með Bruce Springsteen og túlkun
Bobs Dylans á TMs Old Man.
Umsjón
Ásgeir Tómasson
lands. Því er ráðið það að fara utan
og sjá þá og heyra. Við höfum til
ráðstöfunar tuttugu miða á Sting-
Mjómleikana og það eru enn nokkrir
eftir.“
Ef marka má dóma um hljómleika
Stings að þessu sinrn er vel þess virði
að sjá hann og heyra. Á efmsskránni
er góð blanda af gömlu og nýju. í
Rolhng Stone kemur fram að nýju
lögin af Soul Cages séu jafnvel að-
gengilegri á Mjómleikum en plötu.
Með Sting í ferðinm eru Dominic
Miher gítarleikari, Mjómborðsleik-
arinn David Sancious og Vinrne Co-
lautia sem leikur á trommur.
Sting á hljómleikum. Gamla Hendrixlagiö Purple Haze er meðal þess sem
hann býður upp á að þessu sinni.
EINRÆÐI -
LÝÐRÆÐI
„Ef við förum og túlkum lýðræði með þeim hætti að til að
mynda Sjálfstæðisflokkurinn annars vegar og Flokkur
mannsins hinsvegar til að mynda, eigi að hafa sama
tíma í sjónvarpi til að útskýra hvað þeir ætli að gera
næstu 4 árin f stjórn landsins. Þetta finnst mér vera
afbökun á lýðræðinu. “ Davíð Oddsson á kosningafundi
á Blönduósi.
Frjálslyndir telja skoðanir formanns stærsta
stjórnmálaflokks landsins í þessum efnum hættulegar
og beinlínis til þess fallnar að stofna til einræðis á
íslandi.
Frjálslyndir leggja áherslu á virðingu fyrir
einstaklingnum og frelsi hans. Málfrelsi og fundarfrelsi
er grunnur þess lýðræðisþjóðfélags sem við lifum í.
Þann grunn vilja Frjálslyndir styrkja.
FRJÁLSLYNDIR
Ef þú vilt vita meira um þessar kerfisbreytingar eða
önnur stefnumál Frjálslyndra, hafðu þá samband við
kosninga skrifstofur okkar.
ATKVÆÐI GREITT F-LISTANUM ER ATKVÆÐI GREITT SJÁLFUM ÞÉR