Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1991, Síða 50
”8
66
Afmæli
Gí sli Kristj ánsson
Gísli Kristjánsson, vélgæslumaöur
við Áburðarverksmiðjuna, Keldu-
landi 11, Reykjavík, verður sjötug-
urámorgun.
Starfsferill
Gísli fæddist að Hvallátrum og
ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann
hóf ungur sjóróðra og vann þar við
almenna fiskverkun á unglingsár-
unum. Gísli réð sig síðan á togar-
ann Vörð frá Patreksfirði árið 1940
og var háseti á honum og síðan
togaranum Gylfa til 1947, auk þess
sem hann var þá þrjú sumur á síld.
Hann flutti þá til Reykjavíkur og
stundaði þar togarasjómennsku til
1953. Þá hóf hann störf hjá Áburð-
arverksmiðjunni þar sem hann
hefur verið vélgæslumaöur s.l.
þijátíu ogáttaár.
Fjölskylda
Gísli kvæntist 15.10.1949 Þor-
björgu Magnúsdóttur, f. 26.11.1914,
d. 24.7.1984, húsmóður en hún var
dóttir Magnúsar Stefánssonar, b. í
Vétleifsholti í Holtum, og konu
hans, Önnu Pétursdóttur hús-
freyju.
Börn Gísla og Þorbjargar eru
Gísli Már, f. 18.2.1950, prófessor
við líffræðideild HÍ, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Kristínu Haf-
steinsdóttur meinatækni og eiga
þau þrjú börn, auk þess sem Gísli
Már á einn son; Halldóra, f. 12.4.
1951, myndlistarkennari við FB,
búsett í Kópavogi, gift Eiríki Bald-
urssyni Líndal sálfræðingi og á hún
einn son frá fyrra hjónabandi;
Anna, f. 26.5.1952, húsmóðir í
1 STÓRKOSTLEG kSKRIFTAR rðatfeÝratm'
rtrs
CrimrfúkUngur
allsber ADEINS 59tfL
Fishur
/fcítöh' 370t
Bónus borgarinn
Armúla 42
»82990
ISVERÐIN
í BÓRQIhhl
Bamaís Kr. 59*
MtUístœrá Kr_99-
»Shahe« k, 199-
1.1.Rfóma ís Kr.329t
BONUS ÍS HF.
Xrmúla 42
@8X880
Reykjavík, gift Kjartani Ólafssyni
verksmiðjustjóra og eiga tvö börn.
Gísh er næst elstur tíu systkina
og eru níu þeirra á lífi. Systkini
hans: Ragnheiður, f. 20.7.1917, d.
22.4.1982, búsett hjá foreldrum sín-
um og sá um þau í ellinni; Ingi-
björg Kristín, f. 18.5.1923, húsmóð-
ir á Rifi á Snæfellsnesi, gift Leifi
Jónssyni hafnarstjóra þar og eign-
aðist hún sjö börn en fimm þeirra
eru á lífi; Eggert Halldór, f. 7.12.
1925, póstfulltrúi í Reykjavík;
Hulda, f. 24.12.1926, húsmóðir í
Hafnarfirði, gift Knúti Gísla Frið-
rik Kristjánssyni byggingameist-
ara og eiga þau fjögur börn; Sigurð-
ur Ágúst, f. 1.8.1929, starfsmaður
hjá Vatnsveitu Reykjavíkur,
kvæntur Svölu Aðalsteinsdóttur
húsmóður og eiga þau saman fjög-
ur börn; Arndís Guðrún, f. 14.4.
1931, húsmóðir í Garðabæ, gift
Valtý Eyjólfssyni vélstjóra og eiga
þau þijú böm; Kristín Hrefna, f.
27.12.1932, húsmóðir og sjúkraliði
í Kópavogi, gift Ragnari Hilmari
Þorsteinssyni múrarameistara og
eiga þau fjögur böm; Einar Sig-
mundur, f. 4.10.1936, málarameist-
ari í Reykjavík, kvæntur Sólrúnu
Gestsdóttur húsmóður og eiga þau
tvö hörn; Jóna Margrét, f. 29.11.
1941, húsmóðir og hjúkrunarkona
í Garðabæ, gift Herði Alfreðssyni
hjartaskurðlækni og eiga þau þrjú
börn.
Foreldrar Gísla voru Kristján
Hjálmar Sigmundsson, f. 6.9.1889,
d. 4.11.1976, útvegsb. á Hvallátrum,
og kona hans, Sigríður Eggerts-
dóttir, f. 12.10.1900, d. 17.11.1981,
húsfreyja.
Ætt
Bróðir Kristjáns var Bjarni, faðir
Bessa leikara. Kristján var sonur
Sigmundar, b. á Hvalskeri í Rauða-
sandshreppi Hjálmarssonar, b. á
Sjöundá á Rauðasandi, Sigmunds-
sonar. Móðir Hjálmars var Björg
Helgadóttir. Móðir Sigmundar á
Hvalskeri var Guðrún Lýðsdóttir,
b. á Þverá á Barðaströnd, Guð-
mundssonar, b. á Hamri á Barða-
strönd, Jónssonar. Móðir Kristjáns
var Ingibjörg Einarsdóttir, b. í Flat-
ey, Einarssonar, b. á Hvallátrum,
Guðmundssonar, b. í Miðhúsum í
Reykhólasveit, Sveinssonar. Móðir
Einars Einarssonar var Ingibjörg
Pétursdóttir, b. í Flatey, Jónssonar
og konu hans, Guðrúnar Einars-
dóttur. Móðir Ingibjargar var
Kristín Magnúsdóttir, b. á Efri-
Vaöh á Barðaströnd, Magnússonar,
b. á Auðshaugi, Erlendssonar.
Móðir Kristínar var Hervör ljós-
móðir Ásgeirsdóttir, b. á Litlanesi,
Bjarnasonar.
Sigríður, móðir Gísla, er systir
Sigurðar, föður Halldórs E. fyrrv.
ráðherra. Sigríður var dóttir Egg-
erts, b. á Hvallátrum, Eggertsson-
ar, b. í Krossadal, bróður Eiríks,
Gísli Kristjánsson.
afa Helga Hermanns, skólastjóra
og bankastjóra. Eggert var sonur
Magnúsar, sútara og hreppstjóra í
Keflavík, Árnasonar. Móðir Egg-
erts á Hvallátrum var Halldóra
Ólafsdóttir, b. á Sökkum, Rögn-
valdssonar. Móðir Sigríðar var
Halldóra, dóttir Gísla Bjarnasonar
á Hvallátrum og Kristínar Magnús-
dóttur.
Friðrik Á. Brekkan
Friðrik Ásmundsson Brekkan
markaðsstjóri, Mímisvegi 6, Reykja-
vík, verður fertugur á morgun,
sunnudaginn21.4.
Starfsferill
Friðrik fæddist í Reykjavík en ólst
upp bæði þar og í Svíþjóö. Hann
stundaði nám við MR1966-70, lauk
stúdentsprófi frá MH1973, stundaði
nám í ensku við HÍ1973-75 og lagði
stund á alþjóðastjórnmálafræði við
háskólann í Gautaborg 1978-79. Á
sama tíma var hann túlkur við dóm-
stóla og innflytjendaráöuneyti í Sví-
þjóð.
Friðrik var félagsmálastjóri Sauð-
árkrókskaupstaðar 1979-1982,
blaðafuhtrúi Menningarstofnunar
Bandaríkjanna 1983-1989 og vann
að ferðamálum 1989-1990. í dag
gegnir Friðrik starfi markaösstjóra
flugfélagsins Óðin Air hf. í Reykja-
vík.
Friðrik hefur ritað fjölda blaða-
og tímaritsgreina um ýmis málefni
hér heima og erlendis en hann var
búsettur erlendis nokkur ár á með-
an hann vann að ferðamálum.
Fjölskylda
Friðrik er ógiftur en á tvö börn.
Þau eru: Hanna, f. 16.4.1970, nemi
í bæði háskóla og tónhstarskóla, og
Vilhjálmur, f. 1.11.1972, nemi í FB.
Systkini Friðriks eru: Elísabet, f.
19.4.1955, leikstjóri í Stokkhólmi,
gift Þorvaldi Friðrikssyni, fomleifa-
fræðingi og fréttamanni, og eiga þau
þijú börn; Hólmsteinn, f. 18.11.1962,
bhkksmíðameistari og starfar í
Gautaborg, kvæntur Salóme Eiríks-
dóttur og eiga þau tvö börn; Helga,
f. 25.11.1964, starfar á ferðaskrif-
stofu í Stokkhólmi, í sambúð með
Mats Jonstam kvikmyndagerðar-
manni; og Hanna, f. 25.11.1964, nemi
í innanhússhönnun, ógift og búsett
iMilanóáítalíu.
Foreldrar Friðriks em þau Ás-
mundur Fr. Brekkan, f. 11.5.1926,
yfirlæknir, og Ólöf Helga Sigurðar-
dóttir, f. 22.11.1928, tannlæknir.
Ásmundur er sonur Friðriks Á.
Brekkan, rithöfundar í Reykjavík,
Ásmundssonar, b. á Ytri-Reykjum
og á Brekkulæk í Miðfiröi, Jónsson-
ar, b. á Þórólfsstöðum í Miðdölum,
Jónssonar, b. á Hömrum, Jónsson-
ar, b. í Miðskógi, Bjarnasonar. Móö-
ir Ásmundar á Brekkulæk var Ingi-
björg Jónsdóttir, b. á Smyrlabergi í
Ásum, Jónssonar. Móðir Friðriks
rithöfundar var Messíana Margrét
Bjarnadóttir, b. á Fosshóh í Víðidal,
Jóhannssonar.
Móðir Ásmundar læknis var
Estrid Jóhanna Falberg-Brekkan
kennari, dóttir Anders Falberg,
skipherra í Gautaborg, Nielsson
Falberg, óðalsb. og gestgjafa í Bo-
husléni. Móðir Estrid var Jenni Fal-
berg kennari, dóttir Eriks Beckman,
embættismanns hjá sænsku ríkis-
járnbrautunum.
Ólöf Helgaer dóttir Sigurðar
Hólmsteins Jónssonar, b. og smiðs
í Flatey á Breiðafirði, Sigurðssonar
Friðrik Asmundsson Brekkan.
sjómanns Ólafssonar. Móðir Jóns
var Hólmfríður Andrésdóttir. Móðir
Sigurður var Júlíana Hansdóttir
sjómanns Ólafssonar og Halldóru
Mouhl.
Afmæhsbarnið tekur á móti gest-
um að Mímisvegi 6 milli kl. 15 og 18
á afmæhsdaginn.
Haukur Guðmundsson
Haukur
Guðmundsson
Haukur Guðmundsson frá Gerð-
um í Garði verður sjötugur í dag.
Haukur lauk prófi frá Verslunar-
skóla íslands 1940 og Stýrimanna-
skóla íslands 1950. Hann starfaði
sem stýrimaður og skipstjóri á milli-
landaskipum tíl 1964. Þá hóf hann
störf sem fuhtrúi hjá Skipaútgerð
ríkisins og starfaði þar til 1982.
Haukur er nú vistmaður á Hrafnistu
við Laugarás.
Fjölskylda
Haukur á fjögur börn. Þau eru
Ingólfur, f. 1.4.1952; Gunnar, f. 6.9.
1955; Ingibjörg, f. 8.12.1957; Birgir
Kristbjörn,f. 26.10.1962.
Foreldrar Hauks voru Guðmund-
ur Þórðarson frá Hálsi í Kjós, út-
gerðarmaöur og oddviti í Garði, og
Ingibjörg Jónsdóttir frá Káranes-
kotiíKjós.
Haukur er að heiman í dag.
95 ára
Elísabet Böðvarsdóttir,
Suöurbraut 6, Haínarfiröi.
Hún veröur aö heiman á afrmelisdag-
inn.
Kristjana Jónatansdóttir,
Nípá I, Ljósavatnshrcppi.
Kjartan Eiðsson,
Holtsgötu 14c, Njarövík.
Haukur- Guðmundsson,
Hrafnistu, Reykjavík.
Kletti, Reykholtsdalshreppi.
■ Sigurjón Guðui Ingvarsson,
Steinholtsvegi 8, Eskifirði.
Guðjón Jónsson,
; Oiidagötu 11, Akureyri.
Þorsteinn Jón Þorsteinsson,
Nesbala 62, Seltjamarnesi.
50 ára
Ingibjörg Guðraundsdóttir,
Borgarbraut 65, Borgarnesi.
60 ára
Magnea Steiney Jónsdóttir,
Unnarbraut 17, Seltjamarnesi.
Ketill Eyjóifeaon,
Hringbraut 75, Hafnarfiröi.
Sigríður Ketilsdóttir,
Hjallabraut 33, Hafnarfiröí.
Jóhanna KristinKdóttir,
Sunnuvegi 35, Reykjavík.
Jón Lárus Sigurðsson,
Fjólugötu 3, Reykjavík.
Hrafn Tulinius,
Þúigholtsstrieti 31, Reykjavík.
Guðrún Viibjálmsdóttir,
Vesturgötu 133, Akranesí.
Einar Oddsson,
Austurvegi 7, Vík í Mýrdal
Þórður Einarsson,
Þór Jóhann Vigfússon,
Jöldugróf 17, Reykjavik.
Olöf Friðný Maríusdóttir,
Mímisvegi 26, Dalvik.
Henrik Vedsted Pedersen,
Reynivöllum 6, Akureyri.
Valborg Ðenedikta Jðnasdóttir,
Skóiaveri 96a, Fáskrúðsfirði. :
Eínar Magnússon,
VölUsteinsStríeti 15, Bolungarvík. ;
Helga Sæþórsdóttir,
75 ára
Broddi Jóhannesson,
Sporðagrunni 15. Reykjavík.
Þorsteinn Karisson,
Búðardal 2, Skarðshreppi
Hafralækjarskóla, Aöaldælahreppi.
Hanna Ágústa Ágústsdóttir,
“ Melgerði 22, Reykjavík.
Guðmundur Jóhannesson,
Kðldukinn 25, Hafnarfirðí.
Valgarð Þorsteinn öjörnsson,
Dílahæö 5, Borgarnesi.
Hrishoitl 11, Garðabæ.
Stefán Þorkclsson,
Seljalandi 7, Reykjavík.
Þórður Kiríksson,
Brekkubæ 16, Reykjavík.
Hjálmar Jóelsson,
Lagarási 18, EgOsstööum.
50 ára
Hólmfríður Sighvatsdðttir,
Nönnufelli 3, Reykjavík.
Vilhelmína Alfreðsdóttir,
Yrsufelh 13, Reykjavík.
Þorsteinn H. Viihjálmsson,
Guðbjörg Árnadóttir,
Sólvallagötu:61, Reykjavfk.
Maria Baidursdóttir,
Kjarrmóum 60, Garðabæ.
Aileen Ann Þorvaldsson,
Eyjabakka 22, Reykjavík.
Pétur Helgi Pétursson,
Kveidúifsgötu 28, Borgiunesi.