Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1991, Blaðsíða 22
22
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ1991.
Sérstæð sakamál
Mánudaginn nóvember 1985
vaknaði Dieter Hoog á venjulegum
tíma og fór niður í eldhús hússins
sem hann bjó í með móður sinni í
Baden-Baden í Þýskalandi. Hann
bjóst viö að morgunverðurinn væri
á borðinu. Svo var ekki og þegar
hann fór að huga að móður sinni,
Theresiu Hoog, komst hann að því
að hún var ekki í heima. Honum
kom til hugar að móðir hans hefði
verið hjá vinkonu sinni, Elviru
Kazuba, um nóttina og hringdi
heim til hennar en enginn svaraði.
Frú Kazuba átti að fara til vinnu
klukkan níu en nú var klukkan
hálfátta. Hoog hringdi því til lög-
reglunnar og tilkynnti hvarf móður
sinnar.
Leitin hefst
Lögregluvarðstjórinn hafði þegar
samband við sjúkrahús til að
kanna hvort kona hefði verið lögð
inn eftir slys án þess að tekist heíði
að ganga úr skugga um hver hún
væri. Svo reyndist ekki vera. Sam-
tímis þessu var kannað hvar síðast
hefði verið vitað um frú Hoog.
Sonur hennar skýrði svo frá að
kvöldið áður hefði hún farið til
heilsuhælis í Svartaskógi til meö-
ferðar vegna gigtar sem hún þjáðist
af. Dieter Hoog sagðist ekki vita
hvort móðir hans hefði komið heim
á eftir eða ekki. Hann hefði sjálfur
komiö seint heim kvöldið áður og
talið að móðir sín svæfi svo hann
hefði farið beint til hefbergis síns.
Varðstjórinn spurðist nú fyrir
um hvort Theresia Hoog hefði átt
bíl og fékk það svar að hún ætti
Volkswagen Sirocco með skrásetn-
ingarnúmerinu RA-P 89. Hefði hún
farið í bílnum til heilsuhælisins
kvöldið áður.
Rannsókarlögreglan
fær málið í hendur
Þegar hér var komið þótti varð-
stjóranum rétt að leita til rann-
sóknarlögreglunnar. Hvarf Ther-
esiu Hoog, sem var fimmtíu og
fimm ára, virtist dularfullt og ekki
að vita nema hún hefði orðið fórn-
ardýr glæpamanns.
Dieter Hoog hafði, er hér var
komið, ekki skýrt frá því að hann
hefði hringt heim til Elviru Kazuba
en hún ekki svarað símanum.
Skömmu síðar kom rannsóknar-
lögreglumaðurinn Egon Tischler á
heimili Hoogmæðginanna og fékk
nýlega mynd af frú Hoog. Hann fór
síðan með hana til heilsuhælisins
í Svartaskógi þar sem hann fékk
staðfestingu á því að hún hefði
komið þangað kvöldið áður en síð-
an verið kölluð burt í skyndi.
Hjúkrunarkona sagði að maður
um fertugt hefði komið að sækja
hana. Hún sagðist ekki vita hvað
hann hefði sagt við frú Hoog en að
hún hefði strax farið með honum,
líklega í bíl hennar.
Tischler hafði þegar samband við
yfirmann sinn, Gerd Monninger,
og voru þeir sammála um að málið
liti nú verr út en áöur.
Bíllinn finnst
Nú gerðist margt á tiltölulega
skömmum tíma. Mynd var dreift
af Theresiu Hoog og skrásetningar-
númeri bíls hennar sömuleiðis.
Lögregluþjónar um alla borgina
fengu gögnin. Þá var teiknari send-
Elvira Kazuba. Theresia Hoog.
Þær
treystu
honum
ur til heilsuhælisins og lýsti hjúkr-
unarkonan, sem séð hafði manninn
sem sótti frú Hoog, honum. Varð
brátt til allgóð mynd af þeim sem
talinn var bera ábyrgð á hvarfinu.
Það var Walter Hartmann lög-
regluþjónn sem kom auga á bíl frú
Hoog fyrir framan hús í Frankreich
Strasse. Er hann var á leiö að næsta
símaklefa til aö tilkynna um fund-
inn sá hann mann koma út úr hús-
inu sem bíllinn stóð við og stinga
lykli í skrána á vinstri framhurð
bílsins. Hartmann gekk til manns-
ins og sagði honum að hann væri
handtekinn.
Maðurinn reyndist vera Jurgen
Hein, fjörutíu og sex ára og fæddur
í Berlín.
Rannsókn á húsinu, sem Hein
hafði verið í, leiddi í ljós að eigand-
inn var frú Ruth Luise Tschantsch-
er en hún svaraði ekki þegar hringt
var dyrabjöllunni. Þegar rann-
sóknarlögreglumenn brutust inn í
húsið komu þeir að grannvaxinni
konu sem lá bundin og kefluö á
rúmi. Var ljóst að henni hafði verið
nauðgað og misþyrmt, en hún var
á lífi. Reyndist hún vera Thersia
Hoog.
Saga frú Hoog
Theresia Hoog var þegar flutt á
sjúkrahús þar sem hún fékk að-
hlynningu og síödegis var hún búin
að ná sér það vel að hún gat skýrt
frá því sem gerst hafði.
við Berlín og bað um allar þær
upplýsingar sem þar væri að fá um
Jurgen Hein. Vöktu þær bæði at-
hygli og óhug þegar þær lágu fyrir,
en fjarriti var um klukkustund að
skila þeim frá sér.
Hein var fæddur í Berlín, elstur
átta barna drykkfellds klæðskera
og andlega vanheillar móður. Ung-
ur fór hann að heiman og kvæntist
Edith Dzillak sem hann kyrkti.
Fyrir þaö fékk Hein átta ára fang-
elsi árið 1967. Hann fékk aftur frels-
ið eftir aö hafa fengið reynslulausn
árið 1972.
4. apríl 1973 réðst Hein á sex ára
gamla stúlku, Sonju Kleber, og
misþyrmdi henni kynferðislega.
Fannst hún nakin í blóði sínu og
mátti þakka það því að hún fannst
í tæka tíð að tókst að bjarga lífi
hennar. Fyrir þann glæp fékk Hein
tíu ára fangelsi og árið 1985 var
hann enn á ný laus.
Örlög Elviru Kazuba
Að lokinni lesningunni ákváöu
rannsóknarlögreglumennirnir að
yfirheyra Elviru Kazuba því allt
benti til þess að Hein hefði þekkt
hana. Enginn kom til dyra er bjöll-
unni á íbúð hennar var hringt. Er
rannsóknarlögreglumenn komust
inn í íbúðina sáu þeir gamlan mat
fyrir tvo á eldhúsborði en Elvira
Kazuba fannst stungin til bana í
svefnherberginu. Fingrafararann-
sókn leiddi í ljós fingrafor Jiirgens
Hún sagði að nokkru eftir að hún
kom í heilushælið í Svartaskógi
hefði maður komið til hennar og
sagt henni að vinkona hennar, Elv-
ira Kazuba, heföi orðið fyrir slysi.
Frú Hoog sagðist hafa farið með
manninum og heföi hann ekið með
hana að húsinu við Frankreich
Strasse 10. Er inn í húsið kom rot-
aði maðurinn hana. Þegar hún
vaknaði lá hún bundin á rúmi og
var Hein þá aö klippa utan af henni
fötin meö skærum. Hófust síðan
nauðganirnar og misþyrmingin.
Um morguninn tók Hein bíllykla
frú Hoog og var að opna bíl hennar
þegar hann var handtekinn.
Hættulegur glæpamaður
Monninger hafði þegar samband
Hein víða um íbúðina.
Þegar gengið var á Hein játaði
hann á sig morðið á frú Kazuba.
Sagðist hann hafa kynnst henni í
byrjun mánaðarins og hefðu tekist
með þeim náin kynni svo hann
hefði fengið lykil að íbúð hennar.
Var þar fengin á því skýringin á
því hvernig Hein vissi um frú Hoog
og að hún var til meðferðar á
heilsuhælinu í Svartaskógi, sem og
á því hvers vegna Elvira Kazuba
svaraði ekki símanum morguninn
sem Dieter Hoog hringdi til hennar.
Monninger skipaði nú mönnum
sínum að fara þegar í stað aftur til
hússins við Frankreich Strasse 10
því ljóst var nú að frú Ruth Luise
Tschantscher, eigandi hússins, bjó
þar í annarri íbúð, en íbúar þar
höfðu skýrt frá því að enginn hefði
orðið hennar var um nokkurn
tíma. Það var Tischler sem fékk
þessar upplýsingar og kom þeim til
Monningers.
Örlög frú
Tschantscher
Rannsóknarlögreglumenn og
menn frá tæknideild lögreglunnar
fóru nú á vettvang. Þeir fóru inn í
íbúð frú Tschantscher og í fyrstu
var ekki neitt óeðlilegt að sjá þar.
í svefnherberginu var allt i röð og
reglu og þótt augljóst væri að sofið
hafði verið í rúminu var ekki nein
ummerki að sjá um ofbeldi.
Frammi á gangi var hins vegar
annað herbergi og þegar rannsókn-
arlögreglumennimir opnuðu dym-
ar að því gaus á móti þeim óþefur.
Augnabliki síðar blasti við þeim lík
frú Tschantscher og var ljóst ljóst
að hún hafði verið dáin um nokk-
urt skeið. Líkskoðun leiddi síðar í
ljós að hún hafði verið látin í um
hálfan mánuð er hún fannst og var
ljóst að henni hafði verið nauðgað
og misþyrmt. Dánarorsök reyndist
kyrking.
Nýjátning
Jurgen Hein játaði á sig, að því
er virtist með ánægju, moröið á frú
Tschantscher en neitaði síöan að
hafa gerst sekur um nokkra aðra
glæpi en þá sem lögreglunni væri
þegar kunnugt um.
Þannig hafði þessi afbrotamaður
frá Berlín nú játað á sig morð
tveggja kvenna, auk nauðgana og
misþyrminga. Þótt ekki væri þann-
ig hægt að sjá neina raunhæfa
ástæðu til þess að hann játaði ekki
á sig fleiri glæpi, hefði hann framið
þá, var þó að sjálfsögðu ekki hægt
aö fullyrða að hann hefði ekki
framið fleiri ódæði. Ekkert hefur
þó komið fram sem bendir til þess.
Mál Jurgens Hein vakti mikla
athygli enda með þeim óhugnan-
legri sem komið hafa upp í Þýska-
landi um nokkurt skeið.
27. júní 1986, nokkru eftir að rétt-
arhöldin yfir Hein hófust, gaf hann'
kviðdómendum nákvæma lýsingu
á öllum óhæfuverkunum og varð
ekki séð að hann reyndi á neinn
hátt að fegra hlut sinn.
Kviðdómendur fundu hann sek-
an um öll ákæruatriðin, en ekki
hafði þótt hægt að benda á nokkrar
mildandi aöstæður. Dómari dæmdi
hann síðan til tvöfaldrar ævilangar
fangelsisvistar og skyldi síðari vist-
in hefjast þá er hinni fyrri lyki.