Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Side 7
LAIJGARDAGCR 6. .JÚLÍ ;i?9L l x>v Fréttir Lyflafyrirtæki bjóða læknum til útlanda: Lyfjafyrirtækin bjóða læknum alls konar risnu segir Pétur Pétursson sem samdi drög að leiðbeiningum um samskipti lækna og lyQafyrirtækja „Það er alls konar risna i gangi sem læknum er boðin af lyfiafyrirtækjum en hvort hún er óeðlileg er smekks- atriði. Það er veriö að gauka ýmsu að mönnum. Ég veit ekki nákvæm- lega um einhver dæmi en allavega hef ég ekki þegið þau boð sem ég hef fengið. Ég hef oft fengið ágæt boð sem ekki þjóna neinum námstilgangi, til dæmis utanferðir að skoða einhverj- ar verksmiðjur. En ég held að þetta hafl sáralítil áhrif. Yfirleitt er þessi upplýsingastarfsemi sett fram af að- ilum sem kunna ekki mjög mikiö fyrir sér, hvorki í læknisfræði né lyfjafræði," segir Pétur Pétursson læknir en hann sat í nefnd á vegum Læknafélags íslands sem samdi drög að leiðbeiningum um samskipti lækna og lyfjafyrirtækja. Einar Magnússon, deildarstjóri lyíjamáladeildar heilbrigðisráðu- neytisins, hefur sagt að vegna nýju lyíjareglugerðarinnar verði læknar að fara að hugsa sig um þegar þeir vísa á lyf og geti ekki vísað sjálfkrafa „á dýra lyfið frá fyrirtækinu sem bauð þeim á ráðstefnu í fyrra.“ Pétur skrifaði fyrir nokkrum árum grein í Fréttabréf lækna þar sem hann gagn- rýnir boð lyfjafyrirtækja: „Eru fræðsluþing lyíjafyrirtækja hinir ágætustu mamífagnaðir þar sem glaðbeittir farandsalar ausa af nægtarbrunni lyfjafræðiþekkingar sinnar en þingheimur nýtur síðan hins höfðinglegasta viðurgjörnings í mat og drykk og er síðan leystur út með gjöfum." Pétur segir að vissulega yrði að kynna ný lyf fyrir læknum því án þess næðu þau engri sölu. „Þess vegna er ýmsum aðferðum beitt. En það sem Einar segir er náttúrlega ekkimjögígrundað." -ns Kostnaður vegna magasárslyfja er 200-300 milljónum króna meiri hér á landi en annars staðar á Norðurlöndum. Einnig taka íslendingar inn mun meira af slíkum lyfjum en frændurnir. Mikil neysla magasárslyfja á íslandi: Sex sinnum meira en Finnar íslendingar taka inn um sex sinn- um meira af magasárslyfjum en Finnar og langmest allra Norður- landaþjóðanna. Kostnaður sá sem heilbrigöisytirvöld greiða vegna þessara lytja er 200-300 milljón krón- um meiri en annarra Norðurlanda- þjóða enda er þessi lyfjaflokkur kostnaðarlega stærsti flokkurinn á íslandi. Kostnaðurinn er reiknaður út sem dagskammtar á 1000 íbúa og í ljós kemur að á meðan íslendingar fá um 20 dagskammta fá Finnar aðeins um 3. Sighvatur Björgvinsson heilbrigð- isráðherra segir að ein af ástæöum þessa sé sú að íslendingar taki inn meira af dýrari lyfjum en aðrar Norðurlandaþjóðir. Fljótari að ná sér skemmtun „Þaö er engin ein einhlít skýring á því heldur eru þær margar. Ein skýr- ingin er það sölukerfi sem við höfum komiö okkur upp, kannski vegna þess að umboðsmennirnir eru dug- legri að auglýsa þessi lyf til lækn- anna. En það eru líka dæmi þess að menn noti þessi dýru magasárslyf, sem ríkið borgar að langmestum hluta, til þess að vera fljótari að ná sér eftir að hafa skemmt sér reglu- lega eftirminnilega. Þeir biðja því um lyf sem gera það að verkum að menn eru fljótari að ná sér og komast til vinnu en ella. Og þetta kemur fram í fleiri lyíjum, til dæmis sýklalyfj- um,“ segir Sighvatur. Ekki hefur verið gerð nein rann- sókn á hvort íslendingar þjáist al- mennt af magasári og þurfi þess vegna svona mikið af magasárslyfj- um eða hvort ástæða þessa mikla kostnaðar sé vegna notkunar dýrra lyfla. Það ætti hins vegar að koma í ljós eftir reglugerðarbreytinguna. Sumir læknar telja að vegna hennar muni innlagnir á sjúkrahús aukast til muna þar sem magasárssjúkling- ar hafl ekki lengur efni á að kaupa magasárslyf. Ódýru lyfin duga yfirleitt Sverrir Bergmann, varaformaður Læknafélags Islands, segir að inn- lögnum og aðgerðum vegna maga- sára hafi fækkað mjög frá því lyf við þeim komu á markaðinn. „En það eru til lyf við magasári sem eru tiltölulega ódýr og duga í flestum tilfellum. Þess vegna tel ég að inn- lögnum þurfi ekki að fjölga mjög. Síðan er nokkuð stór hópur sem er slæmur af magasári og þarf lyf sem eru dýr og notkun þeirra kemur í veg fyrir aðgerðir. En það er alveg slá- andi hvað lyf við magasári og maga- bólgum hafa breytt miklu varðandi innlagnir og aðgerðir. Ég held að menn verði að vera tilbúnir að veita undanþágur í þessu sambandi," segir Sverrir. -ns Vísa læknar á lyf frá fyrirtækjum sem bjóða þeim til útlanda? Þetta er alveg út í bláinn og fáránlegt - segir Sverrir Bergmann, varaformaður Læknafélags Islands „Þetta er alveg út í bláinn og alveg fáránlegt. Það er óskaplega barnalegt að láta svona út úr sér og þetta er alveg alrangt. Að segja að læknar séu að skrifa upp á lyf til að borga fyrir einhveija ferð út í lönd er mjög alvar- leg ásökun. Ég held að ég kjósi að afgreiða þetta sem vanhugsað og svo- lítinn barnaskap sem maður verður að fyrirgefa," segir Sverrir Berg- mann, varaformaður Læknafélags íslands, um ummæli Einars Magnús- sonar, deildarstjóra lyíjamáladeildar heilbrigðisráðuneytisins. Einar sagði að læknar gætu ekki lengur ávísað á lyf frá fyrirtækjum sem heföu boðið þeim til útlanda vegna breyttrar lyfjareglugerðar. „En það er alltaf nokkuð um það að lyfjafyrirtæki séu með kynningar og ráðstefnur hér heima. Ég veit ekki hversu algengt er að þau bjóði lækn- um til útlanda," segir Sverrir. Sverrir segir að þegar læknum sé boðið á slíkar ráðstefnur sé það þeg- ar verið sé að fjalla um einhverja sérstaka sjúkdóma og nýja meðferð við þeim. Þá þurfi lyfjafyrirtækin að koma sínu að. „Við teljum nauðsynlegt að það séu talsverð samskipti milli lækna og lyíjaframleiðenda, meðal annars vegna þess að lyfjafyrirtækin eru rík og þau geta hjálpað til með fram- kvæmd raunhæfra rannsókna á ýmsu. Og þá meina ég ekki bara hvað lyf geri í vissum tilvikum heldur margvíslegar grunnrannsóknir á sjúkdómum. Slík starfsemi er oft mjög kostnaðarsöm og erfitt fyrir okkur að standa undir henni. Þess vegna er eðlilegt að ákveðin sam- vinna sé milli þessara aðila. En þessi samvinna hefur aldrei boðiö upp á þá hluti sem þessi ágæti maður er að segja,“ segir Sverrir. -ns LÆKKAÐ VERÐ GARÐSHORN íí við Fossvogskirkjugarð - sími 40500 Úll blómabúnt á aðeins kr. 490 50% afsláttur af garðkönnum 50% afsláttur af flestum plastpotta- hlifum og hvitum plastpottum 50% afsláttur af ýmsum keramik- pottahlífum Opið 10-19 mánud- laugard. *jl)|p4; 13-19 pL sunnudaga ÍL 30% afsláttur af flestum garðyrkju- áhöldum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.