Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Síða 9
LAUGARDAGUR 6. JÚLl 1991.
9
Macaulay Culkin:
Bamastjama á toppnum
„Ég er að hugsa um að verða leik-
ari þegar ég verð stór. Kannski fæ
ég hlutverk í einhverjum táninga-
myndum. En ég vil alls ekki hlut-
verk þar sem ég þarf að kyssa stelp-
ur. Oj barasta."
Þannig farast þekktustu barna-
stjörnu nútímans orð um feril sinn
sem leikari. Hér er auðvitað átt við
Macauley Culkin sem lék aðalhlut-
verkið í Home Alone, eða Aleinn
heima, sem sló eftirminnilega í
gegn fyrr á þessu ári. Myndin fékk
meiri aðsókn en nokkur aðstand-
enda hennar þorði að vona og ógn-
ar nú veldi E.T. sem mest sótta
mynd allra tíma.
Aleinn heima
Eins og búast má við er framhald
þessarar vinsælu myndar þegar í
undirbúningi og mun heita Home
Alone Again, eða Aftur aleinn
heima. Fyrri myndin fjallaði um
stóra fjölskyldu sem ákveður að
fara í ferðalag til Parísar með allan
barnaskarann. Af einskærri
óheppni mistelur móðirin höfuðin
á leið á flugvöllinn og þegar fjöl-
skyldan lendir hinum megin Atl-
antshafsins uppgötvast að einn
pottormurinn hefur orðið eftir
heima. Myndin lýsir síðan á gam-
ansaman hátt baráttu stráksa við
innbrotsþjófa og annað illþýði.
Skemmtileg blanda af ævintýra- og
gamanmynd sem fann greiðan að-
gang að hjörtum mannanna hvar-
vetna þar sem hún hefur verið
sýnd.
Enginn viðvaningur
En hver er þessi pottormur sem
fór svona á kostum í aðalhlutverk-
inu? Jú, hann heitir Macauley
Culkin og er langt í frá neinn við-
vaningur á þessu sviði þó hann sé
aðeins tíu ára gamall. Hann lék í
fyrsta sinn á sviði þegar hann var
aðeins fjögurra ára og sitt fyrsta
hlutverk í kvikmynd fékk hann sex
ára í myndinni Rocket Gibraltar
og lék þar á móti Burt Lancaster.
Auk þess að leika í kvikmyndum
hefur hann sungið, leikið og dansað
á sviði bæði í söngleikjum og bal-
lettsýningum. Fyrsta kvikmynda-
hlutverk hans sem vakti verulega
athygli var í kvikmyndinni Uncle
Buck sem naut talsverðra vin-
sælda.
Leikstjórinn John Hughes, sem
kom Mac á framfæri, segir að hann
sé indæll piltur sem láti framann
Stórstirnið smávaxna með foreldr-
um sinum.
ekki stíga sér til höfuðs.
„Það versta sem hent getur
krakka á þessum aldri í þessum
bransa er þegar þeir byija að reyna
að leika. Mac reynir það ekki, hann
er bara hann sjálfur og enginn ann-
ar.“
Öskraði
fyrir framan spegil
„Ég gat svo sem ekki sótt.í mína
persónulegu reynslu af því að vera
skilinn eftir,“ segir Mac sjálfur um
hlutverk sitt í umræddri kvik-
mynd. „Einu skiptin sem ég hef
verið einn heima er á meðan
mamma skreppur út í búð. Ég æfði
mig í aö öskra og svoleiðis fyrir
framan spegil og það var ekkert
mál.“
Nokkrir gagnrýnendur hafa
agnúast út í kvikmyndina Aleinn
heima vegna þess ofbeldis sem þar
er beitt í ýmsum myndum. Hvað
finnst Mac um það?
„Það fór ekkert í taugarnar á
mér. Þetta var fyrst og fremst grín
allt saman. Ég var aldrei taugaó-
styrkur nema kannski svolítið
fyrst. En svo komst ég upp á lag
með þetta. Þarna er einn hljóðnemi
og myndavélar og þú þarft að leika
fyrir þær. Þetta er frekar einfalt
mál,“ segir hann og ypptir öxlum.
Caulkin er sonur Christophers
og Patriciu Culkin. Faðir hans er
þekktur sviðsleikari í New York og
tveir bræður Macs, Shane og Ki-
ernan, hafa talsvert fengist við að
leika og fjöldi leikara er i.nnan fjöi-
skyldunnar.
„Þetta var ekki þannig að við réð-
um umboðsmann fyrir þau við fæð-
ingu,“ segir Christopher Caulkin.
„Það hefur ekkert þeirra lært að
leika, þetta er fyrst og fremst frí-
stundagaman sem hefur farið svo-
lítiö úr böndunum."
Sá tíu ára er nú þegar orðinn rík-
asti meðhmur fjölskyldunnar og
fyrirsjánalegt að enn renni nokkr-
ar milljónir dollara í vasa hans fyr-
Macauley Culkin, 10 ára gamall milljónamæringur og barnastjarna.
ir frekari kvikmyndaleik. sem ég lýk einhverju 'verki þá fæ staklega spáð í framtíðina. Kannski
„Mamma sér um fjármálin," seg- ég smáupphæð svo ég get keypt fæ ég hlutverk í Die Hard III þegar
ir sá stutti. „Hún er að safna fyrir mér kartöfluflögur, smákökur og ég verð stór. Það væri frábært."
skólagöngu minni en í hvert skipti farið í tölvuspil. Ég hef ekkert sér-
HÚSGÖGN SENMNGAR
NÝTT!
Húsgögn úr EIK:
Bókaskápar, hljómtækjaskáp-
ar, kommóður, veggsams^æð-
ur og margt fleira
mánudaga- ______________________________
'kMwa" Húsgagnaverslun
Sunnudaga 13-19 Sem kemur á 6wart
GARÐSHORN «
við Fossvogskirkjugarð
- símar 16541 og 40500