Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1991. 11 Sviðsljós mENSK TÓNLIST Nú er komin út hljómplata með þessum gömlu góðu íslensku lögum sem lifað hafa með þjóðinni í gegnum tíðina. Gunnar Þórðarsson sá um að endurútsetja þessi frábæru lög sem þú hefur lengi beðið eftir að eignast. Flytjendur eru ekki af verri endanum og má þar nefna Savanna tríóið, Björgvin Halldórsson, Sigríði Beinteinsdottur og fleiri. Islandslög er hress og skemmtileg plata á íslensku tónlistarsumri. iwmtu/j Dottir Diönu Ross: Langar að erfa útlit móðurinnar Tracee Ross, nítján ára gömul, dóttir söngkonunnar frægu Díönu Ross, hefur mestan hug á að gerast fyrir- sæta. Hún fékk fyrir stuttu að kynn- ast starfmu með móður sinni. Reynd- ar hafa þær mæögur tvívegis setið fyrir. Tracee segist hafa orðið orð- laus þegar hún skoðaði myndirnar af þeim. Þær voru fremur sem systur en mæðgur. „Ég trúði ekki mínum eigin augum þegar ég sá myndirn- ar,“ segir hún. „Mamma er 46 ára en Tracee Ross, dóttir Díönu Ross, óskar sér helst aö verða fyrirsæta þegar hún hefur lokið háskólanámi. Hún telur að litarháttur hennar geti komið í veg fyrir frama á þvi sviði. lítur ekki út fyrir að vera eldri en ég. Samt er hún fimm barna móðir. Ég vona svo sannarlega að ég hafi erft þetta hvað sem það er sem gerir hana svona unglega." Tracee er næstelst barna Díönu. Elsta systir hennar, Rhonda, er tví- tug og er við nám í sama háskóla og Tracee, þriðja systirin er 15 ára og býr heima ásamt tveimur bræðrum sínum sem eru 3ja og 2ja ára gamlir. Tracee hefur áhuga á að verða eft- irsótt fyrirsæta en gerir sér grein fyrir að hægara er um að tala en í að komast. Þar fyrir utan verður hún fyrst að klára námið. „Maður verður að hafa mjög sérstakt útlit ef maður á að ná vinsældum sem svört fyrir- sæta,“ segir hún, „Ég hef reyndar aldrei litið á mig sem svarta og ekki mikið hugsað út í það. Faðir minn er hvítur svo ég er alveg eins hvít og svört. Hins vegar eru aðrir sem setja á mig stimpú vegna litarháttar- ins. Þaö skal þó ekki verða til að draumar mínir rætist ekki. Ég vinn bara að því harðara en annars hefði verið," segir hún ennfremur. Díana Ross ólst sjálf upp í fátækt, rétt utan við Dietrot í Bandaríkjun- um. Fjölskylda hennar lifði á styrkj- um frá félagsmálakerfinu. Böm Dí- önu hafa aldrei kynst öðru en lúxus- lífi og gengið í fína einkaskóla. „Ég þarf ekki að leita að neinni fyrirmynd. Ég hef mömmu. Hún er jákvæð fyrirmynd allra kvenna. Henni hefur vegnað sérstaklega vel í starfi sínu og hlotið miklar vinsæld- ir. Þar fyrir utan á hún fimm börn. Margar konur telja að ekki sé hægt að eiga börn og ná frama í starfi. Hún hefur afsannað þaö. Dætur Díönu Ross eru allar fæddar í Beverly Hills. Þar bjuggu þær ti) Diana Ross giftist Arne árið 1986. Þau höfðu aðeins þekkst i fimm mán- uði. Þau áttu þrjú börn hvort en siðan hafa bæst við tvö. ársins 1978 en þá skildu Díana og eiginmaður hennar. Hún flutti þá með dæturnar til New York. „Ég á mjög góðar æskuminningar," segir Tracee. „Heimiiið var mjög venjuiegt enda var móðir mín ekki fyrir veislur né mikið félagslíf. Húsgögn voru praktísk og þægileg og því heimilis- legt í kringum okkur. Og mamma hefur alltaf verið bara mamma.“ Fyrir fimm árum fór Díana Ross með dætur sínar þrjár í frí til Ba- hamaeyja. Þær voru óheppnar með veður og leiddist frékar en hitt. Ferðamenn voru fáir en þeirra á meðal norskur fjallaprílari og börn hans þrjú. Þessar tvær fjölskyldur kynntust og ákváðu að borða saman einn daginn. Díana og sá norski, Arne að nafni, giftu sig fimm mánuð- um síðar. Fjölskyldan er stór þegar hún kemur saman því auk þeirra sex barna sem hittust á Bahama þá hafa tvö börn bæst við síðan. Og allt í einu fæddist bam. „Þetta kom okkur öllum á óvart. Það var ekki hægt að sjá að hún væri með stærri maga en gengur og gerist," er haft eftir bandarísk- um sjúkrabílstjóra sem varð þeirr- ar reynslu aðnjótandi að taka á móti barni sem enginn vissi að væri á leiðinni. Móðirin, Carrie Matheson, 23ja ára, segist ekki hafa haft hugmynd um að hún væri barnshafandi enda hafði hún haft blæðingar alla með- gönguna. „Þessi meðganga var í engu lík því þegar ég gekk með fyrra barn mitt,“ segir hún en þá þyngdist Carrie um mörg kfló. Carrie vaknaði einn morguninn með hræðilega verki. Hún gat sig ekki hreyft fyrir verkjum svo hún hringdi í neyðarlínuna, 911. Sjúkraliöinn sem kom á staðinn fann að magi hennar var mjög harður og spurði hvort hún væri ófrísk en Carrie sagði svo ekki vera. Hún var aöeins rétt komin inn í sjúkrabílinn þegar hún fann eitt- hvað renna niður fætur sína og nokkrum sekúndum seinna var lít- ii stúlka komin í heiminn. Carrie var flutt á sjúkrahús þar sem fylgst var með þeim mæðgunum. Þeim heflsaðist vel og komu sannarlega pabbanum á óvart en þau hjóna- komin áttu son áður. Stoltir foreldrar, Carrie og Peter, meó óvæntan glaðning, dótturina Kat- herine, en moðirin hafði ekki hugmynd um að hún væri barnshafandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.