Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Page 14
14
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1991.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (91 )27022 - FAX: (91)27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1100 kr.
Verð í lausasölu virka daga 105 kr. - Helgarblað 130 kr.
Stjórnlítil hlutafélög
Tillögur brezks verðbréfafyrirtækis um bættan hluta-
hármarkað á íslandi eru góðra gjalda verðar. Þær ná
þó einungis yfir hluta vandamálsins, það er að segja
opin fyrirtæki, sem eru nálægt því að vera skráð á
hlutafjármarkaði. Slík fyrirtæki eru fá hér á landi.
Auðvitað er brýnt, að kaup og sala hlutafjár fari hér
á landi fram með svipuðum hætti og tíðkazt hefurí lönd-
um með þróaðan hlutabréfamarkað. Um leið megum
við ekki gleyma, að mestur hluti íslenzkrar atvinnu-
starfsemi fer fram í meira eða minna lokuðum félögum.
Starfshættir slíkra félaga eru alvarlegra vandamál
heldur en starfshættir opnu félaganna. Við verðum
nærri daglega vör við afleiðingar þess í stjarnfræðileg-
um gjaldþrotum, sem sagt er frá í fréttum. Umfang gjald-
þrotanna er ótrúlega mikið í samanburði við veltuna.
Svo virðist sem bókhald íslenzkra fyrirtækja sé ekki
í þeim skorðum, að stjórnendur þeirra og lánardrottnar
geti gert sér grein fyrir stöðunni. Ennfremur virðast
endurskoðendur fyrirtækjanna ekki hafa neina umtals-
verða sýn yfir þessa stöðu eða þróun hennar.
Sumir endurskoðendur haga sér sem þjónar fram-
kvæmdastjóra eða stjórnarformanna fyrirtækjanna, er
þeir vinna fyrir. Dæmi eru um, að þeir neiti stjórnar-
mönnum um aðgang að upplýsingum úr bókhaldi, svo
að ekki sé minnst á réttleysi almennra hluthafa:
Ein afleiðing þessa er, að bankar og sjóðir geta ekki
treyst upplýsingum endurskoðenda og verða að leggja
út í dýrar athuganir á stöðunni. Þá tekur við næsta
vandamál, sem felst í afskiptum stjórnmálamanna af
bönkum og sjóðum, sem yfirleitt eru ríkisstofnanir.
Þegar fagmenn lögðu árið 1988 fram skýrslu um, að
enginn grundvöllur væri fyrir öllu því fiskeldi, sem var
í undirbúningi, og að sumar greinar hennar væru alger-
lega vonlausar, ákváðu stjórnarmenn og forstjórar
Framkvæmdasjóðs að stinga skýrslunni undir stól.
Þannig var framleitt sjö eðá átta milljarða fjárhags-
tjón í fiskeldi án þess að montkarlar í stjórn og fram-
kvæmdastjórn Framkvæmdasjóðs hafi verið látnir sæta
nokkurri ábyrgð fyrir að halda áfram að lána og fyrir
að halda um leið leyndri skýrslu um stöðu mála.
í alvöruþjóðfélagi alvörufyrirtækja eiga aðvörunar-
bjöllur að hringja fyrr og hærra en nú tíðkast. Skarpari
venjur þurfa að vera um bókhald. Og endurskoðendur
þurfa að setja sér strangar siðareglur, því að öðrum
kosti má alveg eins sleppa þeim úr eftirlitskeðjunni.
Ekki er hægt að hindra, að fyrirtæki verði gjald-
þrota. Hins vegar er unnt að koma í veg fyrir, að gjald-
þrot verði eins stjarnfræðileg og þau hafa orðið að und-
anfórnu. Til þess þarf að kanna ferhð, sem leiðir til
slíkra gjaldþrota, svo sem hjá'Alafossi og í fiskirækt.
Slík athugun mun vafalítið leiða í ljós, að gera þurfi
endurskoðendur sjálfstæðari og ábyrgari; að gera þurfi
stjórnarmenn og framkvæmdastjórnarmenn lánastofn-
ana sjálfstæðari og ábyrgari, og að leggja beri niður rík-
isábyrgðir og önnur póhtísk afskipti af atvinnurekstri.
Bókhaldarar og endurskoðendur eru nú í vasa for-
sljóra og lánastofnanir eru í vasa stjórnmálamanna. í
öllum þessum vítahring virðist helzt hald í fagmönnum
lánastofnana, ef skýrslum þeirra er þá ekki stungið
undir stól, svo sem sýnir dæmi Framkvæmdasjóðs.
Gaman væri að hafa hér fínan hlutabréfamarkað. En
vandamál íslenzkra hlutafélaga eru mun stórkarlalegri
og frumstæðari en fram kemur í ensku tihögunum.
Jónas Kristjánsson
Hugsa sig um
ábarmi
hengiflugs
Vígaferli liggja niöri í Júgóslavíu
þegar þetta er ritaö en viösjár eru
enn með mönnum. Slóvenar hafa
leyst sveitir sambandshersins úr
umsátum og hleypt þeim aftur til
búöa sinna. í staðinn hefur yflr-
stjóm sambandshersins látið þrjár
öflugar herfylkingar á leið til Sló-
veníu nema staðar, í bili að
minnsta kosti.
Samtök Evrópuríkja, bæði Evr-
ópubandalagið og Ráðstefnan um
öryggi og samvinnu í Evrópu, sitja
jafnframt á fundum eða eru að efna
til funda til að stuðla að friðsam-
legri lausn á viðsjánum sem fylgdu
sjálfstæðisyfirlýsingum Króatíu og
Slóveníu. RÖSE býðst til að senda
eftirlitsmenn á vettvang til að
treysta ríkjandi vopnahié og verð-
ur fróðlegt að sjá hvernig fmm-
raun ungrar fjölþjóðastofnunar við
að ráða fram úr hættuástandi á
umbrotatímum í Austur-Evrópu
reiðir af.
Mestu veldur þó um lognið sem
ríkir í svipinn, að allir aðilar sáu
ástæðu til að meta stöðuna á ný
áður en frekar væri að gert. Um
miðja vikuna römbuðu þjóðir
Júgóslavíu á barmi borgarastyrj-
aldar. Herstjórnin í Belgrad var
farin að taka eigin ákvarðanir án
þess að sinna fyrirmælum stjórnar
sambandsríkisins.
Sambandsherinn skipa um
180.000 manns og talið er að nú
hafi varaliðsmenn í Serbíu verið
kallaðir til vopna. Um 70 af hundr-
aði liðsforingja eru Serbar en
óbreyttir liðsmenn skiptast hlut-
fallslega eftir þjóðernum sem
byggja sex sambandslýðveldi og tvö
sjálfstjórnarsvæði þar sem finna
má 24 þjóðir og þjóðabrot alls ef
grannt er talið.
Lögum samkvæmt er sambands-
herinn undir stjóm forsætisráðs
fulltrúa allra aðila að ríkjasam-
bandinu en frá því um miðjan maí
hefur forsætisráðið verið forseta-
laust. Að réttu lagi átti þá að taka
við Króatinn Stipe Mesic, sam-
kvæmt reglu um að forsætið færist
reglulega milli fulltrúa lýðveld-
anna. Leiðtogi Serbíu, harðlínu-
kommúnistinn Slobodan Mil-
osevic, hefur með valdbeitingu
bælt undir sig stjórnir sjálfsstjórn-
arsvæðanna Kosovo og Vojvodinu.
Hann réð því þrem atkvæðum í
forsætisráðinu og notaði þá að-
stöðu til að hindra að Mesic næði
kjöri.
Eitt af því sem Ante Markovic,
forsætisráðherra sambandsstjóm-
arinnar, kom til leiðar við setningu
fyrsta vopnahlésins um fyrri helgi,
var aö Serbíustjórn sætti sig við
kjör Mesics. En þá var skaðinn
skeður. Herforingjar með svipuö
Stór-Serbíusjónarmið og Milosevic
þóttust undir engan gefnir og
Bjagoje Adzic herráðsforseti boð-
aði allsherjarárás á Slóvena.
Herstjórnin hafði þá átyllu til
óyndisúrræða að yflrstjórn land-
vamarliðs Slóveníu hefði ekki
Erlend tídindi
Magnús Torfi Ólafsson
staðið við þann hluta vopnahlés-
skilmála frá fyrri helgi sem her-
stjórnin lagði mest upp úr. Skrið-
dreka- og brynvagnssveitir sam-
bandshersins í umsátum Slóvena
fengu ekki að hverfa aftur til búða
sinna nema gegn því að yfirgefa
vopn sín. Sátu þær því áfram í
herkví, vistalausar með fallna
menn og særða.
Þetta mál leystist við annað
vopnahléssamkomulagið, sem full-
trúar Slóvena og herstjórnar sam-
bandshersins gengu frá milliliða-
laust. Enn kvartar þó herstjórnin
yfir að herbúðir sinna manna í Sló-
veníu fái ekki rafmagn og vatn sem
af þeim var tekið um leið og her-
sveitum var beitt.
Talið er að sambandsherstjórnin
hafi sent út af örkinni 2000 af20.000
manna setuliði í Slóveníu með
skipun um að taka á sitt vald landa-
mærastöðvar, sem settar höíðu
verið undir merki sjálfstæðrar Sló-
veníu, og gera þær júgóslavneskar
á ný. Lagt var til atlögu á skrið-
drekum og brynvögnum eingöngu,
án liðveislu fótgönguliðs.
Þessar sveitir reyndust brátt auö-
veldar viðfangs fyrir slóvenska
landvarnarliðið. Það er svo öflugt
sem raun ber vitni, vegna þess aö
í raðir þess hefur skipað sér þorri
heimavarnaliðs lýðveldisins.
Vegna reynslunnar í heimsstyrj-
öldinni síðari hafa landvarnir
Júgóslavíu verið skipulagðar í
tveim þrepum, allt frá tví Tító ótt-
aðist innrás að undirlagi Stalíns.
Samhliða sambandshernum, sem
er þjálfaður og búinn til hefðbund-
ins hernaðar, er í hverju lýðveldi
heimavarnalið, sem er æft og búið
til að halda uppi skæruhernaði að
baki víglínu óvinahers. Heima-
varnaliöið er búið þungum vél-
byssum, sprengjuvörpum, skrið-
drekavarnabyssum og loftvarna-
flaugum, sem skotið er frá öxl. Tal-
ið er að 40.000 manns skipi heima-
varnalið Slóveníu og Króatíu
hvorrar um sig, og það hefur að-
gang að ríkulegum vopnabúrum,
sem- endast eiga til langvarandi
skæruhernaðar.
Stjórn sambandshersins kom því
á óvart, hve skjótt Slóvenar gerðu
úthlaupssveitir hennar óvirkar.
Sömuleiðis sýndi sig að óbreyttir
hermenn af öðru þjóðerni en serb-
nesku hlupust margir undan
merkjum við fyrsta tækifæri. Þessi
hernaðarlegu atriði löttu því her-
stjómina í Belgrad að fylgja eftir
stóru orðunum, auk þess sem hún
getur ekki verið ónæm fyrir pólit-
ískum þrýstingi, bæði frá löglegum
stjórnvöldum sambands lýðveldis-
ins og erlendis frá.
Helst er svo að sjá aö heraflinn
sem sendur var frá Belgrad norð-
vestur á bóginn hafi verið látinn
nema staöar að mestu leyti þar sem
saman koma Serbía, Króatía og
Bosnía-Herzeovina. Þar búa um
tvær milljónir Serba utan landa-
mæra Serbíu, 600.000 í Króatíu og
1,3 milljónir í Bosníu. Slobodan
Milosevic hefur ekki farið leynt
með að hann hyggst innlima þessi
hérað í Stór-Serbíu, fái hann ekki
ráðið mestu i miðstýrðri Júgóslav-
íu. Serbarnir í yfirherstjórninni
virðast vera að hertaka þau undir
yfirskini herferðar gegn Slóvenum.
Stjórn Króatíu hefur haft hægt
um sig undanfarna viku, svo Sló-
venum finnst nóg um. En Slóveníu
byggja nær einvörðungu Slóvenar,
af 4,5 milljónum íbúa Króatíu eru
600.000 Serbar. Þeir brugðust
ókvæöa við sjálfstæðishreyfingu
Króata og hafa lýst yfir Serbneska
sjálfstjórnarsvæðinu Krajina á
belti meðfram landamærunum að
Serbíu. Þar hafa á undanfórnum
misserum fallið jafnmargir í þjóð-
ernavígum og féllu í viku bardög-
um í Slóveníu, hátt á fimmta tug
manna.
Suðurslavneskar þjóðir hafa um
aldir þótt herskáar með afbrigðum,
og milli þeirra, einkum Serba og
Króata, ríkir erfðaíjandskapur.
Takist þrátt fyrir þetta að halda
deilum þeirra og árekstrum í skefj-
um meðan sambúð þjóða Júgóslav-
íu leitar nýs jafnvægis, er þaö vott-
ur um að breytt viðhorf í Evrópu
nái líka til Balkanskaga.
4/7 1991
Magnús T. Ólafsson
Skriðdrekar sambandshers Júgóslavíu snúa aftur til herbúða, kenndra viö Tító marskálk, lausir úr herkvi
Slóvena. Simamynd Reuter