Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1991. Veiðivon Veiðimenn léttir þrátt fyrir dræma veiði: Veiðileyfið hafði hækkað - það dró fyrir sól Lax hefur komið á land i Austurá og veiðimaður reynir að fá fleiri til að taka agnið. DV-mynd G.Bender Þrátt fyrir að laxveiðin sé alls ekki góð alls staðar taka flestir veiðimenn þessu með jafnargeði. Einn veiðimaðurinn tók sé far með Akraborginni fyrir fáum dögum og lá leið hans í Laxá í Dölum. Þar hafði veiðin ekki verið góö og reyndar mjög slöpp. Annar veiðimaður, sem ekki var á leið í Laxá í Dölum heldur allt annað, gaf sig á tal við Dalaveiði- manninn. Fóru þeir að ræða um veiði á öðrum stöðum en í Dölunum og vildi Dalaveiðimaðurinn ólmur selja veiðileyfið sitt. Hinn sýndi áhuga og ræddu þeir um stund um verðið á veiðileyfinu. Var verðið alls ekki hátt en allt í einu stendur Dalaveiði- maðurinn upp og gengur út á þilfar á Akraborginni. Þar gáir hann til veðurs og gengur síðan íbygginn inn aftur. „Nei, þetta gengur bara alls ekki með verðið,“ segir hann og bætir við: „Það hefur dregið fyrir sólina og það breytir öllu með verðið á veiðileyf- inu.“ Það varð ekkert úr sölu á veiðileyf- inu í Laxá í Dölum. -G.Bender Fiskurinn tók upp við bakkann „Ég var búinn að kasta spúninum „Fiskurinn tók nokkrar rokur og einu sinni út í lónið og í næsta kasti var svo búinn, þetta var eins og hálfs tók bleikjan upp við bakkann," sagði punds bleikja. Það er gaman að Sigurður Rögnvaldsson við lónið í veiða,“ sagði veiðimaðurinn ungi og Staðarhólsá og Hvolsá í Dölum en hélt áfram að renna fyrir bleikjurn- þar var hann að veiða með pabba ar. Ekki fengust þó fleiri til að taka sínumogafa. agniðhjáhonum. -G.Bender Bræðurnir Gunnar og Magnús Gunnarssynir úr Núpsá í Miðfirði. Sigurður með bleikjuna sina sem tók spúninn hjá honum í lóninu. DV-mynd G.Bender Tíð dauðsföll Skömmu eftír að útvarpið byij- aði með dánar- og jarðarfarartil- kynningar varð gamalli konu að orði: „Það er meira hvað margir deyja eftir að útvarpið kom.“ Raíneikvæöni Á efnafræðiprófi í busabekk i Menntaskóianum á Akureyri voru nemendur beðnir að út- skýra hugtakið, „rafneikvæðni“. Ólesinn nemandi brá fyrir sig smágríni og skrifaði: „Rafneikvæðni er það atferli nefnt sem fólk sýnir þegar það fær sendan rafmagnsreikning- inn.“ Smáfískamir Úr ritgerð 11 ára gamals nem- anda um hafið: „í hafinu umhverfis ísland er aUt fullt af risastórum smáfisk- um.“ Höglin Einhverju sinni gerði Guð- mundur Karl Pétursson, læknir við Ejórðungssjúkrahúsið á Ak- ureyri, að sárum rjúpnaskyttu sem dottið haföi með haglabyssu og fengið öll höglin í sig. Eftir aðgerðina spurði rjúpnaskyttan Guðmund hvort hann hefði náð öllum höglunum úr sér. Þá svar- aði Guömundur Karl: „Ef ég ætti að vera viss um það góði minn yröi ég að skera þig í sneiðar eins og rúllupylsu.“ Engin hjónabönd Kenjóttur karl spuröi eitt sinn kvenprest hvers vegna aldrei heyrðist talað um giftingar í himnaríki: „Ætli séu nokkrir karlmenn þar,“ svaraði prestur að bragði. í bruggið Maöur einn kom eitt sinn í Hag- kaup og bað afgreiðslustúlkuna að láta sig hafa tiu kíló af pressu- geri. „Þaö er ekkert smáræði," stundi afgreiðslustúlkan hlessa. „Veit ég vel,“ svaraði maður- inn, „en ég hef nú hugsað mér að nota það svolítið í bakstur líka.“ Finnur þú firrnn breytingai? 112 Nafn:........ Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í Ijós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1. Fimm Úrvalsbækur að verðmæti kr. 3.743. 2. Fimm Úrvalsbækur aö verðmæti kr. 3.743. Bækurnar sem er í verðlaun heita: Á eheftu stundu, Flugan á veggnum, í helgreipum hat- urs, Lygi þagnarinnar og Leikreglur. Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiöl- un. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 112 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir hundruð- ustu og tíundu getraun reynd- ust vera: 1. Erla Hreiðarsdóttir, Heiðargerði 19, 640 Húsavík. 2. Rósa Eðvaldsdóttir, Blömvangi 11, 220 Hafnarfirði. Vinningarnir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.