Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Side 19
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1991.
19
ÁSKRIFTARSÍMINN
FYRIR LANDSBYGGÐINA:
99*6270
- talandi dæmi um þjónustu
umlíkir
OPIÐ ALLAR
HELGAR í SUMAR
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
Sækjast
sér
stólar, grill, borð, sólskýli
og margt margt fleira.
Vatnsheldir með útöndun
„Ég er í losti. Ég hef raunverulega
séð breska sápuóperu sem er vel
skrifuð, vel leikin og fyndin.“
Þannig farast einum breskum sjón-
varpsgagnrýnanda orð um þátta-
röðina Birds Of Feather eða Sækj-
ast sér um líkir en Sjónvarpið hefur
þegar sýnt tvo þætti af röðinni.
Gagnrýnandinn Jonathan King
kemst að þeirri niðurstöðu að or-
sökin sé sú að gert sé ráð fyrir að
áhorfendur búi yfir að minnsta
kosti lágmarksgreind.
„Þetta virðist reyndar afar ein-
falt. Bara gera eitthvað vel,“ bætir
hann við.
Þáttaröð þessi, sem Sjónvarpið
sýnir nú þriðjudagskvöldum, fjall-
ar um tvær systur sem alast upp
saman við kröpp kjör í fátækra-
hverfum Austur- London. Leiðir
þeirra skiljast og hlutskipti þeirra
í líflnu verður ólíkt. Sharon er
þybbin og óásjáleg og býr í raðhúsi
og er gift lötum leigubílstjóra. Hún
þarf fyrir vikið að velta fyrir sér
hverri krónu. Tracy systir hennar
býr með forríkum eiginmanni sín-
um í glæsilegu einbýlishúsi í út-
hverfi og getur veitt sér flest það
sem hugur hennar girnist. Báðar
verða þær systur fyrir jafnmiklu
áfalli þegar eiginmenn þeirra eru
háðir handteknir sama daginn og
stungið í steininn fyrir bankarán.
Systumar standa á eigin fótum og
verða að spjara sig eins og þær
gerðu í æsku. Það gera þær best
saman og Sharon flytur inn til
Tracy. Þær takast síðan á við lífið
og vandamál þess með sínum hætti.
Pauhne Quirke, sem fer með hlut-
verk Sharon, hóf ung að leika og
varð kynnir í eigin sjónvarpsþætti
þégar hún var 14 ára. Hún starfaði
talsvert í sjónvarpi sem táningur
og hlaut nokkurt lof fyrir en jafn-
framt harða gagnrýni vegna mál-
lýskunnar sem hún talaði þá og
talar enn og er kennd við London.
Eftir að hún komst til vits og ára
hefur hún leikið fjölda hlutverka,
bæði á sviði .og í kvikmyndum,
m.a. í Fílamanninum og emifremur
í ótöldum sjónvarpsþáttum.
Linda Robson, sem leikur Tracey,
hefur að mörgu leyti svipaðan feril
að baki og Pauline enda þekkjast
þær frá fornu fari og voru reyndar
saman í barnaskóla þegar um flmm
ára aldur. Þær urðu perluvinkonur
og hafa síðan starfað og leikið
margt saman.
gönguskór, allur útilegufatnaður,
Það var reyndar samleikur þeirra
sjónvarpsþáttum sem hétu Shine
On Harvey Moon sem leiddi til þess
að ákveðið var að þróa þessa þátta-
röð sérstaklega með þær í huga.
Handritshöfundarnir Laurence
Marks og Maurice Gran féllu fyrir
þeim stallsystrum í Harvey Moon
og eftirleikurinn var auðveldur því
fyrstu þættirnir af Birds Of Feather
nutu strax mikilla vinsælda.
Systurnar, leiknar af Pauline Quirke og Lindu Robson, reyna eftir megni að spjara sig upp á eigin spýtur.
TJALDVAGNAR
og allt í útileguna:
Tjöld, svefnpokar, himnar,