Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Síða 21
J LAUGARDAGUR 6. JÚLI 1991. 21 Hrafn Gunnlaugsson myndar verk forsætisráðherra: Leit stendur yfir að þremur pollum „Það hefur ágætur hópur sótt um og hann er mjög efnilegur. Ég er svona í þann mund að finna réttu leikarana," sagði Hrafn Gunn- laugsson kvikmyndaleikstjóri í samtali við helgarblað DV. Hrafn auglýsti fyrir stuttu eftir sex og sjö ára strákum í nýtt sjónvarpsleikrit sem hann er að hefja tökur á. Leik- ritið er eftir Davíö Oddsson forsæt- isráðherra. „Þessi hlutverk eru strembin. Það verður því mikið á unga menn lagt. Hlutverkin eru stór og þeir þurfa að takast á við erfiðan hlut. Hins vegar hef ég reynslu af að hafa mjög unga leikara í myndum mínum. Gottskálk Dagur Sigurðar- son lék hjá mér í Hrafninn flýgur hlutverk htla stráksins með hníf- ana í lok myndarinnar þegar hann var nýkominn úr sjö ára bekk. Hann lék núna, sjö árum seinna, aðalhlutverkið í Hvíta víkingnum sem er fjögurra þátta sjónvarpsser- ía og stór mynd sem sýnd verður í september," sagði Hrafn'. Hann er nýlega kominn heim eftir að hafa unnið við þá mynd f tvö ár á er- lendri grundu. „Einnig var lítil stúlka, Klara íris Vigfúsdóttir, sex ára, í myndinni í skugga hrafnsins. Ég hef oft haft kornunga leikara en í þessari nýju sjónvarpsmynd eru hlutverkin óvenjustór fyrir börnin," sagði Hrafn ennfremur. Þess má geta að Klara íris lék síðar í sjónvarps- myndinni Steinbarn. Sköpunargáfa og úthald - En hvað þurfa strákamir að hafa - tökur verða á Selfossi í ágúst til að bera? „Það er tvennt sem listamenn þurfa að hafa. Sköpunargáfu og úthald. Venjulega er það úthaldið sem ríður baggamuninn." - Hvernig getur þú séð slíkt fyrir- fram? „Alhr sem sækja um æfa og leika fyrir okkur. Við gerum prufur og þess háttar. Sem leikstjóri æfi ég alltaf mjög mikið með mínum lei- kurum. Ég hef það fyrir reglu hvort sem ég er að vinna með bömum eða fullorðnum. Æfingar eru stöð- ugar eftir að leikarar eru fundnir. Þegar aö töku kemur eru hlutirnir það vel æfðir að aðeins handverkið er eftir og umræðunni nánast lok- ið. Það þýðir ekki að fara í djúpar hugleiðingar eftir að tækin em far- in að mala.“ - Er ekki erfitt að finna þrjá góða leikara á þessum aldri? „Það er alltaf erfitt aö fmna þrjá góða leikara á hvaða aldri sem þeir eru ef maður hefur eitthvað ákveð- ið í huga. Börn eru þannig að ef vel tekst til þá geta þau oft náð meiri einlægni en hæfustu menn geta gert. Þetta er þó alltaf visst happdrætti. Ef maður er með topp- leikara eins og Helga Skúlason þá veit maður að hann gerir hlutinn eins og leikstjórinn óskar. Það get- ur brugðið til beggja vona með börn. Þau geta jafnvel gert betur en maður þorir að vona.“ Viðreisnartímabil Hrafn segist htið hafa verið á landinu undanfarið en hann er nýkominn heim frá París. Starfs- fólk hans hefur verið að vinna í undirbúningsvinnu. „Við höfum Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjórl er ekki óvanur þvi að vinna með börnum og sum þeirra hafa haldið áfram i leiklistinni. Nú leitar hann að þremur litlum strákum í nýja sjónvarpsmynd eftir Davíð Odds- son. verið að reyna að finna þessu verki stað, tíma og rúm. Erfiðleikarnir að búa til árið 1950 er að sá tími er mjög nærri okkur. Það muna allir hvernig hann var. Víkinga- tímabilið er auðveldara vegna þess að enginn man hvernig var á þeim tíma.“ Hrafn segir að leikritið gerist skömmu fyrir síðustu viðreisnar- stjórn. Hann vildi ekki segja um hvað leikritið fjahar. „Eins og allir vita þá var fyrri viðreisn sú ríkis- stjórn sem kippti landinu inn í nútímann." - Er þetta ævisaga Davíðs Odds- sonar? „Þaö er hann sem skrifar leikritið og ég hugsa að hann byggi þetta á einhveijum minningum úr æsku. En þetta er skáldskapur." Hrafn segist ekki vita hvenær sjónvarpsáhorfendur fái að sjá verkið. „Ég kem til með að skila þessu síðari hluta árs og síðan verður ákveðið hvenær leikritið verður sett á dagskrá." - Hvar verður leikritið tekið? „Ef okkur verður jafnvel tekið og mér sýnist á Selfossi þá munum við taka það þar að meira eða minna leyti. Tökur hefjast fyrsta virka dag eftir verslunarmanna- helgi. Við vonumst tíl að vera búin að fmna alla leikara í næstu viku. Tímann verður að nota til æfinga," sagði Hrafn Gunnlaugsson. - En eiga strákar, sem ekki sáu auglýsinguna, kost á prufutöku eða er það orðið of seint? „Það er ahtaf von. Þá geta þeir haft samband við framkvæmda- stjórann, Kristján Þórð Hrafnsson, samkvæmt auglýsingunni." -ELA ÞUNGAFLUTNINGAR DUGGUVOGI 2 S. 814411 RALLY Sunnudag 7. júlí v/Krí su víkur veg Undankeppni kl. 12.30 Úrslitakeppni kl. 14.00 YFIR 50 BÍLAR SKRÁÐIR iALLY VCROSS ;i KLUBBURINN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.