Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Qupperneq 46
58 laugardagur^. jC;lí 1991. Afrnæli Öm Eiðsson Örn Eiðsson ritstjóri, Hörgslundi 8, Garðabæ, verður sextíu og flmm áraámorgun. Starfsferill Örn fæddist á Búðum við Fá- skrúðsfjörð og ólst upp á Fáskrúðs- firöi. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræöaskóla Akureyrar 1944 og verslunarskólaprófi frá VÍ1946. Örn stundaði verslunar- og skrif- stofustörf í Reykjavík 1946-53, hefur verið starfsmaður Tryggingastofn- unnar ríkisins frá 1953, fyrst gjald- keri og síðast deildarstjóri en er nú ritstjóri tímarits Tryggingastofn- unnar ríkisins, Almannatryggingar -Félagsmál. Örn hefur verið íþróttafréttaritari að aukastarfi, bæði hjá sjónvarpi og útvarpi, veriö íþróttaritstjóri Al- þýðublaðsins í áratugi, ritstjóri og útgefandi tímaritsins Allt um íþrótt- ir og ritstjóri íþróttablaðsins. Örn er nú ritstjóri og útgefandi héraðs- fréttablaðsins Garðpóstsins í Garða- bænum. Örn hefur haft ýmis afskipti af stjórnmálum á vegum Alþýðu- flokksins. Hann átti sæti í bæjar- stjórn Garðabæjar eitt kjörtímabil, hefur setið í bæjarráði og nokkrum nefndum. Hann hefur átt sæti í flokksstjórn og gegnt formennsku í ílokksfélaginu í Garðabæ auk þess sem hann hefur setið nokkur flokks- þing Alþýðuflokksins. Örn hefur starfað mikið innan íþróttahreyfingarinnar. Hann sat í stjórn Frjálsíþróttafélags íslands í þrjátíu ár, þar af sextán ár formað- ur, hefur átt sæti í ólympíunefnd íslands á þriðja áratug og lengst af í framkyæmdanefnd, var í mörg ár í stjórn ÍR, í stjórn Fijálsíþróttaráðs Reykjavíkur og í stjórn Samtaka iþróttafréttamanna. Þá hefur hann sótt fjölmörg alþjóðleg þing íþrótta- manna. Loks hefur hann verið far- arstjóri í ótal keppnisferðum er- lendis. Fjölskylda Örn kvæntist4.8.1951 Hallfríði Kr. Freysteinsdóttur, f. 27.2.1928, fulltrúa en hún er dóttir Freysteins Sigurðssonar, iðnverkamanns á Akureyri, og Guðlaugar Pétursdótt- ur húsmóður. Börn Arnar og Hallfríðar eru Eið- ur, f. 16.10.1951, kerfisfræðingurí Hafnarfirði, kvæntur Hafdísi Stef- ánsdóttur og er sonur þeirra Einar Rafn, f. 2.11.1989 en sonur Eiðs frá fyrra hjónabandi er Einar Örn, f. 9.2.1978; Guðbjörg Kristín, f. 29.7. 1958, kennari í Garðabæ. Systkini Arnar: Sveinn Rafn, f. 22.5.1928, forstöðumaður á Egils- stöðum, kvæntur Gyðu Ingólfsdótt- ur og eiga þau sex börn; Ragnhild- ur, f. 15.3.1930, búsett í Reykjavík og á hún tvö börn; Berta, f. 10.9. 1933, bókavöröur í Garðabæ, gift James Arthúr Rail og eiga þau fjög- ur börn; Kristmann, f. 27.5.1936, kennari og þýðandi í Reykjavík, kvæntur Kristínu Þorsteinsdóttur og eiga þau fjögur börn; Bolli, f. 4.5. 1943, kennari í Svíþjóð, kvæntur Klöru Sigvaldadóttur og eiga þau sex börn; Albert, f. 9.3.1945, póst- maður í Reykjavík. Foreldrar Arnar voru Eiður Al- bertsson, f. 19.10.1890, d. 1972, odd- viti og skólastjóri á Búðum á Fá- skrúðsfirði, og Guðríður Sveins- dóttir, f. 17.5.1906, d. 1986, húsmóðir. Ætt Eiður var sonur Alberts, b. og skipstjóra í Garði í Fnjóskadal, Finnbogasonar, b. í Presthvammi, Finnbogasonar. Móðir Eiðs var Ragnhildur Jónsdóttir, b. í Hvammi í Þistilfirði, Bjarnasonar. Örn Eiósson. Guðríður var dóttir Sveins, hrepp- stjóra á Búðum, Benediktssonar, b. í Hamarsseli, Benediktssonar, pósts Björnssonar. Móðir Sveins hrepp- stjóra var Ragnheiöur Jónsdóttir. Móðir Guðríðar var Kristborg Brynjólfsdóttir, frá Hvalnesi í Stöðvarfiröi, Jónssonar. Móðir Kristborgar var Guðlaug Jónsdóttir, b. í Gautavík og í Núpshjáleigu, Jónssonar „matrós" b. í Gautavík, Jónssonar. Móðir Guðlaugar var Þórdís Einarsdóttir. 2». Yalgeir Matthías Pálsson Valgeir Matthías Pálsson, fyrrv. húsvörður Austurbæjarskólans í Reykjavík, nú til heimilis að Brekkubyggð 7, Blönduósi, er átt- ræður í dag. Starfsferill Valgeir fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Eftir barna- og unglinga- skólanám var hann í Reykholti í Borgarfirði í tvo vetur. Þá stundaði hann orgelnám hjá Þórði Sigtryggs- syni og Kristni Ingvarssyni, organ- ista í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Valgeir starfaði frá upphafi við byggingu stórbýlisins að Korpúlfs- stööum og var síðar vinnumaður hjá Thor Jensen í tíu ár. Hann vann við landmælingar með dönskum mælingamönnum og starfaði í mörg ár hjá Rafveitu Reykjavíkur. Á fer- tugsaldri hóf Valgeir störf í Austur- bæjarskólanum, fyrst sem dyra- vörður og síðar húsvörður til ársins 1977. Fjölskylda Valgeir kvæntist 28.9.1940 Önnu Sigríði Baldursdóttur, f. 16.2.1921, en hún er dóttir Baldurs Einarsson- ar, sjómanns og síðar verkstjóra, og Guðnýjar Hólm Samúelsdóttur. Börn Valgeirs og Önnu eru Guðný Hrafnhildur, f. 15.4.1941, ráðskona, var gift Sigurði Eiríkssyni múrara en synir þeirra eru Eiríkur, Hrafn, sem lést af slysförum 1981, Hörður og Svavar auk þess sem Hrafnhildur átti Valgeir Matthías sem Valgeir og Anna ættleiddu; Svava, f. 28.8. 1942, starfsmaður Orkustofnunar, gift Guðjóni Inga Sigurðssyni, hljóð- færaleikara og trésmið, en börn þeirra eru Ingibjörg, Sigurður og Arnar; Brynhildur, f. 27.9.1943, gift Ágústi Stefáni Ágústssyni en þau eru búsett í Kanada ásamt dætrum sínum, Önnu Ingibjörgu, Svövu og ' Brynhildi; Baldur, f. 24.6.1945, fram- kvæmdastjóri, kvæntur Þuríði Her- mannsdóttur en synir þeirra eru Hermann Þór, Valgeir Matthías, og Þormóður Orri; Páll Böðvar, f. 22.11. 1949, golfvallarstjóri á Blönduósi, kvæntur Sigríði Jónsdóttur og eru böm þeirra Valgeir Matthías, Mar- íanna, Rakel og Rebekka; Stefanía, f. 1.11.1956, útvarpsþulur, gift Eiríki Hreini Helgasyni, rannsóknarlög- regíumanni og söngvara, og eru börn þeirra Kristinn Geir, Tinna og Andri; Valgeir Matthías, f. 2.1.1962, rafvirkjanemi, kvæntur Bimu Sig- fúsdóttur og eru börn þeirra Hrafn- katla og Böðvar. Systkini Valgeirs: Magnús Berg- mann, f. 19.11.1912, d. 1990, glerslíp- unarmeistari, var kvæntur Ragn- heiði Þyri Nikulásdóttur og eignuð- ust þau sex börn; Svava, f. 29.6.1916, d. 27.4.1922; Hrefna, f. 23.11.1919, var gift Hans Guðmundi Magnús- syni kaupmanni sem lést 1973 og áttu þau einn kjörson en seinni maður Hrefnu var Óskar Axel Sig- urðsson bakarameistari sem lést 1987; Svavar, f. 13.5.1924, d. 1968, starfsmaður Rafveitu Reykjavíkur, var kvæntur Ólöfu Ólafsdóttur og eignuðust þau þrjá syni; Sigurður, Valgeir Matthias Pálsson. f. 23.11.1926, glerslípunarmaöur og síðar umsjónarmaður Lækjarskóla í Hafnarfirði, kvæntur Guðrúnu Pálsdóttur og eiga þau sex börn. Foreldrar Valgeirs voru Páll Böð- var Stefánsson, f. að Fossá í Kjós 16.8.1886, trésmíðameistari, lengi hjá Rafveitunni, og Guðný Magnús- dóttir, f. að Dalkoti í Kirkju- hvammshreppi í Vestur-Húnavatns- sýslu29.6.1885. Foreldrar Páls voru Stefán Hann- esson, sjómaður frá Litla-Botni, og Guðrún Matthíasdóttir frá Fossá er lengi rak veitingasölu í Reykjavík. Foreldrar Guðnýjar vom Magnús Guðlaugsson og Þorbjörg Þórðar- dóttir frá Sigríðarstöðum í Vestur- hópi. Valgeir dvelur að heimili sínu á afmælisdaginn í faðmi fjölskyld- unnarogvina. Til hamingju með afmælið 7. júlí 90 ára 60 ára S vava Sigurðardóttir, Hjallaseli 55, Reykjavík. Agnes Sigurðsson, Dalbraut 25, Reykjavik. Andrés Bergsson, Klapparstíg 5, Akureyn. KennethScarr, Hvaleyrarbraut 3, Hafnarfirði. 50 ára Aðalheiður Jóhannesdóttir, Áfabyggð9, Akureyri. Stefán Bjarnason, Nautsbúð 8, Hellissandi. Hildur Júliusdóttir, Greniteigi34, Keflavík. Aðalsteinn Grímsson, Eilífsdal, Kjósarhreppi. Leó F. Sigurðsson, Oddeyrargötu 5, Akureyri. 40ára Símon Þorsteinsson, Túngötu 1, Grindavik. Svava Jóhannesdóttir, Melási 12, Garðabai. Sigurður Sigurðsson, Hvassaleiti 20, Reykjavík. Kristín H. Traustadóttir, Reynihlíð 8, Reykjavík. Vilborg Árný Valgarðsdóttir, Hjaltabakka32, Reykjavík. Viðar Marel Jóhannsson, Kirkjuteigi 18, Reykjavík. Þórarinn F. Grétarsson, Sunnuvegi 14, Skagaströnd. Sævar Ástráðsson, Hjarðarholti 13, Selfossi. Guðríður Sigurðardóttir Svanbjörg Eiríksdóttir Svanbjörg Eiríksdóttir mat- reiðslukona, Hlíðargötu 28 i Sand- gerði, verður sextug á morgun. Starfsferill Svanbjörg er fædd á Neskaupstað og ólst þar upp. Hún hlaut barna- skólamenntun. Svanbjörg fór snemma að heiman og vann hin ýmsu störf. Hún var til að mynda vinnukona í Reykjavík á sínum yngri árum og starfaði sem kokkur á síldarbát. Síðustu sextán árin hef- ur hún unnið sem matreiðslukona í mötimeytinu í Rockvill. Hún var trúnaðarmaður starfsmanna þar í þrjú ár. Svanbjörg hóf búskap í Keflavík 1953. Hún flytur austur að Neskaup- stað 1967 og býr þar til ársins 1973 er hún flytur í Sandgerði þar sem hún hefur búið síðan. Fjölskylda Svanbjörggiftist 31.12.1954 Sveini Þorgrímssyni, f. 26.4.1931, d. 13.9. 1986, leigubifreiðastjóra. Foreldrar hans eru Þorgrímur Einarsson, bóndi á Síðumúlaveggjum, Hvítárs- íðurog Guðrún Guðmundsdóttir húsmóðir. Börn Svanbjargar eru: Ása Sigríð- ur, f. 24.3.1954, matreiðslukona í Sandgerði, börn hennar eru Peter Robert, f. 18.3.1983, og Svanbjörg Dóra, f. 9.9.1986; Pétur Friðrik, f. 29.7.1959, leigubifreiðasljóri í Kefla- vík, sambýliskona hans er Stefanía Sigurðardóttir, f. 24.10.1963, böm þeirra eru Elísabet Tanja, f. 26.10. 1989, og Linda Ósk, f. 6.2.1991. Ste- fanía átti dreng fyrir, Kristján Val, f. 11.7.1983; Linda Ósk, f. 13.2.1963, hún er búsett í Bandaríkjunum, maki hennar er Gilbert Molina, börn þeirra eru Sveinn Eugene, f. 14.4.1986, og Ása Janet, f. 22.1.1990. Systkini Svanbjargar eru: Mar- grét, f. 25.3.1929, verkakona á Nes- kaupstað, maki hennar er Magnús Hermannsson og eiga þau þrjú böm; Ásmundur Guðni, f. 18.10.1941, d. 1944; óskírður Eiríksson, f. 15.5. 1946, d. 16.5.1946. Svanbjörg á einn fósturbróður, Þórð Flosason, f. 23.6.1946, raf- Svanbjörg Eiríksdóttir. virkja, maki hans er Borghildur Stefánsdóttir, þau eru búsett í Kópa- vogi og eiga þrjú börn. Foreldrar Svanbjargar em Eirík- ur Guðnason, f. 8.5.1906, sjómaður fæddur á Norðfiröi og Sigríður Ein- arsdóttir, f. 14.10.1901, d. 26.5.1989, húsmóðir, hún var fædd á Staðar- felli í Lóni. Þau bjuggu alla tið á Neskaupstað og býr Eiríkur þar enn. Svanbjörg tekur á móti gestum í húsi Björgunarsveitarinnar Sigur- vonar í Sandgerði frá kl. 18.00 í dag. Guðríður Sigurðardóttir húsmóð- ir, Kársnesbraut 78, Kópavogi, er sjötug í dag. Hún og maður hennar, Friðþjófur Hraundal, eiga einnig fjörutíu ára brúðkaupsafmæli þenn- andag. Starfsferill Guðríður er fædd og uppalin á ísafirði. Hún byijaði snemma að vinna utan heimihs. Á unglingsár- unum var hún í vist en vann síöan á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði í fimm ár. Auk þess vann hún á Skíðaskólanum á ísafirði á þessum árum. Árið 1944 flutti hún suður og vann þar við ýmis störf þar til árið 1973 að hún réð sig að íþróttahúsi Kársnesskóla sem baðvörður. Vann hún þar allt til ársins 1988 er hún lét af störfum sökum aldurs. Fjölskylda Guðríður giftist 6. júlí 1951 Friðþjófi Hraundal, f. 15.9.1918. Foreldrar hans voru Sigurlaug Guðmunds- dóttir ljósmóðir og Ásgeir Hraundal. Böm Guðríðar eru: Guðmundur Antonsson, f. 11.2.1943, málara- meistari, maki Anna G. Árnadóttir, þau eru búsett í Kópavogi og eiga þijú börn og fjögur bamabörn; G. Ómar Fiðþjófsson, f. 2.10.1951, kaupmaður, maki Sigurbjörg Þór- Guðríður Sigurðardóttir. mundsdóttir, þau eru búsett í Reykjavík og eiga íjögur börn. Frið- þjófur Friðþjófsson, f. 25.11.1959, hann á tvö börn og er búsettur í Reykjavík; G. Berglind Friðþjófs- dóttir, f. 10.3.1961, ritari, maki Stef- án B. Högnason rafmagnsiðnfræð- ingur, þau eru búsett í Kópavogi og eigatvö börn. Guðríður átti 9 systkini en þijú þeirra dóu ung að árum. Hún á einn- ig einn uppeldisbróður. Foreldrar Guðríðar voru Sigurður Bjarnason, verkamaður á ísafirði, og Aðalheiður Dýrfjörð. Þau bjuggu lengstafáísafirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.