Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1991, Síða 52
Landsbankinn tryggir rekstur Álafoss til áramóta:
Bankinn vill taka
þrotabúið á leigu
Landsbankinn hefur ákveöiö að
fara þess á leit viö bústjóra þrota-
bús Álafoss að taka reksturinn á
leígu til áramóta. Meö þessu vill
bankinn freista þess að minnka
þau áíoli sem hann ella yrði fyrir.
Bankinn hefur fariö þess á leit við
stjórnendur fyrirtækisins aö þeir
haldi áfram störfum h)á fyrirtæk-
inu ef af leigu veröur. Á næstunni
mun fulltrúi bankans, Bárði Áma-
son, ásamt Ólafi Ólafssyni fram-
kvæmdastjóra halda tíl Rússlands
til aö ganga frá stórum sölusamn-
ingá á íslenskum ullarvörum við
Rússneska innkaupasambandið.
Á blaðamannafundi sem Sverrir
Hermannsson bankastjóri hélt
vegna þessa kom fram sú skoðun
hans að bankinn hafi horft upp á
allt að 150 milljón króna tap ef
rekstur Álafoss hefði stöövast end-
anlega nú. Með áframhaldandi
rekstri næstu sex mánuðina mættí
væntanlega minnka það tap veru-
lega og jafnframt finna leiðir til að
tryggja framtíð íslensks ullariðn-
aðar.
„Við höfum staðfestan grun um
að áhugi sé á rekstri slíks fyrirtæk-
is. Viö áiítum það hag bankans og
allra annarra að það verði fundin
framtíðarlausn á ullariðnaöinum.
Þessa mánuöi munum viö leita
leiða til að finna aðila sem tilbúnir
■ eru að taka við þessu og tryggja
áframhaldandi rekstur. Við mun-
um reka þetta mjög þröngt á þessu
tímabili með sem minnstum tíl-
kostnaði og meö eins lítilli áhættu
og unnt er,“ sagði Sverrir.
-kaa
LOKI
Þá hefur Sverrir
Hermannsson tekiö upp
prjónana!
Bæjarstjórinn á Akureyri:
Það sem við
vorumað
vonast til
„Þetta er það sem menn hafa verið
aö vonast til og verið að vinna aö.
Með þessu móti má örugglega búa til
meiri verðmæti en ef menn heföu
bara klippt á áframhaldandi rekstur.
Það er bara vonandi að á þessum
tíma gefist mönnum færi á -að fara
betur ofan i hlutina og leita uppi þá
fleti sem kunna að vera á framhald-
inu." segir Halldór Jónsson. bæjar-
stjóri á Akureyri, um þá ákvörðun
Landsbankans að taka þrotabú Áia-
foss á leigu til áramóta.
Halldór sagði þessa niðurstöðu gefa
færi á aö kanna möguleikana á fram-
iBtíö íslensks ullariðnaöar og tryggja
stórum hluta starfsmanna áfram-
haldandi vinnu. Hann segir að þó
verði að gera ráö fyrir að með endur-
skipulagningu á rekstrinum ásamt
auknu aðhaldi megi gera ráö fyrir
að einhverjir missi vinnuna. -kaa
Víetnamamir:
Eitt barnanna á
.Landspítalanum
Eitt víetnömsku barnanna, sem
komu hingað til lands i gær i hópi
flóttafólksins frá Hong Kong, liggur
nú á Landspítalanum. Aö sögn Hólm-
fríðar Gísladóttur, deildarstjóra fé-
lagsmáladeildar Rauða kross ís-
lands, reyndist barniö vera meö bull-
andi eyrnabólgu og lungnabólgu þeg-
ar það kom hingað. Þaö var því lagt
inn á Landspítalann.
„Barniö hélt engu niöri en kastaði
upp í sífellu. það var því orðið mjög
þurrt. Þaö hefur nú fengið vökva og
penísillín í æð og líður betur,“ sagöi
Hólmfríður. -JSS
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1991.
Erich H. Köppel og Maria Hákonardóttir gerðu stutt „fréttastopp“ þegar DV hitti þau á Myrdalssandi. Þau voru búin
að hjóla 232 kilómetra á tveimur dögum en reiknuðu með að vera um 3-4 vikur að hjóla hringinn i kringum land-
ið. Þau æfðu sig vel fyrir ferðina með sundferðum, skokki og styttri hjólreiðatúrum enda fundu þau ekki fyrir þreytu.
DV-mynd Brynjar Gauti
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Suðaustlæg átt og áfram hlýtt
Á sunnudag veröur hæg suðaustlæg- eöa breytileg átt. Þurrt verður og bjart um mest allt land en dálítíð þokuloft eða mistur við
austur- og suðurströndina. Hiti veröur á bilinu 13-23 stig að deginum, hlýjast á Vestur- og Norðurlandi.
Á mánudag verður suðaustanátt. Dáhtil súld verður suðaustanlands og skýjað að mestu á Suður- og Austurlandi en léttskýjað á
Norður- og Vesturlandi. Áfram verður hlýtt, einkum norðvestantil.
ForstjóriÁIafoss:
Það eina í
stöðunni
„Þetta var það eina sem hægt var
að gera í stööunni," sagði Ólafur Ól-
afsson, framkvæmdastjóri Álafoss,
um ákvörðun Landsbankans að taka
fyrirtækið á leigu næstu sex mánuð-
ina.
„Landsbankinn tekur reksturinn á
leigu til þess að gæta eigin hagsmuna
og til þess aö gefa öðrum aðilum
umþóttunartíma tíl þess að taka yfir.
Það er ekki hlutverk bankans að
standa í atvinnurekstri eins og þess-
um. Það veröur aö leita leiöa til þess
að tryggja hann til lengri tíma. Ef
það tekst ekki þá verður hann aflagð-
ur.“
Aðspurður um hvort hann teldi að
þessi ákvörðun Landsbankans
myndi bjarga rekstrinum tíl fram-
búðar sagði Ólafur að hún yrði alla
vega tíl þess aö hann stöðvaðist ekki
núna. Næstu daga yrði unnið að aö-
gerðaáætlun, sem menn væru þegar
farnir aö ræða, en ekki væri búið aö
ganga endanlega frá. Yröi hún vænt-
anlega fullgerð í byrj un næstu viku.
-JSS
t
í
í
i
t
i
i
i
i
F R ETTASKOTIÐ
62 • 25 • 25
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
ffliiii
Laugardaga 10-17
Sunnudaga 14-17I
TM-HUSGÖGN
SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822