Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991.
3
Fréttir
Björgunarféð umdeilda:
Ekki hægt að skila því
„Það er ekki hægt að skila þessum
peningum aftur. Hnífsdælingur hf.
fékk þá samkvæmt ákvörðun ráð-
herra og aðstoðarmanns hans hér í
ráðuneytinu fyrir flutning á þessum
skipsflökum,1' sagði Ólafur Steinar
Valdimarsson, ráðuneytisstjóri í
samgönguráðuneytinu, við DV.
Siglingamálastjóri, Magnús Jó-
hannesson, hefur lýst þeirri skoðun
sinni að Hnífsdælingi hf. beri að skila
aftur 1900.000 krónum sem fyrirtæk-
ið fékk frá ráðuneytinu. Það var sigl-
ingamálastofnun sem upphaflega
fékk 4 mifljóna króna aukafjárveit-
ingu til að draga bátaflök af veiðislóð
út af Vestíjörðum. Rúmar 2 mifljónir
fóru í rannsóknir og undirbúnings-
segir ráðuneytisstjóri
vinnu. Þegar átti aö taka tif afgangs-
ins var hann kominn tO Hnífsdæl-
ings hf. Fyrirtækið notaði fjármun-
ina til að fjármagna flutning tveggja
skipsflaka sem lágu á sjávarbotni.
„Það er eins og hver annar mis-
skilningur hjá þessum mönnum, sem
unnu að þessu verkefni, að þeir hafi
átt þessa peninga," sagði Ólafur
Steinar. „Enda er það svo með aflar
aukafjárveitingar aö þær fafla úr
gildi um áramót. Ef Hnífsdælingur
hefði ekki fengið þessa upphæð þá
hefði hún hreinlega verið áfram í
ríkissjóði. Það hefur ekkert komið til
tals að veita meiri fjármunum í þetta
verkefni, enda hef ég ekki orðið var
við neina umsókn frá þessum aðif-
um.
Það er afltaf erfitt og á að vera erf-
itt að fá aukafjárveitingar. Þær á
ekki að veita nema brýna nauðsyn
beri tíl.“
-JSS
Fjölmargirflótta-
menn eru farnir
Fjölmargir þeirra flóttamanna,
sem komið hafa hingað tif lands, eru
fluttir til annarra landa.
Árið 1956 komu hingað 52 Ungveij-
ar. 30 þeirra sóttu um íslenskan rík-
isborgararétt þegar þeir voru búnir
að dvelja hér í fimm ár. Árið 1959
komu 28 Júgóslavar, svo og sjö
manna ítölsk fjölskylda. Hún dvaldi
hér aðeins í skamman tíma en hék
síðan til Ástralíu. Af Júgóslövunum
eru 11 eftir.
Árið 1979 kom hópur víetnamskra
flóttamanna, afls 34. Allmargir ætt-
ingjar þeirra fylgdu á eftir og voru
þeir 40 talsins hér á landi þegar mest
var. Það er af flóttamönnunum að
segja að 19 þeirra dvelja enn hér.
Aðrir eru fluttir til annarra landa.
Eitt barnanna sem kom í þessum
hópi er dáið.
Arið 1982 komu svo hingað 26 Pól-
verjar. Af þeim hópi eru átta eftir.
I 1990 komu hingað 30 Víetnamar. Þeir
eru allir hér enn og bíða þess nú að
geta sótt um íslenskan ríkisborgara-
i rétt. Það geta þeir eftir fimm ára
dvöl í landinu. Loks komu 25 víet-
namskir flóttamenn hingað til lands
í síðustu viku.
Umræddir hópar hafa allir komið
hingað á vegum Rauða kross íslands
nema Júgóslavarnir sem komu á
vegum ríkisins. -JSS
Vatn sótt í fötur
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Ég fór nýlega svolítið hér um
hreppinn og fannst mér skemmtileg
sjón að sjá fólk sækja vatn í fótur.
Nú þegar vatnsskortur er gera það
margir að safna vatni úr lækjum svo
að myndist lítil lón og er í það sótt
vatnið. Fólkið er glatt, enn sem kom-
ið er, en aðeins nýlega er farið að
bera á vatnsskorti. Minnir þetta á
þegar ég flutti hingað í hreppinn árið
1942 en þá var þetta vani.
Vont þykir þó ungu konunum að
geta nú ekki notað sjálfvirku vélarn-
ar við þvottinn.
Norðurland eystra:
Fimmta sumar-
tónleikaröðin að
hefjast
Jöhannes Siguijónsson, DV, Húsavik:
Nú er að hefjast 5. starfsár Sumar-
tónleika á Norðurlandi eystra og að
venju er tónleikaröðin í Húsavíkur-,
Reykjahlíðar- og Akureyrarkirkju á
föstudagskvöldi, laugardag og
sunnudag í þessari röð.
Fyrstu tónleikarnir verða fóstu-
. dagskvöldið 12. júlí þegar Barokk-
hópur Akureyrarkirkju spilar í
Húsavíkurkirkju og síðan í Reykja-
hfíðarkirkju á laugardag og Akur-
eyrarkirkju á sunnudag.
Helgina 19.-21. júlí verða sænskir
listamenn á ferð (orgel og sópran),
og 26,-27. júlí kemur 25 manna ungl-
ingakór frá Randers í Danmörku.
2.-4. ágúst spila tveir Þjóðverjar á
flautu og gítar í kirkjunum og loka-
tónleikaröðin verður 9.-11. ágúst en
þá spilar málmblásarasveit Poul
Schemm frá Þýskalandi.
SENDLARNIR
JE: 8221
FJOLDI MOGULEIKA:
□ Bensín- eöa Dieselhreyfill.
□ Sendibíll með gluggum.
□ Pallbíll með þriggja manna húsi
□ Pallbíll með sex manna húsi.
HELSTU KOSTIR:
□ Mikil burðargeta.
□ Ferming og afferming mjög auðveld
□ Framdrif.
□ Þægilegur í akstri.
□ Sparneytinn.
□ Lág bilanatíðni.
□ Þriggja ára ábyrgð.
Sendibill m. gluggum
Háþekja
Pallbill m. 6m. húsi
Pallbill m. 3m. húsi
BÍLL FRÁ HEKLU BORBAR SIB
LAUGAVEGI 174
SÍMI695500
mTXM. —mai
- ■'