Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991.
5
Fréttir
Rikisstjómin boðar auknar kröfur til atvinnulífsins:
Peningarnir eru búnir
og sjóðirnir galtómir
- ausum ekki almannafé glórulaust til atvinnulífsins, segir Davíð Oddsson
„Sú aöferð ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar aö ausa erlendu
lánsfjármagni í atvinnulíf landsins
án þess að til komi aukin hagræðing
getur ekki gengið upp. Heilbrigt at-
vinnulíf getur aldrei átt. sitt undir
erlendu lánsfjármagni, - hversu vel
fyrirtækjunum gengur fer eftir þeim
sjálfum. Við viljum ýta undir at-
vinnulífið og hjálpa því meö skyn-
sömum hætti. En það leysir ekki
nokkurs manns vanda að ausa al-
mannafé glórulaust í allar áttir. Jafn-
vel þótt við værum svo vitlausir að
vilja það þá gætum við það ekki.
Peningamir eru einfaldlega búnir
eins og sést á öllum þessum sjóðum
sem núna eru galtómir," segir Davíð
Oddsson forsætisráðherra.
Gjaldþrot stórra og skuldugra fyr-
irtækja víðs vegar um landiö hafa
að undanfornu verið eitt helsta um-
fjöllunarefni íslenskra fjölmiðla.
Nægir í því sambandi að nefna gjald-
þrot fjölda fiskeldisstöðva, Álafoss,
Hraðfrystihúss Ólafsvíkur, ístess og
fleiri fyrirtækja. Þá hafa nánast dag-
lega verið fréttir af yfirvofandi
rekstrarstöðvun íjölda rækju-
vinnslustöðva, Síldarverksmiðja rík-
isins og fleiri skuldsettra fyrirtækja.
Skuldsetning íslenskra fyrirtækja
er almennt mikil. Um síðustu áramót
námu útlán fjárfestingarlánasjóð-
anna tæplega 60 milljörðum. Að auki
skulduðu fyrirtækin í landinu við-
skiptabönkum tæpa 110 milljarða í
ársbyrjun. Gera má ráð fyrir að til
samans skuldi atvinnulífið vel á
þriðja hundrað milljarða. Beint og
óbeint er ríkissjóður í ábyrgð fyrir
verulegum hluta þessarar upphæðar
þar sem stærstu viöskiptabankarnir
og sjóðimir eru í eigu ríkisins. Það
er því ljóst að ríkissjóður getur orðið
fyrir verulegum áfollum þegar að
kreppir í atvinnulífmu og fjölda-
gjaldþrot ganga yfir.
Þaö sem af er hefur ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar haldið að sér
höndum og lítið aðhafst til að forða
fyrirtækjum frá rekstrarstöðvun og
jafnvel gjaldþroti. Þvert á móti hefur
hún boðaö auknar kröfur til atvinnu-
lífsins og beint því til fulltrúa sinna
í fjárfestingarlánasjóðum og ríkis-
bönkum að menn haldi að sér hönd-
um varðandi frekari lánafyrir-
greiðslu til skuldsettra fyrirtækja.
Þá hefur Davíð Oddsson forsætisráð-
Davið Oddsson forsætisráðherra: „Það leysir ekki nokkurs manns vanda
að ausa almannafé glorulaust í allar áftir.“
herra viðrað þá skoðun sína að rétt lands niður í núverandi mynd, enda
sé að leggja Framkvæmdasjóð ís- í raun orðinn gjaldþrota vegna
áhættusamrar lánafyrirgreiðslu.
„Framkvæmdasjóður íslands var
öflugur sjóður fyrir örfáum árum.
Síðan hafa menn gengið í hann eins
og þar væra peningar í eigu annarra
en almennings. Nú er svo komið að
hann er kominn á hausinn," segir
Davíð.
Að sögn Davíðs var ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar ljóst
þegar í upphafi þessa árs hvert
stefndi í atvinnumálunum. í forsæt-
isráöuneytinu sé að finna bæði bréf
og önnur gögn sem staðfesti að þegar
í janúar hafi þáverandi forsætisráð-
herra verið gerð grein fyrir hvert
stefndi með fiskeldið, rækjuvinnsl-
una, Álafoss og fleiri þætti atvinnu-
lífsins. Hann segir einnig að mánuði
fyrir fall ríkisstjórnarinnar hafi for-
sætisráðherra borist uppsagnarbréf
frá forstjóra Álafoss ásamt tilkynn-
ingu um óhjákvæmilegt gjaldþrot
fyrirtækisins.
„Frá þessu var hvergi skýrt opin-
berlega né var kjósendum skýrt frá
þessari stöðu fyrir kosningar. Því
síður skýrði ríkisstjórnin frá því
hvernig hún ætlaði sér að bregöast
við þessum vanda.“ -kaa
Fest kaup á
íbúðum fyrir
eldri borgara
Sigiún Lovísa Sguijónsd., DV, Hveiagerði:
Húsnæðisfélag eldri borgara hefur
að undanfömu verið að leita eftir
möguleikum á að byggja eða kaupa
íbúðir fyrir þá félagsmenn sem óska
eftir að komast í minna húsnæði.
Hefur nefndin staðið í viðræðum við
forsvarsmenn Fjölbýlis hf. sem gerði
henni tilboð um forkaupsrétt að 10
íbúðum í framhaldi af því.
Áætlað er að afhending íbúðanna
fari fram í júní 1992. Munu þær
stærri koma til með að kosta um 6,5
milljónir en verð minni íbúðanna um
einni milljón lægri. Mörgum þykir
mikið skorta á að málefnum þessa
hóps hafi verið sinnt nægilega en
nokkuð hefur orðið vart viö það að
eldri borgarar hafi flust búferlum til
annarra byggðarlaga.
Egilsstaöir:
Hitamet
Sgr. Björgvinsd., DV, Egilsstööum:
Það er engin lognmolla yfir veðrinu
á Héraði fremur en fyrri daginn og
skammt öfganna á milli. Fyrripartur
júnímánaðar var kaldur og það svo
mjög aö hreytti snjó annað slagið.
Nefin sem orðin vora rauð og brún
í heitri maísóhnm gerðust nú kulda-
blá sem um vetur.
En síöasta hálfan mánuð hefur ver-
ið sólríkt veður og síöustu daga hefur
hitabylgjan skolUð á hér sem annars
staðar. Mesti hitinn mældist 4. og 5.
júlí, 28,8 gráður. Sennilega er það
mesti hiti sem mælst hefur á EgUs-
stöðum síðan mæUngar hófust þar.
Nú er jörð orðin mjög þurr og vantar
tilfinnanlega góðan rigningardag.
Farið er að óttast vatnsskort á EgUs-
stöðum og fólk hefur verið beðið um
að fara sér hægar við garðaúðun.
COMBI
, CAMP
rRAUiraR 06 OÓMK ’MM í FIR0AU6ID
TITANhf
__________/
TÍTANhf
LÁGMÚLA 7
SÍMI 814077
Betríbílará betra verði og betrikjörum
Tilboð vikunnar
Fiat 127, árg. ’80, sk.’92, ek. 77
þús. V. 90.000. Tilboðsverð 50.000.
350
000
BMW 3181, árg. '87, sjálfsk. V.
1.100.000.
Tilboð vikunnar
Opel Corsa, árg. ’86. V. 350.000.
Tilboðsverð 280.000.
Þú færð góðan bíl hjá okkur á
hagstæðari kjörum en þig grunar!
Athugið: BMWog Renaultbílaríokkareigu eru yfirfarnirá verkstæðiokkar.
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1 -3, Reykjavík, sími 676833 og 686633