Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Side 9
.rear iJtn, .or írjr'Aaraivaiw
MIÐVIKUÐA'GUR 10! 'JÚEÍ 1091.-
8
• -9 ■
E1 Salvador:
Litlar vonir
um vopnahlé
Talsmaður Sameinuðu þjóðanna
lét í gær í ljósi svartsýni um að tak-
ast mætti að ná samkomulagi um
vopnahlé milli stríðandi afla í E1
Salvador.
Sendimenn frá ríkisstjórn E1
Salvador sem studd er Bandaríkja-
stjórn og vinstri sinnaðir skæruliðar
eiga fund saman í Mexíkó að frum-
kvæði Sameinuðu þjóðanna. í þess-
um friðarviðræðum átti að reyna að
komast að niðurstöðu um framtíð
landsins og semja um vopnahlé í
borgarastyrjöld landsins sem staðið
hefur í 11 ár.
„Ég býst svo sannarlega ekki við
vopnahléssamningi á þessum fundi,“
sagði sendimaður Sameinuðu þjóð-
anna, Alvaro de Soto, í gær rétt áður
en fundurinn byijaði. De Soto, sem
stjórnar viðræðunum fyrir hönd
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, Perez de Cuellar, sagði að of
snemmt væri að tala um ákveðið
samkomulag til að enda átökin í E1
Salvador sem kostað hafa um 75 þús-
und manns lífið. „Við höfum reynt
allt sem í okkar valdi stendur til að
koma vopnahléi á í landinu. Það sem
vantar eru nauðsynlegar pólitískar
ákvarðanir þar að lútandi," sagði De
Soto.
Þrátt fyrir friðarviðræðurnar í
Mexíkó halda átök áfram í E1 Salvad-
or. Skæruhðar vinstri sinna réðust í
gær á bækistöðvar hersins og tóku
nokkur þorp í norðurhluta landsins
herskildi. Ókunnir byssumenn réð-
ust á vinstrisinnaðan leiðtoga verka-
mannaogdrápu. Reuter
Atök halda áfram i El Salvador þrátt fyrir friðarviðræður stríðandi afla i
Mexíkó. Vinstrisinnaður leiðtogi verkamanna var drepinn af ókunnum byssu-
mönnum i höfuðborginni San Salvador. Simamynd Reuter
Suður-Afríka:
Skiptar skoðanir um
ólympíuleikana
Suður-Afrískir iþróttamenn fögn-
uðu ákvörðun Alþjóöaólympíu-
nefndarinnar í gær um að veita land-
inu inngöngu í hreyfinguna eftir 31
árs einangrun. Róttækir andstæð-
ingar kynþáttaaðskilnaðarstefnunn-
ar hétu því hins vega að fá ákvörðun-
inni hnekkt.
„Þetta eru stórkostlegar fréttir,"
sagði maraþonhlauparinn Wilhe
Mtolo sem er^staðráöinn í að vera í
hópi fyrstu blökkumanna Suður-
Afríku til að taka þátt í ólympíuleik-
um síðan 1904.
Róttækir andstæðingar kynþátta-
aðskhnaðarstefnunnar gagnrýndu
hins vegar ákvörðunina og ætla að
reyna að fá henni hnekkt. Dikgang
Moseneke, annar æðsti maður hins
róttæka Samafríska ráðs (PAC),
sagði að ákvörðunin heföi verið tekin
allt of snemma.
„Það er eitt að hafa enga kynþátta-
aðskilnaðarstefnu og sameiningu í
íþróttum á pappímum en raunvem-
leikinn segir annað,“ sagði hann.
Joe Ebrahim, forseti suður-afríska
íþróttaráðsins, sagði að ólympíu-
nefndin hefði breytt rangt með því
að veita Suður-Afríku aftur inn-
göngu í hreyfinguna.
„Við ætlum að gera aht sem í okk-
ar valdi stendur til að sýna Alþjóða-
ólympíunefndinni að það sé suður-
afrísku þjóðinni ekki fyrir bestu að
framfylgja þessari ákvörðun," sagði
hann.
Reuter
• Amnesty International:
Mannréttindabrot áfram í Evrópu
Mannréttindasamtökin Amnesty
International skýrðu frá því í gær
að mannréttindabrot hefðu verið
framin víöa í Evrópu á síðasta ári,
meðal annars aftökur án dóms og
laga, óréttmætar fangelsanir, pynt-
ingar og misþyrmingar.
Mörg brotanna voru framin í
tengslum við átök mhli þjóðarbrota
eða auknar kröfur þjóðernissinna,
segir í skýrslu samtakanna.
Amnesty sagði að víðtækar og kerf-
isbundnar pyntingar hefðu haldið
áfram í Tyrklandi. Hundruð póh-
tískra fanga og glæpamanna sögðu
að þeir hefðu verið pyntaðir til að fá
fram játningar eða upplýsingar eða
í refsingarskyni. Nokkrir dóu í haldi.
Fangarnir voru m.a. pyntaðir með
því aö bundið var fyrir augu þeirra
og þeir áfklæddir, menn voru hengd-
ir upp á úlnliðunum, lamdir, spraut-
að var á þá köldu vatni og þeim gefið
raflost.
í skýrslunni segir að meira en eitt
þúsund manns af albanska þjóðar-
brotinu í Kosovohéraði í Júgóslavíu
hafi verið haldið í fangelsi í allt að
sextíu daga fyrir verkföll og friðsam-
legar mótmælaaðgerðir. Að minnsta
kosti þijátíu mótmælendur eða
áhorfendur voru drepnir í átökum
við lögregluna.
í Rúmeníu réðust námumenn á
andstæðinga stjórnvalda að lögregl-
unni ásjáandi.
Amnesty sagði að einnig hefðu bor-
ist fregnir af misþyrmingum af hálfu
lögreglunnar í Albaníu, Austurríki,
Frakklandi, . Grikklandi, Ítalíu,
Portúgal, Spáni og Sovétríkjunum. Á
Bretlandi voru tíu manns drepnir af
öryggissveitum á Norður-írlandi á
síðasta ári, sumir skotnir við grun-
samlegar aðstæður, að sögn Am-
nesty Intemational.
Reuter
Útlönd
Japanskir hægrisinnar eru
óhressir með ummæli franska for-
sætisráðherrans. Teikning Lurie
Japanskir hægrisinnar ætla sér
aö hálshöggva franska forsætisráð-
herrann, Edith Cresson, næstkom-
andi sunnudag. Reyndar ætla þeir
aðeins að höggva hausinn af brúðu
sem gerð hefur verið í nákvæmri
eftirmynd forsætisráðherrans
franska til að mótmæla móðgandi
ummælum hennar um Japan.
Mótmælendur áforma að hittast
í skemmtigaröi í raiðborg Tokyo
og krefjast þess að Cresson dragi
til baka umrnæh sín og biðji Japana
fyrirgefningar. Að því loknu ætla
þeir að hálshöggva Cressonbrúð-
una með japönsku sverði og ganga
með höfuðlausa brúðuna að
franska sendiráðinu.
Hægrimenn hafa brugðist hla við
harðri gagnrýni Cresson á óréttláta
víðskiptahætti Japans. Hún hefur
sagt að japanskir iðnjöfrar vilji
stjórna heiminum og setji upp hátt
verð heima fyrir til að geta undir-
boðiö útflutningsvörur sínar.
Draugastof nanir á Italíu
Þrátt fyrir ötthlegar tilraunir ráðamanna í itahu hefur enn ekki tekist
að uppræta nokkrar eldgamlar regluveldisstofnanir frá því á fasistatíman-
um.
Fjármálaráðherra ítahu, Guido Carli, sagði siðastliöinn mánudag að
um 300 opinberir starfsmenn væru enn að beijast í því að binda enda á
starfsferh gagnslausra stofnana en gengi illa.
ítálska þingið lagði fram fyrirspurn til fjármálaráöherrans hvort hann
gæti ekki skorið einhvers staðar mður hjá sér. Ráðherrann taldi að ómögu-
legt væri að hætta starfsemi margra stofnananna þar sem þær ættu í
yfir 20 þúsund málaferlum,
Ein stofnunin, sem sett var á laggirnar á fasistatímabhinu, sér um eign-
ir þær sem gerðar voru upptækar hjá ítölskum gyðingum. Önnur sér um
eignir unghðahreyfingar Benito Mussolini en hreyfingin er fyrir löngu
dauð úr öhum æðum.
Vazquez hefur verið á ferðalagi á milli landa í fimm mánuði í leit að
landi sem vildi taka við honum. Simamynd Reuter
Kúbverskur flóttamaður hefur ferðast í fimm mánuði frá einni flughöfn
til annarrar í leit aö landi sem vildi taka við honmn eftir að honum hafði
verið vísað úr landi í Ástralíu.
Francisco Vazquez, sem er 42 ára, var gerður hrottrækur frá Ástralíu
síðasthðinn febrúar. Hann sat af sér 18 mánaða dóm fyrir árásir á konu
sína og tengdamóður og var síðan vísað úr landi. Síðan þá hefur hann
flogið fjórum sinnum til Singapore, þrísvar til Rómar og einu sinni th
Moskvu, Madrídar og Caracas.
Ferðalagi hans lauk með því að hann var handtekinn á ílugvellinum í
Sydney en þangað var hann sendur frá Singapore þar sem hann haföi
verið í haldi í flugstöðvarbyggingunni í margar vikur. Vazquez verður í
haldi sem óleyfilegur innflyfjandi í Ástralíu á meðan samningaviöræður
standa yfir við kúbversk stjómvöld um að taka aftur við honum.
8,4% atvinnuleysi í Póllandi
Atvinnulausir í Póhandi eru nú orðnir 1,5 mhljónir eða 8,4% af vinnu-
afla landsins. 139.600 nýir bættust á lista atvinnulausra í júnímánuði sem
er mesta mánaðaraukning hingaö til eða tvisvar sinnum meiri en í meðal-
mánuði. Þetta gefur til kynna að fjármálaaögeröir Solidarity-stjórnar
Walesa séu famar að hafa áhrif.
Sink- og þlýnámuverkamenn Póllands eru nú í verkfahi og krefjast
þeir 60% launahækkunar. Námurnar lokuðust á mánudagínn eftir að
stjómin neitaöi launakröfu þeirra.
Á f erð um f lughaf nir í f imm mánuði
Þýskir fjársjóðsleitarmenn, sem leita að gimsteinum og listaverkum sem
þýskir nasistar földu í síðari heirasstyrjöldinni, segjast hafa fundið lík
fyrstu konu Herraanns Görmg á heiði fyrir noröan Berhn.
Þýska blaðið Super Illu sagði frá því að fjársjóösieitarmennirnir, sera
notuðu hátækmbúnað til að finna málma í jörðu, hefðu fundiö likkistu
sem inmhélt jarðneskar leifar hinnar sænsku Karinar Göring nálægt
flugbækistöð nasista. Kaiin dó árið 1931 og var áöur tahð að lík hennar
heföi veriö brennt.
Routci