Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991.
Utlönd
Íran-Kontra hneykslið:
Starfsmaður CIA
játar sekt sína
Sérstakur saksóknari í Íran-Kontra
hneykslinu hefur heitiö aö rannsaka
hlutverk annarra starfsmanna leyni-
þjónustunnar og Reaganstjórnarinn-
ar í hneykslinu í kjölfar þess að fyrr-
um foringi innan leyniþjónustunnar,
CIA, féllst á að vera samvinnuþýður
gegn því að vera ákærður fyrir minni
sakir.
Alan Fiers, fyrrum yflrmaður
Mið-Ameríkudeildar CIA, játaði í
gær sekt sína í tveimur minniháttar
ákærum um að hafa leynt Banda-
ríkjaþing upplýsingum. Hann hefur
jafnframt samþykkt að segja sækj-
endum í málinu allt sem hann veit
um það.
Lawrence Walsh, sérstakur sak-
sóknari í Íran-Kontra máhnu, fagn-
aði samkomulaginu og sagði að það
mundi flýta fyrir rannsókninni sem
hefur staðið yfir í fjögur og hálft ár.
Rannsóknin beinist að leyniáætlun
Reaganstjórnarinnar um að selja
vopn til írans á árunum 1985 ug 1986
og láta ágóðann renna til Kontra-
skæruhða sem voru að berjast gegn
stjórn sandinista í Nikaragva.
Fiers gæti veitt mjög mikilvægar
nýjar upplýsingar um hvað yfirmenn
hans hjá CIA vissu um hneykslið og
hvenær. Meðal þeirra er Robert Gat-
es sem Bush hefur tilnefnt sem nýjan
yfirmann CIA. Fiers hitti einnig Don-
ald Gregg í ágúst 1986 til að ræða
leiðir til að sjá Kontrum fyrir vopn-
um, þrátt fyrir að þingið hefði lagt
bann við því. Gregg var á þeim tíma
öryggismálaráðgjafi Bush varafor-
seta sem þá var en er núna sendi-
herra Bandaríkjanna í Suður-Kóreu.
Leyniþjónustan hafði áður reynt
að stöðva tilraunir Walsh til að lög-
sækja starfsmenn stofnunarinnar.'
Reuter
Bush Bandarikjaforseti gæti Jent í erfiðieikum þegar fyrrum starfsmaður
CIA fer að segja frá öllu sem hann veit um Íran-Kontra hneykslið.
Símamynd Reuter
Fjöldi bílasala, bíla-
umboóa og einstaklinga
auglýsa fjölbreytt úrval
bíla af öllum gerðum og
í öllum veröflokkum með
góðum árangri í DV-BÍLAR
á laugardögum.
Athugið aó auglýsingar í
DV-BÍLAR þurfa aó berast
í síóasta lagi fyrir kl. 17.00
á fimmtudögum.
Smáauglýsingadeildin er
hins vegar opin alla daga
frá kl. 09.00til 22.00 nema
laugardaga frá kl. 09.00 ti I
14.00 og sunnudaga frá
kl. 18.00til 22.00.
Smáauglýsing í
HELGARBLAÐ verður að
berast fyrir kl. 17.00
á föstudögum.
Auglýsingadeild
Talsmenn Bandarikjastjórnar um möguleika þeirra koma ekki
sögðu í gær að stjórnin teldi ennþá heim og saman við þær visindalegu
að írakar héldu upplýsingum um upplýsingar sem við höfum um
kjarnorkuáætlanir sínar leyndum áætlanir íraka,“ sagði Tutwiler.
þrátt fyrir að írakar hefðu látið Hún neitaði hins vegar að stað-
Sameinuðu þjóðunum i té ítarlegan festa nýlega frétt í New York Times
iista um staði þar sem kjarnorku- þess efnis að ríkisstjóm Bandaríkj-
tengd framleiðsla eigi sér stað. anna teldi að írak hefði á laun unn-
Starfsmenn bandaríska varnar- ið úranium sem hægt væri að setja
málaráðuneytisins sögðust hins í kjarnavopn og hefði smíðað sér
vegar telja aö írakar hefðu ekki kjarnorkuútbúnað af einhverju
ennþá komist yfir allt það sem tagi.
nauðsynlegt værí til kjamorku- Talsmaður varnarmálaráðuneyt-
vopnaframleiöslu. isins, Pete Williams, sagði hins veg-
Talsmaður utanríkisráöuneytis- ar að írakar væru sífellt að færast
ins, Margaret Tutwiier, sagði nærþeimpunktíþarsemþeirgætu
fréttamönnum að hin 29 blaðsíðna byrjað að framleiða kjarnavopn.
skýrsla, sem írakar létu Samein- „Þávantarvissahlutieinmittnúna
uðu þjóðirnar og Alþjóðlegu kjarn- og þá geta þeir ekki fengið nema
orkustofnunina fá, væri full af til- með utanaðkomandi (vestrænni)
hliðmnum og greinilegt væri að aðstoð. Ég tel að við vitum svona
mikilvægum hlutum væri sleppt. nokkum veginn hvaö þá vantar,“
„Yfirlýsingar íraks (í skýrslunni) sagðiWilliams. Reuter
Starfsmenn seðlabanka Englands svara fyrirspurnum frá viðskiptavinum
BCCI-bankans sem var lokað fyrir helgi. Simamynd Reuter
Risabanka lokað
vegna fjársvika
- Noriega lét bankann koma eitimlyfjagróðanum undan
Útibúum eins stærsta einkabanka
heims, Bank of Credit and Commerce
Intemational (BCCI) sem hefur að-
setur í Lúxemborg, var lokað um all-
an heim á fóstudag eftir að upp komst
um gífurleg fjársvik sem háttsettir
starfsmenn eru viðriðnir.
Svikin komu í ljós þegar endur-
skoðunarfyrirtækið Price Water-
house, sem endurskoðar reikninga
BCCI, gerði skýrslu um íjármál
bankans að beiðni seðlabanka Eng-
lands. Ákveðið var að láta til skarar
skríða gegn bankanum og aðgerðirn-
ar undirbúnar með mikilli leynd.
Á mánudag skipaði dómstóll í Lúx-
emborg fjárhaldsmann fyrir bank-
ann og skýrði jafnframt frá því að tap
bankans væri meira en sem næmi
höfuðstóli hans.
Bankinn er með útibú í 69 löndum
og voru innstæður í þeim frystar.
Andvirði þeirra er sem nemur tólf
hundruð milljöröum íslenskra
króna. Yfirmenn bankans hafa þagað
hingað til og einn þeirra sagöi að
þeir mundu ekkert láta hafa eftir sér
um málið.
BCCI var stofnaður árið 1972 af
pakistanska fjármálajöfrinum Agha
Hassan Abedi og hefur löngum þótt
með vafasamari stofnunum sinnar
tegundar í heiminum. Draumur
Abedis var að stofna fyrsta fjölþjóða-
banka þriðja heimsins.
Þótt bankinn hafi höfuðstöðvar
sínar í Lúxemborg er honum stjóm-
aö frá Abu Dhabi við Persaflóa. Sjeik-
inn þar tók yfir stjórn bankans í
fyrra og á hann 77 prósent hlut í
bankanum. Sjeikinn dældi þá rúm-
lega 60 milljörðum króna í bankann
eftir að mikið tap varð á rekstrinum.
Mikið írafár greip um sig meðal
viðskiptavina bankans eftir að
bankayfirvöld frystu innstæður.
Pakistönsk bankayfirvöld hafa þó
ekki lokað fyrir viðskipti BCCI þar
sem þau segja hann ekki hafa brotið
þarlend lög. Á undanfórnum dögum
hafa viðskiptavinir þriggja útibúa
bankans þar í landi engu að síður
tekið út mikla fjármuni.
Asíumenn búsettir á Bretlandi hafa
orðið illa fyrir barðinu á lokun bank-
ans en innstæður þeirra sem nú eru
frystar af enska seðlabankanum
nema hátt á þriðja tug milljarða
króna.
Dómstóllinn í Lúxemborg greip í
taumana eftir að seðlabanki landsins
hafði varað viö að BCCI væri um það
bil að fara á hausinn. í yfirlýsingu
frá honum sagði að tap bankans
næmi liðlega þremur milljörðum
króna en eignir hans væru ekki
nema liðlega tveir milljarðar.
BCCI hefur einnig verið undir smá-
sjá bankayfirvalda í Bandaríkjunum
þar sem nokkrir stjórnendur hans
voru í fyrra fundnir sekir um og
dæmdir í fangelsi fyrir að koma und-
an eiturlyfjapeningum fyrir Manuel
Noriega, fyrrum haröstjóra í Pan-
ama. Aðgerðirnar um helgina tengd-
ust þó eiturlyfjum ekki beint, að sögn
Robins Leighs Pembertons, seðla-
bankastjóra Englands.
Reuter o.fl.