Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Page 24
44
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991.
Afmæli
Sigrídur Theodóra Sæmundsdóttír
Sigríöur Theodóra Sæmundsdóttir,
húsfreyja að Skaröi í Landsveit, er
sextugídag.
Starfsferill
Sigríöur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún lauk gagnfræöa-
prófi frá Gagnfræðaskóla Vestur-
bæjar 1948 og stundaöi verslunar-
störf í Reykjavík þar til hún flutti
austuraðSkarði.
Sigríður hefur gegnt margvísleg-
um trúnaöarstörfum fyrir sína sveit
en hún hefur m.a. verið formaöur
Kvenfélagsins Lóu í þrjátíu ár og
setið í stjórn Sambands sunn-
lenskra kvenna í níu ár.
Fjölskylda
Sigríöurgiftist26.4.1954 Guðna
Kristinssyni, f. 6.7.1926, b. og hrepp-
stjóra að Skarði, en hann er sonur
Kristins Guðnasonar, b. og hrepp-
stjóra að Skarði, og konu hans, Sig-
ríðar Einarsdóttur ljósmóður.
Börn Sigríðar og Guðna eru Krist-
inn, f. 6.12.1950, b. að Skarði, kvænt-
ur Fjólu Runólfsdóttur frá Brekku
í Þykkvabæ; Helga Fjóla, f. 7.11.
1957, húsmóöir á Hvolsvelli, gift
Ingvari Ingólfssyni frá Neðra-Dal
undirEyjafjöllum.
Systkini Sigríðar eru Margrét, f.
16.11.1937, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri við geðdeild Landspítalans,
gift Jóni Marvin Guðmundssyni
kennara og eiga þau þrjú böm; Sæ-
mundur, f. 18.11.1946, vélstjóri í
Reykjavík, kvæntur Elísabetu
Kristjánsdóttur verslunarstjóra og
eiga þau flögur böm.
Foreldrar Sigríðar; Sæmundur
Sæmundsson, f. 26.11.1908, fyrrv.
verslunarmaður í Reykjavík, og
kona hans, Helga Fjóla Pálsdóttir,
f. 11.11.1909, d. 30.11.1990, húsmóðir.
Ætt
Sæmundur er sonur Sæmundar,
b. á Lækjarbotnum á Landi, bróður
Jóhönnu Vigdísar, móður Guðrún-
ar, forseta Hæstaréttar, og Sigríðar
sagnfræðings Erlendsdætra. Önnur
systir Sæmundar var Guðrún, hús-
freyja í Króktúni á Landi, móöir
Guölaugs í Tryggvaskála, afa Guð-
laugs Tryggva Karlssonar, hagfræð-
ings og hestamanns. Bróöir Sae-
mundar var Guðbrandur, b. í Öl-
versholti, afi Hauks Morthens
söngvara og langafi Bubba Mort-
hens söngvara. Sæmundur var son-
ur Sæmundar, hreppstjóra á Lækj-
arbotnum og ættfóður Lækjar-
botnaættarinnar, Guðbrandssonar,
bróður Guðbrands, langafa Guö-
mundar Daníelssonar rithöfundar.
Móðir Sæmundar verslunar-
manns var Sigríður Theodóra Páls-
dóttir, hreppstjóra á Selalæk á
Rangárvöllum, Guðmundssonar,
hreppstjóra á Keldum, Brynjólfs-
sonar sem Keldnaættin er kennd
við. Guðmundur var sonur Brynj-
ólfs, b. á Vestari-Kirkjubæ, Stefáns-
sonar, b. á Árbæ, Bjarnasonar, b. á
Víkingslæk, Halldórssonar, ættföð-
ur Víkingslækjarættarinnar. Móðir
Sigríðar Theodóm Pálsdóttur var
Þuríður Þorgilsdóttir, b. á Rauð-
nefsstöðum, Jónssonar, bróður
Guðrúnar, ömmu Eyjólfs Guð-
mundssonar, „landshöfðingja" í
HvammiáLandi.
Helga Fjóla var dóttir Páls, sjó-
manns og verkamanns í Reykjavík,
Friðrikssonar, sjómanns i Hólma-
búð og Brekku í Vogum, Pálssonar,
sjómanns í Reykjavík, Magnússon-
ar. Móðir Friðriks var Helga Bergs-
dóttir, b. á Hólum, Syðra-Seli, Jóns-
sonar eldra á Hæringsstöðum, Ingi-
mundarsonar, b. í Holti og síðar á
Hólum í Stokkseyrarhreppi, Bergs-
sonar, hreppstjóra í Brattsholti, ætt-
fóður Bergsættarinnar, Sturlaugs-
sonar. Móðir Helgu var Gróa Tóm-
asdóttir, b. á Litla-Hrauni, Jónsson-
ar. Móðir Páls var Þorbjörg Gísla-
dóttir í Hlöðuneskoti á Vatnsleysu-
strönd, Jónssonar.
Móðir Fjólu var Margrét Áma-
dóttir, hreppstjóra í Garði og síðar
á Innri-Hólmi í Akraneshreppi, Þor-
valdssonar, skipasmiðs á Þorbjarn-
arstöðum og víðar, Oddssonar í
Vatnsholti í Flóa, Þorvaldssonar.
Móðir Árna var Margrét, dóttir
Ólafs Ámasonar á Hvaleyri og
Bjargar Guðmundsdóttur. Móðir
Margrétar var Ragnhildur, dóttir
ísleifs á Skálmarlæk í Álftaveri,
Sigríður Theodóra Sæmundsdóttir.
Guðmundssonar og Ragnhildar
Jónsdóttur.
Kvenfélagið Lóa heldur afmælis-
barninu samsæti að Brúarlundi í
kvöld.
4
Ólafur Jónsson
Ólafur Jónsson, fyrrv. póstaf-
greiðslumaður, Suðurgötu 7, Hafn-
aríirði, varð áttræður í gær.
Starfsferill
Ólafur fæddist á Auðkúlu við Arn-
aríjörð og ólst þar upp en flutti með
móður sinni og systkinum til Þing-
eyrar árið sem faðir hans dó, 1929.
Hann vann á unglingsárunum öll
almenn störf sem til féllu til lands
ogsjávar.
Ólafur flutti til Hafnarfjarðar 1931
þar sem hann stundaði fyrst verka-
mannavinnu og síðan trésmíðar hjá
Jóhannesi Reykdal. Þá stundaði
hann trésmíðar hjá Páli bróður sín-
um á trésmíðaverkstæði hans í
Kópavogi en gerðist síðan starfs-
maður Pósts og síma í Hafnarfirði
þar sem hann starfaði til 1986.
Ólafur sat í stjórn Verkamannafé-
lagsins Hlífar í Hafnarfirði frá
1937-52 og þar af formaður í tvö ár.
Hann hefur starfað mikið fyrir góð-
templararegluna, var lengi umsjón-
armaður Góðtemplarahússins í
Hafnarfirði, var umdæmistemplar
Umdæmisstúku Suðurlands
1962-82, var einn af upphafsmönn-
um bindindismótanna, fyrst í Húsa-
felli og síðan í Galtalækjarskógi frá
1967. Þá var hann lengi æðsti templ-
ar stúkunnar Daníelshers í Hafnar-
firði og hefur lengi verið gæslumað-
ur bamastúkunnar Kærleiksbands-
ins í Hafnarfirði. Þess má geta að
Ólafur lék lækninn í kvikmyndinni
Brekkukotsannáll.
Fjölskylda
Systkini Ólafs: Matthildur Kristín,
f. 27.11.1900, d. 24.2.1901; Matthías
Kristinn, f. 18.6.1902, d. 19.8.1902;
Matthea Kristín, f. 24.5.1904, hús-
móðir í Garðabæ, gift Herbert Ped-
ersen matsveini; Guðrún, f. 9.8.1906,
húsmóðir í Hafnarfirði, gift Gunnari
E. Sigurðssyni; Gísli Guðni, f. 12.5.
1909, nú látinn, skipstjóri í Reykja-
vík, var kvæntur Hafdísi Rósen-
berg; Ásgeir, f. 29.3.1914, d. 22.8.
1914; Guðný, f. 19.10.1915, d. 14.7.
1916; Páll Marinó, f. 19.7.1919, tré-
smiður á Selfossi, kvæntur Berg-
þóm Guðmundsdóttur.
Foreldrar Ólafs voru Jón Bjami
Matthíasson, f. 11.4.1876, d. 15.1.
1929, b. og skipstjóri á Auðkúlu, og
kona hans, Guðmunda María Gísla-
dóttir, f. 2.7.1878, d. 23.7.1966, ljós-
móðir.
Ætt
Jón Bjarni var sonur Matthíasar,
b. á Baulhúsum, Ásgeirssonar, b. á
Álftamýri, Jónssonar, prests á
Hrafnseyri, Ásgeirssonar, prests í
Holti í Önundarfirði, Jónssonar,
bróður Þórdísar, móður Jóns for-
seta. Móðir Jóns á Hrafnseyri var
Rannveig Matthíasdóttir, stúdents í
Vigur, Þórðarsonar, stúdents í Vig-
ur og ættföður Vigurættarinnar,
Ólafssonar, lögsagnara á Eyri og
ættfóður Eyrarættarinnar, Jóns-
sonar. Móðir Ásgeirs á Álftamýri
var Guðrún Guðmundsdóttir á
Auðkúji í Arnarfirði, Arasonar.
Móðir Jóns Bjarna var Kristín
Pálsdóttir, b. á Dynjanda í Arnar-
firöi, Símonarsonar, bróður Bjama,
föður Markúsar, fyrsta skólastjóra
Stýrimannaskólans í Reykjavík, afa
Rögnvalds Siguijónssonar píanó-
leikara. Páll var einnig bróðir
Margrétar, ömmu Halls Símonar-
sonar, blaðamanns og bridgespil-
ara, föður Halls, fréttamanns á Stöð
2. Margrét var einnig langamma
Ólafur Jónsson.
Friðriks Ólafssonar stórmeistara.
Þá var Páll bróðir Sigurðar, langafa
Páls, föður Tryggva bankastjóra.
Móðir Kristínar var Sigríður Jóns-
dóttir, b. í Stapadal, Bjarnasonar,
bróður Þorbjargar, móður Páls Sím-
onarsonar í Stapadal. Móðir Sigríð-
ar var Kristín Bárðardóttir, b. á
Eyri, Guðmundssonar, b. í Amar-
dal, Bárðarsonar, b. í Amardal og
ættföður Arnardalsættarinnar, 111-
ugasonar. Móðir Kristínar var Sig-
ríður Jónsdóttir, sýslumanns í
Reykjarfirði, Amórssonar, bróöur
Sigríðar, ömmu Hannibals Valdi-
marssonar, fyrrv. ráöherra, föður
Amórs heimspekings.
Guðmunda María var dóttir Gísla,
b. á Auðkúlu, Ólafssonar og konu
hans, Guðrúnar, systur Sigríðar,
ömmu Guðmundar Hagalíns rithöf-
undar. Guðrún var dóttir Ólafs, b. á
Auðkúlu, Jónssonar, b. á Auðkúlu,
Guðmundssonar „ríka“, b. á Auð-
kúlu, Arasonar, lrm. í Reykjarfirði,
Jónssonar.
Sveinn Bjamason
Sveinn Bjamason, fyrrv. b.,
Grenihlíð 9, Sauðárkróki, er sjötug-
urídag.
Starfsferill
Sveinn fæddist að Reykjum í
Tungusveit og ólst þar upp fram á
fjórða ár en flutti þá með foreldrum
sínum að Grímsstöðum í Svartár-
dal í Lýtingsstaðahreppi. Sveinn
ólst upp við öll almenn sveitastörf
í foreldrahúsum en fór til Reykja-
víkur á stríðsámnum og vann þá
m.a. hjá setuliðinu. Hann keyrði
síðan fyrir SÍBS þegar verið var að
byggja að Reykjalundi og var síðan
strætisvagnastjóri í tvö ár.
Sveinn flutti síðan að Hafragili í
Laxárdal í Skagafirði 1949 og hóf
þar búskap en þar bjó hann í nítján
ár. Hann flutti síðan á Sauðárkrók
þar sem hann býr enn.
Fjölskylda
Sveinn kvæntist 27.12.1949 Helgu
Hinriksdóttur, f. 9.9.1923.
Böm Sveins og Helgu; Kristín
Bjamey, f. 2.5.1948, kaupkona á
Sauðárkróki, gift Gunnari Þór
Sveinssyni og eiga þau þrjú böm;
Hinrik, f. 2.12.1950, d. 18.1.1967;
Jóhanna, f. 6.1.1952, húsmóðir á
Sauðárkróki, gift Áma Sævari
Ingimundarsyni og eiga þau flögur
böm; Kári, f. 26.4.1955, rekur bók-
haldsskrifstofu á Sauðárkróki,
kvæntur Margréti F. Guðmunds-
dóttur og eiga þau þijú böm; Bjarni
Friðrik, f. 18.41.1960, slökkviliðs-
maður hjá Slökkviliðinu á Kefla-
víkurflugvelli, búsettur í Kefiavík,
kvæntur Ragnheiði Önnu Haralds-
dóttur og eiga þau tvö böm.
Sveinn átti flórtán alsystkini og
era nú átta þeirra á lífi.
Foreldrar Sveins: Bjarni Krist-
mundsson, b. á Reykjum og Gríms-
stöðum, og kona hans, Kristín
Sveinsdóttir húsfreyja, en þau era
bæðilátin.
Til hamingju með
85 ára
Guðrún Elínmundardóttir,
Kóngsbakka 11, Reykjavík.
75ára
Þórir Konráðsson,
Krammahólum 29, Reykjavík.
70 ára
Aðalheiður Árnadóttir,
Karlsrauðatorgi 14, Dalvík.
sinu milli klukkan 17.00 og 19.00 á
afmælisdaginn.
Freyja Jóhannesdóttir,
Lönguhlíð 1F, Akureyri.
Siguijón Magnússon,
Sæbóli, Selfjarnamesi.
Ármann Jóhannsson,
Mávahlíð 48, Reykjavík.
Alda Einarsdóttir,
Knarrarbergi 6, Þorlákshöfn.
Indriði Aðaisteinsson,
Skjaldfönn, Nauteyrarhreppi.
Jón Otti Ólafsson,
Ljósalandi-7, Reykjavík.
40 ára
60ára
Sigurbjörg Hallgrímsdóttir,
Húsabakka, Aðaldælahreppi.
Svavar Guðni Gunnarsson,
Mýrarvegi 116, Akureyri.
Sigriður Hauksdóttir,
Hraunbæ 110, Reykjavík.
50ára
Gísli Hermannsson,
Stelkshólum 8, Reykjavík.
Sigursveinn Ástþór Sigurðsson,
Skipasundi 80, Reykjavík.
Hann tekur á móti gestum á heimili
Héðinn Eyjólfsson,
, Hraunbæ 19, Reykjavík.
GísliS. Eiríksson,
Hagaseli 24, Reykjavík.
Elínborg Sigurgeirsdóttir,
Garðavegi 28, Hvammstanga.
Guðmundur Jónsson,
Flúðaseli 92, Reykjavík.
Hly nur Árnason,
Lækjartúni 9, Mosfellbæ.
Kristjana Kristjánsdóttir,
Esjuvöllum 17, Ákranesi.
Ómar Konráðsson,
Austurbergi 34, Reykjavík.
GesturH.
Fanndal
Gestur H. Fanndal, kaupmaður á
Siglufirði, er áttræður í dag, 10.7.
Hann tekur á móti vinum og
vandamönnum laugardaginn 13.7.
að Hótel Höfn á Siglufirði klukkan
17.00-19.00. Gestur H. Fanndal.
LAUSAMÖL é