Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ1991.
47
Veiðivon
LaxááÁsum:
180 laxar komnir á land
Þaö heföi einhvern tímann þótt tíð-
indum sæta aö í byrjun júlí heföi
dýrasta laxveiði landsins „aðeins"
verið búin aö gefa 180 laxa. Þetta er
nú samt staðreynd þessa dagana og
hafa einhverjir veiöimenn fariö fisk-
lausir úr henni.
Veiðimenn eru líka farnir að selja
veiöileyfi í Laxá á Ásum sem hefur
reyndar gerst æ oftar hin seinni árin.
Hlutir sem aldrei gerðust hér fyrir
fimm sex árum.
„Við fengum 10 laxa og það rættist
úr þessu seinni hálfa daginn, Sauða-
neskvörnin gaf okkur þá flesta,“
sagði Pétur Pétursson en hann var
að koma úr Laxá á Ásum við fjórða
mann.
„Það eru ekki margir laxar í ánni
en þeim mun meira af urriðatittum
og laxaseiðum, þetta ætti að verða
gott næstu sumur. Laxarnir, sem við
veiddum, voru flestir legnir en einn
var lúsugur.
Við höfðum fregnir af því í gær að
næstu veiðimenn á eftir Pétri og
þeim hefðu fengið 26 laxa á tveimur
dögum. Þetta þýðir að Laxá á Ásum
er komin í 180 laxa.
8 punda bleikjur
í Gufudalsá
Veiðimenn, sem voru að koma úr
Gufudalsá, veiddu 40 bleikjur og þær
stærstu voru 3 pund. En veiðimenn
reyndu við 6 til 8 punda bleikjur á
Breiðunni fyrir neðan fossa upp frá.
Það er betra að fara sparlega með
maðkinn þessa dagana þvi ekki er
til of mikið af honum. Reyndar þarf
nú fleiri laxa í árnar til að éta þá,
blessaða, en afæturnar eru alltaf
fyrir hendi og þær þurfa sitt.
DV-mynd G.Bender
- 8 punda bleikjur í Gufudalsá
Þarna voru stórar torfur af svona
vænum bleikjum en þær tóku illa,“
sagði Pétur ennfremur.
Selá og Hofsá hnífjafnar
með 20 laxa
„Selá og Hofsá í Vopnafirði eru
hnífjafnar þessa dagana, hafa gefið
20 laxa,“ sagði Eiríkur Sveinsson á
Akureyri er við spurðum frétta af
veiði.
„í Selá er hann 12 punda sá stærsti
og veiddi Jörundur Ragnarsson lax-
inn á tóbý á Fossbroti. í Hofsá er
hann 16 punda sá stærsti og veiddi
Ástþór Björnsson fiskinn í veiði-
staðnum Skorarhyl. Bandaríkja-
menn eru við veiðar þessa dagana í
Hofsá og veiddu fyrsta hálfa daginn
þrjá laxa á fluguna. í Fnjóská í
Fnjóskadal eru komnir 16 laxar og
hann er 14 pund sá stærsti. Sigþór
Gunnarsson veiddi fiskinn á tóbý,“
sagði Eiríkur ennfremur.
300laxar í
gegnum teljarann
„Eg held að þetta sé aö koma í Ell-
iðaánum enda komu síöasta sólar-
hring 300 laxar í gegnum teljarann,"
sagði Jón G. Baldvinsson, formaður
Stanagveiðifélags Reykjavíkur í gær-
kveldi.
„Elliðaárnar hafa gefið 120 laxa og
næstu dagar ættu að gefa eitthvað,"
sagði Jón ennfremur.
-G.Bender
Hækkar
maðkurinn í
verði í dag?
„Ég sel maðkinn á 25 krónur eins
og er en hann hækkar örugglega í
verði á morgun, líka ef það gengur
eins illa að tína og í nótt,“ sagði
maðkasali í samtali við DV í gær-
kvöldi. Verðiö á maðkinum er í lagi
eins og er en það gæti hækkað veru-
lega í dag. Smáskúrinn, sem kom í
fyrrakvöld, lækkaði verðið verulega.
Maðkasalar, sem DV ræddi við
gærkvöldi, seldu maðkinn á 25 kr.
en einn seldi hann á 30 krónur. Það
er reyndar mjög gott því að í mesta
þurrkinum fyrir nokkru var maðk-
urinn kominn í 90 krónur.
„Maðkurinn er allur búinn hjá
okkur og hvert verðið verður á morg-
un ráðum viö alls engu um heldur
maðkasalarnir," sagði afgreiðslu-
maður í sportvörubúð í gærkvöldi
og hann vissi ekki einu sinni hvort
maðkur yrði til í morgunsárið.
-G.Bender
Hann var sigri hrósandi spánski veiðimaðurinn sem var við veiðar í Laxá
á Ásum i vikunni og veiddi þessa fjóra laxa á stuttum tima. Laxá á Ásum
hafði gefið 180 laxa i gærkvöldi. DV-mynd Ágúst Sig
Korpa komin
í 24 laxa
„Korpa er komin í 24 laxa og
núna fyrir hádegi veiddust fjórir
laxar," sagöi Rafn Eyfells, veiði-
vörður í Korpu, í gærmorgun.
„Mánudagurinn gaf 10 laxa og
það er gott, laxinn er að hellast upp
í ána þessa dagana. Flestir eru lax-
arnir 4 og 5 pund. Hvannadalsá
hefur gefið 7 laxa og laxarnir eru
flestir smáir þar,“ sagði Rafn enn-
fremur.
-G.Bender
Fjölmidlar
Sú var tíðin að ég var hinn frækn-
asti íþróttagarpur. Frá því á barns-
aldri og langt fram á unglingsárin
æfði ég og keppti í knattspyrnu með
A-liöum KR í fimmta, Qórða og
þriðja fiokki. Væri ég ekki í vinn-
unni, skólanum eða sofandí var í
fótbolta. Ég gathlaupið þindarlaust
og endalaust og fannst reyndar ekk-
ertsjálfsagðara.
Nu trúir þessu ekki nokkur maður
hafi hann ekki þekkt mig á árum
áður en svona var þaö nú samt
En svo sprakk í mér botnlanginn.
Skömmu síðar fór ég i menntaskóla
og fór þá eins og annað ungt fólk
að hafa ískyggilegar áhyggjur af
þessum spillta heimi sem við lifum
í. Þá þóttu þeir skarpastir og hafa
mestar áhyggjurnar sem minnst
skeyttu um eigin hag og heilsu.
Hamingjusöm hreystimenni áttu
ekki upp á pallborðið í þá daga. Slik-
ir heilalausir sjálfsdýrkendur hlutu
að enda í lögreglunni eða sem dyra-
verðir en þessar tvær stéttir voru
óvinir mannkyns númer eitt og tvö.
En nú hefur enn skipast veður í
lofti. Nú er enginn maður með
mönnum nema hlaupa um bæinn
þveran og endilangan með hlaupið
eittaðmarkmiðL
Um þetta var ég að hugsa þegar
ég horfði á íslenkan áróðursþátt fyr-
ir alraenningsíþróttum sem endur-
sýndur var í ríkissjónvarpinu siðast
á dagskráxmi í gærkvöldi. Þar var
ekkert til sparað til að hrista af mér
slenið. Hamingjusamir menn í heit-
um pottum dásömuöu útivist og
hreyfingu, félagsfræðingur sannaði
uppeldisfræðilegt gildi íþróttanna
og sálfræðingur gaf það lævíslega í
skyn að hún sé meira en lítiö brengl-
uð, sjálfsvitund okkar, þessara fáu
sem enn þráast við aö fara í trimm-
gallann.
Ég ætla ekki að stíga á stokk hér
á síðum blaðsins. En ég sé hvert
stefhir. Áðuren sumarið er úti verð
ég kominn i trimmgallann sem kon-
an mín gaf mér í afmælisgjöf og far-
inn að hlaupa eftir heilsunni og
hamingjunni. Svonabreytast
tímarnir og mennimir með.
Kjartan Gunnar Kjartansson
Veður
Austan- og norðaustangola eða kaldi um mestallt
land, víða súld eða þokumóða austanlands og á
annesjum norðanlands en bjartviðri á Suðvestur- og
Vesturlandi. Hiti 5-12 stig norðan- og austanlands,
en 10-20 stig sunnan til á landinu.
Akureyri alskýjað 11
Egilsstaðir alskýjað 8
Kefla víkurflug völlur þokumóða 11
Kirkjubæjarklaustur skýjað 12
Raufarhöfn súld 8
Reykjavík þokumóða 11
Vestmannaeyjar súld 11
Bergen rigning 13
Helsinki hálfskýjað 21
Kaupmannahöfn skýjað 16
Úsló skúr 16
Stokkhólmur skýjað 18
Þórshöfn hálfskýjað 12
Amsterdam þokumóða 16
Barcelona léttskýjað 19
Berlin hálfskýjað 16
Chicago léttskýjað 16
Feneyjar þokumóða 22
Frankfurt skýjað 17
Glasgow skýjað 12
Hamborg skýjað 15
London skýjað 14
LosAngeles skýjað 17
Lúxemborg léttskýjað 15
Madrid léttskýjað 20
Malaga heiðskírt 21
Mallorca léttskýjað 20
Montreal heiðskírt 14
New York hálfskýjað 22
Nuuk þoka 3
Orlando skýjað 25
París hálfskýjað 15
Valencia léttskýjað 20
Vin skýjað 21
Winnipeg léttskýjað 17
Gengið
Gengisskráning nr. 128. — 10. Júlí 1991 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 63,250 63,410 63,050
Pund 102,304 102,563 102,516
Kan. dollar 55,093 55,233 55,198
Dönsk kr. 8,9812 9,0039 9,0265
Norsk kr. 8,9009 8,9234 8.9388
Sænsk kr. 9,6015 9.6258 9,6517
Fi. mark 14,4522 14,4887 14,7158
Fra. franki 10,2408 10,2667 10,2914
Belg. franki 1,6876 1,6918 1,6936
Sviss. franki 40,0748 40,1761 40,4750
Holl. gyllini 30,8469 30,9249 30,9562
Þýskt mark 34,7375 34,8254 34,8680
It. líra 0,04668 0,04680 0,04685
Aust. sch. 4,9393 4,9518 4,9558
Port. escudo 0,3994 0,4004 0,3998
Spá. peseti 0,5527 0,5541 0,5562
Jap. yen 0,45587 0,45703 0,45654
irskt pund 92,936 93,171 93,330
SDR 82,9119 83,1216 82,9353
ECU 71,3776 71,5582 71,6563
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Fiskmarkaðimir
Faxamarkaður
9. júlí seldust alls 73,347 tonn.
Magní Verð í krónum
tonnum Meöal Lægsta Hæsta
Blandað 0,195 34,26 23,00 135,00
Grálúða 1,211 67,52 65,00 69,00
Karfi 23,466 18,54 20,00 30,00
Keila 0,079 28,00 28,00 28,00
Langa 1,896 51,72 47,00 55,00
Lúða 0,551 227,59 110,00 335,00
Lýsa 0,012 16,00 16,00 16,00
Saltfiskflök 0,250 114,50 110,00 120,00
Skarkoli 7,722 71,08 63,00 73,00
Sólkoli 0,248 64,00 64,00 64,00
Steinbitur 1,155 51,87 50,00 60,00
Þorskur, sl. 20,320 85,85 50,00 90,00
Ufsi 0,885 60,25 60,00 61,00
Undirmál 3,577 67,19 62,00 70,00
Ýsa.sl. 11,773 98,93 39,00 115,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
9. júli seldust alls 82,764 tonn.
Þorskur 56,868 90,20 30,00 99,00
Ýsa 2,592 87,87 84,00 105,00
Blandað 0,220 28,00 28,00 28,00
Öfugkjafta 0.532 15,00 15.00 15,00
Koli 0,463 70,00 70,00 70,00
Blálanga 0,500 55,00 55,00 55,00
Langlúra 0,435 45,00 45,00 45,00
Blálanga - 0,096 41,00 41,00 .41,00
1,007 50,00 50,00 50,00
1,318 54,40 49,00 56.00
Skötuselur 0,055 355,00 355,00 355,00
Skata 0,025 78,00 78,00 78,00
Karfi 9,222 31,23 29,00 35,00
0,183 240,44 100,00 300,00
Skarkoli 2,288 71,00 71,00 71,00
Steinbítur 0,686 47,67 34,00 52.00
Hlýri/steinb. 0,278 51,00 51,00 51,00
Ufsi 5,996 58,44 52,00 60,00
Fiskmarkaðurinn í Þorlákshöfn
9. iúlí seldust alls 33,861 tonn.
2,433 82,22 69,03 84,00
Ýsa.sl. 0,041 73,00 73,00 73,00
21,719 27,65 9,00 29,00
0,034 20,00 20,00 20,00
1,190 49,91 49,00 57,00
0,103 143,08 140,00 190,00
0,695 75,00 75,00 75,00
1,768 73,00 73,00 73,00
0,158 400,00 400,00 400,00
2,635 39,07 35,00 44,00
Ufsi 1,495 60,00 60,00 60,00
Undirmál. 1,631 65,00 65,00 65,00
freeMOMi.
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI • 653900