Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1991, Qupperneq 16
MÁNUpAGURm'mf mi.
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg, sími 13010
Bókhaldsstarf
Þjónustufyrirtæki í miöborginni óskar eftir starfs-
krafti til bókhaldsstarfa.
Starfið felst í merkingu bókhaldsskjala, tölvufærslum
og afstemmningum.
Upplýsingar um menntun og fyrri storf óskast sendar
DV, merkt „9695“, fyrir 29.07.91.
Meiming
Tónleikar í Listasafni Sigurjóns:
Báðir píanókvartettar
Mozarts í flutningi
alþjóðlegs kvartetts
Á þriðjudagstónleikum í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar annað kvöld
verða fluttir báðir píanókvartettar
Mozarts. Flytjendur eru Hlíf Sigur-
jónsdóttir fiðluleikari, David Tutt
píanóleikari frá Kanada og Sviss-
lendingarnir Christian Giger selló-
leikari og Lorenz Hasler víóluleikari.
Hlíf lauk einleikaraprófi frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík árið 1974
þar sem kennari hennar var Björn
Ólafsson. Næstu sex árin var nún við
framhaldsnám í Bandaríkjunum og
Kanada. Hlíf hefur haldið tónleika
víða og hefur starfað með erlendum
kammersveitum, meðal annars í
Þýskalandi og Sviss. Hlíf hefur veriö
konsertmeistari íslensku hljómsveit-
arinnar, íslensku óperunnar og
Kammersveitar Seltjarnarness og
hefur leikið einleik við mörg tæki-
færi, meðal annars með Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
David Tutt hefur oft haldið tónleika
á íslandi. Hann stundaði píanónám
í heimalandi sínu, Kanada, en lauk
BA-prófi frá háskólanum í fndiana.
Kennari hans var Georgy Sebok.
David hefur unnið til margra verð-
launa og hefur leikið einleik með sin-
fóníuhljómsveitinni í Toronto, Ed-
monton og Calgary og með útvarps-
hljómsveitinni í Búdapest. Áriö 1988
hélt hann einleikstónleika í Wigmore
Hall í London og gerði upptökur fyr-
ir BBC.
Christian Giger er nemandi hjá
prófessor Boris Pergamenschikow í
Hochschule fur Musik í Köln og hef-
ur auk þess numið kammertónlist
hjá Amadeus kvartettinum. Christ-
ian hefur unnið til fjölda verðlauna
og hefur meðal annars leikið einleik
með sinfóníuhljómsveitum í St. Gall-
en og Winterthur.
Hlíf, David og Christian hafa unnið
saman undanfarin ár og hafa komið
fram sem píanótríó bæði á íslandi
og í Sviss. A þriðjudagstónleikunum
bætist í hópinn svissneski fiölu- og
víóluleikarinn Lorenz Hasler, sem
mun vera íslendingum að góðu
kunnur því hann er félagi í kvintett-
inum I Salonisti, sem lék í Listasafni
Sigurjóns á Listahátíð í fyrra við frá-
bærar undirtektir. Lorenz Hasler er
nýkominn úr tónleikaferð með I Sal-
onisti til Parísar en hópurinn ferðast
víða um heim.
ÖKUMENN
Athugið að til þess að við komumst ferða okkar þurfum við að losna
við bifreiðar af gangstéttum. Kærar þakkir.
~\ Blindir og sjónskertir.
Bandarísk
sveifla í
miðbænum
„Það er lítil munur á að skemmta
Reykvíkingum og New York búum,“
segir bandaríska söngkonan og
píanóleikarinn Karen Tanbom sem
þessa dagana skemmtir á Café Operu
í Lækjargötu. Tanborn, sem hefur
mikið starfaö sem klúbbsöngkona í
New York, syngur og leikur fyrir
matargesti og aðra gesti á Café Operu
hvert kvöld og hefur vakiö athygli
fyrir skemmtilegan og fágaðan flutn-
ing á þekktum standördum. Þá hefur
húspíanistinn á veitingastaðnum,
hinn snjalli Guðmundur Ingólfsson,
einnig tekið lag og lag með henni.
Karen Tanborn verður á Café Operu
út þessa viku. Aðspurð kvaðs Tan-
born líkavel dvölin hér á landi og
fara í sund á hverjum degi.
-HK
Karen Tanborn við pianóið á Café Operu.
Tvær nýjar Úrvalsbækur:
Lömbin þagna og Falin markmið
NÝKOMID!
Gullfallegir
skotloklcar.
Mikið úrval,
stórir og litlir.
Gerum göt í eyru
SPORTFATriAÐUR
Gott úrval
af frábærum
fatnaði
á verði
sem allir
ráða við.
Ath.
Margar
fleiri
tegundir.
^ Blindrafélagið
Þessa dagana er sýnd við mikla
aðsókn hér á landi sem og annars
staðar kvikmyndin Lömbin þagna
(The Silence of the Lamb). Kvikmynd
þessi er gerð eftir samnefndri met-
sölubók sem er önnur tveggja bóka
sem eru að koma út hjá Úrvalsbók-
um þessa dagana. Hin bókin er einn-
ig spennusaga og nefnist Falin
markmið.
Lömbin þagna, sem er eftir Thomas
Harris, hefur verið metsölubók aust-
an hafs og vestan frá því hún fyrst
kom út 1988 og er hana enn að finna
á listum yfir metsölubækur erlendis.
Söguþráðurinn er í stuttu máli á þá
lund að geðveikur fjöldamorðingi
gengur laus. Annar fjöldamorðingi
er í haldi, Hannibal Lecter geðlækn-
ir, dæmdur til lífstíðardvalar á geð-
veikrahæli. Hann býr yfir vitneskju
sem getur orðið til að binda enda á
atferli hins. En það er ekki fyrir
hvern sem er að ná sambandi við
Lecter. Clarice Starling, nemi í lög-
regluskóla FBI, ung og óhörönuð
verður til þess að brjóta ísinn. Sam-
skipti Clarice Starling og Hannibals
Lecters og sagan sem þau leiða okkur
inn í eru magnþrungin átök milli
góðs og ills. Þess má geta að það eru
aöeins tveir mánuðir liðnir frá því
að vilyrði fékkst fyrir útgáfurétti á
þessari metsölubók.
Falin markmið heitir á frummál-
inu Hidden Agenda og er eftir Anna
Porter. Þegar þekktur bókaútgefandi
bíður bana undir neðanjarðarlest lít-
ur lögreglan aðeins á það sem slys
eða kannski sjálfsvíg. Blaðamaður-
inn Judith er fráskilin tveggja barna
móðir og á þar að auki við erfiða
móður sjálf. Hún hefur því lítinn
áhuga á að flækjast í rannsókn á
dauðsfalli. En hún getur ekki varist
þeirri áleitnu hugsun að Harris hafi
veriö myrtur og vill fá að vita hvers
vegna. Morð á öðrum gildum útgef-
anda í New York verður til þess að
Judith og Marsha, vinkona hennar,
lenda í hringiðu rannsóknarinnar á
vitsmunalegum átökum við öfluga
óvini sem einskis svífast.
Kvikmyndin Lömbin þagna er sýnd um þessar mundir vió mikla vinsældir í Háskólabiói. Á myndinni eru aðalleik-
ararnir, Anthony Hopkins, Jodie Foster og Scott Glen. Bókin, sem er ekki síður spennandi en myndin, er nú komin út
á íslensku.
Nú er hægt að hringja inn
smáauglýsingar og greiða
með korti.
nafn þitt og heimilisfang,
síma, kennitölu og
gildistíma og númer
greiðslukorts.
•
Hámark kortaúttektar
í síma kr. 6.000,-
•
SMÁAUGLÝSINGADEILD
ÞVERHOLTI 11
SÍMI 27022
1’OriY 520 I.IPIDA 592 AriMA 507 OpÍÖ frá kl 10-16
KR. 4.233 KR. 2.980 KR. 3.984 laugardaga
H li «1 VERKSMIÐJUVERSLUn SKIPHOLTI37 - SÍMAR 31515 OQ 31516