Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1991.
DV
Fréttir
Dýrt aö sjá íslenska stafi 1 textavarpi Sjónvarpsins:
Þ og ð kosta ekki
undir 20 þúsundum
- umboðsaðilar sjónvarpstækja vakna upp við vondan draum
Þeir sem lesa texta textavarpsins verða fljótt varir við að íslensku bókstaf-
ina þ, ð og ý vantar. Móttökutæki sjónvarpa fyrir textavarp skilja fæst is-
lensku og sem stendur þýða úrbætur þar á, fyrir 2-3 ára gömul tæki, ekki
minna en 20 þúsund króna verkstæðisreikning.
DV-mynd GVA
„Það er heilmikið mál að breyta
móttökutækjum sjónvarpstækja fyr-
ir textavarp þannig að áhorfendur
sjái íslenska stafi. Þetta er því meira
vandamál því eldri sem sjónvarps-
tækin eru. Á þriggja ára tæki kostar
það aldrei undir 20 þúsund krónum
að fá íslensku stafina en mun minna
á nýjustu og bestu tækjunum," sagði
Jakob Kristinsson hjá verkstæði
Heimilistækja í samtali við DV.
Sjónvarpið mun hefja reglulegar
útsendingar textavarps um mánaða-
mótin, en textavarp sendir alis kyns
upplýsingar til sjónvarpsáhorfenda á
textaformi. Þúsundir sjónvarpstækja
með sérstöku móttökutæki fyrir
textavarp hafa verið seld hér á landi.
Sá galh er hins vegar á gjöf Njarðar,
fyrir utan örfá splunkuný tæki, að
móttökutækið er miðað við alþjóð-
legan staöai og sjást þvi ekki íslensk-
ir stafir eins og þ og ö á skjánum.
Eftir að tilraunaútsendingar texta-
varps hófust á dögunum hefur sím-
inn ekki þagnað hjá umboðsaðilum
sjónvarpstækja. Hefur fólk kvartað
yfir að sjá ekki íslenska stafi og vill
fá leiðréttingu.
í viðtali við nokkra umboðsaðila
fyrir sjónvörp kom fram að verið
væri að kanna hvort kippa megi
þessu máli í liðinn. Af viðtölum þess-
um aö dæma virðist óljóst hvenær
það getur oröiö, hve mikið þaö mun
kosta og hvort það muni borga sig
yfir höfuð. Ef íslenskir staflr eiga að
fást á skjáinn mun það kosta heim-
sókn á verkstæði og veruleg fjárút-
lát. Bókstafimir þ og ð eru dýrir en
ý mun vera sérlega dýrt. Fyrir mjög
góð tæki, Sem keypt eru í dag, ætti
aðgerðin hins vegar ekki aö kosta
kaupandann neitt.
Stórfyrirtækið Philips er lang-
stærsti framleiðandi móttökutækja í
sjónvarpstæki fyrir textavarp í
heiminum en ITT framleiðir einnig
slík tæki. Fyrir nokkrum árum eyddi
Philips fé í að gera ráð fyrir sérþörf-
um vegna málasvæða og voru nauð-
synlegar aðgerðir þá framkvæmdar
í eitt skipti fyrir öll með önnur mál-
svæði en ísland í huga.
Alfreð Halldórsson, tæknifræðing-
ur hjá Sjónvarpinu, sagði að seljend-
ur hér þyrftu að segja framleiðand-
anum eða dreifingaraðilanum er-
lendis að tækin .eigi að fá íslenskt
stafakerfi. Þeir aðilar gætu síðan
snúið sér til framleiðenda móttöku-
tækjanna er myndu síðan útvega
„kubb“ fyrir íslenskt stafakerfi.
„Ef fólk er að fá sér sjónvarp með
möguleika fyrir textavarp og þvi er
sagt að íslenskir stafir eigi að sjást á
það að biðja um að fá að sjá þá. Til-
raunaútsendingar okkar nú gefa
mönnum kost á að leiðrétta stafsetn-
inguna fyrir 30. september," sagði
Alfreð.
Fram kom hjá viðmælendum DV
að ef fólki væru seld tæki í þeirri trú
að íslenskir stafir kæmu í textavarpi
en kæmu síðan ekki ætti það kröfu
á áð.fá íslenska stafi.setta i tækin sér
að.kostnaðarlausu.
-hlh
DV-mynd Reynir
Innbyrti
risalúðu á
handfæri
Reynir Traustason, DV, nateyri;
Trausti Bjarnason á Nökkva ÍS
setti heldur betur i þann stóra á
dögunum þegar hann innbyrti
stórlúðu sem hann fékk á hand-
færi 25 sjómílur út af Barða. Það
var þriggja tíma bamingur að ná
lúöunni innfyrir og þurfti. Trausti
að fá aöstoð félaga síns á næsta
bát við að innbyröa fiskinn. Stórl-
úðan reyndist vera 2,18 metrar á
lengd og 140 kg þung.
Það er ntjög sjaldgæft að svo
stór fiskur náist á handfæri án
þess þó að fullyrt sé að um fiins-
dæmi sé að ræða. Þess má til
gamans geta að sjómenn líta
gjaman á það sem tákn um frjó-
semi viðkomandi veiðimanns ef
hann setur i lúðu; svo nú er bara
að bíða og sjá hvað næsta framtíð
ber í skauti sér fyrir Trausta á
Nökkva.
Þannig lítur likanið af Atlant-
ique-hraðiestinni út.
Frönsk vömkynning:
Líkanaf
hraðlest í
Kringlunni
Á franskri vörusýningu, sem
verður í næstu viku í Kringl-
unni, verður meðal annars komið
fyrir líkani af TVG Atlantique-
hraðlestinni fyrir framan Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundsson-
ar.
Vömkynning þessi er fjár-
mögnuö af franska utanríkis-
ráöuneytinu með aöild kaup-
stefnudeildar útflutningsráðs
Frakklands. Þá munu flest þau
íslensk fyrirtæki, sem flytja inn
franskar vömr, veröa með kynn-
ingarbása.
Einnig verður Alliance Fran-
cais með bás þar sem hægt verður
að skrá sig í námskeiö á vegum
félagsins.
-HK
Gunnar Stefánsson við Pajero-jeppann sem hann keypti á föstudaginn í
síðustu viku. Skemmdarvargar rispuðu bilinn eftir endilangri hliðinni með
einhvers konar bitjárni að þvi er talið er. DV-mynd S
Bifreið Gunnars Stefánssonar skemmd við Arahóla 4:
Heitir 30 þúsundum þeim
sem upplýsir málið
- mikið um skemmdarverk á bílum í hverfinu
„Það er slæmt að verða fyrir þessu.
Ég keypti bílinn á fostudaginn í síö-
ustu viku. Þetta er örugglega tíón
upp á 150 þúsund krónur. I hverfinu
hjá mér eru skemmdarverk á bílum
tíð. Þar sem ég á heima, í Arahólum
4, hafa mjög margir bíleigendur orðið
fyrir skemmdarverkum eins og þess-
um. Þetta hefur líka verið við húsiö
númer 2. Á sumum bílanna hafa báð-
ar hliöamar verði skemmdar," sagöi
Gunnar Stefánsson, eigandi Pajero-
jeppa sem var rispaöur eftir endi-
langri hliðinni aðfaranótt fimmtu-
dagsins, greinilega meö einhvers
konar bitjámi.
„Ég heiti hverjum þeim 30 þúsund
krónum sem getur gefið upplýsingar
um hver þama var að verki. Það er
mikilvægt að þetta upplýsist því það
Erf itt að f inna
annan skóla
fyrir nemendur
- segir skólastjóri Reykjanesskóla sem verður lokað
er búinn að vera faraldur í gangi.
Ég gæti trúað að um það bil annar
hver bíll við húsið, sem ég bý í, hafi
oröið fyrir svipuðu og þessu. Það lít-
ur út fyrir að skemmdarvargarnir
velji verðmætustu bílana úr.
„Mözdu-drusla“, sem ég átti á undan
þessum, var að minnsta kosti ekkert
skemmd. Ég var að segja við konuna
að kannski ætti maður bara aö kaupa
sér Volkswagen-bjöllu og renna svo
bara yfir hana með rúllu ef hún verö-
ur rispuð," sagöi Gunnar Stefánsson.
Hann hefur tilkynnt lögreglu um
skemmdirnar á bílnum. Þeir sem
geta gefiö upplýsingar um máliö eru
beönir um að hafa samband við
rannsóknadeild lögreglunnar í
Reykjavík.
-ÓTT
„Það verður mjög erfitt að finna
skóla sem getur tekið viö þeim sex
nemendum í áttunda bekk sem sótt
höfðu um skólavist. Reykjanesskóli
var alfarið ríkisrekinn skóli og sá
eini á svæðinu sem tók við nemend-
um alls staðar að. Það eru reyndar
margir heimavistarskólar á landinu
fyrir áttunda bekk en þeir eru reknir
af viökomandi sveitarfélögum, fyrir
nemendur sveitarinnar. Níunda
bekkjar nemendur, sem sótt höfðu
um skólavist, geta komist að á Laug-
arvatni en ekki allir þeir tólf sem
sóttu um. Meiri möguleikar eru hins
vegar fyrir nemendur tíunda bekkj-
ar. Ég er að tilkynna foreldrum
ákvörðun ráðherra núna og vinna
aö því að leysa mál nemendanna,"
sagði Þorkell 'ngimarsson, skóla-
stjóri Reykjanesskóla, í samtali við
DY-
Ákvörðun Ólafs G. Einarssonar
menntamálaráðherra að leggja Hér-
aðsskólann í Reykjanesi við Isafjarð-
ardjúp niður stendur óbreytt. Ráðnir
höfðu verið tveir kennarar og einn
skólastjóri að skólanum en á þriðja
tug nemenda höfðu sótt um skólavist
í vetur. Þorkell er jafnframt skóla-
stjóri grunnskólans í Reykjanesi en
kennararnir tveir eru atvinnulausir
en á launum.
Ólafur Amarson, aðstoðarmaður
menntamálaráðherra, sagði að hægt
yrði að finna önnur sambærileg störf
fyrir kennarana, sem ráönir höfðu
verið, eða semja um starfslok við þá.
Hann sagði að kostnaður hlytist allt-
af af lokun skóla en í þessu tilfelli
væri hann ekki mikill. Umsjónar-
maður húseigna er ráðinn allt árið
og mun gæta húsanna.
Matthías Bjarnason, þingmaöur
Vestfirðinga, hefur harðlega gagn-
rýnt ráðherrann og segir hann vega
stórkostlega að byggð á Vestfjörðum
með ákvöröun sinni. Ólafur vildi
ekki tjá sig sérstaklega um þá hlið
málsins en sagði einungis að byggða-
mál heyrðu undir forsætisráðuneyt-
ið. Hann útilokaði ekki að skólinn
starfaðiánæstaári. -hlh
Veiðiþjóf ar gripnir
Lögreglan í Rangárvallasýslu hef-
ur tvisvar með stuttu millibili gripiö
veiðiþjófa sem höfðu komið neti fyrir
i Rangá og Þórisvatni.
Hringt var í lögregluna og henni
tilkynnt aö tveir menn, sem til-
heyrðu stærri hópi manna sem tók
Rangá á leigu þennan dag, hefðu sett
út net. Þeir voru færðir til yfir-
heyrslu og eins þeir sem staðnir voru
að verki viö Þórisvatn.
-ingo