Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1991, 25 Eiginkonan lagfærð: Brjóstin stækkuðu, maginn og lærin minnkuðu eftir lýta- lækningar Þegar skurðlæknirinn Jan Sæt- her kvæntist Grethe sinni var hún kannski í þykkasta lagi þó hann setti það ekki beint fyrir sig. En Grethe var ekkert sérlega ánægð með sig. Henni fannst hún vera með reiðbuxnalæri, þung augnlok og lítil brjóst. Grethe Sæther, sem býr í Árhus í Danmörku, getur nú þakkað eig- inmanninum að hún lítur út eins og glæný manneskja. Hún hefur stinn og falleg silikonbrjóst sem eru einmitt eins og allar konur vilja hafa þau. Maginn er flatur og lærin grönn, hálsinn rennilegur og engir pokar í kringum augun. Hún er 37 ára gömul og lítur glæsilega út. Með silikoni og fitusogi hefur Jan Sæther búið Grethe nánast til upp á nýtt og formað hana eftir hennar höfði. „Grethe var svolítið þybbin þegar við kynntumst en það skipti engu máh fyrir mig. Ég varð samt ástfanginn af henni,“ segir hann. En Grethe var ekki ánægð með sig. „Ég var dauðþreytt á reið- buxnalærunum mínum, útstand- andi maganum og fitu hér og þar. Brjóstin voru eins og tveir kaffi- pokar með 25 eyringum hangandi í,“ segir hún. Jan, sem er skurðlæknir, þótti jafnsjálfsagt að hjálpa Grethe eins og þegar útvarpssali gefur eigin- konunnf vasadiskó. „Það er ekki bara útlitið sem hefur breyst með þessum aðgerðum. Sálarástand Grethe gjörbreyttist. Hún varð opnari og lífsglaðari. Ég er alltaf að kynnast nýjum hliðum á henni. Hún er glaðari svo aðgerðirnar hafa gjörbreytt lífi hennar," segir Jan. Grethe er skurðhjúkrunarfræð- ingur og starfar á sama stað og Jan. Þau byrjuðu að búa saman árið 1989 og ári síðar giftu þau sig. Ástarsaga þeirra er eins og tekin úr spítalaróman. „Við kynntumst á sjúkrahúsi," segir Grethe. „Jan var giftur og árið 1986 flutti hann ásamt eiginkonunni í annan bæ þar sem hann setti upp læknastofu. Ég sagði þegar hann fór að ef hann vildi einhverntíma hafa samband við mig þá gæti hann hringt." Það leið hálft annað ár en þá hringdi Jan í Grethe og bað hana að koma. Hann var þá skilinn." Jan ítrekar að allar þær breyting- ar sem hann hafi gert á Grethe séu Fyrir Eins og sjá má á myndunum fyrir og eftir hefur prófíll Grethe gjör- breyst eftir að eiginmaðurinn lag- aði útlitið. Jan Sæther skurðlæknir breytti eiginkonunni i glæsilega konu. Hann notaði sprautu til að fylla brjóstin með silikoni en slík að- gerð kostar nálægt tvö hundruð þúsund krónum. allar að hennar ósk. „Það var ekki ég sem óskaði eftir að hún hefði stærri brjóst. Hún fékk þau samt í afmælisgjöf frá mér.“ „Maður á kannski ekki að vera að breyta því sem er náttúrlegt en fyrir mig hefur það breytt miklu. Reyndar getur maður sjálfur reynt að ná fitu af maga og lærum en ekki lagað brjóstin. Nú er ég ánægð með mig. Meira að segja var blístr- að á eftir mér þegar ég kom í vinn- una í morgun. Það segir sitt.“ SÖNGSVEITIN FÍLHARMÓNÍA efnir til námskeiðs til undirbúnings á starfi komandi vetrar dagana 11. til 25. september. Kennd verður raddbeiting, nótnalestur og sungin verða kórlög frá ýmsum tímum. Námskeiðið verður haldið í sal Tónlistarskóla FÍH, Rauðagerði 27. Kennarar: Úlrik Ólason, Elísabet Erlingsdóttir og Jó- hanna Lövdahl. Skráning fyrir 9. september í símum 53335, 611165 og 39119. Allir áhugasamir um kórsöng velkomnir. SONGVAKEPRNI SJÖNVARPSSTOÐVA EVROPU 1992 Ríkisútvarpið - Sjónvarp auglýsir hér með eftir sönglagi til þátttöku í Söngva- keppni sjónvarpsstöðva Evrópu 1992 sem fram fer í Svíþjóð í maí. Undankeppn- in fer fram í Sjónvarpinu í janúar og febrúar. Þátttökuskilyrði Þátttaka er öllum heimil. Laginu skal skila á nólum eða hljóðsnældu og má það taka allt að þrjár mínútur í flutningi. Frumsaminn texti á islensku skal fylgja. Lagið má ekki hafa komið út á nótum. hljómplötu, snældu eða mynd- bandi og það má ekki hafa verið leikið í útvarpi eða sjónvarpi. Nótur, snælda og texti skulu merkt heiti lagsins og dulnefni höfundar. Rétt nafn höfundar, heimilisfang og símanúmer skulu fylgja með í lokuðu umslagi sem merkt skal sama dulnefni. Ríkisútvarpið áskilur sér einkarétt á flutningi laganna í útvarpi og sjónvarpi meðan á keppninni stendur. Verðlaun verða 200 þúsund krónur fyrir sigurlagið ásamt ferð fyrir höfund lags og texta til að vera viðstaddir úrslitakeppnina i Svíþjóð. Séu höfundar tveir eða fleiri skiptast verðlaunin milli þeirra eins og úthlutunarreglur STEFS segja til um. Sigurlagið verður framlag íslenska Sjónvarpsins til Söngvakeppni sjónvarps- stöðva Evrópu 1992. Nánari upplýsingar um tilhögun keppninnar veitir dagskrárstjóri innlendrar dagskrárdeildar Sjónvarpsins, sími 693731, Laugavegi 176, Reykjavík. . ^^~T~ Utanáskrift er Ríkisútvarpið - Sjónvarp, „söngvakeppnin 1992“, Laugavegi 176, 105 REYKJAVÍK Skilafrestur er til 15. nóvember 1991 .TT SJONVARPIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.