Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Side 5
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1991.
5
Fréttir
Skolpræsið liggur alveg 1 Qöruborðinu 1 Sandgerði:
Moka þarf reglu
lega frá ræsinu
OPIÐ LAUGARDAGA
BlLDSHÖFÐA 20 112 REYKJAVlK - SlMI 91-681199 - FAX 91-673511
„Þaö þarf yfirleitt að moka frá
skolpræsinu hérna eftir vont veður,
sérstaklega eftir vestanátt, því þaö
vantar verulega upp á að skolpræsið
sé leitt nógu langt út í sjó,“ sagði
Stefán Jón Bjarnason, bæjarstjóri í
Sandgerði, í samtali við DV.
„Skolplagnir hér eru alveg í stór-
straumsfjöruborðinu þannig að á
helstu fjörum koma þær hreinlega
upp úr. En við erum ekkert að moka
frá þessu langt uppi á landi, vélarnar
eru á kafi í sjó.
Viö erum fyrir opnu hafi hérna
vestanmegin á nesinu og það berst
því náttúrlega mikið af sandi og þara
hingað með sjónum sem stíflar rás-
irnar svo nauðsynlegt er aö verka frá
þeim,“ sagði Stefán.
Hann sagði að það stæði til að ráða
bót á þessu en vildi ekki tímasetja
það nákvæmlega.
„Við erum að tala þarna um ein-
hverja tuga eða hundraða milljóna
framkvæmd í heildina svo það er
ekki hægt að segja til um hvenær af
henni verður.
Við vorum með áætlanir um að
byrja á þessu núna í ár, fara í hönn-
un á útrásum og finna út hvernig við
ætlum að leysa málið og það er nán-
ast í þeim sporum núna.
Þetta er nú samt forgangsverkefni
hjá okkur því þetta er búiö aö bíða
svo lengi og vandamáliö er sífellt að
aukast með aukinni byggð.“
Aðspurður sagði Jóhann Sveins-
son, sem gegnir starfi framkvæmda-
stjóra hjá Heilbrigðiseftirliti Suður-
nesja, að ástandið væri einna verst í
Sandgerði því skolpræsin koma
hvergi annars staðar upp á yfirborð-
ið þegar íjarar.
„Þetta er vandamál sem við vitum
vel af. Við höfum farið fram á það
við sveitarstjórnina að gerðar verði
úrbætur því við verðum náttúrlega
að líta svo á að þetta sé heilsuspill-
StjómLÍN:
Ekkilántil
starfsnáms
„Það var samþykkt á fundi stjórnar
LÍN síðastliðinn þriðjudag að fram-
vegis muni sjóðurinn ekki veita lán
' til starfsnáms. Það er litiö á það sem
starfsnám þegar um launað starf er
að ræða og mánaðarlaunin sam-
* kvæmt náms- eða starfssamningi eru
hærri en grunnframfærsla sjóðsins,"
sagði Þórður Gunnar Valdimarsson,
framkvæmdastjóri Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna, LÍN, í samtali
viö DV.
Þórður sagði að fulltrúar iðnnema
hefðu mistúlkað þessa samþykkt í
byrjun því á tíma var því haldið fram
að allir iðn- og sérskólanemar væru
út úr kerfinu en það væri ekki raun-
in.
Þórður sagði að þrátt fyrir þessa
samþykkt væru allir iðnemar enn
innan lánakerfisins því að ekki væri
vitað um neinn iðnemataxta sem er
hærri en grunnframfærsla sjóðsins.
„Þannig að þetta eru í raun og veru
bara læknar í sérnámi enn sem kom-
ið er, þeir hafa ekki fengið lánað til
r starfsnáms.“
Aðspurður um ástæðu þessarar
samþykktar sagði Þórður að ef það
j: ætti að fara að draga saman seghn
þá væri mjög eðlilegt að taka þá að-
ila út sem gætu bjargað sér.
„Þaö er nú eiginlega hugmyndin
að tína þá aðila út sem gætu verið
án aðstoðar sjóðsins, fólk sem er á
launum í námi og fólk sem er í mjög
stuttu námi og gæti þess vegna fjár-
magnað það sjálft," sagöi Þórður.
-ingo
andi fyrir íbúana. En við höfum þó Sandgerði, heldur á öllum Suður-
ekki bara farið fram á úrbætur í nesjunum,“sagðiJóhann. -ingo
SUBARU LEGACY 4WD
FRÁBÆR FERÐABÍLL
til afgreiðslu strax
Subaru Legacy stallbakur
Subaru Legacy skutbíll
Búnaður í Subaru Legacy er m.a.
• Sítengt fjórhjóladrif og hátt og lágt drif.
• 16 ventla vélar, 1.8 eða 2.2L
• 14 tommu felgur. Dekk: 14 x 185.
• Sjálfstæð gormafjöðrun á hverju hjóli.
• Fimm gíra handskipting eða 4ra gíra sjálfskipting.
• Aflstýri og veltistýri.
• Samlæsing í hurðum og afturhlera.
• Rafdrifnar rúður með öryggislæsingum.
• Rafdrifnir speglar.
• Höfuðpúðar á aftursætum.
• Upphituð afturrúða með rúðuþurrku og sprautu.
• Þvottasprautur á ökuljósum.
• Aflhemlar, diskabremsur.
„Hill holder" samtenging bremsu og kúplingar í brekku
• Útvarpsloftnet og hátalarar í hurðum.
• Hæðarstilling ökuljósa í mælaborði.
Aktu ekki út í óvissuna. - Aktu á Subaru.
Subaru er náttúrukær.
Ingvar
Helgason ht
Sævarhöfða 2
sími 91-674000