Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1991.
Þýskukennsla
fyrir börn, 7-13 ára, verður í Hlíðaskóla í vetur. Innrit-
un fer fram laugardaginn 14. september kl. 10-12.
Germanía
----------------------------------\
ÚTBOÐ
Kjalvegur um Gullfoss
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagn-
ingu 2,0 km kafla á Kjalvegi um Gullfoss i Ár-
nessýslu.
Fyllingar og burðarlag T3.000 m3.
Verki skal að fullu lokið 15. júni 1992.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Selfossi og í Borgartúni 5 (aðalgjaldkera),
Reykjavik, frá og með 9. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 16. september 1991.
Vegamálastjóri
AUSTURSTRÆTI
PÓSTHÚSSTRÆTI
HAFNARSTRÆTI
LÆKJARGATA
AFGREIÐSLA
ft’
•» »’
BLAÐ
BURDARFÓLK
á öfáiÆ*w tddAA
A
Srk <•
ÞVERHOLTI 11
t t t
SIMI 27022
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Siðumúla 39 -108 Reykjavik - Sími 678500 - Fax 686270
ÞROSKAÞJÁLFI - MEÐFERÐARFULLTRÚI
Matgæðingur vikunnar
Búlgarskur kjöt-
réttur fyrir bömin
„Þennan rétt bý ég til fyrir börnin og það er aldrei afgang-
ur,“ sagði Jónas Bjömsson, trommuleikari og matgæðingur
vikunnar. Hann vildi ekki viðurkenna að hann væri sér-
fræðingur í eldhúsinu en sagðist þó oft hjálpa til við matseld-
ina. Jónas á fjögur börn á aldrinum frá 3ja ára upp í átján
og þá er gott að kunna að elda eithvað sem þeim líkar. Jón-
as staðhæfir að þessi réttur klikki aldrei. „Þetta er vinsæl-
asti réttur heimilisins þó agalegt sé að viðurkenna það fyr-
ir þjóðinni," sagði Jónas. Rétturinn hljóðar svona:
4 grófar brauðsneiðar
400 g nautahakk
4 sneiðar skinka
4 msk. tómatsósa
4 sneiðar paprika
sinnepsslettu laumað í
season all og aromat eftir smekk
4 egg - sletta af mjólk
rifmn ostur
Rífið brauðið smátt og setjið í eldfast mót. Bleytið í brauö-
inu með tómatsósunni og laumið sinnepi út í. Steikið nauta-
hakkið og setjið skinkuna og paprikuna út í ásamt krydd-
inu. Hrærið saman eggjunum og mjólkinni í glasi, hellið á
pönnu og hrærið í (hrærð egg). Setjið eggin og hakkið yfir
brauðið og þekið með osti. Bakist í ofni þar til osturinn er
bráðnaður. Borið fram með hrísgrjónum og fersku salati.
Jónas sagðist hafa haft gaman af því að verða fyrir áskor-
un en ekki trúað Eiríki Víkingssyni í fyrstu er hann sagð-
ist ætla að skora á hann. „Ég hélt hann væri að spauga í
fyrstu og trúði þessu ekki fyrr en ég sá þetta í blaðinu,"
sagði hann.
Þar sem Jónas var staddur á Árskógsströnd að spila um
síðustu helgi fékk hann heitar vöfílur með súkkulaðisósu
og rjóma. Þetta sagðist hann aldrei hafa smakkað fyrr en
verið hið mesta lostæti. Vöfflur með súkkulaði og ijóma
er vinsæl fæða á Árskógaströnd og Jónas vildi mæla með
henni í eftirrétt með búlgarska réttinum. Og að lokum sagð-
ist Jónas ætla að skora á Jón Ólafsson, bassaleikara í hljóm-
sveit Rúnars Þórs, að verða næsti matgæðingur. „Það er
svo gaman að gefa honum að borða.“
-ELA
Jónas Björnsson, trommuleikari og matgæðing-
ur vikunnar, ásamt syni sínum, Atla.
DV-mynd GVA
Hinhliðin
Fjölskylduheimili fatlaöra barna, Akurgerði 20, óskar
eftir að ráða þroskaþjálfa og meðferðarfulltrúa.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af starfi með
fötluðum börnum. Um er að ræða 90% starf, dag-,
kvöld- og helgarvaktir, og 35% starf við seinniparts-
vaktir.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
681311 og 21682. Umsóknarfrestur er til 20. sept-
ember nk.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást.
HREINLÆTISTÆKIÁ GÓÐU VERÐI
Sértilboð:
Salerni með þrýstihnapp
og harðri setu
+ vegghandlaug, 55x43,5
+ baðker, 170x73, super
(extra þykkt)
Allt þetta á kr. 29.900,-
Auk þess baðinnrétting með
25% afslætti
VATNSVIRKINN
Ármúla 21, símar 686455 - 685966
Skemmtilegast
að borða ís
- segir sterkasti maður f slands
Sigurvegari í kraftakeppninni
Sterkasti maður íslands, sem hald-
in var um síöastliðna helgi, varð
Magnús Ver Magnússon aflrauna-
maður. Magnús starfar hjá stál-
húsgagnafyrirtækinu Bíró-Steinar
hf. Helsta áhugamál Magnúsar er
„að taka á“. Hann kveðst ekki
þurfa að þeita kröftunum í vinn-
unni meira en aðrir starfsmenn en
geri það þeim mun meir í frístund-
um.
Magnúsi hefur verið boöið að
taka þátt í keppninni um sterkasta
mann heims sem haldin verður á
Tenerife í byijun október. Undir-
búningur fyrir þá keppni er þegar
hafinn og kveðst Magnús hafa litið
á keppnina um sterkasta mann ís-
lands sem góða æfingu.
Fullt nafn: Magnús Ver Magnús-
son.
Fæðingardagur og ár: 23. apríl 1963.
Maki: Lilja Bjamþórsdóttir.
Börn: Maríanna, þriggja ára.
Bifreið: Toyota Camry, árgerð 1985.
Starf: Ég smíða stálhúsgögn hjá
Bíró-Steinum hf. í Kópavogi.
Laun: Ég veit það nú ekki almenni-
lega.
Áhugamál: Aö taka á því. Hef jafn-
framt áhuga á íþróttum almennt.
Fer einstaka sinnum á völlinn og
hendi með strákunum.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Fjórar.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að þoröa ís.
Magnús Ver Magnússon.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að hlusta á mjög drukkið
fólk.
Uppáhaldsmatur: Grillaður kjúkl-
ingur og pastaréttir.
Uppáhaldsdrykkur: Próteindrykk-
urinn Infinity.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Ég hef mesta
trú á Pétri Guðmundssyni kúlu-
varpara.
Uppáhaldstimarit: Power Lifting
USA.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkonuna?
Anna Margrét Jónsdóttir sem varö
fegurðardrottning íslands 1987.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Andvígur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Whitney Houston.
Uppáhaldsleikari: Stephen Seagal.
Uppáhaldsleikkona: Kim Basinger.
Uppáhaldssöngvari: Whitney Ho-
uston.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Það
kemur enginn sérstakur upp í hug-
ann.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Viggó viðutan.
Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlutlaus.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? FM.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Gunn-
laugur Helgason.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég held að það sé nokk-
urn veginn jafnt.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ómar
Ragnarsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Gaukur
á Stöng.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? ÚÍA.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Að veröa besti afl-
raunamaður heims.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
dvaldist í sumarbústað í Borgar-
firði og fór svo austur á land og
keppti. Ég keppti einnig í Skotlandi
og Kanada þar sem mér gekk bara
nokkuðvel. -IBS