Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Síða 10
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1991. á\ DV-myndbandalistinn Islenska kvikmyndin Magnús, sem Þráinn Bertelsson leikstýrir, tekur stórt stökk á listanum þessa vikuna. Á myndinni er Egill Ólafsson en hann leikur titiihtutverkiö. 1 (1) The Rookie 2 (12) Magnús 3 (2) Almost an Angel 4 (5) Reversal of Fortune 5 (2) Memphis Belle 6 (4) Navy Seals 7 (■) Flight ot the Intruder 8 (-) Rocky 5 9 (-) Cover Up 10 (10) Child’s Play 2 11 (9) Fire Birds 12 (-) PumpuptheVolume 13 (6) Funny about Love 14 (8) Narrow Margin 15 (7) NeverEndingStoryll ★★★ Atvinnumorðingi á flótta THIS GUN FOR HIRE Útgefandi: ClC-myndbönd. . Lelkstjóri: Lou Antonio. Aöalhlutverk: Robert Wagner, Nancy Everhard og Frederick Lehne. Bandarísk, 1991 -sýningartimi 93min. Bönnuö börnum innan 16 ára. This Gun For Hire er gerð eftir klassískri sakamálasögu Grahams Greene og hefur hún verið kvik- mynduð tvisvar áður. Fyrst 1942, Nen þá lék AJan Ladd hlutverk leigu- morðingjans Raven, og síðan 1957 en leikstjóri að þeirri útgáfu, sem nefndist Short Cut to Hell, var leik- arinn þekkti, James Cagney. Þykir sú fyrri mun betri. Nú hefur verið gerð enn ein útgáfan af sögu þess- ari og fer Robert Wagner með hlut- verk atvinnumorðingjans. Það er góö tilbreyting að sjá hann í bita- stæðu hlutverki en á undanfórnum árum hefur hann nánast eingöngu leikið í misgóöum sjónvarpsseríum og oftast í hlutverki væminnar hetju. Hér sýnir Wagner að þegar hann fær krefjandi hlutverk stend- ur hann fyrir sínu. í byrjun kynnumst viö atvinnu- morðingjanum Raven við starf sitt. Hann hefur verið fenginn til að drepa, að því er honum er sagt, glæpamann. Það er ekki fyrr en hann er búinn að fremja morðið að hann kemst að því að fórnar- lambið er öldungadeildarþingmað- ur sem hafði beitt sér fyrir miklum umbótum í New Orleans þar sem sagan gerist og var harður baráttu- maður gegn spillingu í borginni. Raven gerir sér fljótt grein fyrir að hann er í mikilli hættu en getur samt ekki fengið af sér aö drepa eina vitniö sem er lítil stúlka í hjólastól. Eins og gefur að skilja sendir Iögreglan út allt sitt lið til að hafa uppi á morðingjanum en stúlkan hefur gofið greinargóða lýsingu á honum. Raven er því fljótlega eins og mús í gildru... Af sjónvarpsmynd að vera er This Gun For Hire í háum gæða- flokki, virkilega spennandi og vel leikin. Handritiö er einnig vel skrif- aö. Það er helst í lokin aö leikstjór- inn missir aðeins tökin á atburða- rásinni en ekki það mikið að það komi að sök. -HK ★ Vz Afturgengin brúða CHILD’S PLAY 2 Útgelandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: John Lafia. Aðalhlutverk: Alex Vincent, Jenny Ag- utter og Gerrit Graham. Bandarisk, 1990 - sýningartími 87 min. Bönnuð börnum innan 16 ára. Ekki vissi ég betur en að hin morðóða dúkka, Chucky, hefði orð- ið að engu í bardaganum við Andy litla í Child’s Play en af einhverjum ástæðum hefur henni verið tjöslað saman svo hægt sé að gera Child’s Play 2 og mjólka þar með hryllings- þyrstan markaðinn. Chucky er sem sagt kominn á kreik aftur og er grimmari en nokkru sinni fyrr auk þess sem hann er farinn að tala mikið og eigna sér ýmsa frasa sem þekkjast úr kvikmyndum. Sem fyrr eltir hann Andy vegna þess að hann var sá fyrsti sem varð á vegi Chucky eftir að sál flöldamorðingja hafði komið sér fyrir í holóttum maga brúðunnar, en eina leiðin fyrir sál morðingjans til að koma sér yfir í mannslíkama er í gegnum Andy... í heild er Child’s Play ekki mikið fyrir augað. Það er helst lokaatriðiö í brúöuverksmiðjunni sem gerir myndina þolanlega. -HK ★ 'A I ★ */2 Þyrlurgegneitri FIRE BIRDS Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: David Green. Aðalhlutverk: Nicholas Cage, Tommy Lee Jones og Sean Young. Bandarisk, 1990 - sýningartimi 85 mín. Leyfö öllum aldurshópum. í byrjun Fire Birds fylgjumst við með loftbardaga í Suður-Ameríku milli herþyrlna og hefur þyrla eit- urlyflasmyglaranna betur. Þessa smán þolir bandaríski herinn ekki og stofnar hersveit sem ætlað er að fljúgja til Kólumbíu og herja á eiturlyflasmyglurum. Inn í þennan söguþráð fléttast svo rómantík, af- brýðisemi og hugrekki, góð blanda þegar vel er gert. Það er því miður ekki raunin með Fire Birds. Fire Birds skartar af góðum leik- urum á borð við Nicholas Cage og Tommy Lee Jones og þó þeir hafl áður verið betri þá gera þeir hlut- verkunum eins góð skil og hægt er en Sean Young er alveg úti á þekju í hlutverki þyrluflugmanns. Meira að segja flugsenurnar eru ekki bet- ur geröar en svo að manni finnst ávallt að verið sé að sýna sama atr- iöið. -HK Óvinur númer 1 DILLINGER Útgefandi: Steinar hf. Lelkstjóri: Rupert Wainwright. Aöalhlutverk: Mark Harmon, Sherlyn Fenn og Will Patton. Bandarísk, 1990 - sýnir.garfími 91 mln. Bönnuö börnum innan 16 ára. Dillinger stendur undir nafni sem spennumynd en er samt meingöll- uö. Hún lýsir flórtán mánuðum í lífi Johns Dillingers sem á sínum tíma var óvinur númer 1 í Banda- ríkjunum. Eins og tíðkast í mafíu- myndum sem gerast eiga á flórða áratugnum er vélbyssan í aðalhlut- verki og áhorfandinn fær fretið í henni á fimm mínútna fresti. Reynt er að gefa til kynna að það hafi nánast verið aðstæðurnar sem skópu glæpakónginn en ekki hans illa eðli enda segir myndin okkur að hann hafl fyrst og fremst verið bankaræningi en ekki moröingi. Þessu á maöur dálítið erfltt með að kyngja. Hvað um það, helsti galli Diflinger er hversu áferðarfalleg hún er. Maður hefur alltaf á tilfinn- ingunni að allir þessir flallmyndar- legu menn séu skólapiltar að leik í sumarfríi en ekki kaldriflaðir ræn- injar sem myrða „óvart“. -HK ★★★ Mikil spenna í stóru húsi Drake (Matthew Modine) og Patty (Melanie Griffith) fyrir framan húsið glæsilega. PACIFIC HIGHTS Útgefandi: Kvikmynd. Leikstjóri: John Schlesinger. Aöalhlutverk: Melanie Griffith, Matthew Modine og Michael Keaton. Bandarisk, 1990-sýningartimi 99 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. Það er orðinn nokkuð langur tími síðan John Schlesinger hefur leik- stýrt spennumynd. Þessi ágæti breski leikstjóri, sem á að baki ósk- arsverðlaunamyndirnar Darling og Midnight Cowboy, hefur áður gert einn mjög góðan þriller, Mara- thon Man og með Pacific Heights sannar hann að fáir standa honum á sporði í gerð slíkra niynda. í Pacific Hights kynnumst við ungu pari, Patty og Drake sem ákveða að flárfesta í stóru húsi og leigja síðan tvær íbúðir út til að flármagna kaupin. Allt gengur vel með aðra íbúðina sem japönsk hjón leigja. Hin íbúðin er leigð Carter Hayes sem er maður sem kemur vel fyrir í fyrstu og býðst til að borga fyrirfram. Fljótlega fer þau þó að gruna að ekki sé aflt sem sýnist með nýja leigjandann. Peningarnir, sem áttu að koma inn á reikning, koma ekki, skipt er.um lás á hurðinni inn til hans, dularfull hamarshögg heyr- ast á nóttunni og fríður flokkur kakkalakka gerir innrás úr íbúð- inni til japönsku hjónanna sem fá brátt nóg og flýja húsið. Þetta er aðeins byrjunin á miklum óhugn- aði sem Patty og Drake verða fyrir í samskiptum sínum við Carter Hayes. Pacific Heights er virkilega spennandi kvikmynd þar sem í raun aðeins þrjár persónur skipta máli, húsráðendur og leigjandi. í allri spennunni kemur einnig fram að sá sem leigir er langt í frá að vera réttlaus gagnvart lögunum þótt hann borgi ekki. Sést það með- al annars þegar Drake lemur leigj- anda sinn duglega, enda orðinn taugahrúga á viðskiptunum við hann, þá er það hann sém er dæmd- ur og meira að segja gert að koma ekki nálægt húseign sinni. Það þekkja sjálfsagt flestir Mic- hael Keaton sem gamanleikara enda eru þekktustu kvikmyndir hans, Batman og Beetlejuice, í létt- ari kantinum, en þeir sem sáu hann leika alkóhólistann í Clean and Sober sáu að hann réð vel við lúð alvarlega hlutverk og í Pacific Heights nær hann mjög góðum tök- ■um á Carter Hays sem bæði getur verið sjarmerandi og ótrúlega ill- vígur. Melanie Griffith og Matthew Modine komast einnig ágætlega frá hlutverkum sínum. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.