Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1991, Qupperneq 15
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1991. 15 Jónog séra Jón Vikan sem leið fór að mestu í að fylgjast með skondinni togstreitu innan stjórnarliðsins um skóla- gjöld. Fjölmiðlar brugðu upp svip- myndum af náttlöngum fundum og íbyggnum ráðherrum sem ýmist voru búnir að höggva á hnútinn eða herða hann og svo var að skilja að fjárlagafrumvarpið stæði og félli með því hvort veslings námsfólkið greiddi skólagjöld til að rétta fjár- hag ríkisins við. Reyndar haföi ætlunin verið að hafa námsmenn í samfloti með sjúklingum en sjúkrahúsagjöldin „duttu“ þó snemma út af borði ráðherranna vegna þess að lasið fólk á spítulum er ekki beinlínis árennilegustu fórnarlömb innheimtumanna þótt þau liggi óneitanlega vel við höggi, varnarlaus á sjúkrabeðunum. En skólagjöldin voru lífseigari í fjárlagarammanum og það var greinilega einlægur ásetningur ráðamanna þjóðarinnar að koma því máh í höfn. Meira að segja tók formaður Alþýðuflokksins það sér- staklega að sér að reka þessa gjald- töku ofan í kokið á sínum eigin flokksmönnum sem hafa í sakleysi sínu staðið í þeirri trú að jafnaðar- stefnan gengi út á það að nám og menntun væru ókeypis mannrétt- indi. Eitthvað gekk sá erindrekstur treglega fyrir sig, enda þarf víst meira en eitt haustkvöld til að koma gömlum krötum í skilning um þá fijálshyggju að skólagangan eigi að ráðast af efnahag. Og það eru fleiri en blessaðir kratarnir sem hafa alist upp i þeirri barnatrú að skattar væru til þess að standa undir grundvaharþörf- um velferðarinnar, heilsugæslu og menntakerfl. Meira að segja gah- harðir sjálfstæðismenn hafa veriö svo vitlausir að halda að nemendur þurfi ekki að borga með sér þegar þeir setjast á skólabekk. Sú tíund sé greidd með sköttunum. Sú skoðun heyrðist að vísu aldrei opinberlega úr hópi þeirra sjálf- stæðismanna sem sitja á þingi en það er sjálfsagt vegna þess að þing- flokkurinn telur sig bera meiri ábyrgð á sjóðum hins opinbera heldur en sjóðum heimilanna. Enda er nýjasta kenningin sú að skattar og þjónustugjöld séu sitt hvað. Samkvæmt þeirri kenningu ætlar ríkisstjómin að leggja þrjá milljarða króna á þjóðina í nýjum álögum sem ekki teljast skattar. Þar á meðal er það orðið hey í þeim harðindum að nemendur séu ekki of góðir að borga fyrir þann lúxus að setjast á skólabekk. Magalending En einmitt þegar deilan hjá kröt- unum stóð sem hæst og eldglæring- arnar stóðu út úr henni Jóhönnu af heilagri reiði mætti sjálfur for- maðurinn í flokknum hennar og lýsti þvi yfir að tilgangurinn með skólagjaldahugmyndinni væri sá að lækka skólagjöldin! Ríkið ætlaði sem sé að innheimta hundraö millj- ón krónum minna í ár en það gerði í fyrra. í fyrstu hélt maöur að þetta væri grín. Var ekki ríkisstjórnin aö leggja til að skólagjöld væru inn- heimt til að auka tekjur ríkissjóðs? Var ekki gamla kratagengið á móti skólagjöldum af því að þau myndu leggjast þungt á nemendur? Og svo kom allt í einu í ljós að báðir aðilar höfðu háð þessa rimmu með öfug- um formerkjum. Skólagjöldin höfðu verið innheimt án þess að menn tækju eftir því og ríkisstjórn- in ætlaði meira að segja að lækka þau. Mótmælendur setti hljóða og máhð rann í gegn. Þetta er ein sérkennilegasta magalending sem maður hefur orö- ið vitni að í pólitíkinni. Niðurstaða málsins er sú að ríkið ætlar að innheimta skólagjald - átta þúsund krónur á framhalds- skólanema og sautján þúsund á háskólanema. Það er sagt að sú innheimta sé svipuð og í fyrra. En þá er ekki gert ráð fyrir að þetta fé renni að neinu leyti til nemenda- félaga eða félagsstarfs innan skól- ans sem þýðir að nokkur þúsund krónur munu bætast við gjaldtöku skólanna á hvem nemenda. Það sem skiptir mestu máli í þessu sambandi er hins vegar sú staðreynd að skólagjöld til reksturs skólanna hafa verið ákveðin og það jafnvel þótt vafasamt sé að laga- heimild sé fyrir þeirri gjaldtöku. Hér er það ekki upphæðin sem öllu skiptir heldur prinsippið. Öllum er ljóst að skattur, þjónustugjald eða hvaða nöfnum sem það nefnist tek- ur hækkunum frá ári til árs. Áður en við vitum af eru skólagjöld kom- in í þær stærðargráður að um þau munar. „Þá geta þau orðið veruleg hindrun fyrir efnaminni náms- menn og barnmargar fjölskyldur," sagði nýkjörinn rektor Háskólans þegar hann tók við embættinu. Salernisþjónustu- gjöld Það er auðvitað söguleg stund þegar íslendingar stíga það skref að krefja nemendur um aðgangs- eyri að skólum. Þá verður skammt í það að ungt fólk hverfur frá námi af því að það telur sig ekki hafa efni á því. Og þá verður skammt í það að Háskóli íslands veröi einka- skóli hinna ríku. Það er varla við því að búast að þingmenn, sem aðhyllast frjáls- hyggjuskoðanir, amist við þgssari Laugardags- pistill Ellert B. Schram stefnubreytingu, en ekki átti mað- ur von á því að kratarnir í Alþýðu- flokknum og skoðanabræður mínir í Sjálfstæðisflokknum kyngdu þessum mannréttindum með jafn- góðri lyst. Jóhanna Sigurðardóttir hætti meira að segja að vera reið og verslaði undir lokin með skóla- gjöldin til aö fá eitthvað annað í staðinn sem er svo mikiö leyndó að hún getur ekki einu sinni sagt frá því sjálf. Þetta írafár með þjónustugjöldin smitar út frá sér. Nefnd, sem hefur það gamansama verkefni að leysa fortíðarvanda, hefur skilað áhti um Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þar sit- ur í forsæti Hreinn Loftsson, að- stoðarmaður forsætisráðherra, sem ég man ekki betur en hafi ver- ið aðstoðarmaður fyrir annan ráð- herra þegar flugstöðin var byggð. Það er vitaskuld ekki hægt annað en dást að þeirri hugvitssemi að setja þá menn í vandamálanefndir sem sátu á valdastólum þegar vandamálin urðu til. Þessi nefnd vill leysa fortíðar- vandann á Keflavíkurflugvelli með því að hækka lendingargjöld, hækka flugvallarskatt, hækka inn- ritunargjöld og taka þjónustugjöld af bílastæðunum í kringum flug- stöðina. Fólk ræður því auðvitað sjálft hvort það vill feröast og fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli og þess vegna heita þetta þjónustugjöld en ekki skattar og brátt kemur aö því að ahs kyns fortíðarvandi hér og hvar í umhverfmu neyðir stjórn- völd til að setja þjónustugjald á há. sem leyfa sér að skreppa á salern- ið! Fólk ræður því jú hvort þaö gengur örna sinna eða ekki. Menningar- fulltrúinn Af öðrum athyglisverðum frétt- um vikunnar er mér ennþá ofar- lega í huga fréttatilkynningin úr utanríkisráðuneytinu að kunnur stuðmaður, að nafni Jakob Frí- mann Magnússon, hefði verið ráö- inn sem menningarfulltrúi íslend- inga með aðsetri í London. Þetta mun splunkunýtt embætti og kost- ar ekki nema nokkur hundruð skólagjöld. Fréttin birtist um sama leyti og ríkisstjórnin var í miðjum niðurskurðarumræðum sínum og væri svo sem ekki í frásögur fær- andi nema sem háðsmerki ef annað kæmi ekki til. Ef ég man rétt gekk þessi sami Jakob í Alþýðuflökkinn fyrir nokkrum misserum og stóð sig vel sem veislustjóri á kosningaböllum í vor. Einhvers staðar hef ég líka séð aö kona hans hyggur á söng- nám í London í vetur og næstu árin. Þetta hefur svona flogiö fyrir af því að sífellt er venð að skýra frá æviferli þekktra íslendinga í poppinu og skemmtibransanum. Mikið ansans ári var það skemmtileg tilviljun að Jakob skyldi akkúrat vera genginn í Al- þýðuflokkinn þegar ráða þurfti menningarfulltrúa til utanfarar. Mikil slembilukka er það að hann skyldi vera á lausu, einmitt þegar konan hans er á förum til útlanda, og það hlýtur að vera mesta tilvilj- unin ahra tilviljana að kona Jakobs skuh einmitt vera að læra í Lon- don, á nákvæmlega sama stað og Jakob gegnir starfi sínu sem menn- ingarfulltrúi. Svona getur lánið stundum leikið við sumt frægt fólk meðan aðrir óbreyttir verða að bíta í það súra epli að sitja uppi með skólagjöld og námslán og jafnvel konulausir meðan á náminu stend- ur. Það borgar sig stundum að ganga í flokka. Nú, eöa eiga góða að. Það er munur á Jóni og séra Jóni. Sovétúrsögunni En víkjum að öðru. Sögulegustu tíðindi vikunnar eru sá heimssögu- legi atburður austur í Moskvu að Sovétríkin eru lögð niður. Og það með handauppréttingu. Hver skyldi hafa trúaö því? Hver átti von á því að lifa þann atburð? Ekki ég. Þetta er verk Gorbatsjovs öörum fremur. Hann leysti Sovétríkin úr álögum. Kannski eru dagar hans senn taldir sem forseta. Kannski er hlutverki hans lokið. En eftir stendur sá minnisvarði að það var hann sem leysti fólkið úr læðingi, stóð fyrir perestrojku og glasnost, gaf leppríkjunum frelsi, samdi um afvopnun, bauð harðlínumönnun- um birginn. Gorbatsjov er minn maður. Stundum hefur hann verið gagn- rýndur fyrir að vera beggja handa járn. Hann tvísté, talaði tungum tveim og valdi sjálfur til æöstu embætta þá menn sem síöan sviku hann í valdaráninu. En eftir á að hyggja er manni spurn hvort skipbrot kommúnism- ans hafi nokkru sinni verið mögu- legt nema með því að róa á báðar hendur; nema með því að leika einn leik í einu og fara bil beggja. Sjáið þið skriðdrekana á götunum, sjáið þið hagsmunina sem eru í húfi þegr ar lítil klíka tekur þann kostinn að hrifsa völdin og skjóta sig ella. Og tókuð þiö eftir heiftinni í augunum á almúganum þegar Vcddaráns- mennirnir og forsprakkar komm- únista voru leiddir í gegnum mann- þröngina? Mér kom franska stjórn- arbyltingin í hug þegar skríllinn gekk berserksgang og leiddi yfir- stéttina á höggstokkinn við trumbuslátt og fagnaðarlæti. Það var sams konar hugur í fólkinu í Moskvu þegar það sá yfirstétt sína síðastliðin sjötíu ár ganga niður- lúta á móts viö örlög sín. Vonandi hefjast engar nornaveið- ar í Sovétríkjunum. Það gleðileg- asta og manneskjulegasta við breytingarnar í Austur-Evrópu er sú staðreynd að fyrrum kommún- istaforingjar eru látnir eiga sig. Þeir eru látnir eiga sína skömm í friði. Enda þarf lýðræðið ekki á neinni hefnd að halda. Það sem skiptir máli fyrir fólkið austur þar er framtíðin. Ekki fortíðin. Hún er að baki og kemur aldrei aftur. Fort- íðarvandinn tilheyrir fortiðinni. Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.